Kosningaskjálfti í formanni Framsóknar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins heldur því fram í samtali við Fréttablaðið að Samfylkingin hafi lagst í rógsherferð gegn sér. Errm

Samfylkingarmenn líta hver á annan og koma af fjöllum. Hvernig er hægt að halda uppi skipulagðri rógsherferð án þess að nein merki séu um það í tölvupóstum eða öðrum samskiptum milli flokksmanna?

Skráðir félagar í Samfylkingunni fá tölvupósta frá kjördæmisráðum, flokksskrifstofunni og ýmsum málefnahópum innan flokksins - og ég verð bara að segja eins og er, að hvergi í þessum orðsendingum er vikið einu orði að formanni Framsóknarflokksins.

Ummæli formannsins unga eru þess vegna bara paranoja - kosningaskjálfti. Þau eru að mínu mati ekki aðeins óréttmæt heldur líka ósmekkleg. Það litla sem ég hef heyrt rætt um þennan unga mann meðal Samfylkingarfólks er allt á jákvæðum nótum.

Stjórnarflokkarnir hafa  öðrum og mikilvægari hnöppum að hneppa þessa dagana en að elta ólar við persónuhagi Framsóknarmanna - þeir eru nefnilega að sinna endurreisn samfélags. 

Ég efast um almenningur hafi mikinn áhuga eða þolinmæði fyrir umræðu af þessu tagi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Sigmundur Davíð er enn að slíta barnsskónum í pólitíkinni. Hann hefur haft slæma lærifeður. Það er sorglegt að núna, þegar unga fólkið í stjórnmálunum er að koma fram og gömlu skarfarnir að kveðja, að gömlu klisjurnar fái enn byr i seglin.  Þetta er bara hryggilegt.  Sigmundur Davíð ætti að reyna temja sér frumlega hugsun, málefnalegan málflutning og að setja sér þjóðholl markmið.

Gamla málþófið og leiðindin á þinginu eiga að heyra fortíðinni til.  Við viljum nýtt lýðræði.

Baldur Gautur Baldursson, 22.2.2009 kl. 18:37

2 Smámynd: Sævar Helgason

Sigmundur formaður er drengur ný kominn úr skóla og vantar því bæði reynslu og þekkingu . Formenn stjórnmálaflokka þurfa að vera vel sjóaðir í lífsbaráttunni.  Þegar umræðan verður óhagstæðum nótum fyrir hann- bregst hann ókvæða við og telur að verið sé að ofsækja sig af - í þessu tilviki Samfylkingu. Það á ekki af Framsókn að ganga í pólitíkinni...

Sævar Helgason, 22.2.2009 kl. 19:00

3 Smámynd: Áslaug Sigurjónsdóttir

Skrítin framsetning á þessu, veit ekki um hvað hann er að tala.  Hef ekkert séð að Samfylgingin sé að ráðast á Framsóknarflokkinn.  Hann er kanski að undirbúa sig með eitthvað sem á eftir að líta dagsins ljós og koma á óvart.

Áslaug Sigurjónsdóttir, 22.2.2009 kl. 19:34

4 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Þetta er náttúrulega bara grín í drengnum. Hann verður kannski jafn vinsæll á árshátíðum og þorrablótum og fyrirrennari hans Guðni Ágústsson. En svona ómerkilegur málflutningur er ekki gott vegarnesti fyrir hann. Þar fyrir utan er aðeins eitt að gera ef menn verða fyrir ásökunum um fjármálamisferli eða bellubrögð, það er að setja allt uppá borðið.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 22.2.2009 kl. 20:23

5 Smámynd: Hlédís

Væri ekki fremur, svona óskynsamlegt af SF að rægja formann flokks sem segist munu verja minnihlutastjórnina falli? Getur staðið til að hætta við núna? 

Hlédís, 22.2.2009 kl. 21:19

6 identicon

Hann leiðrétti sig að sagðist vera meina hóp fólks sem væri í SF, ekki flokkinn í heild. Ennþá finnst mér það vera einmitt gallinn við SF, margir hópar undir sömu regnhlífinni. En það fylgir þessu samt einhver fýlubomba, sem gæti lyktað af kosningaáróðri en ekki endilega skjálfta.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 22.2.2009 kl. 21:27

7 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það er ekki vandalaust að taka við stjórnmálaflokki sem hefur verið í tættlun í nokkur ár. Einkennilegt væri ef manneskja í slíkri stöðu mundi ekki gera mistök og falla í pytti sem verða á veginum. Framsóknarflokkurinn er að mínu mati sérlega erfitt verkefni, vegna forsögunnar og flokkseigendaklíkunnar.

Ég hafð bara ekki heyrt eða lesið um neina herferð á hendur SDG og eins og Ólina bendir réttilega á þá eru önnur verkefni mun mikilvægari þessa dagana, en rógsherferðir

Hólmfríður Bjarnadóttir, 23.2.2009 kl. 00:43

8 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Fyrst og fremst sýna þessi viðbrögð ákveðið reynsluleysi held ég. Samt ætti Sigmundur að vita vel að sú ábyrgð sem hann hefur verið kosin til, er engin sæla. Svo ´held ég nú að fólkið sem kastað hefur til hans orðum með gagnrýni sé nú ú röllum áttum, þar með talið frá hans eigin flokksfélögum. Hún Jónína blessunin frænka mín fór t.d. hamförum er hann og flokkurinn stóðu að því beint og óbeint að minnihlutastjórnin var mynduð.

Magnús Geir Guðmundsson, 23.2.2009 kl. 10:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband