Fćrsluflokkur: Íţróttir
Dottađ undir stýri
21.6.2009 | 21:55
Komin heim frá Gufuskálum af helgarćfingu međ Björgunarhundasveitinni. Kúguppgefin.
Ég var svoooo lúin ţegar ég ók heim núna seinnipartinn ađ ég dottađi undir stýri í Eyja- og Miklaholtshreppnum. Um hábjartan dag.
Ţađ var áreiđanlega engill sem hnippti í mig í tćka tíđ áđur en bíllinn fór út af - en hann var kominn yfir á rangan vegarhelming ţegar ég áttađi mig.
Úff! Ţarna munađi sannarlega mjóu.
Lifandi fegin ađ ekki fór verr, sá ég mitt óvćnna, lagđi bílnum í vegkanti og lagđi mig í tíu mínútur. Fór svo út úr honum og fékk mér frískt loft áđur en ég hélt ferđ minni áfram.
En námskeiđiđ var í alla stađi frábćrt. Skutull minn stóđ sig mjög vel. Á ţessu námskeiđi náđi hann ţví risastóra skrefi í ţjálfuninni ađ koma til mín ţegar hann hefur fundiđ mann og gelta á mig áđur en hann vísar mér til ţess týnda. Í síđasta rennslinu "fann" hann ţrjá og vísađi mér á ţá alla.
Annars stóđu allir hundarnir sig frábćrlega og ţetta var mjög skemmtilegt námskeiđ viđ rćtur Snćfellsjökuls.
Á morgun er ţađ svo ţingiđ - ţá skipti ég aftur um gír.
Íţróttir | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)
Eins og steiktur tómatur
22.5.2009 | 23:06
Ég er sólbrennd eins og steiktur tómatur eftir daginn. Ţađ er ekki sjón ađ sjá mig.
En ţessi fyrsti dagur björgunarhunda-námskeiđsins gekk vel. Skutull stóđ undir nafni. Hann ţeyttist um móana á ógnarhrađa, svo mér komu í hug orđ Gríms Thomsen í Skúlaskeiđi:
Rann hann yfir urđir eins og örin
eđa skjótur hvirfilbylur ţjóti ...
Hann var léttur á sér og leysti sín verkefni vel; gelti eins og herforingi úti hjá ţeim týnda (fígúrantinum) og ţurfti ekki hvatningu til. Ég er ekki enn farin ađ taka hann til mín í vísun - en mig grunar ađ ţess verđi ekki langt ađ bíđa.
En ... á morgun ćtla ég ađ muna eftir sólarvörninni - ţó hann rigni.
Íţróttir | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
Búsáhaldabylting á Ásvöllum
22.3.2009 | 17:53
Ţađ var ekki leiđinlegt ađ sjá íslensku strákana sigra Eistana međ 14 marka mun í leiknum áđan. Guđjón Valur og Björgvin stóđu sig fádćma vel, báđir - já og liđiđ í heild sinni.
Stemningin á vellinum var galdri líkust - ég hefđi viljađ vera ţar. Ţetta var eins og í búsáhaldabyltingunni. Enda árangurinn eftir ţví.
Myndinni hnuplađi ég af visir.is - ég vona ađ mér fyrirgefist ţađ.
Áfram Ísland !
![]() |
Ísland vann stórsigur á Eistlandi |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Íţróttir | Breytt s.d. kl. 17:55 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
Í dag tók ég ţátt í Íslandsmeti, mótmćlti, ćfđi hundinn og ... var sumsé veđurteppt
24.1.2009 | 22:12
Ég er veđurteppt á Ísafirđi og hef veriđ föst í ţrjá daga. Hér er brjálađ veđur dag eftir dag og ekki flogiđ. Ég hef ţví veriđ fjarri góđum mannfagnađi á Austurvelli, en ţađ var gaman ađ sjá fréttamyndirnar ţađan í kvöld. Stemninguna, taktinn, stuđiđ.
Í stađinn brá ég mér ásamt fjölmörgum Ísfirđingum í íţróttahúsiđ á Torfnesi til ađ setja Íslandsmet í jóga. Ţangađ mćttu hátt á annađ hundrađ manns sem sameinuđust í einbeittu jóga í eina klukkustund. Ţađ var endurnćrandi stund.
Svo skellti ég mér ásamt fleiri mótmćlendum á Silfurtorgiđ á Ísafirđi ţar sem haldnar voru fjórar rćđur. Samkomunni lauk međ ţví ađ allir sungu einum rómi Öxar viđ ána.
Síđdegis dreif ég mig svo međ félaga mínum upp á Seljalandsdal ađ ćfa hundana í snjóflóđaleit. Ţađ var varla stćtt fyrir vindi og grimmdarhagléli, en viđ paufuđumst ţetta og kláruđum ćfinguna. Annars er stórmerkilegt hvađ hundarnir láta veđriđ lítiđ á sig fá. Alltaf jafn glađir og áhugasamir (mađur gćti ýmislegt lćrt af ţeim).
En á morgun er nýr dagur - og veđurspáin afleit fyrir Vestfirđi.
Íţróttir | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (19)
Eins og nýhreinsađur hundur
18.1.2009 | 18:56
Jćja, ég er eins og nýhreinsađur hundur eftir jóganámskeiđ helgarinnar. Mér skilst ađ nýhreinsuđum hundum líđi ekkert sérlega vel . Mér er hálf ómótt eftir alla sálarhreinsunina, svo hún hlýtur ađ hafa veriđ rćkileg.
Annars var ţetta mjög jákvćđ og endurnćrandi upplifun. Fimmtán klukkustundir á ţremur dögum, ţar af fimm jógatímar. Ég er búin ađ fara í gegnum sólarhyllinguna, kóbruna, ungbarniđ, fiskinn og hvađ ţetta heitir alltsaman - ađ ekki sé minnst á slökunina. Er orđin svo slök ađ ég hangi varla uppi.
En ég finn líka ađ ţetta hefur gert mér mjög gott. Og nú er ćtlunin ađ halda ótrauđ áfram á sömu braut.
Friđur.
Íţróttir | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)
Úr kreppunni í hundana - stutt björgunarhundaćfing
1.10.2008 | 22:12
Í kvöld skrapp ég á stutta björgunarhundaćfingu. Ţađ var kćrkomin hvíld frá öllu krepputalinu ađ fara bara í útigallann og arka međ lambhúshettu á höfđi og hund í bandi upp hlíđ.
Ţađ var fámennt en góđmennt á ćfingunni - viđ vorum bara tvö, ég og Skúli félagi minn sem vorum mćtt ađ ţessu sinni. Hann međ Patton sinn, ég međ Skutul minn - báđir bráđefnilegir Border-Collie hundar. Heima sat Blíđa mín eftir, helsćrđ yfir ţví ađ vera ekki tekin međ. Ýlfriđ í henni fylgdi mér út ađ bíl ţegar ég lagđi af stađ međ ţann stutta.
Jćja, fyrst ćfđum viđ Skutul. Skúli faldi sig á bak viđ stóran stein í hlíđinni. Skutull var svo sendur af stađ, ţvert á vindáttina. Hann hljóp sem fćtur toguđu uppi í hlíđina og leitađi vel - datt fljótlega inn í lyktina og hljóp ţá til Skúla ţar sem hann gelti strax nokkrum sinnum og fékk leik ađ launum, ţar til ég kom móđ og másandi á eftir honum. Hann tók ţrjú svona rennsli, og gekk mjög vel í öll skiptin - enda áhugasamur og óhrćddur ađ hlaupa út frá mér til ađ leita.
Patton (hér sjáiđ ţiđ hann) er kominn mun lengra en Skutull, enda löggiltur björgunarhundur međ B-próf.
Hann er yfirferđarmikill og leitar stór svćđi. Ég faldi mig fyrir hann, og meiningin var ađ láta hann leita undan vindi nokkurn spöl til ađ reyna svolítiđ á hann, stýra honum svo í átt ađ lyktarsvćđinu og leyfa honum ţá ađ finna mig.
En Patton lét ekki plata sig. Hann var ekki fyrr kominn út úr bílnum en hann ţaut af stađ og rakleitt til mín. Skipti engu ţó ađ Skúli reyndi ađ kalla á hann til baka - Patton lét ţađ sem vind um eyru ţjóta, enda kominn í lykt. Hann vísađi á mig međ glćsibrag - og var stoltur af frammistöđu sinni, enda ástćđa til.
Í seinna leitarrennslinu tókst ađ láta hann leita svolitla stund áđur en hann vísađi á mig. Ţađ gerđi hann međ sama öryggi og fyrr. Mjög flott hjá honum.
Já, ţetta gekk vel. Svolítil föl á jörđu og nokkur snjókorn í lofti, annars milt veđur. Ţađ var gott ađ draga ađ sér hreina loftiđ. Og ţó ćtlunin hefđi veriđ ađ hugsa um eitthvađ annađ en fjármáladramađ sem skekur samfélagiđ, ţá tókum viđ auđvitađ svolitla spjalltörn um máliđ. Nema hvađ.
Jamm ... Hér sjáiđ ţiđ svo hina vösku Vestfjarđadeild Björgunarhundasveitar Íslands. Myndirnar voru teknar í fyrravetur og vor.
Íţróttir | Breytt s.d. kl. 23:08 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
Ţjóđernisvitund - íţróttir og tilbeiđsla
28.8.2008 | 15:05
Ţetta ţrennt er kyrfilega samtvinnađ ţessa dagana, og var til umrćđu í morgunútvarpinu á Rás-1 í morgun. Ţar sátum viđ Árni Indriđason sagnfrćđingur og handboltakempa og spjölluđum um samkenndina, tilfinningar og tár ţjóđarinnar ţessa dagana, og bárum saman viđ ýmislegt í menningarsögunni. Ef ykkur langar ađ hlusta ţá er tengillinn hér. Ţetta tekur 8 mínútur.
Íţróttir | Breytt s.d. kl. 20:00 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvar var Dorrit?
27.8.2008 | 23:23
Ţetta var vel heppnađur fagnađarfundur - sannkölluđ ţjóđhátíđ. Ekkert út á hana ađ setja. Ađ vísu var ég ađ furđa mig á ţví hversvegna ríkisstjórnin var öll dregin upp á sviđ og látin standa ţar án sýnilegs tilgangs. Og eiginlega hefđi mér fundist fara betur á ţví ađ forseti ÍSÍ hefđi fengiđ eitthvert hlutverk í athöfninni. Ţá voru nú rćđuhöldin sum hver svona og svona - Óli Stef var samt ágćtur. Heimspekilegur og einlćgur. Auđvitađ sat ég límd viđ sjónvarpsskjáinn. Ţjóđremban ađ sprengja brjóstholiđ. Augun full af tárum.
En eitt vantađi. Ţađ vantađi Dorrit - ađal stuđningsmann liđsins, höfund hinna ógleymanlegu ummćla um "stórasta land í heiminum" - ummćlanna sem snurtu ţjóđina beint í hjartastađ og gleymast aldrei. Hún hefđi átt ađ vera ţarna - og satt ađ segja beiđ ég ţess ađ hún birtist. Hélt kannski ađ hún yrđi kynnt sérstaklega til sögunnar. En ţađ gerđist ekki. Ţađ var synd.
Ţess í stađ stóđu vandrćđalegir ráđherrar, borgarstjóri og forseti í einum hnapp og ţrengdu hver ađ öđrum. Hanna Birna og Ţorgerđur Katrín fremstar ţar sem ţćr kysstu hvern mann frammi fyrir myndavélunum. Hmmm .... sennilega úthugsađ. Á svona uppákomum getur komiđ sér vel ađ vera inni í myndinni.
En sumsé: Ţađ vantađi Dorrit. Ég saknađi hennar.
![]() |
Međ stöđugan kökk í hálsinum |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Íţróttir | Breytt 28.8.2008 kl. 09:53 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (30)
Silfur-skál!
24.8.2008 | 10:17
Allt fór hér í brand og bál
Börđumst viđ af lífi og sál.
Boltar skullu á Björgvin Pál
í Beijing. Ţađ var silfur - skál!
Íslenskur fáni yfir verđlaunapalli á Ólympíuleikunum - silfur um háls íslenska handboltalandsliđsins - tvímćlalaust stoltasta stund okkar Íslendinga! Strákarnir okkar mega vera glađir af frammistöđu sinni, viđ erum svo sannarlega glöđ hér heima.
Úrslitin í lokaleiknum voru vel viđunandi - sami markamunur og var á okkur og Spánverjum. Röđun ţjóđa á verđlaunapallinum var ţví vel makleg miđađ viđ frammistöđuna í ţessum leikjum. Frakkarnir eru augljóslega međ gríđarlega sterkt liđ, og ţeir unnu sannarlega fyrir gullinu. Engin skömm ađ tapa fyrir slíku liđi.
Annars mátti sjá ákveđna veikleika í leik íslenska liđsins gegn Spánverjum - ţá á ég viđ hrađasóknirnar sem ekki gengu upp. Ég óttađist strax ađ ţetta myndi verđa okkur dýrkeypt í úrslitaleik gegn sterkara liđi, og ţađ kom á daginn. Engu ađ síđur sýndu strákarnir mikinn baráttuvilja og gáfust ekki upp, jafnvel ţó markastađan vćri orđin afar óhagstćđ um miđbik leiksins.
Til hamingju Ísland: Silfur-skál!
![]() |
Íslendingar taka viđ silfrinu |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Íţróttir | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
Laumast út af fyrirlestri á lokamínútum leiksins
22.8.2008 | 18:39
Í miđjum fyrirlestri laumađist ég út svo lítiđ bar á til ţess ađ fylgjast međ síđasta korterinu af leiknum. Hafđi gert samning viđ stađarhaldarann á Hrafnseyri um ađ fá ađ smjúga inn til hans og kíkja á sjónvarpiđ rétt á međan leiknum vćri ađ ljúka. Ég var nefnilega stödd á málţingi á Hrafnseyri viđ Arnarfjörđ. Dr. Einar Sigurbjörnsson var á ţeirri stundu međ afar fróđlegt erindi um ţremenningana Kolbein Tumarson, Guđmund Arason góđa og Hrafn Sveinbjarnarson. En ... ég stóđst samt ekki mátiđ. Og ég sá ţađ á svipnum á Einari ţegar ég kom til baka ađ hann fyrirgaf mér. Sama átti viđ um nánast alla í salnum sem sneru sér viđ í sćtunum međ spurnarsvip og vildu vita hvernig leikurinn fór. Tveir ţumlar upp, ţađ fór kliđur um salinn, og bros breiddust um andlit.
Áđur en ég laumađist út til ađ horfa á lokamínúturnar var ég búin ađ fá regluleg SMS frá syni mínum um stöđuna frá byrjun: 1-0 var fyrsta skeytiđ, svo 5-0 og svo fóru Spánverjar ađ skora: 19-17 var stađan á einhverjum tímapunkti. Ég var orđin friđlaus í sćtinu.
Ţađ er ótrúlegt ađ viđ skulum vera komin í ţá stöđu ađ geta spilađ um gull á Ólympíuleikum. Ţetta handboltalandsliđ okkar er samansafn af hetjum.
Ósjálfrátt verđur mér líka hugsađ til Guđbjargar Guđjónsdóttur, ömmu Guđjóns Vals, ţeirrar góđu konu sem er áttrćđi í dag. Varla hefđi hún getađ fengiđ betri afmćlisgjöf.
Til hamingju Guđbjörg! Til hamingju strákar! Til hamingju Ísland!
![]() |
Íslendingar í úrslitaleikinn |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Íţróttir | Breytt s.d. kl. 18:43 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)