Lítill fugl í vanda

mariuerla170606_9 Maríuerlan í garđinum mínum komst í hann krappan í morgun. Ţegar mér varđ litiđ út um eldhúsgluggann sá ég hvar hún var komin inn fyrir öryggisnetiđ í trampólíninu í nćsta garđi. Ţarna flögrađi hún ráđvillt um fyrir innan netiđ og lengi vel leit út fyrir ađ hún fyndi enga leiđ úr prísundinni. 

Ég fylgdist međ henni góđa stund og furđađi mig á hátterni hennar, ţví í rauninni átti hún greiđa leiđ í frelsiđ.

Hvađ eftir annađ tókst henni - ţó međ erfiđismunum vćri - ađ fljúga upp á bandiđ sem hélt netinu uppi. Ţađan hefđi hún auđveldlega getađ flogiđ út í garđinn. En ... nei, hún var svo örvingluđ orđin ađ aftur og aftur hoppađi hún niđur röngu megin viđ netiđ, föst í sínu sjálfskipađa fangelsi, og ţar upphófst sama baksiđ á ný.

Ég var ađ ţví komin ađ hlaupa út til ađ blanda mér í ţetta ţegar hún skyndilega rambađi fram á litla rifu á netinu niđri viđ dýnuna. Og án ţess ađ hún eiginlega stjórnađi ţví sjálf, ţá stóđ hún allt í einu í ţessu litla gati, og viti menn ... hún hoppađ út í grasiđ, frjáls úr prísundinni.

Ekki veit ég hvernig á ţví stóđ, en ţar sem ég virti fyrir mér atganginn innan viđ netiđ, varđ mér hugsađ til stöđu okkar Íslendinga í samfélagi ţjóđanna ţessa dagana.

Og nú lćt ég lesendum eftir ađ leggja út af sögunni.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ţađ eru alltaf leiđir til ef ađ vel er ađ gáđ og skynsemin  látin ráđa.Góđa helgi til ţín og fjölskyldu ţinnar Ólína mín.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráđ) 29.7.2009 kl. 19:46

2 Smámynd: Ásdís Sigurđardóttir

Skemmtileg saga og samlíkingin viđ ţjóđ okkar ekki fjarri lagi.

Ásdís Sigurđardóttir, 29.7.2009 kl. 20:50

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ţjóđ sem losar sig úr fjötrum á endanum.  Tekur bara dálítinn tíma.

Ía Jóhannsdóttir, 30.7.2009 kl. 00:23

4 Smámynd: Byltingarforinginn

Hlóstu ekki bara ađ henni?

Byltingarforinginn, 30.7.2009 kl. 00:31

5 Smámynd: Páll Blöndal

Ágćtis innlegg hjá ţér Ólína,
en eru alţingismenn bara dúlla sér úti í móum á međan AGS
er í ţann mund ađ drekkja okkur?

Páll Blöndal, 30.7.2009 kl. 17:53

6 Smámynd: Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir

If you only knew ...

Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir, 30.7.2009 kl. 19:56

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband