Fréttamennska eða áróður?

isg Fyrst fannst mér svolítið smart hjá fréttastofu Stöðvar-2, að minna Ingibjörgu Sólrúnu á ummæli sín um eftirlaunareglu þingmanna. Gott hjá þeim, hugsaði ég. Nú hljóta þeir að ganga á röðina. Taka þá, hvern ráðherrann á fætur öðrum og spyrja áleitið um kosningaloforðin.

En þeir gengu ekki á röðina. Þeir hafa bara þrástagast á þessum einu ummælum Ingibjargar Sólrúnar fyrir síðustu kosningar - og talið niður: 30 dagar til þinghlés, 20 dagar .... o.s. frv. Dag eftir dag eftir dag. Það mætti halda að tíminn væri að renna út. Eins og mennirnir viti ekki af því að kjörtímabil spannar fjögur ár en ekki eitt.

Hvað er að gerast með fréttstofu Stöðvar-2? Lítur hún ekki á sig sem fréttamiðil lengur? Hefur hún gleymt hlutverki sínu, að segja fréttir?

Fjölmiðlar eiga vissulega að veita stjórnvöldum aðhald. Það gera þeir með upplýstri óhlutdrægri umræðu, með því að varpa ljósi á mál og láta menn standa skil á gjörðum sínum.  Að krefja stjórnmálamenn skil á kosningaloforðum getur að sjálfsögðu flokkast sem slíkt aðhald. En þegar einn stjórnmálamaður af 63 er tekinn fyrir - og eitt loforð af líklega nokkur hundruð loforðum sem gefin eru fyrir kosningar - og það áður en fjórðungur er liðinn af kjörtímabilinu. Dag eftir dag - fréttatíma eftir fréttatíma. Sama klifunin. Hvað er það?

Það er að minnsta kosti ekki fréttamennska. Angry


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gvöð, hvað ég er sammála þér. Þetta er orðið pervers.

Þórunn Hrefna (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 22:45

2 identicon

Ég er hjartanlega sammála þér Ólína. Þetta er eiginlega orðið óþægilegt - þá meina ég fyrir Stöð-2. Þetta er bara einelti og ekkert annað.

Kristín Helga (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 23:15

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Stjórnmálabarátta snýst afar mikið um að hitta á réttlætiskennd kjósenda og að forðast það að misbjóða því óskilgreinda fyrirbæri.

Samfylkingin beitti eftirlaunaákvæðinu óspart í kosningabaráttunni og hafði miklar heitingar um að því skyldi eytt.

Stöð 2 stendur sig vel við að minna á það.

Orð hafa merkingu. Jafnvel þau orð sem falla fyrir kosningar.

Árni Gunnarsson, 7.5.2008 kl. 23:18

4 identicon

Reglan segir að gagnrýna aldrei fréttamiðlana. Ég hélt ró minni gagnvart Staksteinum (les Styrmi) lengi vel en hætti því. Veistu, konur fá harðari umfjöllun í fjölmiðlun. Þetta hefur ekkert með réttlætiskennd að gera. Samfylkingunni hefur tekist það ómöglega, að hreyfa við Sjallanum. Valgerður Bjarnadóttir kom þessu á hreyfingu og ég trúi að þetta náist. Ef til vill á haustþingi svo sjallinn haldi andlitinu. Sjálfstæðisflokkurinn gaf ekki út nein kosningaloforð svo hann svíkur ekki. Hinir flokkarnir þurfa ekki að standa við neitt. Ágúst Ólafur listaði upp hvað búið væri að gera. Kv gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 23:28

5 Smámynd: Tiger

  

Mikið er ég sammála þér með að það sé gott og nauðsynlegt að hamra á stjórnmálamönnum með kosningaloforðum flokkanna. Málið er sannarlega að það logar allt í loforðum og fyrirheitum á meðan blessaðir pólitíkusarnir sækjast eftir ex-inu okkar, en um leið það það er í höfn - þá fara loforðin strax flest öll í ruslarennuna. Skelfing væri það nú ljúft ef t.d. fréttastöðvarnar byrjuðu strax að loknum hveitibrauðsdögum nýrra ríkisstjórna - á því að einmitt hamra á því hvernig gengi með þau loforð sem hæst létu fyrir brúðkaupið. Tala nú ekki um ef einmitt eins og þú segir - fréttastofur tækju hvern og einn ráðherra fyrir sig og létu á honum skella loforðin og falast eftir stöðu þeirra .. og taka svo upp þráðinn aftur að loknu ári og svo koll af kolli út allt kjörtímabilið. En það er víst ekki svo góðu að búast við af blessuðum fréttastofunum..

Knús á þig Ólína mín og eigðu yndislega nótt og góðan dag á morgun!

Tiger, 8.5.2008 kl. 02:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband