Bréfið til Valgerðar

Bréfið til Valgerðar Sverrisdóttur sem varð Bjarna Harðarsyni svo afdrifaríkt lýsir sárum vonbrigðum tveggja Framsóknarmanna með framgöngu Valgerðar á ráðherrastóli og það hvernig flokkinn hefur borið af leið í mikilvægum málum - ekki síst varðandi einkavæðingu ríkisfyrirtækja. Bréfið fer hér á eftir:

Heil og sæl Valgerður, þú varst ögn önug út í okkur flokksbræður þína yfir því að við minntum á, í bréfi 9. okt. s.l.að í þinni ráðherratíð sem viðskiptaráðherra voru bankarnir einkavæddir.

Það verður þó varla fram hjá því litið að á því ferli öllu berð þú mikla ábyrgð ásamt því regluverki sem bönkunum var ætlað að starfa eftir. Og minnast má þess að lengi vel var það stefna Framsóknarflokksins að selja ekki bankana og als ekki Símann og margir framsóknarmenn munu enn vera á þeirri skoðun. Nú er úti ævintýr og bankarnir komnir aftur í þjóðareign. Nauðsynlegt er að spyrja hvað hefur þjóðin haft upp úr sölu bankanna og hvað mun hún kosta hana? Fyrireinkavæðingu var þjóðin talin með ríkustu þjóðum í heimi. Þjóðartekjur á mann með því besta sem þekktist. Þegnarnir yfirleitt efnahagslega sjálfstæðir og lífskjör hvergi jafnari en hér á landi. Ofurlaun þekktust ekki. Hvernig er svo ástandið í dag, sem einkavæðingin skilur eftir? Allir bankarnirkomnir í þrot. Af eljusemi og dugnaði höfðu þeir safnað erlendum skuldum er nema tólf til þrettán faldri ársframleiðslu þjóðarinnar. Allt sparifé okkar, sem var í vörslu þeirra var í uppnámi. Setja varð neyðarlög að næturlagi til þess að tryggja spariféð og eðlileg bankaviðskipti í landinu. Mörg hundruð miljarða skuldabaggi er lagður á íslenska þjóð. Okkur finnsta því að þú mættir gjarnan hugleið hvaða áhrif þinn félagslegi og pólitíski framgangur hefur haft fyrir þjóðina og Framsóknarflokkinn. Og hvað um KEA og SÍS? Spyrja má hversu mikið landsbyggðin hefur liðið fyrir hrun Samvinnuhreyfingarinnar.

Síður en svo ætlum við þér alla ábyrgð á einkavæðingunni og afleiðingum hennar þótt þú kæmir þar verulega við sögu og margir bera ábyrgð á þróun samvinnumála hér á landi. Framsóknarflokkurinn átti sinn góða þátt í uppbyggingu þess samfélags, sem hér náði að þróast á öldinni sem leið. Það samfélag byggði á blönduðu hagkerfi, sem hafnaði öfgum kapitalisma, sem boðaði að markaðurinn ætti að ráða öllu í heimi hér, jafnt og alræðissósíalisma var hafnað. Með formensku Halldórs Ásgrímssonar hefst raunasaga Flokksins, sem endaði með fylgishruni. Halldór klifaði látlaust á því að breyta þyrfti stefnu Flokksins. Hann skipaði framtíðarnefnd. Jón Sigurðsson var ,,kallaður” til þess að hafa umsjón meðþessari stefnumótun, ásamt Sigurði Einarssyni og Bjarna Ármannssyni, sem afþakkaði reyndar þetta boð.

Í þessari nýju stefnu fólst m.a. þetta:

  1. Í stað þess að standa vörð um sjálftæði Íslands og fullveldi átti að gangastundir ESB- valdið í Brussel.
  2. Í stað hins blandaða hagkerfis skyldi innleiða ,,frjálst” markaðhagkerfi líkt og í Bandaríkjunum og ESB.
  3. Ísland átti að verða ,,alþjóðleg” fjármálamiðstöð og skattaparadís.
  4. Frjáls innflutningur á landbúnaðarvörum, átti að vera forsend þess að flokkurinn næði fylgi í þéttbýlinu.

Allt var þetta í algjöri andstöðu við þau lífsviðhorf og gildismat þess fólks sem Flokkurinn sótti fylgi sitt til. Enginn studdi Halldór formann og þessa nýju stefnu afmeiri alúð en þú, að okkur finnst. Þótt annar hver kjósandi hafi yfirgefið Flokkinn heldur þú áfram á braut, sem leiddi hrun yfir Flokkinn og hörmung yfir þjóðina. Ástandið hefði þó verið sínu verra ef vilji ykkar Halldórs og fyrirmæli um að leggja Íbúðarlánasjóð undir bankanna hefðu ekki verið hundsuð af ágætum flokksbræðrum okkar, Árna Magnússyni, Magnúsi Stefánssyni og Guðmundi Bjarnasyni. Enda nutu þeir, að við höldum, stuðnings annarra þingmanna Flokksins. Þú innleiddir tilskipun ESB um raforkumál, sem kostar fólkið í landinu hundruð miljóna á ári hverju. Og þú orðaðir það svo fallega að þetta gæti verið fyrsta skrefið í einkavæðingu orkugeirans.  Og nú rekur þú áróður sem mest þú getur fyrir aðild að ESB og reynir að fiska málinu fylgi í gruggugu vatni svo ekki sé meira sagt. Því til viðbótar hefur þú og sumir af þínum fylgismönnum talað niður gjaldmiðil hagkerfisins, nokkuð sem er mjög alvarlegt mál. Þá viljum við lýsa undrun og óánægju okkar yfir framgöngu þinni gagnvart sitjandi formanni Framsóknarflokksins. Við munum ekki annað eins.

Með framsóknarkveðju.

Gunnar Oddsson Flatatungu 560 Varmahlíð.
Sigtryggur Jón Björnsson Birkimel 11 560 Varmahlíð.

 

Svo mörg voru þau orð.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Ljótt að missa ferilskrá Valgerðar svona í fjölmiðlanna.

Gjörðir framsóknarflokks í tíð Valgerðar er eitthvað svartasta sem sést hefur í Íslenskum stjórnmálum.

Sá vandi sem blasir við í dag má að nokkru rekja til aðgerða framsóknar (sem reknar voru í gegn með blekkingum)

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 12.11.2008 kl. 14:47

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 12.11.2008 kl. 20:38

3 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Ég skil ekki alveg..., var hann að reyna að senda henni þetta nafnlaust? Hvers vegna í ósköpunum? Hvers vegna ekki að senda henni þetta undir sínu eigin nafni? Hann er jú sagður vera sá sem kemur framan að fólki með hlutina..., eða svo sagði Guðni um hann þegar hann tilkynnti afsögn Bjarna.

Þetta er svo fullkomlega klúðurslegt frá a til ö.

Marta B Helgadóttir, 12.11.2008 kl. 21:51

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

'Eg hefði frekar vilja sjá Valgerði segja af sér. Maður sem segir þjóðinni sannleikan á ekki að þurfa að segja af sér.

Valdimar Samúelsson, 12.11.2008 kl. 23:32

5 identicon

Gjörningur Bjarna Harðarsonar vekur grunsemdir hjá mér um að slík vinnubrögð, þ.e. að leka nafnlausum upplýsingum til fjölmiðla séu oft stunduð í hinu háa Alþingi. Það, að Bjarni ýtti óvart á vitlausan takka er engin afsökun, hugsunin á bak við er það sem gildir; þ.e. að þetta væri allt í lagi, svo framarlega sem það kæmist ekki upp. Lýsandi fyrir Framsóknarflokkinn og þau vandræði sem hafa hrjáð þann flokk lengi vel. Ekkert skrýtið þó fylgið hrynji af honum. Hvers vegna í ósköpunum birtu bara ekki þessir tveir Skagfirðingar bréfið í fjölmiðlum undir nafni? Furðulegt að flokkur sé starfræktur á kjaftakerlingagrunni.

Annað sem ég vil vekja athygli á. Þú endar færslur þínar á: Burt með spillingarliðið. Kannski er kominn tími til að vekja athygli á því andlega ofbeldi sem stjórnvöld sýna þjóðinni með algerri hunsun á að svara réttlátum spurningum um gang mála (það er jú kominn meira en mánuður síðan dómínóáhrifin af yfirtöku ríkisins á Glitni fór fram) Stjórnvöld gera lítið úr mótmælum og réttlátri reiði almennings, láta eins og þjóðin sé ekki svara verð. Hvað getur heil þjóð gert gagnvart því andlega ofbeldi sem stjórnvöld sýna henni? Burt með andlega ofbeldið. Skiptum um lið og fáum fólk sem virðir mannréttindi þjóðarinnar til að stýra landinu. 

Nína S (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 00:24

6 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Mér finnst þetta tal um nafnleysi  furðulegt.

Ég skil ekki að þessir menn sem skrifuðu bréfið þurfi að skammast sín fyrir það. Þar koma bara fram staðreyndir. Engar ærumeiðingar eru hafðar í frammi.

Veit ekki hvaðan þessi "nanfnleysis"hugmynd var komin, frá Bjarna eða þeim?

Greta Björg Úlfsdóttir, 13.11.2008 kl. 08:56

7 identicon

Jæja - ég held að við getum öll verið sammála þessum ágætu mönnum og alger synd að jafn góð og rétt skrif skyldu fella annanrs líflegan þingmann.

Finnbogi Marinosson (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 09:53

8 identicon

fynst að bjarni ætti að draga þingmenskuna til bakaog sytja áfram á þingi enn muna að standa bak við skrif sín  ekki fara í felur valgerður ætti að vera sökuð um að stuðla að falli lýðveldisins og refsað fyrir....

bpm (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 10:13

9 identicon

Orð í tíma töluð hjá Nínu hér að ofan ..."að vekja athygli á því andlega ofbeldi sem stjórnvöld sýna þjóðinni með algerri hunsun á að svara réttlátum spurningum um gang mála"...

Hluti af kúgunaferlinu er að tala niður til þjóðarinnar eins og við höfum gripið ráðamenn við.  Síðan er farið að tala um efnahagslegt ofbeldi.

Þetta er grafalvarlegt og er þetta ekki liðið eins og sjá má af viðbrögðum fólksins í mótmælum síðustu vikna.

Kveðja Hákon 

Hákon Jóhannesson (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 12:40

10 Smámynd: Snorri Hansson

Tveir menn semja bréf sem allur almenningur þarf að lesa.

Þeir skrifa nöfnin sín undir eins og vera ber.

Efni þess er yfirþyrmandi sannleikur sem nauðsinlegt er að komi fram.

Klaufaskapur Bjarna Harðarsonar við að koma því á framfæri er algjört aukaatriði. Þótt það hafi kostað hann vinnuna.

Lesið bréfið !

Snorri Hansson, 15.11.2008 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband