Færsluflokkur: Bloggar
Sigurvíma morgunsins: Íslensku strákarnir voru frábærir!
20.8.2008 | 10:03
Íslensku strákarnir stóðu sig aldeilis hreint snilldarlega í leiknum gegn Pólverjum í morgun: 32-30.
Ekki amalegt!
Og Björgvin Páll Gústavsson! Að verja 21 mark í leiknum - þetta er bara tær snilld. Líka tær snilld að setja þennan töframann ekki inn á fyrr en í þessum leik. Þetta er leikurinn sem skipti máli, þá skellir maður út trompunum.
En samt - alltaf þegar einhver sigrar er einhver annar sem tapar. Og mikið er nú alltaf rörende að horfa á menn fleygja sér örmagna í gólfið, bugaða eftir baráttuna. Ossosssoss. Sem betur fer veit maður að þeir jafna sig fljótt - gera betur næst. Það höfum við Íslendingar oft mátt reyna.
Annars er það Guðjón Valur sem alltaf á aðdáun mína öðrum fremur í íslenska karlalandsliðinu. Ástæðurnar eru nokkrar:
1) Krúttástæðan: Hann er litli frændi bestu vinkonu minnar og ég hef þekkt hann frá því hann var barn. 2) Huglæga ástæðan: Hann er drenglundaður í leikjum, prúður í framgöngu sinni en fastur og baráttuglaður. 3) Leikástæðan: Hann er ótrúlega góður leikmaður og gerir alltaf aðeins betur en getumörk leyfa, heldur uppi móral. 4) Algilda ástæðan: Hann ber fallega persónu.
Jamm ... það verður ekki leiðinlegt að fylgjast með framhaldinu. Ó, nei. Og svo er bara að kyrja einum rómi: Við gerum okkar, gerum okkar ... gerum okkar besta! Og aðeins betur en það er það sem þarf! La la la la la ......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Dagbækur Matthíasar og trúnaður við heimildamenn
19.8.2008 | 11:22
Dagbækur Matthíasar Johannesen fyrrum Morgunblaðsritstjóra hafa orðið tilefni fjölmiðlaumfjöllunar að undanförnu. Enda ekki að furða - maður stendur agndofa yfir því að virtur ritstjóri skuli leyfa sér að opinbera einkasamtöl við menn með þeim hætti sem hann gerir. Það er eins og Matthías hafi aldrei heyrt talað um þá mikilvægu siðareglu blaðamanna að virða trúnað við heimildamenn.
Í þessum dagbókarfærslum sem hann hefur nú birt rekur hann samtöl sín við ráðamenn þjóðarinnar frá ýmsum tímum. Samtöl sem augljóslega hafa verið "off the record" á sínum tíma: Slúður þeirra hvern um annan og óábyrgt tal. Hann opinberar tilraunir þeirra til þess að afhjúpa hvern annan og koma hver öðrum í koll. Allt er það fróðlegt aflestrar - en vekur um leið óþægilega tilfinningu þar sem auðséð er af öllu að þessir menn hafa treyst Matthíasi fyrir því sem þeir eru að segja.
Fréttahaukurinn fyrrverandi, Atli Rúnar Halldórsson, gerir athyglisverðan útdrátt úr þessum minnispunktum Matthíasar á bloggsíðu sinni í dag.
Ósjálfrátt hvarflar hugurinn til þess tíma þegar Agnes Bragadóttir - þá blaðamaður undir stjórn Matthíasar á Morgunblaðinu - neitaði fyrir dómi að gefa upplýsingar um heimildir sínar í tilteknu máli. Hún og blaðið uppskáru virðingu annarra blaðamanna fyrir vikið, enda stóð blaðamannastéttin einhuga með henni í málinu.
Traust er slungið hugtak - það felur m.a. í sér að maður geti gengið að ákveðnum leikreglum - jafnvel gagnvart óvinum sínum (það er nefnilega vel til í dæminu að trausti ríki milli andstæðinga). Þetta á jafnt við í opinberu lífi sem einkalífi. Til dæmis treysta flestir því að einkalíf þeirra verði ekki sett á sölupall þó að hjúskaparstaðan breytist. Þess eru raunar dæmi að fólk hefur viljað græða á bókum og viðtölum um hjónalíf sitt eða náin samskipti með tilteknum aðila eftir skilnað. Það þykir ekki stórmannlegt.
Þessar opinberanir Matthíasar eru af svipuðum toga: Að fá fólk til þess að opna sig við mann í einkasamskiptum, en ákveða svo einhliða hversu langt trúnaðurinn skuli ná og hvenær tímabært sé að rjúfa hann og segja frá.
Ég hef ekki orðið vitni að því fyrr að gamlir blaðamenn opinberuðu minnispunkta sína með þessum hætti - og ryfu þar með trúnað við heimildamenn sína. Sjálfri dytti mér það ekki í hug sem gömlum fréttamani að gera þetta - þykist ég þó vita að margir úr þessum bransa eigi ýmislegt í sínum minnisbókum, líkt og Matthías.
Bloggar | Breytt 20.8.2008 kl. 10:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
"Bloggarar eru ábyrgðarlaust fólk" ...
18.8.2008 | 13:05
... sagði Þorbjörn Broddson fjölmiðlafræðingur í útvarpsviðtali á RÚV í morgun. Í viðtalinu var Þorbjörn að útskýra það hvers vegna fjölmiðlaumræðan hefur verið svo óvægin og nærgöngul gagnvart Ólafi F. Magnússyni sem raun ber vitni. Hann var spurður um ástæður þess að fjölmiðlar hafa að undanförnu farið með dylgjur um einkalíf fráfarandi borgarstjóra og taldi hann helst að um væri að kenna æsingi og samkeppni við bloggheiminn.
Ég fór að rifja upp hvar ég hefði fyrst heyrt eða séð dylgjur um einkalíf fráfarandi borgarstjóra. Það var í Kastljóss viðtali við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur fyrir nokkrum dögum. Um svipað leyti rakst ég á klausu í einhverju dagblaðanna. Ég hef ekki séð orð um þetta á blogginu.
Mér virðast velflestir bloggarar vera ábyrgir í sínum skrifum. Þorbjörn Broddason er háskólakennari í fjölmiðlafræðum, og það er alvarlegt mál ef slíkur maður setur fram hleypidóma af þessu tagi um tiltekinn hóp fólks sem á það eitt sameiginlegt að halda úti bloggsíðum.
Það verður hver og einn að vera ábyrgur orða sinna - það á við um Þorbjörn Broddason ekkert síður en bloggarana og fjölmiðlafólkið. Þá er það aumur málflutningur að gera bloggheiminn ábyrgan fyrir slælegum vinnubrögð ríkisfjölmiðlanna og rótgróinna dagblaða.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
Í lagi að berja börn?
15.8.2008 | 20:38
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur kveðið upp úr um að "varhugavert" sé að slá því föstu "að það falli ætíð undir það að vera yfirgangur, ruddalegt eða ósiðlegt athæfi" að flengja börn. Að vísu telur dómurinn það "óheppilegt og óæskilegt" að flengja börn, en samt ... móðir barnann var viðstödd flenginguna og gerði ekki athugasemd við hana. Þá er allt í lagi ... eða hvað?
Hvernig VOGAR þessi héraðsdómari sér að úrskurða í dómsorði að það sé ekki yfirgangur, ruddaskapur eða ósiðlegt athæfi að beita börn líkamlegu ofbeldi?
Í sama máli kemur fram að viðkomandi maður flengdi konuna sína í kynlífsleik, og neitaði að hætta þegar hún bað hann um það. Hún kærði það - en leyfði manninum samt að flengja börnin sín. Varla hefur það þó verið með þeirra samþykki.
Þessi héraðsdómari er blindur. Hann er haldinn þeirri ranghugmynd að það sé í lagi að berja börn bara ef tvær fullorðnar manneskjur koma sér saman um það.
Það er ekki í lagi að berja mann úti á götu. Skiptir engu hversu margir koma sér saman um að gera það. Hvers vegna ætti þá að vera í lagi að berja barn inni á heimili?
Þetta dómsorð er hneyksli. Það liggur við að mér finnist það varða við lög - barnaverndarlög.
![]() |
Flengingar ekki alltaf ruddalegt eða ósiðlegt athæfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (39)
RÚV gægist á glugga
15.8.2008 | 11:11
Í sjónvarpsfréttum RÚV í gærkvöldi voru sýndar þessar fréttamyndir sem teknar voru inn um glugga á borgarstjóraskrifstofunni í Ráðhúsinu nóttina áður. Þar sat miðborgarstjóri á einkafundi með fráfarandi borgarstjóra. Örvænting og örmögnun í loftinu. Stór geispi.
Nú þykist ég vita að Jakob Frímann Magnússon myndi ekki standa geispandi og úfinn frammi fyrir myndavélum ef hann vissi af því að þær væru í gangi. Það myndi enginn gera eða vilja - ekki ég að minnsta kosti. En Jakob Frímann vissi ekkert af þessari myndatöku - ekki heldur Ólafur F. Magnússon. Þessir tveir samverkamenn voru á einkafundi - fjarri augliti fjölmiðla að þeir töldu.
Þetta var óviðeigandi myndataka - og mér leið illa að verða vitni að þessu. Ríkisútvarpið á ekki að leyfa sér að liggja á gluggum og taka myndir af fólki því að óvörum, þar sem það telur sig vera óhult bak við lokaðar dyr.
Gægjuhvötin getur vissulega verið rík stundum og fjölmiðlar forvitnir um það sem gerist "bak við tjöldin". En það er ekki sama hvernig forvitninni er svalað. Fjölmiðill sem er vandur að virðingu sinni hagar sér ekki svona - hversu dramatískt sem augnablikið kann að vera. Allir eiga rétt á því að skýla sér fyrir augliti annarra þegar erfiðir atburðir eru að gerast. Það verður ríkisfjölmiðillinn að virða.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Orðabrigð og laumuspil - vond byrjun hjá Hönnu Birnu
14.8.2008 | 15:43
Látum vera þó að meirihlutinn hafi sprungið og nýr myndaður. En framkoma helstu persóna og leikenda í því handriti er í senn yfirgengileg og sorgleg. Það eru ósannindin, hálfsannindin og blekkingar þessa fólks sem valda mér hugarangri og hneykslan.
"Orð skulu standa" er stundum sagt. Við Íslendingar höfum löngum litið svo á að orð og handsöl hafi gildi enda mikilvægt að hægt sé að reiða sig á eitthvað í mannlegum samskiptum. Ekki síst hefði maður nú haldið að stjórnmálamenn þyrftu að kunna þessa kúnst - og einhvern veginn hélt maður að Íslendingar væru enn það siðvæddir að líta á orðheldni sem dyggð. En í Borgarstjórn Reykjavíkur er annað uppi á teningnum. Þar eru orð og yfirlýsingar einskis virði.
Í gær og morgun kepptist Óskar Bergsson við að sannfæra fjölmiðla og borgarfulltrúa minnihlutans um að hann ætti ekki í neinum þreifingum um nýja meirihlutamyndun í borgarstjórn. Hanna Birna hefur margoft lýst því yfir að Sjálfstæðismenn væru heilshugar í samstarfi sínu við Ólaf F. Magnússon. Flóttaleg framkoma hennar og Vilhjálms Þ. síðustu daga þar sem þau hafa laumast út um brunaútganga til að forðast fjölmiðla hefur ekki beinlínis borið vott um góðan málstað. Þau hafa verið á harðahlaupum undan eigin orðum og gjörðum - svo dapurlegt sem það nú er. Jafnvel sjálfur forsætisráðherrann hefur orðið uppvís að ummælum sem ekki fá staðist nánari skoðun - hann hefur ekki viljað kannast við að neitt væri í gangi.
Og nú hefur samstarfinu - þessu sem gengið var til svo "heilshugar" fyrir skömmu - verið slitið. Nýr meirihluti er orðinn að veruleika, Hanna Birna borgarstjóri og Óskar Bergsson formaður borgarráðs. Þetta hefur gerst þrátt fyrir nokkurra klukkustunda gamlar yfirlýsingar í allt aðra veru. Já, án þreifinga - án vitneskju formanns Sjálfstæðisflokksins, ef marka mætti orð þessa fólks - sem er auðvitað ekki hægt. Undangengnir atburðir sanna að ekki er ORÐ að marka sem það segir.
Samt er þetta fólkið sem þiggur umboð sitt frá almenningi og á að starfa í hans þágu. Svona starfar það.
Nei, dyggðir á borð við orðheldni, heilindi, drengskap eru augljóslega hverfandi á þessum leikvangi. Og það er sorglegt að sjá.
Þetta er vond byrjun hjá Hönnu Birnu.
![]() |
Nýr meirihluti að fæðast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Nú ætti að kjósa í Reykjavík
14.8.2008 | 09:58
Það er satt að segja undarlegt að ekki skuli vera gert ráð fyrir því í lögum hvernig bregðast skuli við stjórnarkreppu í sveitarstjórn. Lög gera ráð fyrir því að hægt sé að rjúfa þing og boða til kosninga - en sveitarstjórnir eru njörvaðar niður til fjögurra ára hvað sem tautar og raular.
Þessi fáránlega atburðarás í Reykjavík er talandi dæmi um þörfina á því að breyta lögum í þágu lýðræðisins. Nú ætti auðvitað að kjósa aftur í borginni og koma þar á starfhæfum meirihluta sem hefur skýrt umboð. Eins og sakir standa fer lítið fyrir umboði þeirra stjórnmálaafla sem þessa stundina engjast um eins og maðkar í valdaþrónni, meira eða minna rúnir trausti almennings ef marka má skoðanakannanir.
Svo er það málfarið á vitleysunni allri - það er orðið eins og vitleysan sjálf: Hvað er það að "ná ákvörðunum upp úr átakamiðuðu ferli"?? Og hvenær varð "endastaður" einhver staður?
Þetta er orðin ein hringavitleysa - bæði atburðarásin og umræðan.
![]() |
Samstarfið á endastað" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Horn skella á nösum - og hnútur fljúga um borð
13.8.2008 | 17:18
Sorglegt er að sjá hvernig komið er fyrir stjórnarháttum í höfuðborg landsins. Framsóknarmenn eru að hugsa um að ganga til meirihlutasamstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. Guðni Ágústsson segir flokkinn reiðubúinn að "axla ábyrgð" eins og hann orðar það. Fréttir herma að framsókn setji skilyrði um að Ólafi F. Magnússyni verði ýtt út - Sjálfstæðismenn eru að hugsa málið.
Ég spái því að þetta verði niðurstaðan, enda er ekki á nokkurn mann treystandi í þessum herbúðum eins og sakir standa og dæmin sanna. Yfirstandandi fundahöld Hönnu Birnu og Ólafs F í Ráðhúsinu í dag eru trúlega bara dauðateygjur þessa meirihlutasamstarfs. Sagan sýnir okkur að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins svífast einskis þegar svo ber undir - enda virðist borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðismanna gjörsamlega heillum horfinn. Þar er ástandið eins og hjá Goðmundi á Glæsivöllum í frægu kvæði eftir Grím Thomsen ...
... trúðar og leikarar leika þar um völl,
en lítt er af setningi slegið.
Og eins og í því ágæta kvæði er allt "kátt og dátt" á yfirborðinu ...
... en bróðernið er flátt mjög og gamanið er grátt
í góðsemi vegur þar hver annan.
Nú sannast það sem sagt var þegar grafið var undan 100 daga meirihlutanum: Borgarstjórn Reykjavíkur er óstarfhæf. Þarna er engum að treysta - samningar og handsöl eru einskis virði - allt er falt fyrir völd og áhrif. Upplausnin er algjör. Undirferlið sömuleiðis og uppdráttarsýkin.
Horn skella á nösum
og hnútur fljúga um borð,
hógvær fylgja orð;
en þegar brotna hausar og blóðið litar storð,
brosir þá Goðmundur kóngur.
Já, þetta er Reykjavík í dag. Svei.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Nokkrir góðir dagar með BHSÍ
11.8.2008 | 21:50
Jæja, nú er orðið langt síðan maður hefur bloggað - enda brjálað að gera í sumarfríinu.
Nú sit ég hér sólbrennd og þrútin eins og steiktur tómatur, nýkomin af frábæru fjögurra daga sumarnámskeiði með Björgunarhundasveit Íslands sem haldið var á Gufuskálum 7. - 10. ágúst, að báðum dögum meðtöldum. Við fengum sól og blíðu alla dagana.
Að þessu sinni mætti ég með nýjan félaga til leiks: Skutul litla, hvolpinn minn sem ég fékk í sumar. Hann er að verða fjögurra mánaða. Þetta námskeið var mikil lífsreynsla fyrir hann og hann stóð sig með prýði. Sýndi sjálfstæði á æfingunum, fór býsna langt frá mér þótt ungur sé að árum og var í alla staði hinn efnilegasti. Datt inn á lykt strax í fyrsta rennsli og "fann" sinn mann. Það er mikið álag á ungan hvolp að meðtaka allt sem fylgir æfingum sem þessum. Samvera með öðrum hundum og ókunnugu fólki, dvöl í búri, annarleg hljóð og margt fleira er mikið áreiti. Þetta litla grey var meðal annars sett í sigbelti og híft með talíu upp undir rjáfur. Ekki lét hann sér bregða við það. Þá var hann settur upp í kyrrstæða þyrlu og fékk að skoða þar allt innanborðs. Það fannst honum spennandi. En þegar þyrlan var komin í gang og hann var teymdur í átt að henni, fannst honum nóg komið og spyrnti við fótum. Hann var að sjálfsögðu ekki neyddur um borð, enda hávaðinn þvílíkur að mér sjálfri var nóg um.
Já, meðlimir í þyrlusveit Landhelgisgæslunnar voru okkur innan handar á þessu námskeiði. Þeir mættu á TF-Líf og kynntu fyrir okkur starf þyrlusveitarinnar. Hundarnir fengu að fara inn í þyrluna og reyndustu hundateymin voru látin síga úr henni. Við Skutull gengum að sjálfsögðu ekki svo langt - en hér sjáið þið myndir af undirbúningnum og hérna er myndband af þyrlusiginu. Við Skutull sátum álengdar og fylgdumst með af tilhlýðilegri virðingu.
Já þetta var í alla stað frábært námskeið. Hvað eru sólbruni og þrútnar varir á við nokkra dýrðardaga á Snæfellsnesi með skemmtilegu fólki?
Bloggar | Breytt 12.8.2008 kl. 00:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Staðsetning nýs Listaháskóla: Móðgun við Laugaveginn ... og húsið
31.7.2008 | 01:02
Tillagan að nýju húsi Listaháskóla Íslands er stórglæsileg. Ég get ekki tekið undir með Magnúsi Skúlasyni að hún sé ljót. Hún er gullfalleg. Hinsvegar á þessi bygging ekkert erindi á Laugaveginn - þar erum við Magnús sammála. Þetta hús á að sjálfsögðu að fara í Vatnsmýrina og vera þar í námunda við aðrar háskólabyggingar. Þar færi húsið vel, skipulagslega - auk þess sem nemendur Listaháskólans kæmust þar með í gefandi samneyti við aðra háskólanema.
Alveg er það dæmigert fyrir okkur Íslendinga að teikna hús sem þarfnast rýmis - og ætla svo að troða því niður inn á milli gamalla húsa í elstu götu borgarinnar. Dæmigert.
Það er eins og við getum ekki borið virðingu fyrir nokkrum sköpuðum hlut, hvorki götumyndum, gömlum húsum eða yfirleitt neinu. Ég hef áður bloggað þetta bræðiblogg um sundurgerðina í íslenskum arkitektúr og skipulagsmálum, og ætla því ekki að endurtaka það hér.
En, í þessu máli held ég að báðir aðilar séu haldnir ákveðinni meinloku.
Borgaryfirvöld halda að það sé svo mikils virði fyrir Laugaveginn að fá þangað listaháskóla - inn í miðja verslunargötu. Forvígismenn Listaháskólans eru haldnir þeirri meinloku að það sé svo mikils virði fyrir Listaháskólann að komast á Laugaveginn. Ég held að þetta sé misskilningur. Hvorki verslunargatan, götumyndin né Listaháskólinn munu græða neitt á þessu sambýli. Hinsvegar myndi skólinn njóta góðs af því að vera innan um aðrar háskólabyggingar í Vatnsmýrinni þar sem byggingin félli mun betur að öllu skipulagi - eða réttarasagt þeirri sundurgerð sem fyrir er á háskólasvæðinu - og þar myndi húsið njóta sín. Þar hefði það rými.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skipulagsfræðingur hefur bent á það hversu illa getur til tekist þegar verið er að reyna að draga líf í miðborgarkjarna með stórum byggingum. Í útvarpinu í kvöld benti hann á nokkur víti til varnaðar hér og hvar um Evrópu.
Ég er svolítið hrædd um að svipað geti verið á döfinni hér. Því fyrr sem menn komast út úr hinum ætlaða ávinningi beggja af því að hafa þetta hús við Laugaveginn, því betra. Því satt best að segja: Að setja þetta hús á Laugaveginn er eiginlega bara móðgun við Laugaveginn ... og ekki síður ... sjálft húsið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)