Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
RSS-straumar
Bækur
Bækurnar í lífi mínu
... sem hafa haft áhrif á líf mitt og hugsun
-
Kristín Marja Baldursdottir: Karitas - án titils
**** -
Þórbergur Þórðarson: Ofvitinn
*** -
Halldór Laxness: Sjálfstætt fólk
*** -
Trevor-Roper: Galdrafárið í Evrópu
*** -
Andri Snær Magnason: Draumalandið
**** - Guðspjallamennirnir o. fl.: Biblían
-
Dan Brown: Da Vinci lykillinn
*** -
ýmsir höfundar: Skólaljóðin
*** -
Lao Tse: Bókin um veginn
****
Eldri færslur
2017
2015
2013
2012
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tvær ræður: Önnur með hugmóði, hin með tárum.
28.3.2009 | 00:38
Það var skeleggur stjórnmálamaður sem steig á svið á landsfundi Samfylkingarinnar í dag til þess að kveðja með reisn. Þróttur í röddinni og öryggi í fasi. Henni var fagnað lengi og innilega um leið og hún steig á svið og henni var klappað lof í lófa að lokinni ræðu. Fundargestir risu úr sætum.
Já það var stemning á setningu landsfundarins í dag. Um leið skynjuðum við öll að nú eru að verða þáttaskil. Ingibjörg Sólrún stígur nú út af sviðinu eftir langan og merkan stjórnmálaferil, oft stormasaman, einkum síðustu mánuðina.
Við keflinu tekur Jóhanna Sigurðardóttir sem óumdeildur foringi og fyrsta konan til að gegna starfi forsætisráðherra á Íslandi. Um varaformannsembættið keppa tveir efnilegir stjórnmálamenn, hvor öðrum frambærilegri. Mikið og gott mannval.
Í gær hélt Ingibjörg Sólrún aðra og öðruvísi ræðu. Þá kvaddi hún konurnar í flokknum á ársþingi Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar sem haldið var á Hótel Loftleiðum. Sú ræða var ekki síður sterk en ræðan í dag, en hún sló á allt aðra strengi. Í henni var fjallað um hlutskipti og erindi kvenna í stjórnmálum; komið inn á samkennd og samstöðu - ekki síst mikilvægi þess að við konur hlúum vel hver að annarri - einkum þeim sem við sendum út á vígvöllinn fyrir okkur.
Sterk ræða í meitluðum, vel völdum orðum.
Ræða sem þrýsti fram tárum og kallaði fram faðmlög.
Ræða sem við gleymum aldrei.
Siðrof í íslensku samfélagi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Heimspeki, Mannréttindi, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 00:44 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Sjávarútvegsmál
- Eigum við að kasta kvótakerfinu? Líflegur fundur um sávarútvegsmál, mars 2015
Áhugavert
Listi yfir áhugaverðar síður og lesefni
- Eyjubloggið mitt Ég á eyjublogginu
- Skutull Fréttavefurinn Skutull.is
- Björgunarhundasveit Íslands
- Hundar hundarækt
- Landsbjörg Slysavarnarfélagið Landsbjörg
- Myndasíðan hans Gústa Frábærar myndir
Galdrasíður og -samfélög á netinu
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Sigrún Jónsdóttir
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ketill Sigurjónsson
- Atli Rúnar Halldórsson
- Baldur Kristjánsson
- Bjarni Harðarson
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Þór Bjarnason
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Edda Agnarsdóttir
- ESB
- Eyþór Árnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Hallmundur Kristinsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiða Þórðar
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Snæbjörnsson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Guð
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kristján Pétursson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Magnús Geir Guðmundsson
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigurður Þórðarson
- Sigurður Sigurðsson
- Skafti Elíasson
- Helga skjol
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Þorleifur Ágústsson
- Toshiki Toma
- Emma Vilhjálmsdóttir
- Albertína Friðbjörg
- Baldur Smári Einarsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Adolf Dreitill Dropason
- Aðalheiður Ámundadóttir
- AK-72
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Ágúst Hjörtur
- Bogi Jónsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynjar Davíðsson
- Bwahahaha...
- cakedecoideas
- Dögg Pálsdóttir
- Einar Ben
- Einar Björn Bjarnason
- Einar Indriðason
- Finnur Bárðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Garún
- Gerður Pálma
- Guðbjartur Hannesson
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Guðmundur Óli Scheving
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gylfi Björgvinsson
- Handtöskuserían
- Haukur Nikulásson
- Helga Þórðardóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hörður Valdimarsson
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jóhann Pétur
- Jón Daníelsson
- Jón Kristjánsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Snæbjörnsson
- Kjartan Jónsson
- Kjartan Pálmarsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- Magdalena Sigurðardóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Ólafur Ingólfsson
- Rafn Gíslason
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Róbert Björnsson
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sigríður Sigurðardóttir
- Sigurbjörg
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Skuldlaus
- Steingrímur Helgason
- ThoR-E
- Tinna Jónsdóttir
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Valan
- Villi Asgeirsson
- Yngvi Högnason
- Þorsteinn Guðnason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þór Jóhannesson
Athugasemdir
Ingibjörg var stórkostleg í dag og talaði um hlutina án umbúða en þó með ákveðinni nærfærni. Hún hvatti okkur hin til dáða og miðlaði okkur af sinni miklu reynslu í lífi og starfi. Hún fékk góðar undirtektir og mikið lof í lófannn.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 28.3.2009 kl. 00:57
Ég mun sakna hennar í pólitíkinni, vona samt að hún hafi ekki sagt sitt síðasta orð í pólitískum tilgangi.
Í hennar stað kemur ömmubarn vinkonu ömmu minnar, og er ég mjög sátt við það. En sem betur fer eru til nokkuð margar konur sem hafa þó nokkuð góða möguleika að komast langt í pólitík.
Ingibjörg og Jóhanna gangi ykkur vel á þeim vígstöðvum sem þið takist á við á þeirri stund sem þið lifið í. Jóhanna sem forsetisráðherra og Ingibjörg að ná sér eftir sín veikindi. Gef ykkur góðar hugsanir í baráttunni.
Áslaug Sigurjónsdóttir, 28.3.2009 kl. 02:04
Ábyggilega ágætis kona en svaf jafn vært og Geir á verðinum blessuð konan
Víða í þjóðfélaginu þarf ekki ræður til að þrýsta fram tárum. Atvinnuleysi, peningaleysi, skuldasúpa, matarskortur. Sumir eru tengdari "Kreppukerlingu" en aðrir og ég er ekki viss um að margir þeirra sitji fundi Samfylkingar og Sjálfstæðis
Páll A. Þorgeirsson, 28.3.2009 kl. 02:15
Hennar tími í Íslenskum stjórnmálum er alveg liðinn, hún sjálf sá alveg fyrir því með dapurri framgöngu sinni.
Vonandi berið þið Samfylkingarfólk nú gæfu til þess loksins að kjósa alvöru jafnaðarmann sem leiðtoga ykkar.
Gunnlaugur I., 28.3.2009 kl. 08:34
Ræða Ingibjargar Sólrúnar var vissulega góð,- mjög góð. Rannveig vinkona mín, komst líka vel frá sínu, nema .... Hún nefndi að ung listakona, Gerður Helgadóttir hefði gert steindar rúður í Kópavogskirkju. Önnur listakona, Högna Sigurðardóttir hefði teiknað sundlaugina í Kópavogi. Sagði síðan réttilega að Kópavogskirkja væri tákn bæjarfélagsins. Hún lét þess hinsvegar ekki getið hver teiknað hefði kirkjuna. Það var nefnilega karl. Hörður Bjarnason, arkitekt og húsameistari ríkisins. Kirkjan er sannkallað listaverk og mun eins og Skálholtskirkja halda nafni hans á lofti um ókomna tíð.
Þetta fannst mér óþarflega smátt. því máttu skila til Rannveigar.
Eiður Svanberg Guðnason, 28.3.2009 kl. 11:20
Þessar ræður hefðu kannski átt heima á landsfundi sjálfstæðismanna, þar sem heimskan ræður ríkjum ?? Hver talar um pólitík í dag, eða ábyrgð..? Nú er talað á persónulegum nótum og mjög þröngum pólitískum nótum. Næstum því eins og í saumaklúbb. Þú Ólína, ættir að skammast þín, sem vel gefin manneskja og háskólaborgari að taka þátt í svona pólitík.
Sigurður Rúnar Sæmundsson, 28.3.2009 kl. 19:53
Ætlar þú næst að skrifa um tár þeirra er nú eru að missa heimili sín og lífsviðurværi vegna sofandaháttar og ábyrgðaleysi þeirra konu er þú mærir hér svo mjög?
Halla Rut , 28.3.2009 kl. 23:02
Það er leitt þegar fólk lætur blindast svo mjög af pólitík að það skoðar alla hluti í því ljósi. J
Já, það er leitt þegar fólk blindast svo mjög - eins og Sigurður Rúnar og Halla Rut hér ofar - að það þolir ekki vingjarnleg orð í garð annars fólks sem það lítur á sem pólitíska andstæðinga. Þegar heiftin verður svo mikil að hún verður að mannfyrirlitningu.
Ég mun halda áfram að tala vel um fólk - jafnt pólitíska samherja sem aðra. Ekkert af því er oflof eða mærð, ég hef einfaldlega eðlislæga tilhneigingu til þess að leita hins jákvæða í fari annarra.
Nú held ég að fleiri mættu taka sér þetta viðhorf til fyrirmyndar.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 29.3.2009 kl. 11:05
Mín frjálslega túlkun á boðskapnum Davíðs:
Glóir bjart sá gullni kvistur
af gæðaviði sprottinn.
Oki jafns er aðeins Kristur
og ef til vill hann Drottinn
Kveðja,
-þ
Þorsteinn Egilson, 30.3.2009 kl. 22:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.