Apríl 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
RSS-straumar
Bækur
Bækurnar í lífi mínu
... sem hafa haft áhrif á líf mitt og hugsun
-
Kristín Marja Baldursdottir: Karitas - án titils
**** -
Þórbergur Þórðarson: Ofvitinn
*** -
Halldór Laxness: Sjálfstætt fólk
*** -
Trevor-Roper: Galdrafárið í Evrópu
*** -
Andri Snær Magnason: Draumalandið
**** - Guðspjallamennirnir o. fl.: Biblían
-
Dan Brown: Da Vinci lykillinn
*** -
ýmsir höfundar: Skólaljóðin
*** -
Lao Tse: Bókin um veginn
****
Eldri færslur
2017
2015
2013
2012
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Afneitun og veruleikafirring
20.1.2009 | 21:43
Afneitun og veruleikafirring - það eru einu orðin sem mér koma til hugar þegar ég les þessi ummæli menntamálaráðherra. Skilur konan ekki að fólk er ekki að bíða eftir einhverjum "afdrifaríkum ákvörðunum" frá þeim ráðamönnum sem nú sitja. Fólkið vill að ríkisstjórnin víki.
Hversu lengi ætla ríkisstjórnin að berja höfðinu við steininn? Er hún að bíða eftir að mótmælin þróist í blóðuga byltingu?
Mér sýnist á öllu að það sé einmitt það sem er að gerast núna.
![]() |
Mótmæli mega ekki snúast upp í andhverfu sína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Löggæsla, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 21:46 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Sjávarútvegsmál
- Eigum við að kasta kvótakerfinu? Líflegur fundur um sávarútvegsmál, mars 2015
Áhugavert
Listi yfir áhugaverðar síður og lesefni
- Eyjubloggið mitt Ég á eyjublogginu
- Skutull Fréttavefurinn Skutull.is
- Björgunarhundasveit Íslands
- Hundar hundarækt
- Landsbjörg Slysavarnarfélagið Landsbjörg
- Myndasíðan hans Gústa Frábærar myndir
Galdrasíður og -samfélög á netinu
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Sigrún Jónsdóttir
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ketill Sigurjónsson
- Atli Rúnar Halldórsson
- Baldur Kristjánsson
- Bjarni Harðarson
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Þór Bjarnason
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Edda Agnarsdóttir
- ESB
- Eyþór Árnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Hallmundur Kristinsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiða Þórðar
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Snæbjörnsson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Guð
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kristján Pétursson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Magnús Geir Guðmundsson
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigurður Þórðarson
- Sigurður Sigurðsson
- Skafti Elíasson
- Helga skjol
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Þorleifur Ágústsson
- Toshiki Toma
- Emma Vilhjálmsdóttir
- Albertína Friðbjörg
- Baldur Smári Einarsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Adolf Dreitill Dropason
- Aðalheiður Ámundadóttir
- AK-72
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Ágúst Hjörtur
- Bogi Jónsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynjar Davíðsson
- Bwahahaha...
- cakedecoideas
- Dögg Pálsdóttir
- Einar Ben
- Einar Björn Bjarnason
- Einar Indriðason
- Finnur Bárðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Garún
- Gerður Pálma
- Guðbjartur Hannesson
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Guðmundur Óli Scheving
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gylfi Björgvinsson
- Handtöskuserían
- Haukur Nikulásson
- Helga Þórðardóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hörður Valdimarsson
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jóhann Pétur
- Jón Daníelsson
- Jón Kristjánsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Snæbjörnsson
- Kjartan Jónsson
- Kjartan Pálmarsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- Magdalena Sigurðardóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Ólafur Ingólfsson
- Rafn Gíslason
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Róbert Björnsson
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sigríður Sigurðardóttir
- Sigurbjörg
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Skuldlaus
- Steingrímur Helgason
- ThoR-E
- Tinna Jónsdóttir
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Valan
- Villi Asgeirsson
- Yngvi Högnason
- Þorsteinn Guðnason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þór Jóhannesson
Athugasemdir
amen
Skafti Elíasson, 20.1.2009 kl. 21:54
Fyrirgefðu Ólína að ég kem með fyrirspurn sem ég hef byrt annars staðar (á Eyjunni) :
Á vef mbl.is kl. 20.53 er haft eftir Þorgerði Katrínu :
„Öll mótmæli í lýðræðisríki eru eðlileg. En þau mega heldur ekki ganga það langt að þau fari að snúast upp í andhverfu sína. ”
Er einhver á þessu bloggi sem getur frætt mig um hvað það þýðir þegar mótmæli snúast “upp í andhverfu sína” ??
Þýðir það “engin mótmæli” - eða hvað ???
Er þetta allt sem þessi kona hefur til málanna að leggja ??
Eftir hverju er verið að bíða - hendum þessu liði út - og það án allrar “andhverfu” !!!
Haraldur.
Haraldur (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 21:56
Hæstvirt menntamálaráðherra og herrann hennar eru með allar sínar skuldir í eignarhaldsfélag. Þess vegna eru þau veruleikafirrt.
Einar (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 21:58
Andhverfa mótmæla er meðmæli? Eða hvað? Annars 100% sammála Olínu og sjálfsagt lang flestum íslendingum. Við viljum ekkert meira frá þessu fólki.
Villi Asgeirsson, 20.1.2009 kl. 22:00
Nú er orðið verulega róstusamt og mér finnst ástandið býsna alvarlegt. Hvað þetta getur gengið langt er ekki gott um að segja. Ég hélt að mótmælum væri að ljúka um miðjan daginn, en það er bara eitthvað annað. Mér finnst nóttin ekki árennileg með þessu áframhaldi. Vona að ekki verði manntjón, það er eitthvað svo fjarri okkur íslendingum að fólk slasist eða látist í átökum.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 20.1.2009 kl. 22:00
við...íslenska þjóðin viljum þetta fólk burt! (það hlýtur að vera óskaplega erfitt að vera lögregla...íslensk lögregla núna?)
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 20.1.2009 kl. 22:02
Þjóðin mótmælir og við fáum ráðherra til að lýsa andúð á þeim. Þeir skilja nú alveg reiðina en við erum samt helvítis skríll.Við skulum nú bara átta okkur á því að það er ekki svo langt síðan að ING sagði að mótmælendur væru ekki þjóðin. Þau sitja öll sem fastast og passa sín rassgöt. Þannig mun það vera.
Þórður Möller (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 22:05
Þau eru öll veruleikafirrt.
Sigrún Jónsdóttir, 20.1.2009 kl. 22:13
Þetta ætlar að verða ríkisstjórn hinna afdrifaríku biðleikja.
- Í meira en heilt ár voru leiknir biðleikir í aðdraganda efnahagshrunsins. Tuga viðvörunabjöllur hringdu látlaust með hvert stefndi- heimskunnir hagspekingar vöruðu við- En ríkisstjórnin lék biðleiki í þeirri fölsku von að þetta "reddaðist" Efnahagshrunið sprakk síðan í andlitið á ríkisstjórninni.
- Frá efnahagshruningu í lok september hafa raddir fólksins í landinu krafist aðgerða af hálfu ríksstjórnarinnar. Seðlabankastjórnina burt; Fjármálaeftirlitið burt; ríkisstjórnin segði afsér og kosningar hið fyrsta. 15 friðsamir mótmælafundir sl. þrjá mánuðuna og nokkrir fjölmennir borgarafundir- hafa ekki skilað öðru en þögn og sinnuleysi frá ríkisstjórn og alþingismönnum - til fólksins- Það eru leiknir biðleikir- að þetta "reddist" Málin eru að springa í andlitið á ríkisstjórninni.
Það er fuullkomlega vanhæf ríkisstjórn sem nú situr í landinu.
Krafa fólksins er að ríkisstjórnin víki- strax og kosningar í vor....
Sævar Helgason, 20.1.2009 kl. 22:15
Takk Villi !
Þú kemst betur að orði en ég og húmorinn þinn er í góðu lagi. Það má sem sé líta á orð Þorgerðar þannig að hún álíti að mótmælin í dag hafi í raun verið stuðningur við ríkisstjórnina
!!
Allir innan samfylkingarinnar og reyndar fleiri flokka þurfa nú að sameinast um það eitt - að koma þessari ríkisstjórn frá völdum og það strax. Þetta er sérstaklega mikilvægt hvað varðar samfylkingarfólk - því það er engin ástæða fyrir þann flokk að þurfa að lifa með svartan stimpil undirlægjuháttar það sem eftir er.
Kv, Haraldur
Haraldur (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 22:19
Lifi byltingin!
Ingibjörg Hinriksdóttir, 20.1.2009 kl. 22:48
,,Hversu lengi ætla ríkisstjórnin að berja höfðinu við steininn? Er hún að bíða eftir að mótmælin þróist í blóðuga byltingu?"
Það hefur verið ljóst frá bankahruninu að þeir sem sitja á alþingi, þá á ég við allir, eru ekki í neinu sambandi við fólkið í landinu !
Flokkarnir tveir sem segjast stjórna landinu sýndu það í dagskrá þingsins í dag á hvaða stað þeir eru !!!
Stjórnarandstaðan er ekkert betri, hvernig væri að hún segði af sér í einu lagi og sýndi andúð sína í verki ?
Þá væri þingið ekki starfhætt og möguleiki á að fá nýtt fólk á alþingi !
JR (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 23:04
Ég tel að dagar ríkisstjórnarinnar séu taldir.
Núna hljóta þeir að sjá að þeir hafa ekki stuðning, ekki traust.
Það gæti verið nokkurra daga spursmál hvenær Geir tilkynnir að boðað verði til kosninga í vor. Þá ætti að leita samkomulags allra flokka á Alþingi um myndun þjóðstjórnar, eða myndun einhverskonar starfsstjórnar um tiltekin verkefni á meðan.
Það er ekki svo einfalt að stjórnin geti hrökklast frá, þó að hún ætti ekkert annð skilið fyrir dugleysið.
Ég vona bara að mótmælendur gæti hófs í mótmælum næstu vikna. Annars kann illa að fara.
Jón Halldór Guðmundsson, 20.1.2009 kl. 23:10
kosningar=friður
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 21.1.2009 kl. 00:30
Sammála þér. Má kannski bæta við algjöru sambandsleysi við kjósendur! Það er eins og þau sjái ekki út um glugga síns eigin veruleika. Mér sýnist það líka að það hljóti að vera einhver sýndarveruleiki sem fulltrúar ríkisstjórnarinnar hefur byggt utan um sig.
Rakel Sigurgeirsdóttir, 21.1.2009 kl. 01:14
ég hef verið að velta þessari fyrisögn fyrir mér "að mótmælin megi ekki snúast uppí andhverfu sína" skoðum þetta nánar - mér finnst einhvernvegin að hún sé að stinga stjórnina í bakið svona svolítið laumulega - andhverfa mótmæla hlýtur að vera "meðmæla" og hún vil alls ekki að það gerist
semsagt hún er að vonast til að mótmælin haldi áfram - ekki satt
Eyþór Örn Óskarsson (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 01:15
Og ég sem hélt að Þorgerður Katrín væri ein af þeim fáu sem væri á vetur setjandi
Það sem við erum að bjóða þeim er ekki vinnufriður heldur ALGER FRIÐUR! Þau ættu nú að taka því fegins hendi eftir allt ströglið - ekki satt.
Ojæja, maður (kona) kemur í manns stað.
Haraldur Rafn Ingvason, 21.1.2009 kl. 01:29
Ég held að það sé ekki spurning að þessi ríkisstjórn liggur banaleguna. Það er einungis spurningin hvernig hún skilur við. Nú ríður á fyrir Samfylkinguna að hafa stjórn á því hvernig það gerist.
Mestar líkur eru á að Samfylkingin kljúfi stjórnina og verst væri það fyrir Sjálfstæðisflokkinn að fá stjórnarslit beint inn í Landsfundinn. Eftirleikurinn veltur algerlega á því hvor stjórnarflokkurinn stjórnar atburðarásinni, hvenær og hvernig boðað verður til kosninga.
1979 þegar ríkisstjórn Ól. Jó. sprakk gerðist það frá grasrótinni í Alþýðuflokknum, formaðurinn Benedikt Gröndal var erlendis og stóð frammi fyrir gerðum hlut þegar hann kom heim.
Nú er uppi ekki ósvipuð staða í Samfylkingunni, formaðurinn erlendis og grasrótin á suðupunkti. Ingibjörg gæti hugsanlega staðið frammi fyrir splundraðri stjórn þegar hún kemur heim, ef hún tekur ekki af skarið sjálf.
Hinsvegar höfðu stjórnarslitin 79 herfilegar afleiðingar, þótt markmiðið væri að setja af óstarfhæfa stjórn. Eftir kosningarnar tók við einhver ólánlegasti stjórnarbræðingur sögunnar, ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen. Engin ríkisstjórn lýðveldissögunar skilaði af sér verra búi en hún.
Hvað Þorgerði Katrínu varðar hefur henni orðið töluvert ágengt í ímyndarsköpun sinni, en ég sé ekki betur en að sú vinna hafi snúist upp í andhverfu sína.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 21.1.2009 kl. 05:51
Að mótmæla er gott en maður verður að vita hverju maður er að mótmæla. Í október síðastliðnum þegar krísan kom upp þá átti að mynda þjóðstjórn og ég veit að það var í boði allavega frá vinstri grænum og að mér skildist framsókn og frjálslyndum líka það var sennilega eina rétta leiðin í málinu, og eftir því sem Steingrímur J sagði þá bar Geir H sammála því en ekki samfylkingin og Geir var ekki maður til að standa upp og vera ákveðinn. Frá mínum bæjardyrum er málið farið að snúast þannig að áhersla á að koma okkur inn í Evrópusambandið er farin að skipa meira máli hjá samfylkingunni heldur en hagur og velferð fólksins í landinu og það er verulega slæmt og álika mikil landráð og þau sem framin voru í bankakerfinu.
Málið er að íslenskir stjórnmálaflokkar eru allir handónýtir og í raun ekkert hægt við þá að gera. Það dugar ekki að skipta um forustu eða stokka upp, það verður í raun að byrja uppá nýtt frá grunni. Og það tekur lengri tíma en fram í maí. Við verðum að fá þjóðstjórn eða utanþingsstjórn og síðan verður að gefa tíma fyrir nýtt fólk að koma upp með nýja flokka og boða svo til kosninga, í þessum kosningum ætti að vera skilyrði að enginn mætti bjóða sig fram sem hefði áður setið á þingi. Núna hugsa sjálfsagt margir hvers vegna og svarið er einfalt ef á að gefa uppá nýtt þá er rétt að gera það vel.
Einar Þór Strand, 21.1.2009 kl. 08:38
Eyþór, haha, góður :D
Skrifaði smápistil um þetta
hér.Hildigunnur Rúnarsdóttir, 21.1.2009 kl. 09:09
Gott hjá þér Ólína. Þú og Kalli Matt eru samviska og skynsemisrödd Samfylkingarinnar.
Sigurður Þórðarson, 21.1.2009 kl. 10:15
það er borin von að mótmælendur láti af óeirðum enda margir sem þurfa að koma sér á framfæri...eru ekki flestir forystusauðirnir búinir að lýsa yfir framboði til alþingis...þetta snýst orðið um eitthvað allt annað mótmæli gegn ástandinu....
Katrín, 21.1.2009 kl. 10:21
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins í lok mánaðarins ? Hvað skeður þá og þar ? Sjálft eyðingarafl efnahags þjóðarinnar ætlar að koma saman. Hversu margar þúsundir mótmælenda mæta þar með - kröfur sínar ?
En samt er mest spennandi núna - hver verður niðurstaða félagsfundar Samfylkingarfélags Reykjavíkur - nú í kvöld.
Sævar Helgason, 21.1.2009 kl. 10:48
Ertu búin að sjá þessar myndir :
http://stjaniloga.blog.is/blog/stjaniloga/entry/777079/
http://stjaniloga.blog.is/blog/stjaniloga/entry/777781/
Harpa J (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 11:24
Og Sturla kallar okkur Uppivöðsluseggi Þvílíkt og annað eins djók sem þetta lið er.
Einar (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 12:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.