Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
RSS-straumar
Bækur
Bækurnar í lífi mínu
... sem hafa haft áhrif á líf mitt og hugsun
-
Kristín Marja Baldursdottir: Karitas - án titils
**** -
Þórbergur Þórðarson: Ofvitinn
*** -
Halldór Laxness: Sjálfstætt fólk
*** -
Trevor-Roper: Galdrafárið í Evrópu
*** -
Andri Snær Magnason: Draumalandið
**** - Guðspjallamennirnir o. fl.: Biblían
-
Dan Brown: Da Vinci lykillinn
*** -
ýmsir höfundar: Skólaljóðin
*** -
Lao Tse: Bókin um veginn
****
Eldri færslur
2017
2015
2013
2012
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
2 milljarðar í vasa aðaleiganda Kambs
22.5.2007 | 16:05
Ég hef fyrir satt að aðaleigandi Kambs á Flateyri, Hinrik Kristjánsson, fái um TVO MILLJARÐA í sinn hlut þegar hann hefur selt allt heila klabbið og greitt skuldir sínar - hvorki meira né minna. Þetta hafa útvegsmenn á svæðinu reiknað út í ljósi þeirra aflaheimilda sem fyrirtækið hefur yfir að ráða (3000 þorskígildistonn sem leggja sig á 7 milljarða) og skuldsetningar fyrirtækisins. Hinrik segist sjálfur hafa orðið að loka fyrirtækinu til þess að komast út úr erfiðri rekstrarstöðu og skuldum - hann þurfi að lenda standandi.
Jæja - tveir milljarðar í aðra hönd ættu nú að hjálpa upp á sakirnar.
Það er bænastund í Flateyrarkirkju í dag í tilefni af fréttum um lokun Kambs. Sorgin og vonleysið sem svífur yfir byggðarlaginu er ólýsanleg.
Ég las athyglisverða frétt á bb.is í dag um framkomu stjórnenda fyrirtækisins við starfsfólk sitt fyrir kosningar - afar sérstakt ef rétt reynist.
Ráðherrar ræddu um stöðu Vestfjarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Stjórnmál og samfélag | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Sjávarútvegsmál
- Eigum við að kasta kvótakerfinu? Líflegur fundur um sávarútvegsmál, mars 2015
Áhugavert
Listi yfir áhugaverðar síður og lesefni
- Eyjubloggið mitt Ég á eyjublogginu
- Skutull Fréttavefurinn Skutull.is
- Björgunarhundasveit Íslands
- Hundar hundarækt
- Landsbjörg Slysavarnarfélagið Landsbjörg
- Myndasíðan hans Gústa Frábærar myndir
Galdrasíður og -samfélög á netinu
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Sigrún Jónsdóttir
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ketill Sigurjónsson
- Atli Rúnar Halldórsson
- Baldur Kristjánsson
- Bjarni Harðarson
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Þór Bjarnason
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Edda Agnarsdóttir
- ESB
- Eyþór Árnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Hallmundur Kristinsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiða Þórðar
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Snæbjörnsson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Guð
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kristján Pétursson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Magnús Geir Guðmundsson
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigurður Þórðarson
- Sigurður Sigurðsson
- Skafti Elíasson
- Helga skjol
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Þorleifur Ágústsson
- Toshiki Toma
- Emma Vilhjálmsdóttir
- Albertína Friðbjörg
- Baldur Smári Einarsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Adolf Dreitill Dropason
- Aðalheiður Ámundadóttir
- AK-72
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Ágúst Hjörtur
- Bogi Jónsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynjar Davíðsson
- Bwahahaha...
- cakedecoideas
- Dögg Pálsdóttir
- Einar Ben
- Einar Björn Bjarnason
- Einar Indriðason
- Finnur Bárðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Garún
- Gerður Pálma
- Guðbjartur Hannesson
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Guðmundur Óli Scheving
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gylfi Björgvinsson
- Handtöskuserían
- Haukur Nikulásson
- Helga Þórðardóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hörður Valdimarsson
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jóhann Pétur
- Jón Daníelsson
- Jón Kristjánsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Snæbjörnsson
- Kjartan Jónsson
- Kjartan Pálmarsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- Magdalena Sigurðardóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Ólafur Ingólfsson
- Rafn Gíslason
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Róbert Björnsson
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sigríður Sigurðardóttir
- Sigurbjörg
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Skuldlaus
- Steingrímur Helgason
- ThoR-E
- Tinna Jónsdóttir
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Valan
- Villi Asgeirsson
- Yngvi Högnason
- Þorsteinn Guðnason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þór Jóhannesson
Athugasemdir
Ólína - þetta mál er nú þannig vaxið að þetta arfavitlausa fiskveiðistjórnunarkerfi býður uppá þetta. Hinrik og hans fjölskylda hefur keypt þennan kvóta af mönnum sem fengu hann að gjöf og já, ef rétt reynist, ávaxtað pund sitt vel. Ég hef fylgst með þessu sem gamall Flateyringur og finnst auðvitað slæmt að aðalfyrirtækinu á staðnum sé lokað en hann fékk ekki kvótann í arf eins og margir.
Björn Zoéga Björnsson, 22.5.2007 kl. 16:36
Þetta undirstrikar bara eitt,skítinn og drullan sem viðgengst í þessu,og hún er algjörlega einstök.Ég held að Hinrik sé lítið skárri en margir aðrir í þessum geira,sem sagt algjörlega siðblindur og hugsar eingöngu um eigið rassgat,skítt með eitt stykki sjávarpláss.
Hallgrímur Guðmundsson, 22.5.2007 kl. 16:42
Heil og sæl Ólína.
Ég er sammála þér kerfið er ekki að virka eins að það var hugsað í upphafi þegar það var stofnað.
Ég mundi stöðva frjálsa framsalið þá myndi enginn hafa áhuga á þessu braski.
Nú er stóra spurningin hvað mun Össur segja nú um fiskveiðistjórnarkerfið ég mun fylgjast með því. þar voru höfð stór orð uppi. það mun koma í ljós þegar stjórnarsáttmáli liggur fyrir.
Jóhann Páll Símonarson.
Jóhann Páll Símonarson, 22.5.2007 kl. 16:51
Það er ekki hægt að áfellast eigendur Kambs sem stinga þessum peningum á sig en það er svo sannarlega hægt að fordæma harðlega Einar Odd og Einar Kristinn sem hafa varið þetta kerfi sem særir réttlætiskennd almennings og grefur undan sjávarbyggðunum.
Það má líka áfellast með réttu forráðamenn sveitarfélaganna á Vestfjörðum s.s. Halldór Halldórsson og Grím Atalson sem standa ekki með fólkinu gegn kerfinu.
Sigurjón Þórðarson, 22.5.2007 kl. 18:16
Á ekki líka að biðja fyrir eigandanum? Hann á ekki gott í vændum hinum megin, ef hin gamla kenning er rétt!
Sigurður G. Tómasson, 22.5.2007 kl. 18:18
Tveir milljarðar? Ef það er rétt að ekki verði nema kannski tveir milljarðar eftir, þá er það varla umtalsvert. Samsvarar kostnaði við eina frambærilega afmælisveislu hjá nýríka fólkinu ásamt hundrað milljónum í aflátssjóð.
Hlynur Þór Magnússon, 22.5.2007 kl. 18:37
Mér finnst tillaga Sigurðar G. Tómasonar afleit. Þó má grípa til hennar í undantekningatilvikum eins og þegar afi minn jarðaði sveitarómagann fyrir vestan:
"Enginn úr hreppsnefndinni þorði að vera við jarðarförina svo ég lét mér nægja að biðja fyrir þeim".
Og enn má ég vitna í gamla manninn. Og þá kem ég að reiðilestrinum um lygarana og það hvílur glæpur lygin er.
"Og verstu glæpamennirnir eru prestarnir því þeir ljúga fyrir peninga. Og það er svo mikill glæpur að ekki einu sinni Guð Almáttugur getur fyrirgefið það. Og ef hann gerði það það þá væri það ennþá meiri glæpur".
Hversu margir eru þeir pólitíkusar og sægreifar sem þessa dagana eru að ljúga að þjóðinni um réttlæti kvótakerfisins?
Ég er meira en sannfærður um að þeir eru að ljúga fyrir peninga.
Árni Gunnarsson, 22.5.2007 kl. 20:19
Landsbyggðin á hluta af sjávarauðlindinni í formi netlaga. Hvernig væri að leggja lið Samtökum eigenda sjávarjarða (ses.is) sem standa núna í málaferlum við ríkið um þennan eignarrétt og atvinnuréttinn útræði/heimræði. Þessi réttur tilheyrir jörðunum og fer ekkert frekar en önnur hlunnindi jarða.
Bjarni Jónsson (IP-tala skráð) 22.5.2007 kl. 20:19
Og hvað með það þó einn af bestu sonum Vestfjarða öðlist efnahagslegt sjálfstæði?
Bjarni Pálsson (IP-tala skráð) 22.5.2007 kl. 21:36
Bjarni, þú meinar að "besti sonurinn" eigi betur skilið "efnahagslegt sjálfstæði" heldur en byggðarlagið í heild sinni? Þá á ég við byggðarlagið sem fóstraði hann og kom honum til manns .... athyglisvert sjónarmið.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 22.5.2007 kl. 23:51
Ég skil ekki þessa umræðu. Hlynur Þór heldur því fram að tveir milljarðar séu varla umtalsverðir. Mín budda hefur aldrei haft rúm fyrir slíka fjárhæð. Vona að hún þurfi aldrei að hafa það. Þá fyrst liði mér illa. Fólkið sem stendur frammi fyrir atvinnumissi á eflaust einnig erfitt með að skilja þessa röksemdarfærslu,
Sigurður Á. Friðþjófsson, 22.5.2007 kl. 23:55
Ja Olina. Og hvad gerir Samfylkingin nu i nyjum sattmala vid Sjalfstadisflokkinn.
Níels A. Ársælsson., 23.5.2007 kl. 01:01
Hvaðan er þessi mynd tekin Ólína! Hún er ekkert merkt? Tókst þú hana sjálf?
Elli (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 09:01
Ég ætla nú bara ekki að segja meira en: http://siggisig.blog.is/blog/siggisig/entry/217742/
Sigurður Sigurðsson, 23.5.2007 kl. 09:30
Hvað eru menn að væla þetta er það sem þjóðin vill hún vill viðhalda þessum ósóma sem fylgir þessu fiskveiðikerfi. Þjóðin leggur blessun sína yfir þetta í kosningum eftir kosningar.
Jens Sigurjónsson, 23.5.2007 kl. 10:27
Ég þakka viðbrögðin við þessu umræðuefni.
Elli spyr hvaðan myndin sé tekin sem birtist með pistlinum. Hún er tekin af myndavef google.com - þess er ekki getið þar hver tók hana þó má þar sjá tilvísun á vefsíðuna gustur.is. Sé hún opnuð kemur í ljós að eigandi hennar er Guðbjartur Sturluson. Hann birtir ýmsar myndir frá Önundarfirði á síðunni, þannig að þessi mynd er líklega tekin af honum.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 23.5.2007 kl. 10:51
Ég sé ekki hvernig er réttlætanlegt að atyrða mann sem eytt hefur bestu árum sínum í vandræðastand eins og rekstur Kambs (áður Hjálms).
Hann tók yfir gjaldþrota rekstur og ef það voru ekki rekstrarforsendurnar sem bötnuðu þá hlýtur reksturinn hjá honum að hafa verið betri. Því segi ég að þetta er einn af bestu sonum Vestfjarða og á annað skilið en lágkúrulegt baktal.
Bjarni Pálsson (IP-tala skráð) 26.5.2007 kl. 20:53
Sæll Bjarni Pálsson.
Ég veit ekki hvaða lágkúrulega baktal þú ert að tala um varðandi Hinrik Kristjánsson - það er a.m.k. ekki á þessari síðu. Hér er ekki verið að tala neitt illa um hann. Hér er verið að tala um kvótakerfið og það hvað menn hafa upp úr því að selja kvóta - ef og þegar þeir taka þá ákvörðun að hætta og selja. Hinrik mun hafa 2 milljarða - af þeim 7 milljörðum sem kvótaverðmætinu nemur. Þetta er ekki baktal heldur staðreynd.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 26.5.2007 kl. 21:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.