Færsluflokkur: Bloggar
Loks vottar fyrir lausnum
15.11.2008 | 01:09
Það var tími til kominn að ráðamenn þjóðarinnar færu að boða lausnir en ekki aðeins vandamál. Þið fyrirgefið, en mér sýnist það vera að gerast samhliða því að Ingibjörg Sólrún kemur inn á ríkissjónarvettvanginn á ný eftir veikindi sín. Hún skrapp í vinnuna fyrr í vikunni, og skar þá niður útgjöld í utanríkisráðuneytinu um tvo milljarða. Kom svo aftur einum eða tveimur dögum síðar og lagði upp áætlun um að bjarga Iceasave deilunni. Í dag er svo kynnt aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar til að létta undir með heimilum landsins.
Nei, ég segi nú svona - þetta er kannski ekki alveg sanngjarnt. Auðvitað hlýtur fjöldi manns að hafa verið að vinna að þessu öllu saman vikum saman. Það hefur bara ekkert gengið einhvern veginn - og Geir er farinn að sýna þreytumerki.
Annars var athyglisvert að hlusta á Björgólf Guðmundsson í Kastljósinu í gærkvöld. Þar hélt hann því fram fullum fetum að Landsbankinn hefði átt fyrir skuldum á Mikjálsmessu, þann 29. september. Það mátti skilja á honum að í raun hafi bankinn verið lagður á hliðina af Seðlabankanum - af því að Seðlabankinn hafi ekki sinnt um að hafa nægan gjaldeyrisforða og því ekki getað komið bankanum til hjálpar, eins og farsælast hefði verið. Að vísu lét Björgólfur þess ógetið að í reynd voru bankarnir löngu vaxnir Seðlabankanum yfir höfuð og hann ekki þess megnugur að hjálpa þeim neitt þegar á reyndi. En það vissu menn auðvitað fyrir löngu ... þeir gerðu bara ekkert í því.
Þannig að ekki jókst hróður Davíðs Oddssonar við þetta viðtal - það verður bara að segjast eins og er.
Það er eiginlega að verða vandræðalegt að yfirstjórn Seðlabankans skuli ekki hafa sagt af sér. Það ætti hún að gera. Sömuleiðis yfirstjórn Fjármálaeftirlitsins - eins og ég hef marg sagt - að ekki sé talað um skuldbreytingaliðið í bönkunum. Burt með spillingarliðið!
Hef ég þá lokið máli mínu að sinni.
Ný greiðslujöfnunarvísitala tekin upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Bréfið til Valgerðar
12.11.2008 | 14:26
Bréfið til Valgerðar Sverrisdóttur sem varð Bjarna Harðarsyni svo afdrifaríkt lýsir sárum vonbrigðum tveggja Framsóknarmanna með framgöngu Valgerðar á ráðherrastóli og það hvernig flokkinn hefur borið af leið í mikilvægum málum - ekki síst varðandi einkavæðingu ríkisfyrirtækja. Bréfið fer hér á eftir:
Heil og sæl Valgerður, þú varst ögn önug út í okkur flokksbræður þína yfir því að við minntum á, í bréfi 9. okt. s.l.að í þinni ráðherratíð sem viðskiptaráðherra voru bankarnir einkavæddir.
Það verður þó varla fram hjá því litið að á því ferli öllu berð þú mikla ábyrgð ásamt því regluverki sem bönkunum var ætlað að starfa eftir. Og minnast má þess að lengi vel var það stefna Framsóknarflokksins að selja ekki bankana og als ekki Símann og margir framsóknarmenn munu enn vera á þeirri skoðun. Nú er úti ævintýr og bankarnir komnir aftur í þjóðareign. Nauðsynlegt er að spyrja hvað hefur þjóðin haft upp úr sölu bankanna og hvað mun hún kosta hana? Fyrireinkavæðingu var þjóðin talin með ríkustu þjóðum í heimi. Þjóðartekjur á mann með því besta sem þekktist. Þegnarnir yfirleitt efnahagslega sjálfstæðir og lífskjör hvergi jafnari en hér á landi. Ofurlaun þekktust ekki. Hvernig er svo ástandið í dag, sem einkavæðingin skilur eftir? Allir bankarnirkomnir í þrot. Af eljusemi og dugnaði höfðu þeir safnað erlendum skuldum er nema tólf til þrettán faldri ársframleiðslu þjóðarinnar. Allt sparifé okkar, sem var í vörslu þeirra var í uppnámi. Setja varð neyðarlög að næturlagi til þess að tryggja spariféð og eðlileg bankaviðskipti í landinu. Mörg hundruð miljarða skuldabaggi er lagður á íslenska þjóð. Okkur finnsta því að þú mættir gjarnan hugleið hvaða áhrif þinn félagslegi og pólitíski framgangur hefur haft fyrir þjóðina og Framsóknarflokkinn. Og hvað um KEA og SÍS? Spyrja má hversu mikið landsbyggðin hefur liðið fyrir hrun Samvinnuhreyfingarinnar.
Síður en svo ætlum við þér alla ábyrgð á einkavæðingunni og afleiðingum hennar þótt þú kæmir þar verulega við sögu og margir bera ábyrgð á þróun samvinnumála hér á landi. Framsóknarflokkurinn átti sinn góða þátt í uppbyggingu þess samfélags, sem hér náði að þróast á öldinni sem leið. Það samfélag byggði á blönduðu hagkerfi, sem hafnaði öfgum kapitalisma, sem boðaði að markaðurinn ætti að ráða öllu í heimi hér, jafnt og alræðissósíalisma var hafnað. Með formensku Halldórs Ásgrímssonar hefst raunasaga Flokksins, sem endaði með fylgishruni. Halldór klifaði látlaust á því að breyta þyrfti stefnu Flokksins. Hann skipaði framtíðarnefnd. Jón Sigurðsson var ,,kallaður til þess að hafa umsjón meðþessari stefnumótun, ásamt Sigurði Einarssyni og Bjarna Ármannssyni, sem afþakkaði reyndar þetta boð.
Í þessari nýju stefnu fólst m.a. þetta:
- Í stað þess að standa vörð um sjálftæði Íslands og fullveldi átti að gangastundir ESB- valdið í Brussel.
- Í stað hins blandaða hagkerfis skyldi innleiða ,,frjálst markaðhagkerfi líkt og í Bandaríkjunum og ESB.
- Ísland átti að verða ,,alþjóðleg fjármálamiðstöð og skattaparadís.
- Frjáls innflutningur á landbúnaðarvörum, átti að vera forsend þess að flokkurinn næði fylgi í þéttbýlinu.
Allt var þetta í algjöri andstöðu við þau lífsviðhorf og gildismat þess fólks sem Flokkurinn sótti fylgi sitt til. Enginn studdi Halldór formann og þessa nýju stefnu afmeiri alúð en þú, að okkur finnst. Þótt annar hver kjósandi hafi yfirgefið Flokkinn heldur þú áfram á braut, sem leiddi hrun yfir Flokkinn og hörmung yfir þjóðina. Ástandið hefði þó verið sínu verra ef vilji ykkar Halldórs og fyrirmæli um að leggja Íbúðarlánasjóð undir bankanna hefðu ekki verið hundsuð af ágætum flokksbræðrum okkar, Árna Magnússyni, Magnúsi Stefánssyni og Guðmundi Bjarnasyni. Enda nutu þeir, að við höldum, stuðnings annarra þingmanna Flokksins. Þú innleiddir tilskipun ESB um raforkumál, sem kostar fólkið í landinu hundruð miljóna á ári hverju. Og þú orðaðir það svo fallega að þetta gæti verið fyrsta skrefið í einkavæðingu orkugeirans. Og nú rekur þú áróður sem mest þú getur fyrir aðild að ESB og reynir að fiska málinu fylgi í gruggugu vatni svo ekki sé meira sagt. Því til viðbótar hefur þú og sumir af þínum fylgismönnum talað niður gjaldmiðil hagkerfisins, nokkuð sem er mjög alvarlegt mál. Þá viljum við lýsa undrun og óánægju okkar yfir framgöngu þinni gagnvart sitjandi formanni Framsóknarflokksins. Við munum ekki annað eins.
Með framsóknarkveðju.
Gunnar Oddsson Flatatungu 560 Varmahlíð.
Sigtryggur Jón Björnsson Birkimel 11 560 Varmahlíð.
Svo mörg voru þau orð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Bjarna-greiði við Valgerði. Burt með spillingarliðið.
11.11.2008 | 11:10
Þegar ég var ungur blaðamaður á NT vann ég með skemmtilegum og sérstæðum jafnaldra, Bjarna Harðarsyni að nafni - Sunnlendingi og sveitastrák að upplagi. Okkur varð vel til vina og brölluðum ýmislegt á þessum fyrstu blaðamennskuárum sem voru skemmtilegur tími. Bjarni var og er góðhjartaður maður, svolítið glíminn og fljótfær, en ég hef aldrei efast um góðvild hans og samstöðu með lítilmagnanum.
Í ljósi þessara kynna, kemur mér ekki á óvart að Bjarni skuli nú hafa sagt af sér þingmennsku og axlað þar með ábyrgð á misgjörðum sínum. Honum varð á í hita leiksins. Hann braut á öðrum leikmanni og fer nú af vellinum. Það er honum líkt að taka eigin mistökum eins og maður.
Nú, þegar Bjarni er vikinn úr vegi - er kannski hægt að fara að líta á efni þessa bréfs til Valgerðar Sverrisdóttur, sem hratt atburðarásinni af stað. Sannleikurinn er sá að sú gagnrýni sem þar kemur fram á fullan rétt á sér, og er allrar athygli verð.
Bjarna óska ég velfarnaðar í framtíðinni - ég yrði ekki hissa þótt hann léti að sér kveða á opinberum vettvangi síðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Misræmi í upplýsingum ráðherra - og: Burt með spillingarliðið!
10.11.2008 | 12:39
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hefur ekki gert hreint fyrir sínum dyrum varðandi aðkomu hennar og eiginmanns hennar að viðskiptum með hlutabréf í Kaupþingi og ráðstöfun skulda í framhaldi af því.
Ráðherrann sagði fyrir fáum dögum að það væri óþolandi fyrir sig og sinn mann að efasemdir væru uppi um stöðu þeirra í þessu máli. Ég er sammála ráðherranum um þetta. Þess vegna verður hún að gera hreint fyrir sínum dyrum - og satt að segja er ég undrandi á fjölmiðlum að ganga ekki harðar fram í því að upplýsa um aðkomu ráðherrahjónanna að hinum umdeildu hlutafjárvipskiptum stjórnenda Kaupþings. Fréttir herma að þau hjónin hafi keypt hlutabréf fyrir um hálfan milljarð króna.
Fram hefur komið að Kristján Arason, eiginmaður ráðherra, stofnaði einkafélag fyrr á þessu ári og að kaup hans á hlut í Kaupþingi áttu sér stað í gegnum það félag. Ráðherrann segir "langt síðan" félagið var stofnað (sjá hér). Þó er ekki lengra síðan en í febrúar síðastliðnum (sjá hér).
Menntamálaráðherrann segir að þau hjónin hafi sett allan sinn "sparnað" í félagið. Hún upplýsir ekki hvaða sparnað er þar um að ræða - og það sem mér finnst áhyggjuefni, hún er ekki spurð af fjölmiðlum. Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður hefur að vísu hreyft þessu máli í þinginu (sjá hér), en svör hafa ekki fengist enn. Í blaðaviðtölum er ýmist ýjað að því að þau hjónin hafi keypt hlutabréf fyrir sparnað sinn (sem þau hafi tapað - sjá hér ) eða þau hafi tekið lán sem ekki hafi verið "strokað út" eins og það er orðað (sjá hér). Upplýsingarnar eru misvísandi.
Nú er vitað, að ákveðnir stjórnendur í Kaupþingi fóru þá leið að stofna félög sem önnuðustu kaupin á hlutabréfum í bankanum. Með því móti gátu þeir hirt gróðann af bréfunum - hefði hann orðið einhver - en látið félagið sitja uppi með skuldirnar ef bréfin hefðu orðið verðlaus. Ekki verður annað séð en að félagið sem Kristján Arason, eiginmaður ráðherra, stofnaði, hafi einmitt verið sett á laggirnar í þessu skyni. Að minnsta kosti var hann "fámáll" um tilgang og starfsemi félagsins, þegar það var stofnað fyrr á þessu ári (sjá hér).
Menntamálaráðherra segir í fyrrgreindum fréttaviðtölum að nú verði allir að gera hreint fyrir sínum dyrum. Það er rétt.
Gott væri ef menntamálaráðherra gengi þá á undan með góðu fordæmi og skýrði misræmið í þeim upplýsingum sem hún sjálf hefur veitt og leggði þar með "allt upp á borðið" svo notuð séu hennar eigin orð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Rétt skal vera rétt ... og burt með spillingarliðið!
8.11.2008 | 22:28
Sagan um að Sigurjón Árnason fv. Landsbankastjóri hafi verið að stöfum í bankanum þar til í þessari viku mun ekki eiga við rök að styðjast. Mér er ljúft og skylt að koma þessu áleiðis hér, þar sem í færslunni hér á undan er vísað til fregna um að Sigurjón Árnason og Halldór J. Kristjánsson hefðu báðir haldið áfram að starfa í bankanum þar til nýlega. Nú hefur þetta verið borið til baka af Viðskiptaráðuneytinu, eins og fram kemur á eyjunni.
Rót þessara "fregna" er m.a. tölvupóstur sem gekk á netinu fyrir helgi um að Sigurjón væri enn allt í öllu í Landsbankanum, hann legði bílnum í sitt gamla bankastjórastæði og hefði sérinnréttaða skrifstofu á efri hæð Reykjavíkurapóteks. "Fréttin" varð höfð eftir starfsmanni í bankanum sem "blöskraði" þetta ástand og "gat ekki orða bundist". Orðalag og yfirbragð var mjög trúverðugt, en málið var fyrst tekið upp í Orðinu á götunni og flaug þaðan eins og eldur um sinu.
Þá vitum við það .... en það er afleitt þegar óstaðfestar sögusagnir fá byr undir báða vængi í ástandi sem þessu þar sem tilfinningaútrásin er tekin við af bankaútrásinni.
Það breytir ekki hinu, að fjöldi starfsmanna og millistjórnenda gömlu bankanna er enn að störfum í nýju bönkunum og gegna þar margir hverjir lykilhlutverki.
Og enn og aftur árétta ég það sem ég hef áður sagt, að það þarf að gera þetta mál upp, hreinsa spillinguna út úr bönkunum og stjórnkerfinu.
Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
Gerendur enn á vettvangi - Burt með spillingarliðið!
7.11.2008 | 12:49
Fyrir fáum dögum spurðist það út að Sigurjón Árnason fyrrum Landsbankastjóri væri enn að störfum í bankanum á nýrri skrifstofu sem hafi verið sérstaklega innréttuð fyrir hann. Þangað mætti hann til starfa, lagði í sitt gamla bankastjórastæði, og ráðskaðist um eins og ekkert hefði í skorist. Halldór J. Kristjánsson mun líka hafa verið að störfum, þar til í gær - að þeir félagar ákváðu að hætta, eftir að umræða spannst í fjölmiðlum um þetta fyrirkomulag.
Á sama tíma heyrir maður frá því sagt í útvarpinu að almennt starfsfólk hafi verið að fá tafarlausar uppsagnir, það orðið að yfirgefa vinnustað sinn samstundis í fylgd einkennisklæddra öryggisvarða, svipt farsímanum og lykilorðinu að tölvunni. Er svo hart fram gengið gegn sumum að vinnusálfræðingar sjá ástæðu til að koma í útvarp og biðja vinnuveitendur að sýna örlitla tillitssemi við uppsagnir á starfsfólki.
Hmmm .... en gömlu stjórnendur bankanna - þessir sem bera ábyrgð á því hvernig komið er - þeir hafa setið vikum saman í ráðgjafastörfum fyrir nýju bankana, í sérinnréttuðum skrifstofum, jafnvel með mannaforráð. Það virðist ekki hafa hvarflað að neinum að svipta þá lykilorði að tölvunum - hvað þá heldur fríðindum á borð við sérmerkt bílastæði, farsíma og fleira. Hmmm .... það lá víst ekkert á að koma þeim út úr húsi. Og á meðan leið tíminn - engin rannsókn hafin - allt í vandræðagangi.
Hvaða áhrif halda menn að það hafi á rannsóknavettvanginn að þeir sem verða sjálfir til rannsóknar skuli geta athafnað sig þar svo vikum skiptir? Nú er ég ekki að fullyrða að gömlu stjórnendurnir séu að spilla rannsóknagögnum í bönkunum - ég bara bendi á þeir eru í góðri aðstöðu til þess sumir hverjir. Möguleikinn er augljós.
Í raun snýst þetta ekkert um það hvort maður heldur að þeir sem í hlut eiga séu heiðarlegt fólk. Málið snýst miklu heldur um það hvort vera þeirra í námunda við vettvanginn er eðlileg. Á sama hátt og vanhæfi einstaklinga snýst ekki um artir þeirra eða innræti - heldur hitt hvort málsmeðferðin sjálf er hafin yfir efasemdir um hlutleysi og fagmennsku í vinnubrögðum: Að ekki sé um að ræða tengsl milli rannsóknaraðila og þess sem rannsakaður er, hvað þá heldur aðgengi meintra gerenda að sjálfum rannsóknavettvanginum og þeim gögnum sem rannsaka þarf. Kristinn H. Gunnarsson hefur rökstutt þetta ágætlega í grein sem hann skrifaði í vikunni um vanhæfi menntamálaráðherra í þessu máli (sjá hér).
Það er nefnilega rangt hjá dómsmálaráðherra að umræða um vanhæfi Valtýs Sigurðssonar og Boga Nilssonar hafi verið aðför að heiðri þessara tveggja manna (hann hélt þessu fram í sjónvarpsfréttum í gær). Umræðan um vanhæfi Valtýs og Boga snerist um vinnubrögð, ekki menn. Hún snerist um tengsl þessara manna við viðfangsefnið en ekki persónur þeirra. Leitt að dómsmálaráðherrann skuli ekki sjálfur gera þennan greinarmun.
Ég hefði að óreyndu búist við að stjórnvöld og löggæsluyfirvöld yrðu betur á verði gagnvart rannsóknahagsmunum vegna bankahrunsins - það er jú þeirra að gæta hagsmuna almennings í þessu - vernda almenning. Dómsmálaráðherra sagði í fréttum í gær að það yrðu að berast kærur frá almenningi til að hægt væri að rannsaka mál.
En hverjir eru fulltrúar almennings? Eru það ekki þeir stjórnmálamenn sem kosnir eru af þjóðinni hverju sinni - þingmennirnir í umboði almennings og ríkisstjórnin í umboð þingsins? Hefur Björn Bjarnason ekki sitt umboð frá almenningi? Það er nóg komið af hundakúnstum. Skipið óháða rannsóknanefnd í þetta mál, strax. Og hreinsið rannsóknavettvanginn af þeim sem ollu tjóninu. Hreinsið bankana af gömlum stjórnendum - Seðlabankann þar með talinn og fjármálaeftirlitið. Víkið frá þeim ráðamönnum sem tóku þátt í ósómanum. Þetta þolir ekki lengri bið.
Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Notum málfrelsið: Burt með spillingarliðið!
5.11.2008 | 15:53
Hvað getum við gert? Spyr fólk hvert annað þessa dagana, agndofa yfir því ástandi sem skapast hefur í samfélaginu eftir bankahrunið. Agndofa yfir þeim upplýsingum sem berast um spillingu, misbeitingu valds og aðstöðu, meðvirkni, græðgi, óréttlæti ... ég gæti þulið hér upp langan lista.
Já, hvað getum við gert? Við höfum málfrelsi. Við getum notað það. Við eigum að nota það.
Fyrr í dag sendi ég bréf til bloggvina minna þar sem ég bið þá að sameinast í einni kröfu - kröfu sem verði aukasetning í öllum fyrirsögnum þeirra á blogginu nú á næstunni, og þeirra lokaorð - hvert svo sem efni bloggfærslnanna er að öðru leyti: Burt með spillingarliðið!
Þannig að þegar ráðamenn þjóðarinnar, fjölmiðlafólk og aðrir, koma inn á moggabloggið, visi.is, eyjuna eða önnur bloggsvæði, þá blasi krafan við þeim hvert sem litið er.
Ég hef gert þetta nú í þrjá daga og ætla að halda því áfram i anda Katós gamla, að minnsta kosti út vikuna. Mér er nóg boðið eins og ótal fleirum. Mér til gleði sé ég að ýmsir hafa farið að dæmi mínu í dag.
Vona ég að fleiri taki undir með okkur næstu daga:
Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
Ný von fyrir heiminn og: Burt með spillingarliðið!
5.11.2008 | 10:02
Kjör Baracks Obama í embætti forseta Bandaríkjanna gefur heiminum von um nýja tíma - nýjar áherslur og gildi. Ekki veitir af í harðindum heimsbyggðarinnar þessar vikur og mánuði. Með þessu kjöri hafa Bandaríkjamenn gert upp við stríðshörku, óheftan kapítalisma, kynþáttamisrétti og annan yfirgang. Þetta er þeirra leið til þess að leiðrétta kúrsinn. Og trúlega eru þetta meiri tíðindi fyrir Bandaríkin og heimsbyggðina alla en maður meðtekur í fljótu bragði.
Karl Th. Birgisson orðaði það afar vel í sjónvarpsumræðum í gær þegar hann dró upp tvær einfaldar myndir með orðum til að lýsa þessum tíðindum, og sagði eitthvað á þessa leið: Þegar bandaríska þjóðin fær að sjá Barack Obama sverja forsetaeiðinn - og verða vitni að því þegar þessar fallegu þeldökkur telpur hans hlaupa um ganga Hvíta hússins, af því þær eiga heima þar - þá hafa orðið mikil tíðindi hjá þessari þjóð.
Skyldum við Íslendingar bera gæfu til þess að gera viðlíka breytingar á okkar gildum? Eins og nú horfir virðast litlar líkur til þess. Því miður.
Ég ætla því að enda þetta spjall með sömu áskorun og síðustu tvo daga, um leið og ég skora á alla bloggara landsins að setja sambærilegt ákall inn á síður sínar, án tillits til umræðuefnisins, og láta ekki af áskorun sinni fyrr en eitthvert jákvætt skref verður tekið af ráðamönnum til að uppræta spillingu og endurvinna traust landsmanna:
Burt með stjórn Seðlabankans og bankastjórana þrjá. Burt með Fjármálaeftirlitið, stjórn þess og starfslið. Burt með alla þá starfsmenn bankanna sem þáðu eða ákváðu skuldahreinsun eða undanfæri fyrir útvalda. Burt með þá ráðamenn sem samþykktu ósómann með beinum eða óbeinum hætti, þögn eða aðgerðaleysi.
Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur!
Obama kjörinn forseti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Burt með spillingarliðið!
4.11.2008 | 22:45
Það mættu fleiri fara að dæmi Boga Nilssonar fyrrverandi ríkissaksóknara sem nú hefur horfið frá þátttöku í undirbúningi rannsóknar á starfsemi gömlu bankanna í aðdraganda hrunsins. Bogi segir réttilega í yfirlýsingu sinni að honum finnist hann ekki lengur njóta nægilegs almenns trausts til að sinna verkefninu. Gott hjá honum - og rétt.
Nú er spurningin hvort Valtýr Sigurðsson, ríkissaksóknari, hefur sambærilegar áhyggjur af trausti almennings á þeirri vinnu sem framundan er vegna rannsóknar málsins. Sonur Valtýs er forstjóri Exista, sem eins og allir vita hefur rík tengsl við Kaupþing eins og ég hef bloggað um áður.
Já, það mættu ýmsir taka sér til fyrirmyndar áhyggjur fyrrverandi ríkissaksóknara af trausti almennings á gjörðum þeirra og dómgreind.
Ef einhver manndómur væri í bankastjórum Seðlabankans og stjórnarmönnum, þá hefðu þeir allir farið að dæmi Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur sem sagði sig úr bankaráðinu og bað þjóðina afsökunar á hlutdeild bankans í fjármálahruninu. Hún er maður að meiri. En það virðist því miður ekki hvarfla að þessum mönnum að skapa frið um störf Seðlabankans og efla traust almennings á honum með því að víkja þaðan - enda stjórnarlaunin feitur biti og greidd af almenningi.
Ekki verður heldur sagt að traust ríki á Fjármálaeftirlitinu um þessar mundir. Síst eftir þá yfirlýsingu að það hafi ekki samþykkt "sérstaklega" skuldaniðurfellingar yfirmanna í bankakerfinu, eins og þeir orðuðu það. Þau orð verður hver að skilja sínum skilningi, en ég skil þau þannig að Fjármálaeftirlitið hafi vitað af því sem fram fór án þess að hafast frekar að. Nú á þetta sama fjármálaeftirlit að rannsaka málið.
Fólk treystir þessum mönnum ekki lengur - enda virðist vera sama hvar velt er við steinum, allstaðar blasa við okkur siðleysi, spilling, hagsmunatengsl eða vanhæfi - meðal annars í ráðherraliðinu eins og Kristinn H. Gunnarsson fjallar um á heimasíðu sinni í dag.
Þess vegna ætla ég að enda þessa færslu, og allar mínar færslur á næstunni, með sama hætti og í gær:
Burt með stjórn Seðlabankans og bankastjórana þrjá. Burt með Fjármálaeftirlitið, stjórn þess og starfslið. Burt með alla þá starfsmenn bankanna sem þáðu eða ákváðu skuldahreinsun eða undanfæri fyrir útvalda. Burt með þá ráðamenn sem samþykktu ósómann með beinum eða óbeinum hætti, þögn eða aðgerðaleysi.
Burt með spillingarliðið, hvar í flokki sem það stendur.
Bogi Nilsson hættir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
50 milljarða skuldahreinsun - leikhús fáránleikans!
3.11.2008 | 22:22
Í fréttum Stöðvar-2 í kvöld var fullyrt að síðustu dagana fyrir yfirtöku ríkisins á Kaupþingi hafi bankinn afskrifað 50 milljarða króna skuldir yfirmanna og valinna lykilstarfsmanna í bankanum, og forðað þeim þar með frá gjaldþroti vegna hlutafjárkaupa sem fjármögnuð voru með lánum. Við erum ekki að tala um 50 milljónir - ó, nei. Fimmtíu milljarðar - fimmtíu þúsund milljónir.
Ekki náðist í neinn af stjórnendum Kaupþings til að staðfesta þetta, en í yfirlýsingu sem kom frá bankanum fyrr í dag er fullyrt að öll viðskipti og kröfur gamla Kaupþings hafi fluzt yfir til Nýja Kaupþings og muni þar fá "eðlilega" meðferð. Þar er reynt að klóra yfir skítinn með hálfsannindum sem í raun eru ekkert annað en ósannindi.
Af sama toga er yfirlýsing Fjármálaeftirlitstins þar sem segir að "Fjármálaeftirlitið hafi ekki sérstaklega samþykkt niðurfellingu krafna sem tengjast lánveitingum til starfsmanna bankanna". Þeir samþykktu það ekki sérstaklega. Hvað skyldi það nú þýða? Annað hvort samþykkir maður eitthvað eða maður samþykkir það ekki. Það er hægt að samþykkja ólöglegt athæfi með aðgerðarleysi - Þögn er sama og samþykki segir máltækið. Yfirlýsing Fjármálaeftirlitsins er aumt yfirklór. Og nú er nóg komið af útúrsnúningum.
Sé það rétt að tilgangur skuldahreinsunarinnar hafi verið sá að tryggja þessum starfsmönnum vinnu í Nýja Kaupþingi - þar sem lög leyfa ekki að gjaldþrota fólk sé ráðið sem stjórnendur í ríkisbönkum - þá hljóta fleiri að hafa vitað af þessu en bankastjórnin. Það gefur auga leið.
Fjármálaeftirlitið verður að standa gleggri skil sinna gjörða. Sömuleiðis fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra. Vissu þeir af þessu, en létu það viðgangast?
Burt með þetta Fjármálaeftirlit - stjórn og starfslið þess. Burt með alla þá stjórnendur Kaupþings sem þáðu eða ákváðu skuldahreinsun fyrir útvalda. Burt með þá ráðamenn sem vissu af þessu og samþykktu með beinum eða óbeinum hætti. Burt með þetta spillingarlið, hvar í flokki sem það stendur.
Við erum stödd í leikhúsi fáránleikans - spillingin er svo ótrúleg að það tekur engu tali.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)