Hvađa lćti eru ţetta í öllum?
29.7.2007 | 15:33
Ég fór ađ leita ađ ţessari frétt á RÚV um ađ mótmćlendur Saving Iceland ţćgju fé fyrir ađ láta handtaka sig - en ég bara finn hana ekki. Hmmm .... hafi slík frétt veriđ birt er ekki nema sjálfsagt ađ fréttastofan fćri sönnur á mál sitt en biđjist afsökunar ella.
Annars finnast mér ţessi lćti út af Saving Iceland vera orđin nóg. Ţetta eru krakkaormar sem gangast upp í ţví ađ vera ađ "bjarga" og "mótmćla" međ látum. Víst eru ţau međ lćti - en íslenska lögreglan er bara líka međ lćti. Hún er einhvern veginn allt of stíf og alvarleg yfir ţessu öllu.
Myndir af harkalegum átökum, allt ađ ţví barsmíđum, birtast okkur í fréttatímum eins og ţetta séu einhverjir hryđjuverkamenn. Halló! Ţetta eru "krakkar" - ungt fólk sem vill láta ađ sér kveđa, en sést ekki alveg fyrir í atgangi sínum. Og satt ađ segja finnst mér málflutningur ţeirra ekki benda til ţess ađ hugmyndafrćđin sé alveg á hreinu - a.m.k. hefur ţeim ekki tekist ađ koma henni vel frá sér, enn sem komiđ er.
En "só?" (eins og börnin segja). Vćri nú ekki nćr ađ reyna ađ taka á ţessu međ ađeins meiri húmor og slaka. Ef ţađ er tilfelliđ ađ ţau vilji fá fram handtökur og píslarvćttismóment frammi fyrir myndavélum, ţá er ekki klókt af lögreglunni ađ láta ţađ eftir ţeim.
Mér er enn minnisstćtt ţegar viđ hjónin fórum fyrir nokkrum árum á Stones-tónleika á Wembley í London - og lögreglan ţurfti ađ sjá til ţess ađ um hundrađ ţúsund manns kćmust klakklaust frá leikvanginum inn á járnbrautarstöđvarnar í kring. Ţađ var ađdáunarvert ađ sjá hvernig ţeir komu fram viđ mannfjöldann. Međ gjallarhorn í höndum, sitjandi á velţjálfuđum hestum, beittu ţeir léttum húmor og elskulegum athugasemdum til ţess ađ halda mannfjöldanum í góđu skapi og stýra öllu í rétta átt. Auđvitađ voru ţeir viđbúnir ţví ađ grípa inn í ef eitthvađ fćri úrskeiđis - en ţeir voru bara ekkert ađ sýna valdiđ ađ óţörfu. Ég dáđist ađ ţeim.
Ég legg til ađ löggan ráđi sér unglingasálfrćđing til skrafs og ráđagerđa um ţađ hvernig best sé ađ tćkla svona lćti - ţví ţetta er hvorki í fyrsta né síđasta sinn sem ungt fólk mun sjá ástćđu til ţess ađ mótmćla eđa tjá skođanir sínar á mönnum og málefnum međ áţreifanlegum hćtti.
"Saving Iceland" krefur RÚV um sannanir | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Meginflokkur: Dćgurmál | Aukaflokkar: Lífstíll, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:41 | Facebook
Athugasemdir
Ég held ađ ţađ sé ađallega löggan sem hefur veriđ ađ skapa og vill skapa andrúmsloft hörku og löggustćla sem smáborgarar ýmsir taka fagnandi ef marka má bloggskrif. Hver man ekki eftir mótmćlunum 1968? Ţađ vćri dautt samfélag ţar sem unga fólkiđ mótmćlti ekki.
Sigurđur Ţór Guđjónsson, 29.7.2007 kl. 16:18
Lögreglan á alla mína samúđ ađ ţurfa eiga viđ ţetta fólk. Mćttu sína ţessu fólki meiri hörku.
Óđinn Ţórisson, 29.7.2007 kl. 18:11
Er alveg sammála ţér. Húmor og bros gera gćfumuninn ţegar ungt fólk á í hlut. Held ađ lögreglan ćtti stundum ađ láta vera ađ taka sig alveg svona hátíđlega.
Jónína Rós Guđmundsdóttir, 29.7.2007 kl. 19:44
fréttinn birtist núna um daginn og mér finnst ađ fréttastofan á ađ biđja um afsökunar.
fiona (IP-tala skráđ) 29.7.2007 kl. 20:30
Takk fyrir - ég verđ ađ taka undir ţađ međ ykkur ađ ţessi frétt er undarleg. Í henni er sett fram fullyrđing sem er áfellisdómur fyrir samtökin án ţess ađ fram komi hver heimildin sé. Fréttastofan tekur sjálf ábyrgđ á fullyrđingunni - sem er sérstakt.
Ţetta er auđvitađ óţćgilegt fyrir Saving Iceland, og ég skil ađ ţeir vilji hreinsa sig af ţessu. Ţađ er auđvitađ óhćgt um vik ţegar heimildamađurinn er ekki gefinn upp og RÚV neitar ađ draga fréttina til baka.
Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir, 30.7.2007 kl. 11:21
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.