Farin af landi brott ...

kraka.jpg ... til Póllands. Sit nú og bíð þess sem verða vill varðandi flugáætlunina, brottförinni var seinkað um fjóra tíma.

Ég var svo heppin að eiga svolítinn gjaldeyri inni á reikningi sem ég hef nú kroppað út úr bankanum. Það er auðvitað undarlegt að þurfa að standa auðmjúkur á svip með farseðla í hönd og biðja um að að taka út sína eigin peninga. En svona er þetta nú samt.

Ef ég hefði ekki átt þessa aura, hefði ég auðvitað ekkert farið í þessa ferð, því ekki dettur manni í hug að kaupa gjaldeyri eins og á stendur. En ... við vorum fyrir löngu búin að borga sjálfa ferðina, þannig að ... við ætlum bara að skella okkur. Verðum í Kraká.

Það er ágætt að yfirgefa landið í nokkra daga núna - komast í burtu og sjá eitthvað annað en fallandi útvalsvísitölur, gröf yfir gengissveiflur og fréttir af atvinnuleysi og verðbólgu. Segi það satt.

Ætla að vera í bloggfríi á meðan - en þið sem kíkið inn á síðuna mína getið dundað ykkur við að skoða þessa upprifjun Kastljóssins á útrásarævintýrinu (smellið hér).

Svo er bara um að gera að berja sér á brjóst og minnast þessa að um æðar okkar rennur blóð stoltra bænda, sjómanna og víkinga aftur í aldirnar. Við kreppum hnefana þegar á móti blæs, bönkum á brjóstkassann ... og svo ... banka - kreppa - banka - kreppa ... Smile

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

uhh..ehh

ég er nú orðin taugabiluð þegar fólk ætlar að skottast úr landi, ertu viss um að þú ætlir að koma aftur Ólína?

Ragnheiður , 17.10.2008 kl. 12:14

2 Smámynd: Skarfurinn

Á að spandera í hreinsun a la Jónína Ben ??

Skarfurinn, 17.10.2008 kl. 12:33

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Góða ferð og skemtun. EFast nú ekkert um að ferðin sé bæði heiman og heim aftur, en vonandi verður ástandið í lagi þegar einmitt snúa á aftur, hef heyrt að ferðaþjónustufólk hafi áhyggjur af því að geta ekki greitt fyrir kosnað við flugvélarnar til baka vegna ótryggs gjaldeyrisástands, en þetta blessast vonandi allt hjá ykkur!

Magnús Geir Guðmundsson, 17.10.2008 kl. 12:38

4 Smámynd: Sævar Helgason

Góða ferð og eigið góðar stundir í Kraká. 

Vonandi komist þið heim aftur með eðlilegum hætti og fáið næga olíu á flugvélina til heimferðar.  Ef þið verðið í vandræðum með gjaldeyrir fyrir olíu- þá er gott að þekkja yfirskömmtunarstjórann í Seðlabankanum- hann bjargar mörgum nú með dropann . Hann hringdi sjálfur í N1 og tjáði þeim um dýrmæta fyrirgreiðslu--- Já maður þarf að fara 50 ár aftur í fortíðina til að leita jafnvægis...

Sævar Helgason, 17.10.2008 kl. 12:54

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Góða ferð...þú verður okkar PR í Kraká núna og gerir það örugglega með stæl!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.10.2008 kl. 13:23

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góða skemmtun Ólína.

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.10.2008 kl. 14:45

7 identicon

Góða ferð Ólína og Siggi.

Það væri kannski vert að athuga atvinnumöguleika íslendinga í Póllandi í þessari ferð?

Ég tek frá fyrir ykkur 2 sæti á jólahlaðborði Hótel Núps.

Sigurður Arnfjörð (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 17:37

8 Smámynd: Júlíus Valsson

Ísland rann á rassinn.

Júlíus Valsson, 18.10.2008 kl. 01:25

9 Smámynd: Sævar Einarsson

Ég má til með að smella þessi inn hérna, ég var að pika þetta inn hjá mér í morgun og vonandi er mér það fyrirgefið

Hlutskipting launa bankastjóra skal gerð eins og með sjómenn !

Las það hjá kermit að nú hafi einhver banki þar í landi (Þýskalandi) óskað eftir því að eitt skilyrðanna er að bankastjórar mega ekki fá meira en 75 milljónir í árslaun. En það eru enginn smá laun fyrir að bera ábyrgðina á öllu verð ég að segja. Bankastjórar bera sömu ábyrgð og sem dæmi skipstjórar, þeir eru ábyrgir fyrir afkomunni, ef skipstjóri fiskar vel fá allir vel borgað, bæði hann og hans undirmenn og þá meina ég allir, ef það fiskast illa þá fá þeir minna í sinn hlut og oftar en ekki er skipt um skipstjóra sem fiskar illa, þeir eru látnir taka pokann sinn. Ef bankinn græðir vel fá bankastjórar feita bónusa, kaupréttasamninga og millistjórnendur eitthvað minna, en Lalli húsvörður og Gunna gjaldkeri fá ekki neitt ef það "fiskast" vel hjá bankanum, þetta þarf að skoða betur að mínu mati og hætta að gera svona ofurlaunasamninga við bankastjóra. Svo hefur þetta líka jákvæð áhrif hjá undirmönnum þeirra, ef bankinn "fiskar" vel þá sjá allir í bankanum að þeim verði umbunað svo gulrótaráhrifin virka frá efstu stöðu í neðstu stöður og allir græða.

Sævar Einarsson, 20.10.2008 kl. 08:32

10 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

ÁFRAM ÍSLAND

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 22.10.2008 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband