Útsvarið í kvöld ; )

Jæja, þá er það Útsvarið í kvöld Blush Lið Ísafjarðarbæjar gegn Reyknesingum.

Í liði Ísfirðinga eru auk mín þau Ragnhildur Sverrisdóttir blaðamaður og Halldór Smárason, menntskælingur. Bæði eru þau miklar mannvitsbrekkur og skemmtilegt fólk. Í liði Reykjanesbæjar eru Guðmann Kristþórsson, Ragnheiður Eiríksdóttir (Heiða í Unun) og Júlíus Freyr Guðmundsson (ég held hann sé sonur Rúnars Júlíussonar sem heitir að ég held Guðmundur Rúnar). Verður spennandi að mæta þeim - en sjálf veit ég ekkert við hverju má búast.

Við Vestfirðingarnir hittumst aðeins í gær, rétt sísvona til að stilla saman strengi. Við erum ágæt saman - verðum vonandi heppin líka þegar á hólminn er komið.

Í síðasta Útsvarsþætti fannst mér spurningarnar raðast einkennilega milli liða. Einhvernvegin vildi þannig til að mér fannst ég geta nánast allt sem vinningsliðið var spurt um, en ekki eins mikið af því sem tapliðið þurfti að svara. Semsagt: Heppnin er hluti af árangrinum, ég fer ekki ofan af því. Samstilling liðanna held ég líka að skipti máli. 

Jæja, en nú er að krossleggja fingur og sjá hvað setur. "Sjáumst" vonandi í kvöld. Cool

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gangi ykkur vel!

Uppáhalds sjónvarpsþátturinn á mínum vinnustað!

Ég vinn á sambýli fyrir "minnisveika", þar sem augnablikið er dýrmætt!

Starfsmenn heimilisins í kvöld eru báðir vestfirðingar að uppruna, þannig að "okkar stofa" mun að sjálfsögðu, halda með ykkur!!

Ef þið verðið "óheppin" með spurningar, þá mun það ekki koma að sök í "stofunni okkar", því heimilismenn munu ekki muna úrslitin!!!  En tilfinningin eftir skemmtilegheitin, á meðan á þættinum stóð, mun lifa!

Við vitum að Ragnhildur er dóttir Sverris Hermanns og að þú ert tengdadóttir Péturs verkalýðsfrömuðs, en hver er ungi maðurinn?  Þetta verðum við að hafa á hreinu í "stofunni okkar"!

kv.  Sigrún og Elsa.

Sigrún (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 14:12

2 Smámynd: Ísak Pálmason

Gangi ykkur vel í kvöld...reyni að hugsa vel til ykkar og vonandi verður þetta kvöldið ykkar

Og fyrir ykkur Sigrún og Elsa. Halldór Smárason er sonur Smára í Fræðslumiðstöðinni og Helgu...hann er betur þekktur sem Dóri í Apollo (hljómsveitinni) Hann er fjölhæfur  (þá erum við að tala um að hann spilar á öll hljóðfæri, eða næstum því, allt frá píanói til írsku blokkflautunnar sinnar) og skemmtilegur tónlistarmaður

Ísak Pálmason, 16.11.2007 kl. 14:23

3 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Takk fyrri góðar óskir. Já, Halldór er sonur Smára Haraldssonar og Helgu Friðriksdóttur. Klár strákur og músíkalskur sem er þessa dagana í Gettu betur liðinu fyrir MÍ. Ragnhildur sver sig í föðurættina, vestfirsk í háttum og framgöngu. Og ég - tja, ég er nú bara eins og ég er. Vonandi erum við þrjú góður kokteill

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 16.11.2007 kl. 15:09

4 identicon

Takk fyrir þessar upplýsingar Ísak.  Treystum því að Halldór sé "vel ættaður"!

Þegar kemur að okkar kynslóð, þurfum við að vita deili á öfum og ömmum!

Við rekjum reyndar báðar ættir okkar til hinnar gömlu Vestur-ísafjarðarsýslu........og vorum ekki vel kunnugar í höfuðstað Vestfjarða.  Önnur okkar er frá Súgandafirði og hefur ekki átt heima fyrir "vestan" síðan löngu fyrir göng!  Hin er "bara" ættuð úr Dýrafirðinum.  En við ætlum ekki að láta gamlan "hrepparíg" skemma fyrir okkur skemmtilegt kvöld, heldur njóta og halda með "okkar fólki".

Sigrún (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 15:15

5 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ég er ekki í vafa um að vestfirskar mannvitsbrekkur leggi Reyknesinga að velli þótt svo að Heiða vinkona mín sé öll á brattann

Heimir Lárusson Fjeldsted, 16.11.2007 kl. 15:25

6 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Gangi ykkur vel, Ólína! Þið rullið þessu upp!

Flosi Kristjánsson, 16.11.2007 kl. 18:28

7 Smámynd: IGG

Það var gaman að fylgjast með stórgóðri frammistöðu ykkar í Útsvarinu.  Til hamingju með úrslitin. Ingibjörg  G. Guðmundsdóttir, stoltur Ísfirðingur

IGG , 16.11.2007 kl. 21:55

8 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Innilega til hamingju með frammistöðuna í Útsvarinu.

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 16.11.2007 kl. 22:01

9 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Til hamingju tið stóðuð ykkur vel í kvöld,vel valið og hörku lið.

María Anna P Kristjánsdóttir, 16.11.2007 kl. 22:01

10 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Þið stóðuð ykkur vel í kvöld, þetta var skemmtilegt.

Marta B Helgadóttir, 16.11.2007 kl. 22:20

11 Smámynd: Hlynur Hallsson

Hvernig fóretta?)  Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 16.11.2007 kl. 22:34

12 Smámynd: Albertína Friðbjörg

Til hamingju með flottan árangur! Ég fylgdist spennt með alla leið frá Skotlandi   Hlakka til að fylgjast með næsta þætti.

Albertína Friðbjörg, 16.11.2007 kl. 23:07

13 identicon

Til hamingju og takk fyrir góða skemmtun!

"Stofan okkar" sat spennt við skjáinn og allir fóru sáttir í háttinn! Flestir könnuðust aðeins við dömurnar í okkar liði og pilturinn stóð sig afskaplega vel! 

kv. Sigrún og Elsa.

Sigrún (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 23:44

14 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Glæstur sigur, til hamingju! Við Vestfirðingar erum stoltir af ykkur.

Lára Hanna Einarsdóttir, 16.11.2007 kl. 23:58

15 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Til lukku .. Ólína

Gunnlaugur B Ólafsson, 17.11.2007 kl. 00:07

16 Smámynd: Katrín

Til hamingju með sigurinn Ísfirðingar

Bolvíkingurinn

Katrín, 17.11.2007 kl. 00:49

17 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Takk fyrir það öllsömul Við erum bara býsna ánægð með árangurinn. Vorum að vísu heppin - og hitt liðið svolítið óheppið. En samt. Við stóðum okkur bærilega takk. Þrjátíu stiga munur er talsvert. Við bætum hvert annað upp, held ég.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 17.11.2007 kl. 00:56

18 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vá Ólína, ég var svo stolt fyrir ykkar hönd í kvöld.  Þið voruð öll algjörlega frábær og til sóma.  Þakka þér kærlega og ykkur öllum fyrir frábæra frammistöðu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.11.2007 kl. 01:08

19 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Glæsilegt til hamingju.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 17.11.2007 kl. 01:28

20 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Til hamingju með sigurinn, vá hvað þú ert klár.kv.

Georg Eiður Arnarson, 17.11.2007 kl. 07:02

21 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er ákaflega stolt af "mínum" konum (bloggvinkonum) og hoppaði andlega hæð mína (sem er ansi stórt stökk en ég þjáist alvarlega af hógværðarskorti) af gleði vegna þess hversu frábær þið Ísfirðingar voruð.  Til lukku með sigurinn

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.11.2007 kl. 09:54

22 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Heimdallur getur verið stoltur af þér, enda vorðuð þið voruð flott öllsömun og karlinn þinn var svo punkturinn yfir iið.

Sigurður Þórðarson, 17.11.2007 kl. 11:33

23 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Takk enn og aftur.

Glöggur maður benti mér á að við Ísfirðingar værum með næst flestu stigin í keppninni. Vantrúuð fór ég inn á heimasíðu RÚV og gáði. Þetta passar. 

Nú vandast málið.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 17.11.2007 kl. 20:50

24 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þetta var glæsilegt hjá ykkur - var næstum viss að þið væruð efst en þú segir nr 2 það er líka flott. Til hamingju.

Edda Agnarsdóttir, 17.11.2007 kl. 21:24

25 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Þetta var glæsilegt, til hamingju :)

Með þáttinn á undan, þá hefði náttúrlega ekki verið nálægt því svona mikill munur á þeim liðum ef Ólafur Helgi hefði verið fljótari að hlaupa...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 18.11.2007 kl. 14:46

26 identicon

Til hamingju með glæsilegan árangur. Það var gaman að sjá "stuðningsmennina" fyrir aftan stjórnendur þáttarins. Þar hefurðu væntanlega þekkt nokkra viðhlæjendur þína.

Eyleifur (IP-tala skráð) 18.11.2007 kl. 21:17

27 Smámynd: Bragi Þór Thoroddsen

Glæsilegt, ekki við öðru að búast.

vcd

Bragi Þór Thoroddsen, 18.11.2007 kl. 23:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband