Guðdómlegt veður!

ArnarfjordurAgustAtlason Það er guðdómlegt veður úti.

"Sól slær silfri á voga" söng Óðinn Valdimarsson í útvarpinu rétt áðan "sjáðu jökulinn loga" og um leið hringdi ég í Möggu vinkonu, eins og alltaf þegar þetta lag hljómar. Þá hringjum við hvor í aðra og syngjum saman með Óðni. Sama hvernig stendur á. Og það var SVO gaman að syngja þetta í morgun - útsýnið úr stofuglugganum hjá mér var ólýsanlegt.

Gullið morgunmistur yfir spegilsléttum sjó og snævi þakin fjöllin allt í kring. Innst í firðinum mókti selur á ísnum sem er óðum að hverfa og fuglarnir ýfðu vængi, hristu sig og köfuðu allt í kring. Lóan er komin, urtöndin, tjaldur og stelkur. Álftaparið með ungann sinn frá í fyrra.

Það er yndislegt að vera til á svona degi. Verst hvað myndavélin mín er takmörkuð, það þýðir ekkert fyrir mig að taka mynd til að sýna ykkur. Í staðinn set ég inn þessa fallegu mynd sem hann Gústi vinur minn (Ágúst Atlason) tók í vetur þegar fyrstu geislar sólar kysstu Arnarfjörðinn. Birtan í myndinni er svipuð því sem blasti við mér í morgun.

Guð gefi ykkur öllum góðan dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Helgadóttir

Takk og takk fyrir síðast!

Guðrún Helgadóttir, 18.4.2008 kl. 09:50

2 identicon

Já Ollý mín - þetta lag er okkar,  eftir  að við vinkonurnar sungum saman í kvöldsólargeislum við Þingvallavatn fyrir mörgum,mörgum árum langt fram eftir nóttu þetta lag og vinátta þín er ómetanlegur fjársjóður. En oft hefur maður staðið í frekar pínlegum aðstæðum þegar síminn hringir í  vinnunni og líta furðulostnir vinnufélagar á mann þegar ég byrja syngja hástöfum " sól slær silfri á voga, sjáðu sólina loga " heilög stund.

Magga (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 10:24

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

..sjáðu jökulinn loga,

allt er bjart yfir okkur tveim,

því ég er kominn heim.

Ójá, yndislegt lag, yndislegar minningar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.4.2008 kl. 12:05

4 Smámynd: Tiger

  Mér finnst ætíð fallegast um að litast mjög snemma á vorin - og seint á haustin - sérstaklega á haustin þegar litbrigðin taka að leika lausum hala um allt. Á stilltum dögum er dásamlegt að sitja á fjallstoppi og horfa yfir sveitirnar, vera þar og fylgjast með sólarupprás eða sólsetri - bara yndislegt. Knús á þig Ólína mín og eigðu yndislega helgi framundan.

Tiger, 18.4.2008 kl. 20:18

5 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Fallegt þetta  :)

Marta B Helgadóttir, 19.4.2008 kl. 00:10

6 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Vorið er komið en ég skil ekki hvað guð hefur með góðan dag að gera!

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.4.2008 kl. 02:16

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Meira að segja vorið í Prag er komið aftur. Þetta ætlar engan enda að taka, Ólína mín. Það verður að senda hann Sigga í guðfræðina til að hann botni eitthvað í þessu öllu saman.

Þorsteinn Briem, 19.4.2008 kl. 12:06

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Fallegt.  Hvernig finnst þér útsetningin á laginu hjá Bubba og Birni Jörundi? ég er sátt, en Óðinn er bestur.  Kær kveðja vestur.3D Prom Queen  3D Prom Queenstígum léttan sumardans

Ásdís Sigurðardóttir, 19.4.2008 kl. 14:44

9 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Ásdís - Óðinn er bestur  Svo kemur Bjöggi - og enginn eftir það

(sorrí Bubbi og Björn Jörundur - en þið náið ekki stemningunni í laginu).

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 20.4.2008 kl. 12:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband