Færsluflokkur: Bloggar
Hvernig er þá hin "harða" frjálshyggja?
3.3.2009 | 13:40
Bjarni Benediktsson formannskandídat í Sjálfstæðisflokknum hafnar því að hörð frjálshyggja hafi ríkt í landinu. Einmitt.
Ef það var ekki "hörð" frjálshyggja sem réði krosseignatengslum og taumlausri einkahlutafélagavæðingu utan um fjárfestingar og hlutabréfakaup sem höfðu veð í sjálfum sér - hvað var það þá?
Ef það var ekki "hörð" frjálshyggja í bland við sérhagsmunastefnu sem réði ferðinni við hina svokölluðu "sölu" bankanna (sem var auðvitað ekkert annað gjafaúthlutun), hvað var það þá?
Ef það var ekki "hörð" frjálshyggja sem stjórnaði útrás íslenskra fjármálastofnana á erlendum vettvangi - hvað var það þá?
Ef það var ekki "hörð" frjálshyggja og sérhagsmunagæsla sem réði ferðinni þegar hið frjálsa framsal fiskveiðiheimilda varð að veruleika með þeim afleiðingum að sjávarbyggðir landsins voru sviptar náttúrurétti sínum til viðurværis af fiskveiðum og hafa margar ekki borið sitt barr síðan - hvað var það þá?
Ef þetta sem nú er nefnt var hin mildari útgáfu frjálshyggjunnar, Guð hjálpi okkur þá ef Bjarni Benediktsson og hans skoðanasystkin komast einhvern tíma til valda.
Hér var ekki hörð frjálshyggja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
Grunngildin - og aðeins meira um Kristinn H.
28.2.2009 | 22:43
Við jafnaðarmenn eigum það sameiginlegt að vilja mannréttindi, lýðræði og sanngjarnar leikreglur. Í baráttunni sem framundan er megum við ekki missa sjónar af þeim grunngildum sem samfélag okkar byggir á. Það verður við ramman reip að draga því verkefnin eru mörg og knýjandi.
Lítum nánar á nokkur þau helstu:
- Þegar núverandi kvótakerfi var komið á voru fiskimiðin hrifsuð úr höndum sjávarbyggðanna sem í raun réttri hefðu átt að eiga náttúrulegt tilkall til þess að nýta sér fiskimiðin og lifa af þeim. Margar þeirra hafa ekki borið sitt barr síðan. Við eigum að heimta þessa auðlind til baka.
- Íslenskan landbúnað þarf að frelsa undan áratugagömlu miðstýrðu framleiðslustjórnunarkerfi. Auka þarf möguleika bænda til þess að sinna sjálfstæðri matvælaframleiðslu og tengja hana ferðaþjónustu til dæmis.
- Uppbygging háskólastarfs og símenntunar um land allt er mikilvægur þáttur í því að minnka aðstöðumun og auka atgerfi byggðanna, að ekki sé minnst á samgöngur og fjarskipti sem eru nauðsynlegir grunnþættir í hverri samfélagseiningu - nokkuð sem ekkert hérað getur verið án.
- Stjórnmálamenn og stjórnsýslan öll verða að bera ábyrgð og standa vörð um hlutverk stofnana þannig að þær fái að sinna lögbundnu hlutverki sínu án inngripa stjórnmálaflokka eða annarra hagsmunaafla.
Jamm.... þetta er meðal þess sem ég er að ræða á þessum fundum okkar prófkjörsframbjóðenda í Norðvesturkjördæmi - en yfirreið okkar um kjördæmið stendur nú sem hæst. Við vorum á Hellissandi og Grundarfirði í dag. Í hádeginu á morgun verður fundur í Narfeyrarstofu í Stykkishólmi og í Félagsheimilinu á Patreksfirði kl 20 um kvöldið.
Að lokum ein vísa sem varð til í rútunni hjá okkur þegar endanlega var orðið ljóst að Kristinn H. væri ekki genginn í Samfylkinguna heldur Framsóknarflokkinn:
Glumdi í flokknum gleði-org,
gladdist allur skarinn:
Kristinn veldur kæti og sorg,
hann kominn er ... og farinn!
Og hér sjáið þið okkur Örnu Láru framan við Café Riis á Hólmavík um hádegisbil í gær.
Bloggar | Breytt 8.3.2009 kl. 10:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)
Ekkert er eins og fyrr
25.2.2009 | 15:25
Verkefnin sem íslensk þjóð stendur nú frammi fyrir eru svo umfangsmikil - svo alvarleg - að íslensk stjórnmálaumræða mun aldrei verða söm eftir þá atburði sem átt hafa sér stað í hitasótt frjálshyggjunnar. Já, ég kalla það hitasótt, því það var eins og þeim sem báru ábyrgð á íslensku fjármálakerfi og stjórnmálaumræðu væri ekki sjálfrátt.
Í heila tvo áratugi smitaði og gegnsýrði frjálshyggjusóttin allt okkar litla samfélag. Þegar efnahagur þjóðarinnar hrundi og sápukúlan sprakk rann það svo upp fyrir okkur að að ekki einasta hafði fjárhagur þjóðarinnar beðið skipbrot - siðferðisgildin voru líka hrunin.
Þessir atburðir hafa breytt allri okkar hugsun. Þeir hafa afhjúpað siðferðisbresti, hugsanaleti, ákvarðanafælni og meðvirkni sem hefur gegnsýrt allt okkar stjórnkerfi; alla opinbera umræðu; allt þjóðlífið. Þeir hafa afhjúpað græðgi og misskiptingu af þeirri stærðargráðu að ekki einu sinni í okkar villtustu draumum gátum við gert okkur annað eins í hugarlund.
Við jafnaðarmenn eigum það sameiginlegt að vilja mannréttindi, lýðræði og sanngjarnar leikreglur. Í baráttunni sem framundan er megum við ekki missa sjónar af þeim grunngildum sem samfélag okkar byggir á. Það verður við ramman reip að draga því verkefnin eru mörg og knýjandi.
Það er því sorglegt að fylgjast með því hvernig menn láta sumir hverjir í þinginu þessa dagana - eins og þeim sé ekki sjálfrátt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Söguleg tímamót og hlutverk jafnaðarmanna
23.2.2009 | 17:08
Samfylkingin stendur nú á sögulegum tímamótum sem stjórnmálaflokkur. Hún stendur annars vegar frammi fyrir því að innleiða löngu tímabærar lýðræðisumbætur (t.d. stjórnlagaþing) og siðbót í íslensku samfélagi. Hins vegar á hún þess kost að tryggja raunverulegum jafnaðarsjónarmiðum framgang við stjórnarákvarðanir á erfiðum tímum.
Flokkurinn stendur með öðrum orðum frammi fyrir því að endurreisa íslenskt samfélag á grundvelli jafnaðarstefnunnar. Það er ekki lítið hlutverk.
Aldrei fyrr hefur verið jafn rík þörf fyrir heiðarleika, ábyrgð og hugrekki í íslenskum stjórnmálum. Aldrei fyrr hefur verið jafn rík ástæða til þess að endurheimta þau verðmæti sem við þó eigum Íslendingar - andleg og veraldleg. Og aldrei fyrr hefur verið jafn rík ástæða til þess að endurheimta þá sjálfsvirðingu sem gerir okkur kleift að vera þjóð meðal þjóða, í bandalagi og samstarfi við vinaþjóðir þangað sem við getum sótt bæði tilstyrk og fyrirmynd.
Það er núna sem reynir á hvort íslenskir jafnaðarmenn rísa undir nafni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Kosningaskjálfti í formanni Framsóknar
22.2.2009 | 18:25
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins heldur því fram í samtali við Fréttablaðið að Samfylkingin hafi lagst í rógsherferð gegn sér.
Samfylkingarmenn líta hver á annan og koma af fjöllum. Hvernig er hægt að halda uppi skipulagðri rógsherferð án þess að nein merki séu um það í tölvupóstum eða öðrum samskiptum milli flokksmanna?
Skráðir félagar í Samfylkingunni fá tölvupósta frá kjördæmisráðum, flokksskrifstofunni og ýmsum málefnahópum innan flokksins - og ég verð bara að segja eins og er, að hvergi í þessum orðsendingum er vikið einu orði að formanni Framsóknarflokksins.
Ummæli formannsins unga eru þess vegna bara paranoja - kosningaskjálfti. Þau eru að mínu mati ekki aðeins óréttmæt heldur líka ósmekkleg. Það litla sem ég hef heyrt rætt um þennan unga mann meðal Samfylkingarfólks er allt á jákvæðum nótum.
Stjórnarflokkarnir hafa öðrum og mikilvægari hnöppum að hneppa þessa dagana en að elta ólar við persónuhagi Framsóknarmanna - þeir eru nefnilega að sinna endurreisn samfélags.
Ég efast um almenningur hafi mikinn áhuga eða þolinmæði fyrir umræðu af þessu tagi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Óráðsía skilanefndar
20.2.2009 | 09:58
Skilanefnd Kaupþings hefur í ýmis horn að líta þessa dagana og vafalaust einhver áform. Sparnaður virðist þó ekki vera þar á meðal, ef marka má þennan fréttaflutning af lúxusferð tveggja nefndarmanna til Indlands fyrr í mánuðinum. Gist var á fimm stjörnu hóteli, sem er með þeim glæsilegustu á Indlandi, og flogið á fyrsta farrými í "þeim tilgangi að gæta hagsmuna gamla Kaupþings" eins og segir í fréttinni. Ferðin mun hafa kostað um eina milljón króna.
Ég vil helst eitthvað í allra besta flokki ef þér er sama" segir starfsmaður nefndarinnar sem skipulagði ferðina í tölvupósti sem nú hefur verið birtur. Hann bætir við: "Ég yrði þakklátur fyrir að dagskráin yrði í háum gæðaflokki".
Kannski nefndarmenn hafi ekki áttað sig á því hverjir það eru sem greiða þeim launin og dagpeningana eftir bankahrunið? Það er nefnilega almenningur í landinu, því það mun koma í hlut samfélagsins að standa undir skuldum gömlu bankanna.
Sá hinn sami almenningur býr við harðnandi kost. Fólk sér ekki út úr skuldum. Sumir eiga ekki til hnífs og skeiðar. Fregnir berast af fólki sem ekki treystir sér til að borga nauðsynlega læknisaðgerðir. Foreldrar eru að afpanta tannréttingar og tannviðgerðir barna sinna.
En skilanefndir bankanna - þær "gæta hagsmuna" síns banka og ferðast í vellystingum.
Ef þetta er ekki firring, þá þekki ég ekki merkingu þess orðs.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Sláum í klárinn!
19.2.2009 | 09:25
Ýmis teikn eru á lofti þessa dagana um að áform ríkisstjórnarinnar um að koma í gegn lagafrumvarpi um stjórnlagaþing verði tafið von úr viti. Sjálfstæðismenn virðast ætla að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að hindra þetta.
Fyrirheitið um stjórnlagaþing var eitt af þeim loforðum sem sefuðu reiði almennings á dögum búsáhaldabyltingarinnar góðu. Við sem stöndum að undirskriftarsöfnunin við áskorun um þessar lýðræðisumbætur á vefsíðunni www.nyttlydveldi.is tókum eftir því að daginn sem hin nýja stjórn tilkynnti áform sín að setja lög um stjórnlagaþing, hægði mjög á undirskriftunum. Þær höfðu hrúgast inn af miklu afli dagana á undan, en svo kyrrðist skyndilega. Nú þegar þessi orð eru skrifuð eru þær orðnar 7.364.
Það er afar mikilvægt að ríkisstjórnin missi ekki dampinn úr áformum um þær lýðræðisumbætur sem hér um ræðir.
Það er jafn mikilvægt að almenningur í landinu missi ekki slagkraftinn við að minna á vilja sinn í þessu efni.
Krafan um stjórnlagaþing á sér sterkan hljómgrunn meðal almennings.En betur má ef duga skal!
Við stefnum að því að afhenda undirskriftirnar 6. eða 7. mars- svo það er best að slá í klárinn!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þá er komið að því - ég tek slaginn
18.2.2009 | 00:00
Jæja, þá er komið að því ... og enginn veit sína ævina ... og allt það. Ég er á leið í prófkjör fyrir Samfylkinguna í Norðvesturkjördæmi og stefni á annað efstu sætanna á framboðslistanum fyrir næstu Alþingiskosningar.
Eins og blogglesendur mínir vita hef ég ítrekað verið spurð að þessu undanfarnar vikur og mánuði. Ég hef svarað af varúð en ekki hugsað mikið um þetta fyrr en núna um helgina. Þá fóru hlutirnir að gerast.
Og eftir allmörg samtöl og tölvupósta er niðurstaðan sú að ég ætla fram.
Í almennum orðum get ég sagt það um sjálfa mig að ég er sjálfstæð og framsækin kona með ríka réttlætiskennd. Ég hef látið málefni landsbyggðarinnar til mín taka í ræðu og riti undanfarin ár enda er ég búsett á Ísafirði og þekki mætavel hvar eldarnir brenna heitast í dreifðum byggðum landsins.
Um þessar mundir berst ég fyrir lýðræðisumbótum á Íslandi. Ég er í góðum hópi Íslendinga sem efnt hafa til undirskriftasöfnunar á vefsíðunni www.nyttlydveldi.is fyrir því að boðað verði til stjórnlagaþings og þjóðinni gefinn kostur á að velja verðuga fulltrúa til þess að setja nýja stjórnarskrá.
Í kjölfar þess efnahags- og siðferðishruns sem dunið hefur yfir tel ég brýnt að Alþingi Íslendinga endurvinni traust meðal þjóðarinnar og rísi undir hlutverki sínu sem leiðandi löggafarsamkoma í lýðfrjálsu landi.
Brýnast um þessar mundir er þó að verja lífskjör almennings í landinu við þau erfiðu efnahagsskilyrði sem hér ríkja. Stjórnvöld verða að hafa forgangsröðunina í anda mannúðar og jafnaðarstefnu þegar kemur að niðurskurði og aðhaldsaðgerðum hjá hinu opinbera. Að byrðunum verði jafnað réttlátlega á bökin. Að þess verði gætt að erfiðar aðgerðir komi síst niður á þeim sem standa höllum fæti fyrir, t.d. sjúklingum, öryrkjum, efnalitlum heimilum eða barnafjölskyldum.
Ég vil standa vörð um mannréttindi og lýðræði, jöfnuð og sanngjarnar leikreglur. Mín skoðun er að stjórnmálamenn og stjórnsýslan öll eigi að bera ábyrgð og standa vörð um hlutverk stofnana þannig að þær fái að sinna lögbundnu hlutverki sínu án inngripa eða óeðlilegra afskipta stjórnmálamanna eða hagsmunaafla.
Þeir sem vilja kynna sér bakgrunn minn geta séð hann hér. Þeir sem vilja vita um áherslur mínar og hugðarefni geta til dæmis kynnt sér bloggfærslur mínar hér á þessari síðu.
Í stuttu máli sagt:
Ég er kona á besta aldri - nægilega lífsreynd til þess að þora að standa í báða fætur. Svolítið sorfin af sjávargangi lífsins en bjartsýn og drífandi. Verði mér treyst til þess að taka sæti á löggjafasamkundunni mun ég leggja mig alla fram í þágu þeirra mála sem ég tel horfa til framfara.
Mér er tamt að nota brjóstvitið ekki síður en hugvitið og hlýða eigin samvisku. Ég hyggst halda því áfram.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (46)
Verður stjórnlagaþing? Hvenær þá?
17.2.2009 | 00:07
Eiríkur Tómasson, prófessor í stjórnskipunarrétti, hefur skrifað lærða grein um stjórnlagaþing þar sem fram kemur að vel sé gerlegt að boða til þess samhliða næstu alþingiskosningum. Ég hvet alla til þess að kynna sér þessi skrif Eiríks, sem m.a. eru birt á vefsíðunni www.nyttlydveldi.is.
Ríkisstjórnin hefur gefið það fyrirheit að lög verði sett um skipan og verkefni stjórnlagaþings. Einnig verði gerðar breytingar á stjórnarskrá sem lúta að auðlindum í þjóðareign; þjóðaratkvæðagreiðslum og aðferð við breytingar á stjórnarskrá. Í þessu skyni var nýlega skipaður sérstakur ráðgjafahópur undir forystu Bjargar Thorarensen, prófessors og forseta lagadeildar HÍ.
Nú, tæpum tveim vikum síðar, er komið fram frumvarp frá framsóknarflokknum um stjórnlagaþing. Ekki hefur það fyrr litið dagsins ljós en ríkisstjórnin boðar annað frumvarp. Hvað það boðar veit ég ekki - en grunur vaknar um að málið verði tafið.
Það má ekki gerast. Ný stjórnarskrá sem setur ný viðmið sem byggja á endurmati og reynslu er forsenda þess að við getum markað okkuð nýtt upphaf. Fólkið í landinu þráir nýtt upphaf og nýjar leikreglur. Við þráum flest öll endurreisn þeirra gilda sem þjóðin hefur um aldir lagt rækt við. Þar er um að ræða gildi á borð við heiðarleika, samvinnu, jöfnuð og ekki síst ábyrgð.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Hver rekur þessa leyniþjónustu?
11.2.2009 | 11:22
Hvernig vissi Birgir Ármannsson stjórnarandstöðuþingmaður af bréfi Alþjóða gjaldeyrissjóðsins til forsætisráðherra áður en það hafði komið fyrir augu ráðherrans?
Hann var svo handviss um tilvist bréfsins að hann þaut í ræðustól á Alþingi til þess að heimta upplýsingar um innihald þess. Ég sá ekki betur en Einar K. Guðfinnsson væri þarna líka - jafn viss og félagi hans Birgir - báðir fimbulfambandi um leynimakk og pukur.
Forsætisráðherra kom af fjöllum og hafði ekki séð neitt bréf og ég efast ekki eitt augnablik um að ráðherrann sagði það satt.
Hver rekur þessa leyniþjónustu sem nær svo djúpt inn í stjórnsýsluna, að handbendin vita meira en ráðamenn sjálfir?
Hvað er að gerast í íslenska stjórnkerfinu? Ég fæ hroll.
Birgir aflétti leynd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)