Góð viðskipti

Hann var glaður í bragði bóndinn þegar hann kom heim einn daginn og tilkynnti frúnni að nú hefði hann gert góð viðskipti. "Ég seldi tíkina og fékk milljón fyrir hana!"

Konan, hálf hvumsa: "Seldirðu tíkina?"

Hann: "Jebb"

Hún: "Og hvar er milljónin?"

Hann, hróðugur á svip, dregur fram tvo litla kettlinga: "Hérna sjáðu. Tveir kettir - fimmhundruð þúsund hvor!"

 

kettir_330440

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Þetta lýsir ástandi mála undanfarið ágætlega. Menn hafa gert rífandi bissniss með innantóma pappíra. Má ég þá heldur biðja um 2 kisur ?

Ragnheiður , 16.10.2008 kl. 16:25

2 identicon

Frábær saga.....en ég er búinn að sjá myndina.

Annars gæti sagan alveg verið einhvernveginn svona: Ég keypti tvo kettlinga, kostuðu milljón en þeir eiga örugglega eftir að stækka og dafna svo bankinn tók þá í veð og lánaði mér 5 milljónir útá þá. Vinur minn ætlar að kaupa þá af mér fyrir 20 millj...hann fær 100 í bankanum...

Kannski ætti maður að kíkja á myndina aftur.....hvað hét myndbandið?....FL eitthvað...

sigurvin (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 17:39

3 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Nákvæmlega. Ísland í gær. Vonandi ekki líka í dag 

Hildur Helga Sigurðardóttir, 16.10.2008 kl. 18:34

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Plettskud eins og frændur vorir myndu segja.

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.10.2008 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband