Færsluflokkur: Bloggar
Lögvarðir hagsmunir hverra? Svandísar eða Reykvíkinga?
20.11.2007 | 12:26
Nú er því haldið fram á heimasíðu Daggar Pálsdóttur í dag að Svandís Svavarsdóttir hafi aldrei haft "lögvarða hagsmuni af því að fá dóm í máli sínu" gegn Orkuveitu Reykjavíkur. Og hversvegna ekki? Jú, lögmaðurinn miðað við "dómaframkvæmd".
Dögg viðurkennir að vísu að "fundurinn virðist ólöglega boðaður miðað við þær reglur sem giltu um boðun fundar". En af því allir mættu, þá sé fundurinn löglegur. Þar af leiðandi hafi verið ástæðulast af Orkuveitunni að ganga til dómsáttar við Svandísi, hún hafi verið með "gjörtapað" mál.
Mér finnst þetta undarlegur málflutningur hjá lögmanninum. Verð bara að segja það. Svandís Svavarsdóttir sat ekki sem einstaklingur í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Hún var ekki að knýja fram sína persónulegu hagsmuni með málshöfðun, heldur hagsmuni almennings. Hún sat í stjórninni sem fulltrúi Reykvíkinga, og þeir eiga svo sannarlega lögvarða hagsmuni í þessu makalausa máli.
Það er kjarni þessa máls, hvað sem líður dómaframkvæmdum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
"Ef marka má orð" utanríkisráðherra?
19.11.2007 | 22:50
Ekkert fangaflug hefur farið um Ísland "ef marka má orð utanríkisráðherra" sagði sjónvarpsfréttamaður RÚV í kvöld. Ég sperrti upp eyrun: Ef marka má orð utanríkisráðherra!? Hvaðan kemur fréttastofunni umboð til þess að draga í efa orð opinberra aðila - ráðherra?
Já - blogg dagsins er málfarspistill. Það hlaut að koma að því.
Reyndar efa ég að fréttamaðurinn hafi vísvitandi ætlað að bregða utanríkisráðherra um ósannindi. Ég held (vona að minnsta kosti) að hann hafi bara komist svona klaufalega að orði.
En þetta segir maður ekki nema um ótraustar heimildir sé að ræða - heimildir sem ekki er hægt að sannreyna að svo stöddu. Ef maður hefur traustar heimildir eða ummæli fyrir einhverju þá segir maður frekar "samkvæmt upplýsingum" heimildamanns eða einfaldlega "að sögn" heimildamanns (í þessu tilviki utanríkisráðherra).
Mig langar svosem ekkert til að vera eins og kennari með puttann á lofti - en þetta fór bara í mig. Kannski vegna þess að mér finnst óvenju mikið hafa verið um ambögur að undanförnu. Menn tala hiklaust um að ráðamenn "vermi sæti" í stjórnum og ráðum, og virðast ekki átta sig á niðrandi merkingu þessa orðatiltækis. Jafnvel á degi íslenskrar tungu læddist beygingarvilla inn í skrifaða ræðu menntamálaráðherra í kaflanum um málrækt "til viðgangs íslenskrar tungu".
Annars verða beygingarvillur æ algengari í fréttum - eins og menn gleymi því þegar þeir byrja setningu hvernig þeir ætla að enda hana. Á föstudag var sagt: Kjörstöðum lokaði klukkan sex. Og í dag var það: Heimasíðan Torrent.is var lokað í dag
Jæja - þetta átti nú ekki að verða neitt svartagallsraus. Okkur verður auðvitað öllum á, svona einstöku sinnum. Best þótti mér þó um árið þegar páfinn kom í Íslandsheimsókn og - að sögn ónefnds fréttamanns - "blessaði mannfjöldann og lagði hendur á börn".
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Húsfyllir í Holti
19.11.2007 | 00:37
Jæja, það varð bara húsfyllir hjá okkur í Holti í dag - á bókmenntadagskránni "Vestfirsku skáldin". Við höfðum ekki undan að hlaupa eftir stólum og bæta við kaffiveitingum. Best af öllu var þó að þeir sem mættu virtust glaðir og sáttir við það sem í boði var.
Ólafur Þ. Harðarson var með bráðskemmtilegt erindi um Guðmund Inga Kristjánsson - skáldið á Kirkjubóli. Erindið samanstóð af minningum Ólafs sjálfs frá því hann var barn sumardvölum á Kirkjubóli. Hann rifjaði upp kynni sín af skáldinu, lýsti heimilisbragnum á Kirkjubóli, matarmenningu, verkmenningu, samskiptum og búskaparháttum af næmi, hlýju og húmor. Margt fleira var á dagskránni - eins og lesa má um á skutull.is
Jebb - þetta var bara góður dagur. Ég sofna með hreina samvisku í kvöld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ójöfnuður í skjóli valds
14.11.2007 | 15:24
Jæja, þá er ljóst að nýi fréttavefurinn skutull.is er farinn að valda pólitískum titringi. Nú hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í bæjarráði Ísafjarðarbæjar neitað vefmiðlinum um jafnan aðgang að vef bæjarins og bb.is hefur notið. Ísafjarðarbær styrkir bb.is með mánaðarlegu framlagi. Í staðinn birtast fréttir af bb.is á vef Ísafjarðarbæjar og bærinn hefur opinn glugga á forsíðu bb.is.
Forráðamenn skutuls.is skrifuðu bæjarráði bréf þar sem farið var fram á sama aðgang að heimasíðu bæjarins og sama auglýsingastyrk. Var í bréfinu vísað til laga og stjórnarskrár um jafnræðisreglu. Þessu var hafnað af meirihlutanum í bæjarráði - en einn bæjarráðsmaður vék sæti.
Talsmenn frelsisins og einkaframtaksins - og er ég nú að tala um fyrrnefnda fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks - létu hinsvegar bóka eftirfarandi:
Bæjarráð samþykkir að á heimasíðu Ísafjarðarbæjar verði tengill sem vísi á vefsíðuna skutul.is. Að öðru leyti er erindinu hafnað, þar sem ekki er um sambærilegan fréttamiðil við bb.is að ræða, en bb.is hefur um langt árabil starfað sem fréttamiðill á Vestfjörðum. Bæjarráð bendir á að fleiri svæðisbundnar vefsíður eru í boði á svæðinu svo sem thingeyri.is, án þess að njóta sérstakra styrkja eða fríðinda frá Ísafjarðarbæ.
Með öðrum orðum - stöndug og rótgróin fyrirtæki eiga að njóta styrkja og "fríðinda" frá bænum. Ekki þeir sem eru að reyna að koma undir sig fótum á markaði. Ó, nei. Þeir þurfa einskis við, og þurfa ekki að búast við neinu jafnræði eða jafnrétti gagnvart sveitarstjórninni. Skítt með jafnræðisreglu stjórnsýslulaga, málfrelsisákvæðið og tjáningarfrelsið. Skítt með stefnuyfirlýsingar sömu fulltrúa um eðlileg samkeppnisskilyrði og frelsi.
Hmmm.... athyglisvert.
Skutull.is er frétta- og umræðuvefur starfræktur í Ísafjarðarbæ af hópi fólks sem hefur áhuga og metnað fyrir hönd Vestfjarða og vestfiskrar menningar. Það getur ekki dugað sem rök að annar vefurinn sé nýrri en hinn.
Skutull.is er vestfirskur þjóðmálavefur sem ekki er háður neinum stjórnmálaflokki eða hagsmunaaðalilum og fréttamat og fréttaskrif stjórnast eingöngu af áhuga og metnaði þess hóps sem stendur að vefnum.
Afstaða fyrrnefndra fulltrúa í bæjarráði Ísafjarðar er köld kveðja til þeirra sem vilja stuðla að opinni og óheftri umfræði og fréttamiðlun um vestfirsk málefni. Ennfremur er afstaða bæjarfulltrúanna slakur vitnisburður um lýðræðisþroska, frelsishugsjón og það sem kalla mætti heilbrigð samkeppnissjónarmið.
Svei.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Verkalýðsforinginn heiðraður
12.11.2007 | 00:53
Pétur Sigurðsson, tengdafaðir minn - formaður VerkVest þar til s.l. vor, og þar áður formaður Alþýðusambands Vestfjarða um áratuga skeið - var heiðraður af samverkamönnum sínum í verkalýðsfélaginu hér vestra við hátíðlegt borðhald á Hótel Ísafirði í gærkvöldi. Hjördís kona hans einnig - enda hefur hún staðið þétt að baki sínum manni alla þeirra hjúskapartíð, svo það var vel við hæfi.
Eftir áratuga þjónustu við íslenska verkalýðshreyfingu hefur Pétur nú ákveðið draga inn árar og setjast á friðarstól. Ungur maður er tekinn við formennsku í félaginu, og Pétur hefur vikið til hliðar. Þó ekki lengra en upp á næstu hæð, þar sem hann situr nú og fer yfir gömul skjöl. Í næstu skrifstofu situr Siggi minn, sonur hans, og skrifar sögu vestfirskrar verkalýðshreyfingar. Það á við þá feðgana að sitja hvor á sinni skrifstofunni og róta í gulnuðum blöðum sögunnar. Þegja mikið og lengi, raða, flokka og skrifa hjá sér.
Já, formlega séð er Pétur hættur og ungur maður tekinn við. Sá fær að njóta ráðgjafar og liðsinnis verkalýðskempunnar sem nú hefur flutt sig um set í húsinu. En ef einhver ímyndar sér að þar á efri hæðinni sitji hrumur öldungur, þrotinn að kröftum, skal sá misskilningur leiðréttur snarlega. Þó að Pétur sé kominn á áttræðisaldur er hann enn fimur í hreyfingum, skýr eins og unglingur, skörulegur í tali með glampa í auga. Þar fyrir innan glittir í minningar um gamla Vestfjarðasamninga og verkfallsátök sem hafa sett mark sitt á svipmót og fas mannsins. Hann ber aldurinn betur en nokkur maður sem ég þekki á hans aldri. Hleypur enn upp á dal þrisvar í viku, auðþekktur á rauðu dúskhúfunni sem eitthvert barnabarnið gaf honum einhverntíma.
Ekki alls fyrir löngu varð Pétur fyrir bíl í Reykjavík - nei, afsakið - bíllinn varð eiginlega fyrir honum þar sem hann var að skokka yfir götu. Höggið var þvílíkt að Pétur flaug yfir bílinn og hafnaði á grasflöt þar skammt frá, eftir viðkomu í runna. Maður hefði búist við alvarlegum afleiðingum fyrir hálfáttræðan mann, a.m.k. beinbroti. En Pétur reyndist óbrotinn. Raunar spaugar hann með það sjálfur að sér hafi verið bráðust hætta búin þegar sjúkraflutningamennirnir fóru að spenna á hann hálskraga og þrengja súrefnisgrímu yfir andlit honum svo honum lá við köfnun. En eftir skoðun á sjúkrahúsi var hann sendur heim, svolítið lurkum laminn í nokkra daga, en náði sér svo. Geri aðrir betur.
Síðastliðið sumar tók hann þátt í Púkamótinu á Ísafirði - annað árið í röð. Það er fótboltamót fyrir fertuga og eldri. Hann var í marki og þar flaug hann milli markstanganna og varði a.m.k. eina vítaspyrnu.
Já, hann er sestur á friðarstól - en ég held það sé lítil hætta á að hann sitji auðum höndum. Og það er vel.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Nokkrir (g)óðir dagar í borginni
9.11.2007 | 13:17
Gærdagurinn var ævintýralegur. Fyrir hádegi tók ég upp tvo sjónvarpsþætti fyrir ÍNN - annar verður á dagskrá kl. 21 í kvöld, hinn eftir hálfan mánuð (rás-20 á digital Ísland).
Ég fékk til mín stórskemmtilegar konur. Annarsvegar þær Ragnhildi Sverrisdóttur blaðamann og sr. Jónu Hrönn Bolladóttur. Þær ræddu nýafstaðið kirkjuþing, stöðu samkynhneigðra, stöðu kirkjunnar og margt margt fleira. Bráðskemmtilegar báðar tvær.
Hinsvegar fékk ég til mín þær sr. Ragnheiði Jónsdóttur og Erlu Ólafsdóttur, sjúkraþjálfara. Báðar eru þær raunar sjúkraþjálfarar að mennt, en Ragnheiður er núna starfandi sóknarprestur í Mosfellsprestakalli. Erla hefur sérhæft sig í höfuðbeina og spjaldhryggsjöfunun sem Ragnheiður hefur kynnt sér líka. Við ræddum um hefðbundnar og óhefðbundnar lækningar, tengsl trúar og lækninga, guðshugtakið, siðfræði og ýmislegt fleira. Tíminn þaut frá okkur.
Eftir hádegið fór ég svo upp í ríkisútvarp að aðstoða einn nemenda minna við gerð útvarpsþáttar. Það er hluti af námsmati í námskeiðinu sem ég er að kenna í menningarmiðlun við sagnfræðiskor HÍ. Mjög skemmtilegt verkefni fyrir mig - og vonandi gagnlegt fyrir nemendurna líka. En það er tilefni veru minnar í borginni þessa dagana, að ég er að leiðbeina nemendum við gerð útvarpsþáttanna með aðstoð tæknimannanna á RÚV, sem eru afar liðlegir og elskulegir svo af ber.
Í gærkvöldi var ég svo boðin ásamt forstöðumönnum fræðasetra Háskóla Íslands til kvöldverðar í Perlunni. Villibráðarhlaðborð. Tilefnið var sameiginlegur fundur með forstöðumönnum sem hófst kl. 8 í morgun. Svona nokkurskonar kynning á bókhaldskerfi háskólans, gerð fjárhagsáætlana, hagnýtingu innra netsins og fleira gagnlegt. Góður fundur, og indæl stund þarna í gærkvöldi.
Í kvöld ætla ég svo með mömmu á fund í kvæðamannafélaginu Iðunni. Langt síðan ég hef komist á kvæðafund - hlakka til að hitta mannskapinn þar. Svo er ekki til setunnar boðið. Á morgun keyrum við Siggi svo vestur aftur. Kíkjum til Ragnheiðar vinkonu í morgunmat. Svo til Dodda og Erlu að kveðja þau og Daða Hrafn. Og svo brunum við vestur. Eigum að vera mætt í kvöldverð sem okkur er boðið í af skemmtilegu tilefni á Ísafirði annað kvöld - tilefnið er leyndó ennþá .
Já, það er sprettur. Ég vona samt að næsta vika verði aðeins rólegri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Góðar minningar frá gamalli tíð
7.11.2007 | 11:04
Ójá, hann var góður glænýi Trabbinn sem við Siggi keyptum hjá Ingvari Helgasyni fyrir aleiguna haustið 1981, þá nýflutt til Reykjavíkur. Hann komst allt í snjó, framhjóladrifinn, léttur og þægilegur. Eitthvað annað en gamli Trabantinn sem við fengum sem afgang frá pabba heitnum þegar við hófum búskapinn í Reykjavík. Sá gekk fyrir handafli - enda kominn til ára sinna. Átti auðvitað að fara á haugana, en pabbi lét okkur hafa hann svona til vonar og vara, ef hann skyldi einhverntíma fara í gang. Sem var sjaldan.
Þetta var fyrsta veturinn okkar í Háskóla Íslands. Við bjuggum á Miklubrautinni og fyrir utan í heimreiðinni stóð þessi pínulitli grasgræni Trabant. Assgoti góður þegar vélin á annað borð gekk - þá komst hann hvert sem var. En það var bara ekki nema í svona fimmta hvert skipti sem bílfjandinn hrökk í gang. Flestir morgnar byrjuðu því þannig, að við komum út úr blokkinni, Siggi, Doddi (þá sex ára) og ég. Við settumst inn í bílinn og svo hófust starthljóðin. Þau gátu staðið góða stund.
Þá kom Siggi út úr bílnum, ég undir stýri, Siggi ýtti. Bíllinn var látinn renna niður afleggjarann. Stundum gekk þetta - stundum ekki. Þá var honum ýtt í stæðið aftur og fjölskyldan rölti út á strætóstöð. Þannig leið þessi vetur.
En haustið eftir vorum við búin að safna fyrir nýjum bíl. Glænýjum Trabant station, árgerð 1982, sem kom á götuna í nóvember. Hvílíkt dýrð! Mér er sérstaklega minnisstætt þegar nokkrir piltar um tvítugt spóluðu sig fasta á drossíunni sinni í snjóskafli við Norræna húsið. Þeir höfðu þá nýlega spænt fram úr okkur með fyrirgangi og fyrirlitningarsvip þar sem við trilluðum okkar leið á nýja fína Trabantinum. Það var ekkert sérlega leiðinlegt að skrúfa niður rúðuna, brosa góðlátlega framan í gæjana og spyrja hvort þeir vildu láta kippa í sig. Það var að sjálfsögðu afþakkað með bitru bliki í auga.
Þá brosti maður sínu blíðasta, skrúfaði rúðuna upp, gaf pínulítið í og ók svo yfir skaflinn. Tabb-trabb-trabb-trabb - og komst leiðar sinnar.
![]() |
Trabant á stórafmæli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Ef hjá henni mömmu einn fimmeyring ég fengi!
6.11.2007 | 10:11
Í vísunni um telpuna og fimmeyringinn - sem oft heyrðist sungin á árum áður - var sú stutta að láta sig dreyma um það hvernig hún myndi ráðstafa öðrum eins fjármunum og heilum fimmeyringi. Og hún var sko ekki í vandræðum með það. Ætlaði að kaupa einhver ósköp og gefa svo mömmu allan afganginn --- nei, pabba var það víst. "Glöggur" lesandi hefur bent mér á að vísan snerist um telpuna og pabba, ekki mömmu: "Ef hjá honum pabba, einn fimmeyring ég fengi" hljómar þetta í upprunalegu gerðinni. Ég sneri kynhlutverkunum við - og tók ekki einu sinni eftir því sjálf. Vonandi er það þó góðs viti
Jæja, en fimmeyringar eru ekki lengur til sem mynt - og einfeldni okkar Íslendinga í peningamálum heyrir brátt sögunni til.
Á Íslandi hafa orðið til tvær þjóðir. Launamunur sá sem við nú þekkjum milli stóreignamanna og almennings er slíkur að við getum ekki lengur talað um að hér búi ein þjóð í einu landi. Því miður.
Ofurlaun stjórnenda í einkafyrirtækjum eru af þeirri stærðargráðu í mörgum tilvikum að venjulegt fólk á erfitt með að gera sér þær upphæðir í hugarlund. Þar á bæjum eru mánaðarlaunin talin í árstekjum venjulegs launafólks. Og hagnaðartölur í viðskiptalífinu þar sem menn geta verið að græða hundruð milljarða í viðskiptum, líkt og æ fleiri dæmi eru um, þær eru eitthvað sem við Íslendingar höfum ekki vanist. Þó svo við heyrum slíkar fréttir æ oftar held ég að við venjumst þeim seint.
Ég á erfitt með að ímynda mér hvernig ég myndi ráðstafa 10 milljörðum - en tíu milljarðar eru víst ekkert sérlega há tala í viðskiptalífinu.
Fyrst myndi ég stofna framfærslusjóð fyrir öll börnin mín. Kaupa eitthvað handa mömmu. Svo myndi ég kaupa mér hús, jeppa, sumarbústað og góðan reiðhest. Kannski annan hund. Þá færi ég líklega að huga að stofnun styrktarsjóðs fyrir góðgerðarmál. Ég myndi gefa eitthvað til menningarmála.
En þá væri ég sennilega bara búin með einn eða tvo milljarða. Hvað ætti ég þá að gera við hina átta eða níu?
Þetta var einfaldara meðan fimmeyringar voru ennþá verðmæti. Ennþá eru það þó karlmenn sem hafa fjárráðin að mestu í sínum höndum - og fá í sínar hendur afganginn, sé hann einhver.
![]() |
Launin þola ekki dagsljós |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Verðblekkingar og neytendavernd
5.11.2007 | 12:50
Ekki vil ég nú taka undir það með Bergvini Jóhannssyni, formanni Landsambands kartöflubænda, að Neytendasamtökin og Alþýðusambandið hafi VERNDAÐ kaupmenn í gegnum tíðina með því að kenna framleiðendum einvörðungu um hátt vöruverð. Hins vegar er nokkuð til í því að skýringanna á háu vöruverði sé full oft leitað hjá framleiðendum - það mætti líta oftar til kaupmanna sjálfra, eins og umræða síðustu daga um framkomu lágvöruverslana hefur leitt í ljós.
Viðskiptaráðherra hefur nú kveðið upp úr með það að tíðar verðbreytingar og blekkingar í lágvöruverslunum séu ólíðandi. Mikið var að einhver ráðamaður þorði að setja eitthvað um það mál. Neytendur hljóta að fagna því að ráðamenn lýsa sig viljuga til að taka á því máli.
Það er óþolandi að neytendur skuli blekktir með þeim hætti sem nú hefur verið leitt í ljós. Þ.e. þegar stillt er upp vöru á lágu verði við ákveðin tækifæri, vöru sem annars er ekki á boðstólum fyrir almenna neytendur nema að nafninu til. Það er líka óþolandi að einatt skuli vera boðið upp á hálfónýtar vörur á lægsta verðinu þegar "tilboð" og "kjarakaup" eru á boðstólum.
Það þarf auðvitað að breyta fyrirkomulagi verðkannana, svo þær endurspegli raunverulegt vöruverð á hverjum tíma en séu ekki sýndarmennskan ein. Að því leyti hefur Bergvin rétt fyrir sér. Það þarf að taka gæði vörunnar með í reikninginn þegar verðkannanir eru gerðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ömmustúss
3.11.2007 | 10:52
Ég er í ömmuleik. Daði Hrafn kominn í helgarheimsókn með pabba sínum og mömmu (Dodda og Erlu Rún). Þau falla svolítið í skuggann, það verður bara að segjast eins og er - en þau fyrirgefa mér það.
Já, tíminn líður. Svo er "litla" barnið á heimilinu, hann Hjörvar minn, farinn að mæta á böll í næstu byggðarlögum - ekki fermdur einu sinni. Hann fór með skólanum á mikla íþróttahátíð sem haldin var í Bolungarvík í gær. 8., 9. og 10. bekkir grunnskólans fjölmenntu og héldu svo grunnskólaball í gærkvöldi. Mikið fjör hlýtur að vera, a.m.k. var það ánægður drengur sem kom heim með rútunni um miðnættið í gærkvöldi, óræður á svip.
Í morgun var mannskapurinn vakinn fyrir allar aldir - Daði Hrafn kominn á stjá. Hann sér ekki sólina fyrir Sigga afa, sem veltist um gólfin með honum. Blíða er afbrýðisöm.
Áðan drifum við okkur með þann stutta í sleðabrekkuna neðan við húsið: Amma, afi, Hjörvar, Daði Hrafn og Blíða. Höfðum meðferðis gula kringlótta snjóþotu og Stiga-sleða. Blíða elti okkur niður brekkuna og kunni sér ekki læti.
Svo fengum við okkur að drekka og Daði tók miðdegislúrinn. Amma hvílir sig á meðan, því kl. hálf þrú er Hjörvar að fara að keppa í fótbolta í íþróttahúsinu. Þá verður fjölskyldan á áhorfendabekknum, að sjálfsögðu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)