Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
RSS-straumar
Bækur
Bækurnar í lífi mínu
... sem hafa haft áhrif á líf mitt og hugsun
-
Kristín Marja Baldursdottir: Karitas - án titils
**** -
Þórbergur Þórðarson: Ofvitinn
*** -
Halldór Laxness: Sjálfstætt fólk
*** -
Trevor-Roper: Galdrafárið í Evrópu
*** -
Andri Snær Magnason: Draumalandið
**** - Guðspjallamennirnir o. fl.: Biblían
-
Dan Brown: Da Vinci lykillinn
*** -
ýmsir höfundar: Skólaljóðin
*** -
Lao Tse: Bókin um veginn
****
Eldri færslur
2017
2015
2013
2012
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Hörður á að viðurkenna mistök og biðjast afsökunar
23.1.2009 | 23:34
Ég held að Hörður Torfason hljóti að vera orðinn eitthvað þreyttur. Hann hefur staðið sig mjög vel fram að þessu - en nú varð honum á í messunni. Þeir sem ganga hart fram í gagnrýni á aðra verða að geta horfst í augu við eigin mistök. Hörður á að biðjast afsökunar á ummælum sínum um veikindi Geirs H. Haarde.
Raunar finnst mér að það mætti að ósekju fara að sýna fleiri andlit og tala við fleiri málsvara þessara mótmæla heldur en Hörð Torfason. Með fullri virðingu fyrir honum. Mótmælin hafa verið persónugerð full mikið í honum einum, þó hann eigi að sjálfsögðu að njóta þess hróss sem hann á skilið. En hann er ekki undanþegin gagnrýni heldur.
Ég vona að fólk haldi áfram að mæta á Austurvöll og berja búsáhöld. Hugmyndin með appelsínugulu borðana finnst mér góð, þ.e. að auðkenna þannig þá sem fara með friði.
Það kæmi mér ekki á óvart þó að hvítir borðar sæjust líka á stöku stað í borginni á morgun. Hvítt er litur friðarins.
2.319 undirskriftir komnar við áskorunina um stjórnlagaþing og utanþingsstjórn á www.nyttlydveldi.is
Hænuskref í rétta átt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Dægurmál, Fjölmiðlar, Lífstíll | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Sjávarútvegsmál
- Eigum við að kasta kvótakerfinu? Líflegur fundur um sávarútvegsmál, mars 2015
Áhugavert
Listi yfir áhugaverðar síður og lesefni
- Eyjubloggið mitt Ég á eyjublogginu
- Skutull Fréttavefurinn Skutull.is
- Björgunarhundasveit Íslands
- Hundar hundarækt
- Landsbjörg Slysavarnarfélagið Landsbjörg
- Myndasíðan hans Gústa Frábærar myndir
Galdrasíður og -samfélög á netinu
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Sigrún Jónsdóttir
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ketill Sigurjónsson
- Atli Rúnar Halldórsson
- Baldur Kristjánsson
- Bjarni Harðarson
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Þór Bjarnason
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Edda Agnarsdóttir
- ESB
- Eyþór Árnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Hallmundur Kristinsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiða Þórðar
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Snæbjörnsson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Guð
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kristján Pétursson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Magnús Geir Guðmundsson
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigurður Þórðarson
- Sigurður Sigurðsson
- Skafti Elíasson
- Helga skjol
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Þorleifur Ágústsson
- Toshiki Toma
- Emma Vilhjálmsdóttir
- Albertína Friðbjörg
- Baldur Smári Einarsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Adolf Dreitill Dropason
- Aðalheiður Ámundadóttir
- AK-72
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Ágúst Hjörtur
- Bogi Jónsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynjar Davíðsson
- Bwahahaha...
- cakedecoideas
- Dögg Pálsdóttir
- Einar Ben
- Einar Björn Bjarnason
- Einar Indriðason
- Finnur Bárðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Garún
- Gerður Pálma
- Guðbjartur Hannesson
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Guðmundur Óli Scheving
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gylfi Björgvinsson
- Handtöskuserían
- Haukur Nikulásson
- Helga Þórðardóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hörður Valdimarsson
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jóhann Pétur
- Jón Daníelsson
- Jón Kristjánsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Snæbjörnsson
- Kjartan Jónsson
- Kjartan Pálmarsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- Magdalena Sigurðardóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Ólafur Ingólfsson
- Rafn Gíslason
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Róbert Björnsson
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sigríður Sigurðardóttir
- Sigurbjörg
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Skuldlaus
- Steingrímur Helgason
- ThoR-E
- Tinna Jónsdóttir
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Valan
- Villi Asgeirsson
- Yngvi Högnason
- Þorsteinn Guðnason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þór Jóhannesson
Athugasemdir
Júbb - mikið af hvítum borðum komið á ljósastaura, skilti ofl. á fjölförnustu götunum - og fréttamenn víst farnir að spyrja um hvað sé eiginlega um að vera! ;)
Ása (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 23:40
Já Hörður ætti að sýna sóma sinn í því að biðjast afsökunar.... er hann ekki að fara fram á að menn axli ábyrgð og segi af sér? Nú er komið að honum að sýna gott fordæmi og fara frá í þessu hlutverki?
Páll Jóhannesson, 23.1.2009 kl. 23:54
Hörður Torfa, gerði langt uppá bak með þessum orðum sínum og er ekki lengur minn málsvari. Menn kunna sig en því miður er maður ársins orðinn af fífli dagsins og óvin gærdagsins. Hættu Hörður og sýndu manndóm í að biðjast fyrirgefningar. Þú ættir að vita það manna best (allra íslendinga) hvernig er að koma upp að vegg.
Svei þér Hörður, þú ert ekki lengur minn málssvari
Kjartan H (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 23:57
Hörður fór yfir strik í dag sem gæti reynst honum erfitt ef hann drífur sig ekki snarlega til baka.
Frábært hvað gengur vel að skrifa undir á www.nyttlydveldi.is
Hólmfríður Bjarnadóttir, 24.1.2009 kl. 00:00
Var að blogga um þetta núna rétt áðan og segi eins og þú honum varð á í messunni og ætti að sjá sóma sinn í því að biðjast afsökunar. Þekki Hörð frá fyrri tíð og ekkert nema af góðu.
Ía Jóhannsdóttir, 24.1.2009 kl. 00:01
Hvaða hvítu borða eruð þið að tala um?
Er einhver önnur hugmynd á bak við þá en hina appelsínugulu?
Þór Jóhannesson, 24.1.2009 kl. 00:01
Hörður má mín vegna segja og gera það sem hann vill. Hann hefur aldrei talað fyrir mig, það getur enginn nema ég. Búsáhaldabyltingin er farin af stað og það verður ekki stöðvað, við höldum áfram ótrauð og berjum á okkar potta og pönnur þangað til hlustað verður á okkur.
Hippastelpa, 24.1.2009 kl. 00:02
Miðað við langtíma lygavaðal þeirra sem verið er að mótmæla þá er yfirsjón Harðar harla lítil í samanburði. Hér er verið að gera úlfalda úr mýflugu og helst að íhaldsliðið grípi þetta á lofti sem eitthvert svakalegt tabú. Stormur í vatnsglasi.
Ónærgætið? Já. Gert upp á bak? Nei.
Haukur Nikulásson, 24.1.2009 kl. 00:04
Sammála þér Ólína, orðaval Harðar var óheppilegt í meira lagi. Reyndar skil ég ekki hvernig menn sjá pólitík í hverju einasta sem menn gera. Auðvitað má segja að Geir hafi ekki valið besta tímann fyrir Samfylkinguna þegar hann tilkynnti um veikindi sín. En hann er veikur og tilkynnti það í dag, hvort sem mönnum líkar það betur eða verr.
Þegar menn fá tíðindi eins og Geir fékk á þriðjudag þá er eðlilegt að menn taki sér tíma til að melta þau tíðindi aðeins, ræða þau við fjölskylduna. Það hefði verið heldur skrítið ef hann hefði tilkynnt þetta á miðvikudag, daginn eftir ein öflugustu mótmæli sem sést hafa á Íslandi um áratuga skeið. Ætli það hefði ekki orðið einhverjum að vopni?
Ingibjörg Hinriksdóttir, 24.1.2009 kl. 00:12
Ég sé ekki að Hörður þurfi að byðjast afsökunar á því að hafa kallað loforð um kosningar reykbombu.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 24.1.2009 kl. 00:12
Er verið að rífa upp húmor fyrir 'Hvítliðum' hérna ?
Hörður er líklega ekkert fullkomnari en ég eða þú, en þeir sem að hann að þínu mati ætti að biðja afzökunnar, ættu nú frekar að standa keikir fyrr & biðja okkur hin afzökunnar.
Menn mega mismálgazt, minn grunur er að slíkt hafi nú gerst.
Hvernig væri nú að þeir sem að á er deilt njóti sömu velvildar þinnar & gangi fram fyrr ?
Steingrímur Helgason, 24.1.2009 kl. 00:16
Steingrímur ég tek hjartanlega undir þetta.
Er fólk virkilega svo dómgreindarsnautt að það sjái ekki við þessu.
Geir Haarde er búin að kalla örbyrgð yfir þjóðina um komandi áratugi og svo er stungið upp á því að Hörður byðji hann afsökunar........er fólk ekki með öllum mjalla?
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 24.1.2009 kl. 00:29
Sæl Ólína,
Ég er dálítið mikið að spá í það hvort allir þeir sem gagnrýna Hörð, hafi bara lesið textann á mbl.is, en ekki hlustað á viðtalið við hann sem er örlítið neðar. ;-)
Mér finnst viðtalið ekki standast "allt skítkastið" sem blessaður kallinn fær yfir sig á netinu.
Ég vona að sem flestir hlusti á viðtalið og geti þá leiðrétt mín "gömlu eyru" sem gætu auðvitað hafa misskilið eitthvað í hans orðum. ;-)
Ég er á sama máli og þú í mörgu sem þú segir í þínum texta og þú mátt nú líka eiga það að þú sleppir "stóru orðunum" sem kæmi mér ekki á óvart að ýmsir þyrftu kannski að kyngja aftur. ;-)
Upp með "Nýttlýðræði" (reyndar er það nú vonandi að verða að við fáum loksins að búa í "lýðræðisríki" og þá hugsa ég nú dálítið marga áratugi aftur), þar er ég á lista og byggi loks upp "stórar vonir" um gott framtíðarland fyrir "alla íbúa".
Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 00:34
Ég er hjartanlega sammála honum Zteingrími ztórvini mínum.
Það eru miklar kröfur gerðar til Harðar fyrir þessi ummæli.
Þau eru þó hjóm eitt í samanburði og svo er verið að krefjast þess að hann segi af sér.
Segja hverju af sér?
Er hann í vinnu við að mótmæla?
Algjör stormur í vatnsglasi.
Jenný Anna Baldursdóttir, 24.1.2009 kl. 00:44
Ég hélt nú að þú værir betur gefin en þetta.
Hörður Torfason er ekki kjörinn fulltrúi neins, og skuldar ekki neinum afsakanir, né útskýringar á sínum skoðunum.
Þar að auki hefur Hörður Torfason ekki kostað mig eina einustu krónu, sem er meira en hægt er að segja um sjálfgræðgis og samspillingarhyskið sem þú styður og ert hluti af.
Hörður Torfason hefur barist fyrir mannréttindum homma og lesbía í mörg ár, með litlum undritektum frá smáborgurum eins og þér.
Að mínu mati, hafirðu áhuga á því (sem þú hefur sjálfsagt ekki, þar sem fólk eins og þú hefur yfirleitt ekki áhuga á skoðunum sem ekki samrýmast ekki þeirra eigin) skuldar þú Herði Torfasyni afsökunarbeiðni.
Kær kveðja, Hörður Tómassson
Hörður Tómasson (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 00:53
Jahá, ég fór að ráðum Páls A. og hlustaði á viðtalið. Sem ég hafið ekki gert áður - heldur kokgleypt fréttina á mbl.is eins og vanvitinn sem ég er. Auðvitað er þetta allt sama slitið úr samhengi og það kemur augljóslega fram að pólitíska reykbomban er þessi "ákvörðun" um kosningar 9. desember án allra samþykkta annarra - bara út í loftið.
Svo þegar hann tjáir sig um veikindin segir kasta Hörður fram spurningunni um hvar eigi að draga mörkin á pólitísku lífi og einkalífi.
Það er best að fara varlega í sleggjudómum áður en maður kynnir sér hlutina betur. Mæli með að fólk hlusti á viðtalið áður en það dregur ályktanir því annars gæti krafa þeirra sem heimta afsökunarbeiðni og kalla Hörð öllum illum nöfnum snúist í höndum þeirra.
Verst er að mbl.is tókst að fylgja þessar pólitísku reykbombu eftir með því að búa til aðra slíka á þennan ósvífna hátt. Finnst að mbl.is ætti að biðja Hörð Torfason afsökunar á að afbaka svona orð hans.
Þór Jóhannesson, 24.1.2009 kl. 00:53
Ef mig minnir rétt, lagðist Morgunblaðið í svívirðilegan hatursáróður í heilan vetur og ýmis andstyggilegheit gagnvart Ólínu Þorvarðardóttir, er hún starfaði sem borgarfulltrúi. Þetta er gömul taktík íhaldsins og virkar oftast. Nú er komið að Herði, sem má engar aumur sjá á neinum manni.
Aumingja Árni Matt ritstjóri mbl.is, að þurfa vakta bloggið á mbl.is fyrir íhaldið. Bara til að halda jobbinu?
"En fylgi ég þér eitt hænufet, þá fæ ég ekki lengur að mylja grjót." (Jóhannes úr Kötlum.)
Línur eru að skerpast.
Ólisig (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 01:29
Ólína. Ég held að þú eigir sjálf að biðja Hörð Torfason afsökunar. Þú hefur greinilega ekki hlustað á viðtalið nógu vel eða bara látið þér mogglygina í blaðamanninum sem skrifaði hana segja þér hvað var í viðtalinu.
Svo segirðu: „Mótmælin hafa verið persónugerð full mikið í honum einum...“
Skammastu þín bara sjálf fyrir að troða þér fram, „gömlum pólitískum garmi“ undir yfirskyni Nýs lýðveldis. Við erum nógu mörg sem þekkjum þitt framlag til íslenskara pólitíkur í gegnum tíðina til að nenna ekki að skrifa undir þetta plagg Nýs Lýðveldis...þetar er nefninlega ekkert annað er „Nýr vetlingur“ hjá þér eina ferðina enn. Reyndu nú að skilja að við viljum ekki hafa atvinnustjórnmálamenn með í grasrótinni, þó ykkur langi rosalega mikið til þess.
Guggan (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 01:51
Guggan - talaðu nú fyrir sjálfa þig ekki alla grasrótina. Ég tel mig nú aldeilis tilheyra henni og ég skrifa ekki alveg undir þetta hjá þér. Mér finnst þessi vinna og hugmyndir Nýs Lýðveldis einstaklega áhugaverðar og fagna því að fólk sem hefur pólitíska reynslu skuli vinna að svona góðum málum utan flokka sinna. Það er mun mikilvægara en þú e.t.v. gerir þér grein fyrir.
Hitt með að Ólína hafi fallið í moggalygin (eins og ég gerði) held ég að sé rétt hjá þér.
Þór Jóhannesson, 24.1.2009 kl. 02:02
Hlustið á viðtalið við Hörð. Dæmið svo. Ekkert í viðtalinu gefur tilefni til upphrópana en það var birt skrumskælt á Mbl.is
Hólmdís Hjartardóttir, 24.1.2009 kl. 03:07
Viðtalið við Hörð Torfason.
Þorsteinn Briem, 24.1.2009 kl. 04:24
Þorsteinn Briem, 24.1.2009 kl. 05:54
Dæmi hver fyrir sig. Það er málfrelsi í landinu.
Þorsteinn Briem, 24.1.2009 kl. 06:00
Hörður Torfa sagði það sem segja þurfti. Um samúð hans til Geirs í veikindum hans er ómerkilegt að efast, en það er ekki samúðin sem er inntak þessa viðtals. Hörður Torfa hefur lyft Grettistaki við að byggja upp friðsamleg mótmæli.
Þráinn Bertelsson (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 07:27
Áhugavert..... Einu sinni mátti sko ekki persónugera vandann.... (október, nóvember, desember) ... það þurfti að hafa frið til að leysa málin...
Núna má segja að borðinu hafi verið snúið við... og þá allt í einu er verið að persónugera vandann á fullu? Ehum!
Ehum segi ég nú bara!
Einar Indriðason, 24.1.2009 kl. 08:52
Hörður á að láta sig hverfa. Hann hefur greinilega mikla athyglisþörf sem hann hefur fenguð útrás fyrir í þessum mótmælum. Það er ljóst að það verða kosningar. Nú ættu þeir sem vilja breytingar að fara að huga að því hvernig þær nást í gegn með kosningum.......að kjósa VG er og verður ALDREI svarið.
Eggert Hjelm Herbertsson, 24.1.2009 kl. 09:12
Þessi mótmæli sem staðið hafa linnulaust frá því haust , fyrst á laugardögum og síðan eftir þingsetningu, daglega- hafa skilað hörðum boðskap til stjórnvalda.
Andstaða stjórnvalda við þjóðina - sem á stólana þeirra, er að molna niður.
Búið er að ákveða kosninga í vor- þá nákvæm dagsetning sér ennþá óviss. Þetta er sigur- Ríkisstjórnin segir afsér og kosið verður að nýju.
En stærstu hitamálin eru ennþá óleyst- stjórnir Seðlabanka og Fjármálaeftirlits sitja sem fastast ennþá - undir verndarvæng Sjálfstæðisflokksins. Það er eftir að leysa þau mál.
Þess vegna halda mótmælin áfram og væntanlega með auknum þunga. Hörður Torfason hefur staðið sig mjög vel við allt utan um hald laugardagsmótmælanna og fengið góða málsflytjendur og oft afburða góða . Eftir að hafa lesið viðtalið sem fréttamaður hafði við Hörð , sem fréttin á Mbl. er saman soðin úr þá er málið úr sögunni hvað mig varðar.
Ljóst er að samúð þjóðarinnar er hjá Geir H.Haarde forsætisráðherra og fjölskyldu hans- við erum öll sem eitt því. Og væntum þess að hann nái fullri heilsu hið fyrsta- en á því eru taldar ágætar líkur.
En stjórnmálin á Íslandi eru líka viðfangsefni okkar allra og hrun efnahags og þjóðlíf er hrollköld staðreynd. Við viljum að þeir sem ábyrgð bera - axli hana. Um það snúast mótmælin- það er ennþá verk að vinna
Mætum á Austurvöll í dag kl. 15 og krefjumst þess að stjórn Seðlabana víki og stjórn Fjármálaeftirlits víki - nú þegar. Sían hefst endurreisn Íslands...
Sævar Helgason, 24.1.2009 kl. 10:03
Jæja gott fólk.
Það hryggir mig alltaf þegar ég fæ yfir mig persónulegar svívirðingar fyrir það að segja álit mitt hér. Í þessu tilviki fyrir að anda á foringjann. Þetta er farið að minna á gamla Alþýðuflokkinn, sem ég kynntist full vel hér um árið.
En hvað um það. Ég hlustaði á viðtalið við Hörð, það var flutt í Kastljósinu í gær. Ég hef ekki tekið stærra upp í mig varðandi það en að segja að hann eigi að biðjast afsökunar á því hvernig hann svaraði þegar hann var spurður um þessi tíðindi. Og hver voru "tíðindin"? Jú, veikindi Geirs og yfirlýsing hans um kosningar. Þannig skildi ég það - og viðbrögð Harðar komu illa við mig.
Í öllum bænum ekki líkja gagnrýni minni við starfsaðferðir skrímsladeildarinnar og moggans í den. Þeim hef ég líka kynnst (m.a. hér á blogginu) og ég þvertek fyrir að ganga þeirra erinda.
Svar Harðar var PR-klúður. Hörður er góður maður og alls góðs maklegur. Þess vegna geri ég þá kröfu til hans að hann taki ábyrgð orða sinna og afstöðu
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 24.1.2009 kl. 10:14
Það kæmi mér ekki á óvart þó að athugasemd Guggunnar væri einmitt ættuð úr skrímsladeildinni - orðnotkunin bendir ótvírætt til þess.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 24.1.2009 kl. 10:23
----
Wrong answer 101
Sem blaðamaður þá setur þú viðmælanda inn í málið og spyrð hann spurningar.
Síðan kveikir þú á upptökutækinu og spyrð hann óræðrar spurningar sem engu máli skiptir í raun nema sem framhald af fyrri spurningu.
Viðmælandi þinn sem nú á traust þitt. Svarar samviskulega.
Ef þú vilt láta viðmælanda líta enn ver út skellir þú í miðri ræðu hans spurningu sem hann átti alls ekki vona á að verða spurður.
Með þessu hefur þú séð til þess að viðmælanda vefst tunga um tönn.
Þegar þetta er klippt og birt er breytt um fyrirsögn.
------------
Þetta eru svo augljós vinnubrögð að ég á ekki til orð.
Það er hafið stríð hér á landi sem aldrei fyrr um orð og tjáningarfrelsi.
Allir þeir sem ekki tjá sig með samskonar orð og setningarskipan og valdstjórnin eru úthrópaðir á torgum með fáránlegum svívirðingum sem menn ættu ekki einu sinn að láta út úr sér í einrúmi.
Stjórnvöld gera allt til þess að fólkið í landinu taki ekki af þeim völdin og landið sem þau telja sig ein eiga og geta ráðstafað
Þetta þarf að stöðva
Við erum þjóðin
Landið er okkar
Kristján Logason, 24.1.2009 kl. 12:12
Ég er ekki alltaf sammála Ólínu en nú er ég það.Hörður vill að fólk haldi einkalífi sér og blandi ekki við hið opinbera líf.Finnst mér það í lagi.En mig minnir að Hörður hafi orðið frægur fyrir að opinbera einkalíf sitt fyrir tæplega fjörutíu árum.Það er kannski ekki sama hver á í hlut þegar opinberað er.Reyndar hef ég ekki skilið þessa upphefð Harðar sem er bara frægur fyrir tvennt:Að vera fyrstur og Guðjón baktjaldamakkara.Er hann frægur fyrir eitthvað annað?
Yngvi Högnason, 24.1.2009 kl. 13:48
Ég hef hlustað á viðtalið við Hörð oftar en einu sinni og mér finnst það ósmekklegt. Auðvitað á Hörður að biðjast afsökunar og helst víkja sem forsvarsmaður mótmælanna. Ekki myndi ég vilja mótmæla undir hans merkjum.
Svala Jónsdóttir, 24.1.2009 kl. 15:14
þrátt fyrir allar útrölurnar og persónuárásirnar á Hörð mætti Þjóðin í stærri mæli en nokkru sinni fyrr.
Þór Jóhannesson, 24.1.2009 kl. 18:02
Jebb - og það var gott að fólkið skyldi fjölmenna á Austurvöll.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 24.1.2009 kl. 22:27
Eru áróðursmenn enn að gera sér mat úr útúrsnúngi á orðum Harðar Torfasonar? Hallærislegt! Stjórnin er fallin, ekki síst fyrir framtak Harðar!
Svar: NEI! raunar er það bara MOGGA-BLOGGIÐ sem lætur sem hér séu enn "heitar umræður" á ferðinni!
Gangi okkur öllum vel, Ólína!
Hlédís, 26.1.2009 kl. 16:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.