Gjamm og karp í framboðsþætti

   kastljos  Æ, ósköp var lítil reisn yfir framboðsþætti Kastljóssins í gærkvöldi. Gjamm og karp - frammígrip. Hver talaði upp í annan og illgerlegt á köflum að heyra nokkurn skapaðan hlut. Þetta er ósiður sem hefur verið að aukast í umræðuþáttum undanfarin ár - og ég held að hafi byrjað með Silfri Egils. En þetta er leiðinlegt. Það er ekkert fjör að hlusta á fjóra tala samtímis. Maður vill heyra málflutning frambjóðenda fyrir kosningar - til þess kveikir maður á sjónvarpi eða útvarpi þegar frambjóðendur eru leiddir saman.

Stjórnendurnir þáttarins voru ekki barnanna bestir - sérstaklega fannst mér Helgi Seljan (bloggvinur minn) fara offari. Hann greip fram í fyrir öllum sem töluðu, var neikvæður í spurningum (bæði tónninn og orðfærið). Fyrri hluti þáttarins var hvorki líflegur né upplýsandi - þvert á móti var maður bara orðinn pirraður þegar honum lauk.

Nýr frambjóðandi í kjördæminu, Ásta Þorleifsdóttir,  komst einna best frá hildarleik fyrri hálfleiks, málefnaleg og yfirveguð.

Síðari hluti þáttarins var illskárri, þar stóð Þórunn Sveinbjarnardóttir upp úr - náði að snúa af sér og sækja fram af áheyrilegri rökfimi. Sérstaklega í umræðunni um Evrópumálin. 

Enginn af fulltrúum stjórnarflokkanna kom sérlega vel út - sumir komu beinlínis illa fyrir. Yfirlæti og gjamm er ekki traustvekjandi í svona þætti. Sumum þeirra var þó vorkunn, vegna þess hvernig þættinum var stjórnað - því í raun var gert lítið úr öllum sem þarna komu fram.

 Stjórnun umræðuþátta er vandmeðfarin listgrein - og vandrataður hinn gullni meðalvegur milli þess að grípa fimlega inn í umræður til að halda uppi líflegum skoðanaskiptum eða hreinlega vaða yfir þátttakendur. Stjórnendum gærkvöldsins brást því miður sú bogalist.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Björgvin Antonsson

Sammála þér þarna. Þetta var ekki til þess fallið að vekja vonir manns eða traust. Mér finnst standa uppúr, þegar maður ber fulltrúa Íslandshreyfingarinnar saman við fulltrúa flokkanna, hvað það er mikill munur á fólki sem er enn óskemmt af pólitísku karpi og liðakeppni og svo aftur þeim sem hafa atvinnu af pólitík og eru bara að fara í gegn um sömu gömlu æfingarnar. Mótmæla hinu og þessu bara útaf prinsippinu (má ekki vera sammála). Troðast áfram með innihaldslausum og málefnasnauðum yfirlýsingum.

J#

Jónas Björgvin Antonsson, 11.4.2007 kl. 11:49

2 identicon

Já, ég tek undir með ykkur. Pólitíkusarnir voru ekki að vanda sig - og það var óstjórn á þættinum. Mér fannst lítið til hans koma.

Árni Helgason (IP-tala skráð) 11.4.2007 kl. 11:58

3 identicon

Dr. Ólína! Þín er saknað af Leir! Ferðu ekki að skjóta eins og einni þar inn aftur?

leirari (IP-tala skráð) 11.4.2007 kl. 13:23

4 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Mæltu manna heilastur leirverji góður. Ég hef svosem reynt að komast inn aftur - en finn bara ekki réttu leiðina (sennilega vegna þess að ég var skráð út á sínum tíma þegar ég tók mér frí).

Ég bara kann ekki að koma mér inn á nýjan leik. Ef þú - eða einhver félagi okkar á leirnum - vildir vera svo væn(n) að aðstoða mig við þetta, væri það vel þegið.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 11.4.2007 kl. 13:42

5 Smámynd: Þórður Runólfsson

Hjartanlega sammála. Orðið hundleiðinlegt að fylgjast með spjallþáttum. Stjórnendur orðnir svo ágengir að gestir fá yfirleitt aldrei að klára sitt mál og siptir þá ekki máli hvort gesturinn sé einn eða margir. Hálfsögð saga - aldrei fenginn botn í neitt. Kastljósþátturinn í gærkveldi með því alversta sem komið hefur frá þeim bænum.

En afhverju horfði menntamálaráð(herra)frúinn alltaf útí horn með þetta einkennilega glott?

Þórður Runólfsson, 11.4.2007 kl. 14:17

6 identicon

Þetta var kjánalegt og hálf aulalegur þáttur í gær. Sýnir kannski best hve lítinn áhuga fólk hefur orðið á stjórnmálum að salurinn sem að notaður var til upptöku var hálftómur (eða hálffullur, eftir því hvernig fólk vill líta á það) og stór hluti af spurningum úr salnum var frá fólk sem er í framboði.

Þetta var eiginlega bara sorglegt og ég er alveg hjartanlega sammála þér um hvernig Seljan stóð sig, hann stóð sig ekki. 

Atli Rafnsson (IP-tala skráð) 11.4.2007 kl. 15:33

7 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

sammála þér um þetta Ólína, maður nennir bara ekki að fylgjast með þegar allir tala í einu, sammála þér líka um það að þetta byrjaði af alvöru hjá Agli í Silfri hans þar sem hann lætur helst alla tala í einu og virðist hafa gaman af því sjálfur

Hallgrímur Óli Helgason, 11.4.2007 kl. 16:00

8 identicon

Sammála þér Ólína með stjórnunina á þættinum í gær. Mér finnst reyndar viðtöl við pólitíkusa ofl. meir og minna vera eyðilögð núorðið í viðtalsþáttum.  Ég geng t.d. alltaf í burtu þegar hún (man ekki nafnið) Vilhjálmsdóttir tekur viðtöl í Kastljósinu, því það er alltaf eins og hún eigi helst að hafa orðið en ekki viðmælandinn.  Hún er reyndar alls ekki ein um þetta.

Friðrik Vilhelms (IP-tala skráð) 11.4.2007 kl. 16:41

9 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þú ættir bara að skella þér í fjölmiðlana aftur Ólína. Þessir svokölluðu "þáttarstjórnendur" hafa enga stjórn á neinu lengur og megnið af tímanum hjá þeim fer í koma sínum áherslum á framfæri. Ömurlegt sjónvarpsefni orðið og ekki til fá fólk til að vera "með" í umræðunni.

Halldór Egill Guðnason, 11.4.2007 kl. 19:41

10 identicon

Algerlega sammála þarna með þáttastjórnina. Helgi Seljan og stúlkan sem er oft með umræðuþætti í kastljósinu eyðileggja flesta þætti með frammígripum og dónaskap.  Þetta fólk gæti lært mikið af Jóhönnu Vigdísi, sem ásamt Sigmari stjórnaði þættinum þar sem flokksleiðtogarnir komu fram. Maður tók varla eftir því að hún væri þarna, en samt gekk þátturinn óaðfinnanlega fyrir sig.

Sigurður Sverrisson (IP-tala skráð) 11.4.2007 kl. 21:01

11 Smámynd: Stefán Þórsson

Sá ljóður sem mér fannst verstur á þættinum(og já, þeir voru margir) var uppstillingin á "pallborðinu".  Frambjóðendurnir sátu í tæpu kallfæri frá hvorum öðrum, stjórnarliðar öðrum megin og stjórnarandstæðinar hinum megin.  Á milli þeirra stóð berserkurinn Helgi Seljan sem einnig var í kallfæri frá viðmælendum sínum.  Það hefur verið óskráð regla í viðtalstækni að viðmælandinn horfir alltaf niður á fréttamanninn, sem skv. kenningunni, virðist þá minni og lægra settur en viðmælandinn.  Í þættinum í gær var þessi óskráða regla virt að vettugi og frambjóðendurnir virtust þess vegna dvergvaxnir og ótraustvekjandi.  Skamm Skamm.  Svona gerir maður ekki.  

Stefán Þórsson, 11.4.2007 kl. 23:28

12 identicon

Sá ekki þennan þátt, en er alveg sammála hvað varðar óstjórn á umræðuþáttum, þegar 2, 3 eða 4 menn gala samtímis hver upp í annan, hvernig eigum við hlustendur að skilja hvað fer fram?  Þetta segir reyndar talsv. um þátttakendur í umræðum eins og stjórnandann.  Ekki síður sammála varðandi svo ágenga þáttarstjórnendur að jaðrar við ókurteisi.  Þegar viðmælendur fá varla að segja eina heila setningu án þess að gripið sé (frekjulega) fram í fyrir þeim, þurfa menn að fara að hugsa sinn gang.  Sem betur fer eru undantekningar - ennþá, sbr. Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur.

Eggert Stefánsson (IP-tala skráð) 12.4.2007 kl. 00:41

13 Smámynd: Tómas Þóroddsson

Þetta var ótrúlega lélegur þáttur hjá þeim. Mjög mikill munur á þessum þætti og stöð 2 þáttunum. Þeir eru fínir þó svo að heilbrigðis- og félagsmálin séu ekki rædd.

Tómas Þóroddsson, 12.4.2007 kl. 02:31

14 Smámynd: Janus Hafsteinn Engilbertsson

Ég er þér, Ólína,  algjörlega sammála. Þetta gekk engan veginn upp. En þetta er víst nútíma sjónvarpsþættir. Nútíma pólitík að gjamma hver uppí annan svo að enginn skilur neitt í neinu. Og veit því varla nokkur maður, með viti,  hvað hann á að kjósa. 

Hér áður fyrr fengu menn að tala í sjónvarpinu eins og þeir væru í eldhúsdagsumræðu á Alþingi, og þá gat maður þó alltaf verið sammála síðasta ræðumanni-og verið ákveðinn í því að kjósa hann. En nú er ekkert slíkt í boði, því "kappræður" í sjónvarpi eru eins og að vera í fuglabjargi um há varptímann. Og ekki eru spyrlarnir fugla bestir.

Það var að vísu oft fjör á framboðsfundum og félagsfundun vestur í Súðavík þegar ég var að alast þar upp. Enda voru þeir líka ætlaðir okkur börnunum til kennslu. Og þá fengu menn að fara í pontu óáreittir til að segja sína meiningu, án þess að menn væru að gjamma hver upp í annan. Ég man og eftir fundi hjá Sjómannafélaginu, þegar Bensi á Andvaranum hélt sína löngu ræðu um það hvernig væri búið að fara með sjómenn, sem endaði með því að hann klæddi sig úr öðru klofstígvélinu og barði í púltið og sagði þessi fleygu orð: "Ég segi mig hér með úr Andvarafélags Sæfarafélaginu." Og gekk svo út með klofstígvélið undir hendinni, án þess að nokkur andmælti honum. Þetta sýnir mér Ólína mín, að heimur verstnandi fer.

Janus Hafsteinn Engilbertsson, 12.4.2007 kl. 03:20

15 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Ég þakka góð skoðanaskipti hér - og ekki síst skemmtilega upprifjun Janusar Hafsteins á fundi í Sjómannafélaginu í Súðavík. Það er auðséð af þeirri upprifjun að framboðsfundir samtíma vors eru ekki svipur hjá sjón.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 12.4.2007 kl. 12:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband