Hér er ESB um ESB frá ESB til ESB

ESB Evrópusambandsumræðan er allsráðandi í þinginu í dag - spenna í lofti. Sjálf ætlaði ég ekki að tjá mig mikið í þessum hluta umræðunnar, en þó fór svo að lokum að ég blandaði mér í hana.

Sjá hér.

Enn er ekki ljóst hvort tekst að ljúka umræðunni og greiða atkvæði í dag eða kvöld - það skýrist á næstu klukkustundum.

Mikill hluti dagsins hefur farið í írafárið sem reis í morgun vegna skýrslu nokkurrar sem enn mun ekki vera orðin að fullkominni skýrslu, heldur vinnuplagg á þessu stigi. Hún var unnin fyrir "stjórnvöld og hagsmunasamtök bænda"  í því skyni að máta íslenskan landbúnað við "finnsku leiðina" svokölluðu ef kæmi til Evrópusambandsaðildar. Nú hefur þetta gagn verið gert opinbert og í fljótu bragði verður ekki séð að þar séu nein hernaðarleyndarmál, nema ef vera skyldu útreikningar á stöðu landbúnaðarins. Birting þeirra útreikninga gæti hugsanlega komið sér illa fyrir hagsmuni Íslendinga í sjálfum samningaviðræðunum - sem mun vera skýringin á því hvers vegna skýrslan hefur ekki verið birt enn. En hvað um það - nú er þetta plagg uppi á borðum - og þá getur umræðan vonandi haldið áfram.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þú ert að brjóta stjórnarskrá Íslands kafla X.  Þú ættir að hugleiða og lesa þennan kafla.

Við höfum ekkert erindi í ESB.

Valdimar Samúelsson, 15.7.2009 kl. 17:35

2 identicon

Noh, menn eru farnir að væna háttvirta þingmenn um stjórnarskrárbrot! Þá er ansi heitt. Þú varðst fyrir bjöllunni í dag, en stóðst af þér pusuna. Ásta er með hamarinn eins og í Flugnahöfðingjanum.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 15.7.2009 kl. 17:56

3 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Hvað meinar þú Gísli hefir þú ekki lestið stjórnarskránna? lestu kafla X um landráð og eða tilraun til landráð lögin eru á minni síðu.

Valdimar Samúelsson, 15.7.2009 kl. 18:04

4 Smámynd: Lárus Vilhjálmsson

Valdimar. Hvaða greinar eru í Kafla 10 í stjórnarskránni? Þau eintök sem ég hef séð af stjórnarskránni hafa bara 7 kafla. Eruð þið Evrópuandstæðingar með ykkar eigin stjórnarskrá?

Svo væri nú ágætt að þið mynduð temja ykkur meiri háttsemi  í gagnrýni ykkar á ESB sinna og hætta þessum upphrópunum um landráð.

Lárus Vilhjálmsson, 15.7.2009 kl. 18:57

5 Smámynd: Ingimundur Bergmann

Litlu verður vöggur feginn.

Sorglegt að fylgjast með hvernig stjórnarandstaðan hegðar sér á þessum tímum, gerir lúsarleit að hinum ýmsustu pappírum og ef eitthvað finnst, sama hve ómerkilegt það er, þá vænir hún allt og alla um svik, undirferli og fals. Hugtök sem þau þekkja líklega af eigin skinni.

Ingimundur Bergmann, 15.7.2009 kl. 22:45

6 Smámynd: ViceRoy

Besta var þegar þingmaður orðaði sem svo (Óbeint)  "Skemmtilegt að heyra að Ólína Þorvarðardóttir skuli saka mig um læti og háværa rödd, við höfum mjög svipað raddsvið" Með fullri virðingu, bara gott skot. 

Ég segi bara eitt... Ríkið er að neita þjóðinni um tvöfalda atkvæðagreiðslu... Svo ég spyr, ef ríkið neitar umsókn að aðild að Evrópusambandinu, þarf þá hvort eða er ekki að fara fram þjóðaratkvæðargreiðsla um málið?  Hvað segir Samfylking þá ef þjóðaratkvæðargreiðsla er hvort eða ekki bindand, heldur eingöngu leiðbeinandi fyrir ríkisstjórn og þingi?  Og til hvers er þá þjóðaratkvæðargreiðsla? Ef hún er eingöngu leiðbinandi? 

Ef 75% kýs á móti ESB  í þjóðaratkvæðargreiðslu, skiptir það engu máli, því þetta er eingöngu leiðbeinandi, en stjórn Samfylkingar hefur tekið ákvörðun um umsókn?

Ef 75% kýs með ESB, er þá allt í einu þjóðin sem kýs að láta samning standa?... Ég hef ekki séð neitt annað sem hefur staðið í loforðum SF, (nema skjaldborg um heimilin (Það hefur einmitt gerst!), og VG virðast hafa svikið öll sín loforð  á meðan ESB mál SF eru á borðinu. 

ÉG vil spyrja þig Ólína... ekki hvað hefur verið lofað til almennings sem stendur í skuldasúpu vegna hækkandi dollars og evru, jens og guð má vita hvað meira, heldur hvað hefur verið gert fyrir almenning? 

Hvar er skjaldborg heimilanna?

Og ég spyr einfaldlega... hvar heldur þú að þetta endi? 

ViceRoy, 16.7.2009 kl. 01:44

7 Smámynd: Offari

Ég vona innst inni að þú segir nei því ég tel Esb vera ógæfuspor.  Esb hefur tekist að kljúfa þjóðina einmitt þegar hefur hvað mesta þörf fyrir að standa saman. Ég er skíthræddur um að verði farið í aðildarviðræðu, haldi áfram pyndingar heimilana og þeim pyndingum verði ekki aflétt fyrr en heimilin samþykki að ganga í Esb.

Bjargið heimilunum fyrst og kannið svo hvort þjóðin vill ganga í ESB.

Offari, 16.7.2009 kl. 11:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband