... að leggja frá sér góða bók, og deyja.

windownb9 Það jafnast ekkert á við góða bók. Margar saman geta bækur verið prýðilegt stofustáss og einangrun útveggja. Ein og sér getur bók verið svo margt: Góður félagi, kennari, tilfinningasvölun, skilningsvaki, hugvekja, myndbirting, afþreying,  .... listinn er óendanlegur.

Fyrir bókaunnanda er vart hægt að hugsa sér betri dánarstund en að sofna í friðsæld með bók í hönd, líkt og eiginmaður móðursystur minnar fyrir nokkrum árum (blessuð sé minning hans). En þegar ég frétti andlát hans, varð mér að orði þessi vísa:

 

Þá er sigurs þegið náðarveldið

að þurfa ekki dauðastríð að heyja,

en mega þegar líður lífs á kveldið

leggja frá sér góða bók - og deyja.

 

 


mbl.is 4,6 bækur á hverja þúsund íbúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Mikið væri nú gott að fá að yfirgefa hana veslu svona.  Föðuramma mín sem varð 96 ára, lagaði sér kaffi, kláraði bollann, lagðist með málgagn allra landsmanna upp í rúm og dó.

Kveðja inn í góðan dag Ólína mín. 

Ía Jóhannsdóttir, 21.4.2008 kl. 11:03

2 Smámynd: Yngvi Högnason

Góð er vísan og man ég eftir einum kunningja mínum sem að lagðist í rúm,las smástund,missti bókina og svo ekki söguna meir.En öðruvísi var með þekktan brotamann hér fyrir sunnan. Sá hafði brotist inn í vesturbænum,tekið til ýmislegt sem verðmætt var en varð þreyttur og lagðist fyrir með ljóðabók og "dó". Og þannig var hann er að var komið.

Yngvi Högnason, 21.4.2008 kl. 12:57

3 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Fátt eins gott, gefandi, gaman og hreinlega uppbyggjandi sem og að koma sér vel fyrir í góðum stól, með gott mocca-kaffi í bolla, eitthvað sætt undir tönn og lesa í góðri velskrifaðri bók. Var rétt í þessu að ljúka bók Kylie Fitzpatrick Tapestry (2003). Ágætis bók með áhugaverðri framvindu sem byggir upp fróðleiksfýsn sem síðan er svalað í hæfilegum skömmtum, gegnum þræði til fortíðar tilbaka til átakana við Hastings 1066 sem höfundur miðlar lesandanum gegnum refilinn góða frá Bayeux. Sérlega áhugaverð og skemmtileg frásaga.  Ný bók var síðan dregin fram þegar hinni fyrri lauk, en það er bók Helga Þorlákssonar Sjórán og siglingar. Annars eru það skólabækurnar í gagnrýnni fjölmiðlafræði og fornleifalistfræði sem gilda núna enda styttist í vorprófin.

Ps. þykir alltaf skemmtilegt að kíkja inn á bloggið þitt Ólína. 

Kveðjur á Klakann, B

hrífandi

Baldur Gautur Baldursson, 21.4.2008 kl. 18:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband