Færsluflokkur: Bloggar
Stones brýnin söm við sig!
29.8.2007 | 12:59
Stones voru frábærir á tónleikunum sem haldnir voru í O2-höllinni í London s.l. laugardagskvöld. Þetta voru lokatónleikar tveggja ára tónleikaraðar sem þeir nefna A Bigger Bang. O2 samkomuhöllin er tiltölulega nýbyggð, tekur um tuttuguþúsund manns. Þarna eru verslanir, matsölustaðir, kvikmyndhús, allt undir einu þaki, og svo þessi gríðarlegi leikvangur þar sem hægt er að setja upp tónleika á borð við þessa! Allt mjög flott.
Jagger fór á kostum. Fyrsta lagið á tónleikunum var Start Me Up! (held sveimérþá að þeir byrji alltaf á því). Fyrst kom upp svona "intró" á risaskjá fyrir ofan sviðið, því lauk með gríðarhvelli þegar "tungan" fræga leystist upp í frumeindir, og um leið hófst trommutakturinn hjá Charlie Watts. Þið hefðuð bara átt að finna strauminn sem fór um salinn þegar trommurnar byrjuðu - ljósin upp - og svo röddin í Jagger: Start me up! (púm, tútúmm tútúmm), you start me up I'll never stop! (tútúmm túmm). Hann var flottur karlinn - og úthaldið ekkert minna en þegar hann var upp á sitt besta.
Raunar var eitthvað vesen á hljóðinu hjá þeim um miðbik tónleikanna - ég held þeir hafi hreinlega magnað of mikið upp því það var á köflum bergmál í kerfinu (sem á auðvitað ekki að gerast hjá köllum eins og Stones, ég meina hvað haldið þið að þessi rótarar séu með í laun? Það er örugglega ekki lítið). En krafturinn og stuðið bætti það upp - svo einfalt er það mál.
Lisa Fisher er alveg hreint ótrúleg. Hún fékk ekki mikið að hnjóta sín núna - söng eitt lag með Jagger, en var annars í bakröddum. Í þessu eina lagi - þar sem þau skiptust á að syngja - leiddi hann hana aftur á sinn stað áður en laginu lauk. Ætlaði greinilega ekki að láta hana hirða frá sér athyglina eða fagnaðarlætin. Hún gerði það engu að síður, því það ætlaði allt um koll að keyra þegar hún var búin - og mér finnst hann hefði mátt leyfa henni að njóta þess.
En hvað um það - hún fann ábyggilega að hún átti í okkur hvert bein meðan hún söng. Hann fann það örugglega líka .
Keith er farinn að láta á sjá - en hann var sjálfum sér líkur. Sömuleiðis Charlie Watts, sem er greinilega eftirlæti Stones aðdáenda, ef marka má viðtökurnar sem hann fær yfirleitt á sviði. Enda ótrúlega flott týpa - hlédrægur, öruggur og kraftmikill.
Jamm - við munum lengi lifa á þessu. Ég ætla að orna mér við minninguna aðeins lengur, áður en ég fer að blogga um önnur tíðindi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Andateppuviðtal um þvagleggsþræðingu og fleira.
24.8.2007 | 21:07
Helgi Seljan fékk mig og Dögg Pálsdóttir í kastljósið í kvöld til þess að skiptast á skoðunum um þvagleggsmálið á Selfossi og aðrar fréttir vikunnar. Úff, það var nú meira andateppuviðtalið - enginn tími til þess að fara ofan í málið og ræða það eins og vert væri - bara sprettur með andköfum, liggur við.
Þetta er vandi íslenskrar ljósvakamiðlunar - og hefur svosem verið árum saman - að þurfa alltaf að fleyta kerlingar á öllum málum af því það vinnst ekki tími eða rúm til þess að taka almennilega á þeim.
Ég vona bara að kastljósið láti ekki staðar numið hér heldur haldi umfjölluninni áfram, með viðtölum við fleiri. Þetta er ærið tilefni.
Kastljóssviðtalið er hér: http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4301892/0
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Ekki batnar það.
23.8.2007 | 11:23
Ekki batnar málstaður Selfosslögreglunnar eftir að lögfræðingur konunnar hefur komið nánari upplýsingum til fjölmiðla um tildrög þvagleggsmálsins, sbr. þessa frétt á RÚV (http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item167229/) Þó að sýslumaður hafi komið sínum sjónarmiðum að í gær - er of mörgu ósvarað enn um framgöngu þeirra sem stóðu að hinni umdeildu þvagsýnistöku: 1) Hvers vegna kom lögreglan konunni ekki undir læknishendur eftir að ljóst var að hún hafði misst stjórn á bíl sínum þannig að hann hafnaði utan vegar? Er það ekki lögbundin borgarleg skylda að aðstoða fólk á slysstað og koma því undir læknishendur - jafnvel refsivert að láta slíkt undir höfuð leggjast? 2) Hvers vegna fékk konan ekki lögmann um leið og hún óskaði þess? Eru það ekki líka lögbundin mannréttindi þeirra sem hafna í höndum lögreglu að kalla til lögmann? 3) Var það ákvörðun sýslumanns að konan skyldi beitt valdi við töku þvagsýnis - eða tóku lögregluþjónarnir þetta upp hjá sjálfum sér? 4) Hver var hlutur læknis og hjúkrunarkonu sem nefnd hafa verið í þessu sambandi - voru þau einungis "viðstödd" eins og ráða mátti af orðum sýslumanns í gær, eða tóku þau þetta þvagsýni? 5) Fékk konan læknisskoðun vegna hugsanlegra áverka eða afleiðinga útafakstursins, eða voru læknir og hjúkrunarkona einungis kölluð til svo hægt væri að afla sönnunargagna úr líkama hennar? 6) Ekki hefur komið fram að dómur sé fallinn í ölvunarakstursmáli konunnar - sýslumaður hefur þó kveðið upp úrskurð í fjölmiðlum um sekt hennar. Fær það staðist réttarfars- og siðaregluna um að hver maður sé saklaus uns sekt hans sannast? 7) Á hvaða lagagrunni byggir ríkissaksóknari þá ákvörðun sína að vísa málinu frá án rannsóknar? Allar þessar spurningar lúta að grundvallarreglum réttarfars okkar - leikreglunum sem almenningur og opinberir þjónar hennar eiga að virða. Sýslumaður getur ekki látið þeim ósvarað. Ekki heldur lögreglu- og heilbrigðisyfirvöld þau sem bera ábyrgð á þeim aðilum sem komu að þessu máli. Viðkomandi siðanefndir verða að taka afstöðu til þess sem þarna átti sér stað. Það er ekki nóg að almenningur þekki ábyrgð sína og axli hana þegar út af bregður. Það verða hinir opinberu þjónar og yfirvöld einnig að gera. Ef ríkissaksóknari hunsar að taka mál þetta til rannsóknar eiga fulltrúar almennings - stjórnmálamenn og fjölmiðlar - að taka í taumana og rannsaka málið ofan í kjölinn. |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
Óafsakanleg framkoma.
21.8.2007 | 20:22
Í fyrsta skipti frá því ég fór að blogga hér á mbl.is verður mér illt af því að lesa viðbrögð fólks í fréttablogginu.
Að nokkrum manni skuli detta í hug að mæla því bót þegar ölvaðri konu er haldið fastri af karlmönnum í lögreglubúningi sem leysa niður um hana inni í fangaklefa þar sem þvaglegg er troðið upp í þvagrás hennar - það er með ólíkindum. Skiptir engu hversu ölvuð konan var, hversu illa hún lét, jafnvel þó hún hafi hrækti og sparkaði - sé það rétt sem sagt er. Ekkert af þessu skiptir mái. Ekki heldur afbrot hennar - fyrir það átti hún að gjalda með dómi að undangenginni eðlilegri málsmeðferð.
Blóðsýni vottar að áfengismagn konunnar var hátt yfir mörkum. Lögreglunni mátti vera það full ljóst að hún var ölvuð, og sé eitthvað að marka lýsingar á framkomu hennar mátti öllum ljóst vera að hún var ekki með sjálfri sér. Raunar spyr maður sig hversvegna þurfti þvagsýni, úr því að blóðsýni lá fyrir - en því verða aðrir að svara.
Það var hroðalegt að sjá sýslumann Selfyssinga reyna að réttlæta þessar aðfarir í sjónvarpinu í kvöld. Málflutningur hans og fas var þannig að mér er raunverulega illt eftir það sem ég sá og heyrði.
Og ef satt er að læknir og hjúkrunarfræðingur hafi verið viðstödd þessar aðfarir (samþykk þeim, jafnvel aðstoðað við þær - en þannig mátti skilja sýslumann) þá er illa komið fyrir heilbrigðisstéttunum. Manneskjan var ekki einu sinni í sótthreinsuðu umhverfi - heldur inni í fangaklefa!
Er það hlutverk lækna og hjúkrunarfólks að sinna "löggæslu" af þessu tagi? Að aðstoða lögreglu við að ráðast inn í líkama manneskju að henni nauðugri, til þess að afla sönnunargagna í ölvunarakstursmáli (sem hlýtur að hafa legið nokkuð ljóst fyrir úr því að blóðprufa náðist)?
Ölvunarakstur er auðvitað alvarlegt brot - en yfirmaður lögreglu getur ekki notað dómgreindarleysi ofurölvaðrar konu sem réttlætingu fyrir eigin dómgreindarleysi eða sinna manna. Þessar aðfarir ná ekki nokkurri átt. Og það er uggvænlegt að ríkissaksóknari skuli hafa vísað þessu máli frá - uggvænlegt!
Ég er miður mín.
---
PS: Eftir athugasemdir um að það hafi verið læknir og hjúkrunarkona sem hafi þrætt þvaglegginn í konuna en lögreglan haldið henni á meðan - hef ég lítillega breytt orðalaginu í annarri setningu þessarar færslu. Af sjónvarpsfréttum mátti skilja að heilbrigðisstarfsfólkið hafi einungis verið "viðstatt" þessar aðgerðir, en ekki beinir þátttakendur. Ekki veit ég hvað rétt er í því - og þar sem tvímæli hafa ekki verið tekin af um þetta atriði tel ég réttast að fullyrða ekkert um það hver það beinlínis var sem þræddi þvaglegginn, enda er verknaðurinn nógu yfirgengilegur samt.
![]() |
Konu haldið niðri og þvagsýni tekið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 22.8.2007 kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (94)
Böggull og skammrif: Olíuhreinsunarstöð og vegabætur.
21.8.2007 | 13:06
Fylgjendur olíuhreinsunarstöðvar á Vestfjörðum vísa einatt til þess að slíku fyrirtæki muni fylgja svo miklar samgöngubætur að Vestfirðingar hafi einfaldlega ekki efni á að segja nei takk! Þá muni þjónusta og fjarskipti lagast svo um munar með tilkomu slíkrar stöðvar.
Hverskonar röksemdir eru þetta eiginlega? Íbúar annarra landshluta sem þannig tala sýna okkur lítilsvirðingu með því að tala svona. Ef Vestfirðingar sjálfir trúa þessu, þá er lítilþægni þeirra meiri en ég hefði trúað. Við eigum ekki að þurfa olíuhreinsunarstöð til þess að fá hingað sjálfsagða hluti.
Góð þjónusta og greiðar samgöngur eru sjálfsagður hlutur í öllum landshlutum - og eiga að vera það hér á Vestfjörðum líka, óháð því hvort hér verður sett niður olíuhreinsunarstöð eða ekki. Hér eru atvinnuvegir og mannlíf sem verðskulda aðstöðu, samgöngur og þjónustu sem eru sambærileg við það sem gerist í öðrum landshlutum.
Vestfirðingar eiga sjálfsagða kröfu á því að sitja við sama borð og aðrir landsmenn. Þeir greiða sína skatta. Atvinnuvegirnir hér leggja drjúgan skerf inn í þjóðarbúið, ekki síst sjávarútvegurinn.
Við eigum ekki að vera svo lítilþæg að líta á úrbætur í vegamálum sem einhverskonar "gjöf" eða "ölmusu" frá samfélaginu, og að slíkar úrbætur þurfi að tengja við umdeildar aðgerðir, eins og þegar böggull fylgir skammrifi.
Við Vestfirðingar erum þegnar í þessu landi - þetta landsvæði leggur fram sinn skerf og á að fá sinn skerf. Það er kominn tími til að menn átti sig á því.
-----
Annars vil ég benda áhugasömum á að lesa vel rökstudda grein eftir Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðing frá í vor, en þar fjallar hann sérstaklega um umhverfisáhrif og mengun frá fyrirhugaðir olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
BÍ burstar Val!
19.8.2007 | 12:31
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Olíuhreinsunarstöð - framtíð fyrir hvern?
18.8.2007 | 01:15
Olía er eldfimt efni - olíuhreinsunarstöð er álíka eldfimt umræðuefni. Það sannast á athugasemdakerfinu hjá mér eftir daginn í dag.
Ég er hrædd um að menn sjáist ekki fyrir í þessu máli - að hinn meinti ágóði fyrir samfélagið í heild verði einhvern veginn mun takmarkaðri og "öðruvísi" en menn töldu í upphafi. Og áður en menn ná almennilegum áttum verður komið reykspúandi ferlíki ofan í einn fegursta fjörð Vestfjarðakjálkans - af því menn treystu sér ekki, í erfiðu árferði, til þess að taka af skarið og segja NEI TAKK!
Einn bloggarinn orðaði það þannig í athugasemd hjá mér fyrr í dag: "Gerðu mann nógu svangan og hann mun eta það sem þú réttir honum!" Ég er hrædd um að einmitt sú staða sé uppi núna. Menn eru tilbúnir að taka hverju sem er - taka við tálsýninni í von um að hún leysi einhvern vanda. Um leið er framtíðarhagsmunum fórnað fyrir skammtímahagsmuni.
Fyrr í sumar varpaði ég fram sjö spurningum sem ég vil biðja Vestfirðinga - þá sem hér búa NÚNA - að spyrja sjálfa sig, og helst að svara:
1) Er þetta framtíðartækifæri fyrir mig eða börnin mín?
2) Mun þetta freista unga fólksins sem nú er að fara utan til náms til að koma aftur að því loknu?
3) Mun olíuhreinsunarstöð bæta mannlíf á Vestfjörðum?
4) Mun hún laða atgervi inn á svæðið?
5) Mun hún fegra umhverfið?
6) Mun hún auka möguleika okkar á öðrum sviðum og styðja við aðrar atvinnugreinar á svæðinu?
7) Munu Vestfirðingar njóta arðsins af starfsemi stöðvarinnar?
Sjálf get ég ekki svarað neinni þessara spurninga játandi - þvert á móti óttast ég að fórnirnar sem færa þarf verði umtalsvert meiri en hinn ætlaði ávinningur:
1) Ég þekki engan sem sér tækifæri eða framtíðarmöguleika fyrir sjálfan sig eða börn sín þessari olíuhreinsunarstöð.
2) Enginn sem ég hef rætt við telur að starf í olíuhreinsunarstöð muni freista ungs fólks að námi loknu, að koma heim aftur.
3) Olíuhreinsunarstöð myndi væntanlega þurfa á innfluttu vinnuafli að halda, líkt og Kárahnjúkavirkjun. En það er líka viðbúið að hún muni soga til sín mörg störf úr stoðkerfinu hér vestra. Stöðin mun því ekki koma sem blómstrandi viðbót heldur sem n.k. æxli sem sogar til sín mannafla sem samfélagið má síst við að missa úr öðrum störfum.
4) Olíuhreinsunarstöð mun því ekki laða atgervi inn á svæðið.
5) Stöð sem þessi þarf að koma frá sér mengun og úrgangi sem enn er ekki útséð með hvert muni lenda, en þar er einungis um þrennt að ræða: Hafið (uppsprettu fiskveiða okkar og fiskeldis), loftið (hina blátæru ímynd norðursins) eða jarðveginn (uppsprettu vatns og landsgæða).
6) Mengun sú sem fylgir olíuhreinsunarstöð mun ógna stöðu okkar og ímynd á ýmsum sviðum. Augljósasta ógnin snýr að fiskveiðum og ferðamennsku - en á báðum þeim sviðum hefur landið verið markaðssett sem náttúruperla. Hætt er við að menn geti gleymt möguleikum á vatnsútflutningi frá Vestfjörðum ef þetta verður að veruleika.
7) Stöðin verður ekki í eigu Vestfirðinga, þannig að varla kemur arðurinn af henni inn í vestfirskt samfélag. Hún mun vissulega greiða aðstöðugjöld, en um leið mun hún líka krefjast mikillar aðstöðu, frálagna og aðfangaleiða af stærðargráðu sem líklega hefur aldrei sést hér áður.
Ég vildi óska að menn hættu að hugsa um þetta og sneru sér að einhverju sem hefur raunverulega uppbyggingu í för með sér: Háskóla, framsókn í ferðaþjónustu, menningarstarf, frumkvöðlastarf, vatnsframleiðslu, matvælaiðnað - m.ö.o. framþróun og tækifæri fyrir okkur sem hér búum og börnin okkar. Eitthvað sem við getum glatt okkur við að hlúa að til framtíðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Olíuhreinsunarstöð er óráð
17.8.2007 | 12:00
Það eina sem virðist geta bjargað okkur Vestfirðingum núna frá því óráði að reisa olíuhreinsunarstöð í einum fegursta firði Vestfjarðakjálkans, er landsins forni fjandi. Páll Bergþórsson veðurfræðingur bendir á að hafís muni valda olíuhreinsunarstöðinni vandræðum vegna aðflutninga.
Já, Vesturbyggðarmenn hafa stokkið á hugmyndina um olíuhreinsunarstöð - og vilja endilega setja hana niður í Hvestu í Arnarfirði. Hvað verður þá um kræklingaeldið, kísilþörungavinnsluna og náttúruvörurnar frá Villimey? Að ég tali nú ekki um hugsanlegan vatnsútflutning? Allt þarf það vottun til að geta talist gjaldgengt á markaði. Varla verður þessi olíuhreinsunarstöð góð markaðssetning fyrir slíkar afurðir, eða íslenskan fisk af Vestfjarðamiðum?
Nú segi ég bara:
- Heill þér vinur, "landsins forni fjandi",
- ef forðað getur þjóð frá verra tjóni:
- Reykspúandi ferlíki á Fróni
- í firði bláum, upp af hvítum sandi.
grrrr .... nú sest ég niður og yrki drápu - ákvæðadrápu í þeirri von að hún hrífi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Skyldan kallar - sumarleyfinu að ljúka!
16.8.2007 | 11:08
Nú finnur maður að haustið nálgast - það er komið eitthvert andkul í vindinn, þrátt fyrir blíðskaparveður. Var á hundaleitaræfingu í gærkvöld í glaða sólskini og við sáum sólina hverfa bak við fjallið. Fáeinum mínútum síðar snarkólnaði. Á heimleið tveim tímum síðar varð mér litið á hitamælinn í bílnum, hann sýndi 4 gráður.
Já, maður er farinn að láta sjá sig á skrifstofunni, svona rétt til þess að venja sig við. Nýgerðar kennsluáætlanir, fundir og önnur skyldustörf handan við næsta leiti.
Í starfi mínu hjá Stofnun fræðasetra Háskóla Íslands hef ég kennslu, rannsóknir og stjórnunarstörf á minni könnu. Stjórnunarstörfin eru tilfallandi, hafa hingað til einkum beinst að stofnun nýs fræðaseturs Háskóla Íslands hér á Vestfjörðum sem verður staðsett í Bolungarvík. Þessa dagana er verið að ráða nýjan forstöðumann og ég er ásamt fleirum að skila af mér áliti til stjórnar um þá tvo aðila sem sóttu um stöðuna.
Háskólakennslan bíður líka. Í vetur mun ég kenna námskeið á MA-stigi um miðlun menningar og fræða í útvarpi. Þetta er að hluta til hagnýtt námskeið, en líka fræðilegt - það verður kennt í gegnum fjarfundabúnað héðan frá Ísafirði. Ég og nemendur munum velta fyrir okkur menningarhugtakinu og því sem kallað er "alþýðleg" fræði. Sömuleiðis hugtökunum "vísindi" og "fræði". Fyrir hverja eru vísindin, hvað eru alþýðleg fræði. Lokaverkefni nemenda verður útvarpsþáttur um menningartengt efni sem þau vinna á eigin spýtur, en þó undir handleiðslu. Spennó
Já, maður er svona smám saman að koma sér út úr sumarleyfishamnum í vinnuhaminn - og það er svo einkennilegt, að eiginlega er ég farin að hlakka til að hefjast handa við vinnu á ný.
Annars eru mörg ár síðan ég tók almennilegt sumarfrí - og þá meina ég frí þar sem maður slakar á og hugsar ekki um vinnu. Í sumar hef ég getað um frjálst höfuð strokið. Það er ótrúlega gott!
Líklega er það því að þakka að nú er ég farin að hlakka til að takast á við verkefni vetrarins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Berjatíð
15.8.2007 | 00:11
Ég veit að ég mun bara sjá fyrir mér kolsvart berjalyng þegar ég leggst til svefns í kvöld. Mig mun dreyma ber í alla nótt. Í dag fórum við vinkonunarnar sumsé í berjamó - og höfum síðan verið á fullu við að sulta og safta með tilheyrandi rassaköstum og tilþrifum!
Við drifum okkur um hádegisbilið, þrjár saman - ég, Magga vinkona og Maddý dóttir mín - upp í hlíðina fyrir ofan austanverðan Tungudal. Tveim tímum síðar komum við heim með tuttugu lítra af berjum!
Nú er allt komið á krukkur og gamlar brennivínsflöskur með skrúfanlegum töppum. Afraksturinn er: 4 lítrar af krækiberjasaft, 1 lítri af krækiberjahlaupi, 4 lítrar af bláberjasultu og svo auðvitað einhver ósköp af ferskum bláberjum út á ísinn og skyrið. Nammm......
Eftir alla sultugerðina var Maddý minni ekki til setunnar boðið. Hún tók föggur sínar, kvaddi og hélt áfram för sinni um landið, eftir aðeins sólarhrings stopp. En hún er nú að sýna skólafélaga sínum frá Danmörku markverðustu staði landsins (og varð auðvitað að koma við hjá mömmu og pabba á Ísafirði). Blessunin .
Jæja, eftir kossa og kveðjur til hennar þar sem hún renndi með vini sínum úr hlaði á litlu gömlu Toyotunni, þerraði ég tárin úr augnkrókunum og fór að elda kvöldmat fyrir Möggu og Baldur - vini mína sem eru nú í heimsókn. Tengdó komu líka í matinn - og að aðalréttinum loknum úðuðum við í okkur bláberjum með rjóma og ís - mmmmm........
Ég er enn svo pakksödd að ég get varla staðið upprétt - og guð má vita hvenær ég næ blámanum af framtönnunum. En, hva? Það er nú ekki svo oft sem besta vinkonan kemur til mín vestur á Ísafjörð alla leið frá Reykjavík. Verst hvað þau stoppa stutt.
En - öllu er afmörkuð stund. Og þetta var góður dagur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)