Valkyrjutónleikar og vandræðalegur textasmiður

Vestfirsku_valkyrjurnar Jæja, nú fengum við  - ég og Bjarney Ingibjörg, kórstjórinn minn - nóg af textanum "Við óskum þér góðra jóla" (We Wish You a Merry Christmas) og öllu talinu um graut og fleira í því annars ágæta kvæði. Svo nú bað hún mig að setja saman eitthvað hátíðlegra til að flytja við þetta lag á jólatónleikum kvennakórsins. Ég er að tala um kvennakórinn Vestfirsku valkyrjurnar, tveggja ára gamlan kór sem ég syng með.

Þetta gerði ég samviskusamlega. Halo

Svo sungum við þetta fullum hálsi á jólatónleikum Valkyrjanna í Ísafjarðarkirkju síðastliðið mánudagskvöld, hátíðlegar á svip. Fólkið klappaði. Bjarney Ingibjörg hneigði sig kurteislega fyrir okkar hönd. Allt eðlilegt.

Þar til hún fór að veifa og banda með höndunum upp í kórinn.  Við litum hver á aðra í öftustu röðinni - Errm - áttum við að veifa á móti? Hvað var að gerast? Ég leit í kringum mig - stíf eins og stólpi á mínum stað (djúp alt stendur að sjálfsögðu í báða fætur aftast Cool og lætur ekki haggast). 

Jæja, áfram veifar Bjarney Ingibjörg, og nú var mér hætt að lítast á hana. Fór að hugsa hvort hana vantaði kórmöppu - eða hvort hún hefði týnt einhverju.

Þá finn ég að einhver potar í mig. Og allt í einu eru þær allar farnar að veifa og benda mér. Shocking Þá rennur það upp fyrir mér, seint og um síðir, að ég á semsagt að koma niður til hennar - og hneigja mig. Auðvitað var ég búin að steingleyma því að ég ætti þennan texta og að þetta teldist frumflutningur á honum. Whistling 

Jæja, ég mismunaði mér niður í gegnum kórraðirnar og tók við klappinu - að mér fannst óverðskuldað - en hvað um það. Textinn hafði verið sunginn - og þó ég hafi aldrei lært hann almennilega þá var þetta nú minn texti og svona.  Hann lætur svosem ekki mikið yfir sér - en hljómar svosem ekki illa þegar hann er sunginn (þó eiginlega sé ekki einsýnt um bragreglurnar í þessu - en það verður bara að hafa það). 

 

Og hér kemur hann:

:: Nú gleðileg jólahátíð :: Nú gleðileg jólahátíð er gengin í garð.

Í kærleika'og frið við kertaljósið

 með krásir á borðum svo glöð erum erum við.

:: Nú gleðileg jólahátíð :: ...

Við klukknanna róm og klingjandi óm 

til kirkjunnar höldum í söngvanna hljóm.

:: Nú gleðileg jólahátíð ::  ...

Svo friðsæl við völd - er fegurð í kvöld 

við hugfangin störum á stjarnanna fjöld.

:: Nú gleðileg jólahátíð :: Nú gleðileg jólahátíð er gengin í garð.

 

Jamm, þannig er nú það. Annars held ég að tónleikarnir okkar Valkyrjanna hafi bara tekist bærilega þarna á mánudagskvöldið. Ég hef að vísu verið hnerrandi með hálsbólgu síðan -- en hvað er það hjá vel heppnuðum tónleikum? Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sælar Ólína,og til hamingju með kvöldið og textann,sem er góður.

Svo ég segi sjálfur frá þá á ég tvo sálma.Annar hefur verið frumfluttur(í Bústaðakirkju)texti eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur.Hann heitir  Páskadagsmorgunn og er sjálfsögðu ætlaður til flutnings þann eina dag.Ég hef verið að hugsa að lofa Ísfirðingum að fá að heyra hann.En mér finnst alltaf vera þessi stóru meistarar sem séu í forgangi þá dagana(páskana),En aldrei að vita.Og þar sem ég er nú Ísfirðingur í húð og hár.Það væri gaman að fá hann fluttan heima. Mikið tónlistarlíf alveg frá því að ég man eftir mér. 

Jæja,hinn sálmurinn hefir enn ekki fengið nafn en er hugsaður til flutnings um Jólahátíðina,en hann er langt kominn.Ég á ekki erfitt með að semja lög en blessaðir textarnir vefjast fyrir mér.Þetta er orðið allt of langt.Afsakaðu.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 20.12.2007 kl. 01:05

2 identicon

Til hamingju með þennan texta Ólína.  Við mættum gera meira af að fá ljóðskáldin okkar til að semja jólatexta á góðu máli.  Og þú varst vel að þessu klappi kominn mín kæra.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir (IP-tala skráð) 20.12.2007 kl. 08:21

3 identicon

Svo þarftu að skrá textann t.d. hjá henni Fríðu hjá Tónverkamiðstöðinni. Kveðja frá mér og hinum karlakórskörlunum www.sikk.is

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 20.12.2007 kl. 09:27

4 Smámynd: Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir

Mjög fallegur texti, Ólína mín. Kveðja úr Hafnarfirðinum. Sjáumst vonandi um jólin.

Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir, 20.12.2007 kl. 10:18

5 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Heimir Lárusson Fjeldsted, 20.12.2007 kl. 11:44

6 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Takk, takk takk

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 20.12.2007 kl. 15:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband