Ţrumugleđi um jól
25.12.2007 | 02:29
Ţađ var dásamlegt ađ heyra almćttiđ ţruma yfir höfuđborginni á sömu stundu og jólin gengu í garđ. Kirkjuklukkurnar voru vart ţagnađar ţegar elding lýsti upp himininn og mikilfengleg ţruma fylgdi í kjölfariđ. Og svo eins og veriđ vćri ađ steypa hagli úr fötu.´
Viđ ţessa óvćntu jólakveđju komst ég í alveg sérstakt hátíđarskap. Mér varđ litiđ á fjölskylduna mína viđ veisluborđiđ - viđ vorum nýsest ţegar ţetta dundi yfir - og á einhvern óútskýranlegan hátt fannst mér eins og Drottinn sjálfur hefđi sest ađ borđinu međ okkur. Ég get ekki útskýrt ţađ nánar. En hjarta mitt fylltist ţakklćti og gleđi - mér finnst ég hafa svo óendanlega margt ađ ţakka fyrir.
Ţetta var gott ađfangadagskvöld. Ţađ var yndislegt ađ hafa nćstum ţví alla fjölskylduna hjá sér - og hina innan seilingar sem ekki sátu međ okkur til borđs. Vita af öllum ástvinum einhversstađar í góđu yfirlćti.
Eftir matinn fórum viđ mćđgurnar (ég, Saga og Maddý) í miđnćturmessu í Hallgrímskirkju. Ţađ var falleg messa. Sérstaklega var ég glöđ yfir ţví ađ kirkjugestir skyldu hvattir til ţess ađ taka virkan ţátt í söngnum. Ţađ var augljóslega vel ţegiđ, og kirkjan ómađi öll. Hátíđleg og yndisleg stund.
Eftir messu dró ég Sigga svo međ mér í göngutúr međ hundinn í tunglsljósinu, enda brostin á blíđa međ stjörnubliki og silfruđum sjávaröldum. Afar falleg jólanótt.
Jólanótt
Norđurljósa litatraf
liđast hćgt um myrkrahvel,
lýsir himinn, land og haf,
litkar hjarn og frosinn mel.
Rauđbleik merlar mánasigđ
á myrkum sć um ţögla nótt.
Langt í fjarska bjarmar byggđ
- borgarljósin tindra rótt.
En yfir raflýst borgarból
- á bak viđ heimsins ljósadýrđ -
ber sín helgu bođ um jól
björt en ţögul nćtursól,
viđ skörđum mána skín í kyrrđ
skćrum loga úr órafirrđ
er lúnum mönnum lýsti ţrem
langan veg til Betlehem.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Ljóđ, Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Gleđileg jól og kveđja ađ vestan :)
Gústi (IP-tala skráđ) 25.12.2007 kl. 11:05
Gleđilega hátíđ
Ég sá ađ vitnađ var í bloggiđ ţitt á mbl.is og ţađ er fallegt ljóđ sem mér liggur forvitni á ađ vita hver orti svon a fallega ??
Vćri ţakklátur ef ţú upplýstir mig um ţetta
Jólakveđjur,
Gunnar Kvaran
Gunnar Ó. Kvaran (IP-tala skráđ) 25.12.2007 kl. 11:16
Sćll Gunnar og gleđileg jól.
Hafi veriđ vitnađ í ljóđ af blogginu mínu síđustu daga, ţá hlýtur ţađ ađ vera eftir mig - annađhvort vísan "Minningin er mild og tćr" eđa ljóđiđ "Jólanótt" hér fyrir ofan ("Norđurljósa litatraf ...). Nema ţú sért ađ tala um nýja textann "Nú gleđileg jólahátíđ er gengin í garđ" (viđ lagiđ "We Wish You a Marry Christmas") - sem er reyndar líka eftir mig.
Ég hef veriđ í óvenju miklu ljóđastuđi síđustu daga - ţó ţetta sé ekki nýort (nema ţađ síđastnefnda). Ţađ gleđur mig ađ ţér finnst ţađ fallegt.
Kćr kveđja.
Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir, 25.12.2007 kl. 15:18
Gleđileg jól til ykkar allra og takk fyrir Vestanvindinn. Mjög góđ bók.
Kveđja frá Tálknafirđi.
Níels A. Ársćlsson., 25.12.2007 kl. 20:56
Já, ţetta vöru ţrumujól í borginni. Takk fyrir fallegt ljóđ. Kćr kveđja.
Ásdís Sigurđardóttir, 25.12.2007 kl. 22:38
Gleđileg jól Ólína - er á leiđinni í rúmiđ međ bókina eftir ţig, fékk tvćr af ţinni bók. Ég er svo hrifin af jólaljóđum og ţitt er fallegt og kröftugt.
Edda Agnarsdóttir, 25.12.2007 kl. 23:28
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.