Verkin sem vinna þarf

Það var líf og fjör í umræðunum á Sprengisandinum hjá Sigurjóni M. Egilssyni í morgun. Þar sátum við á rökstólum, ég, Helga Sigrún Harðardóttir alþingismaður og Þórlindur Kjartansson formaður SUS og ræddum landsins gagn og nauðsynjar - nánar til tekið: Stjórnmálaástandið og horfurnar sem eru mál málanna þessa dagana (hlusta hér).

Annars var ég að kynna mér verkefnaskrá nýju ríkisstjórnarinnar. Þar er margt sem vekur von um góðan ásetning um brýnar aðgerðir í þágu heimila og atvinnulífs, til endurreisnar bankakerfisins, á sviði endurbóta í stjórnsýslu og aðgerðum í þágu aukins lýðræðis og opins og heiðarlegs samfélags, eins og þar stendur.

Athygli mína vakti fyrirheit um nýjar siðareglur í stjórnarráðinu, afnám eftirlaunalaganna um alþingis og ráðherra, endurskoðun laga um ráðherraábyrgð og ekki síst breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins og stjórnlagaþing.  

Fyrirheitið um endurreisn efnahagslífsins og endurskipulagningu stjórnsýslunnar veltur vitanlega á fleiri aðilum en ríkisstjórninni. Það veltur á þingheimi í heild sinni - og þjóðinni sjálfri.

Nú ríður á að sátt náist um að vinna hratt og vel að björgun þjóðarbúsins með þáttöku þjóðarinnar sjálfrar.

 

PS: Sjá líka viðtal mitt við Gísla Tryggvason á ÍNN


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Er búin að hlusta á Sprengisandinn, sem tókst eftir nokkra tæknilega örðugleika (sem kallast að kunna ekki nóg fyrir sér). Mér fannst þátturinn góður og greinilegt að það eru að koma nýjar hugsanir inni kolla framtíðarinnar. Stjórnarsáttmálinn fyrir stjórn Jóhönnu er afar merkilegur að mínu mati og þar er greinilega verið að blása í aðra lúðra en gert hefur verið.

Sjálfstæðismenn hafa líka verið með furðulegar yfirlýsingar undanfarna dag. Ég upplifi þá mjög hrædda og þeir eru að mínu mati að fela hræðslu sína með allskyns reiðilestrum. Margir eru að hætta og leyfa sér því meira, en fara þá gjarnan út á ís sem ekki heldur. Uppákoman í kring um Seðlabankann verður líka pínlegri með hverjum deginum.

Svo sé ég að óþol þjóðarinnar er algjört. Les færslur um ýmis mál þar sem fólk skrifa "Stjórnin var búin að lofa..........en ekkert hefur gerst"

Stjórnin er vikugömul og það er eins og fólk haldi að nægilegt sé að smella fingri. Ég er búin að skrifa margar færslur þar sem ég bið fólk að bíða aðeins - ekki lengi en aðeins. En ég skil fólkið svo vel og greinilegt að væntingarnar eru gríðarlegar.

Umræðan um Stjórnarskrána er orðin svo almenn að ég trúi ekki öðru en að nú gerist eitthvað. Undirskriftirnar eru að slefa í 7 þúsund sem er frábært.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 8.2.2009 kl. 16:05

2 Smámynd: Þórður Vilberg Oddsson

Þráhyggjam mikla þreytandi er.

og þrasið í kringum Dabba.

Bölvanlegt ástandið breytist ei hér.

þó úr bankanum myndi hann labba.

Þórður Vilberg Oddsson, 8.2.2009 kl. 16:43

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 8.2.2009 kl. 20:24

4 Smámynd: Hjalti Tómasson

Ég vil taka undir með því sem fram kemur í færslu þinni um að nú ríði á að þingheimur fylki sér utanum þær aðgerðir sem fara þarf í. Menn þar inni verða að fara að átta sig á að hér er ekki um það að ræða hver stjórnar fundum eða hver sagði hvað fyrir árum síðan. Við þurfum að taka á málum núna, sem snerta okkur öll, burtséð frá prívatskoðunum kjörinna fulltrúa okkar. Við getum svo sest í skotgrafirnar aftur þegar um hægist.

Hjalti Tómasson, 8.2.2009 kl. 22:28

5 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Takk fyrir ykkar ágætu athugasemdir - ég er sammála þeim öllum.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 8.2.2009 kl. 23:10

6 Smámynd: Björn Finnbogason

Góður ásetningur og hlýjar hugsanir eru bara ekki það sem dugar!  Hér þarf að hafa svo hraðar hendur að ég væri alveg til að gefa Jóhönnu óútfyllt ávisanahefti og fulla heimild til að nota það en töfraorðið er framkvæmd!!!

Björn Finnbogason, 8.2.2009 kl. 23:20

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Þú segir Ólína;

"Athygli mína vakti fyrirheit um nýjar siðareglur í stjórnarráðinu, afnám eftirlaunalaganna um alþingis og ráðherra, endurskoðun laga um ráðherraábyrgð og ekki síst breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins og stjórnlagaþing." 

Hefði ekki verið gráupplagt að bæta þarna við: afnám styrkja til stjórnmálaflokka svo jafna megi aðgang landsmanna vegna framboðsmála?

Við þurfum jú að spara og þetta eru "blóðpeningar" í því ástandi sem við búum við.

Sigrún Jónsdóttir, 9.2.2009 kl. 00:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband