Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
RSS-straumar
Bækur
Bækurnar í lífi mínu
... sem hafa haft áhrif á líf mitt og hugsun
-
Kristín Marja Baldursdottir: Karitas - án titils
**** -
Þórbergur Þórðarson: Ofvitinn
*** -
Halldór Laxness: Sjálfstætt fólk
*** -
Trevor-Roper: Galdrafárið í Evrópu
*** -
Andri Snær Magnason: Draumalandið
**** - Guðspjallamennirnir o. fl.: Biblían
-
Dan Brown: Da Vinci lykillinn
*** -
ýmsir höfundar: Skólaljóðin
*** -
Lao Tse: Bókin um veginn
****
Eldri færslur
2017
2015
2013
2012
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tekur einhver mark á nafnlausu bréfi?
24.10.2007 | 11:01
Nafnlaus bréf er ekki hægt að taka alvarlega. Ég er undrandi á því að þetta bréf sem sent var forstjóra Landspítalans vegna Jens Kjartanssonar yfirlæknis lýtalækingadeildar skuli yfirleitt vera í umræðunni. Það getur hver sem er sent nafnlaust bréf og haldið því fram að hann tali fyrir fjölda manns. Og svo getur hann "lekið" því í fjölmiðla til þess að koma innihaldinu á framfæri.
Fjölmiðlar eiga ekki að láta nota sig svona.
Fyrr á þessu ári komst annað nafnlaust bréf í hámæli - það tengdist Baugsmálinu svokallaða. Það bréf virtist um tíma tekið alvarlega vegnað þess að það leit út fyrir að vera skrifað af "lögfróðum manni". Auðvitað geta menn vakið athygli á sjónarmiðum í nafnlausum bréfum. En það liggur í hlutarins eðli að slík bréf geta aldrei orðið raunverulegt gagn í máli. Þau mega aldrei verða það. Þau eru í eðli sínu rógur vegna þess að höfundur/höfundar slíkra bréfa geta ekki staðið fyrir máli sínu.
Læknamistök eru auðvitað alvarlegt mál - en þessi aðferð við að losna við lækni úr starfi sem gert hefur mistök er ekki boðleg. Hún er siðlaus.
Staða læknisins óbreytt á LSP | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:13 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Sjávarútvegsmál
- Eigum við að kasta kvótakerfinu? Líflegur fundur um sávarútvegsmál, mars 2015
Áhugavert
Listi yfir áhugaverðar síður og lesefni
- Eyjubloggið mitt Ég á eyjublogginu
- Skutull Fréttavefurinn Skutull.is
- Björgunarhundasveit Íslands
- Hundar hundarækt
- Landsbjörg Slysavarnarfélagið Landsbjörg
- Myndasíðan hans Gústa Frábærar myndir
Galdrasíður og -samfélög á netinu
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Sigrún Jónsdóttir
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ketill Sigurjónsson
- Atli Rúnar Halldórsson
- Baldur Kristjánsson
- Bjarni Harðarson
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Þór Bjarnason
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Edda Agnarsdóttir
- ESB
- Eyþór Árnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Hallmundur Kristinsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiða Þórðar
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Snæbjörnsson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Guð
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kristján Pétursson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Magnús Geir Guðmundsson
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigurður Þórðarson
- Sigurður Sigurðsson
- Skafti Elíasson
- Helga skjol
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Þorleifur Ágústsson
- Toshiki Toma
- Emma Vilhjálmsdóttir
- Albertína Friðbjörg
- Baldur Smári Einarsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Adolf Dreitill Dropason
- Aðalheiður Ámundadóttir
- AK-72
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Ágúst Hjörtur
- Bogi Jónsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynjar Davíðsson
- Bwahahaha...
- cakedecoideas
- Dögg Pálsdóttir
- Einar Ben
- Einar Björn Bjarnason
- Einar Indriðason
- Finnur Bárðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Garún
- Gerður Pálma
- Guðbjartur Hannesson
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Guðmundur Óli Scheving
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gylfi Björgvinsson
- Handtöskuserían
- Haukur Nikulásson
- Helga Þórðardóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hörður Valdimarsson
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jóhann Pétur
- Jón Daníelsson
- Jón Kristjánsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Snæbjörnsson
- Kjartan Jónsson
- Kjartan Pálmarsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- Magdalena Sigurðardóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Ólafur Ingólfsson
- Rafn Gíslason
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Róbert Björnsson
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sigríður Sigurðardóttir
- Sigurbjörg
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Skuldlaus
- Steingrímur Helgason
- ThoR-E
- Tinna Jónsdóttir
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Valan
- Villi Asgeirsson
- Yngvi Högnason
- Þorsteinn Guðnason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þór Jóhannesson
Athugasemdir
Sammála þessu.
Ég var óhress með að lesa um þetta í gær að mig minnir í Fréttablaðinu. Svona umfjöllun gerir lítið annað en að skaða mannorð hvort sem það er læknir eða annar fagmaður. Auk þess er JK þekktur af mörgum fyrir að vera afburðaflínkur lýtalæknir. Hann er ekki hvað síst færastur í að gera að laga andlitslýti.
Hafi honum orðið á mistök er birting bréfs sem þessa sannarlega ekki farvegurinn.
Kolbrún Baldursdóttir, 24.10.2007 kl. 11:35
Án tillits til færni eða vanfærni téðs læknis þá er þessi aðför að honum með ólíkindum og þarna er vegið úr launsátri. Fyrir ekki svo löngu síðan, hefði nafnlaust bréf ekki talist frétt og ætti ekki að teljast það frekar nú.
Ömurlegt og ljótt.
P.s. Síðast þegar ég gáði þá voru mistök hluti af mannlegu eðli. Hefur eitthvað breyst?
Takk fyrir mig.
Jenný Anna Baldursdóttir, 24.10.2007 kl. 11:46
Til upplýsingar þá gerði Jens engin mistök. Mistökin voru svæfingalæknisins en þar sem skurðlæknirinn (jens) er stjórnandi aðgerðarinnar er hann dreginn til ábyrgðar. Það er hins vegar erfitt fyrir skurðlækni að einbeita sér að öðru en sínu verki og því tók Jens ekki eftir mistökunum.
Þetta er í raun álíka gáfulegur dómur og draga flugstjóra til ábyrgðar fyrir mistök flugfreyju
björn (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 12:00
Tek undir hvert orð, Ólína.
Helgi Már Barðason, 24.10.2007 kl. 13:23
Eru lítil brjóst lýti?
Steini Briem (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 14:26
Efni bréfins finnst mér ekki óvitlaust. Líklega er það ekki nafnlaust að ástæðulausu. Skil ekki þessa vorkunn alltaf út ú lækna. Þeir eiga alltaf að vera bæði heilagir og ósnertanlegir jafnvel þó þeir leggi líf fólks i rústir.
Sigurður Þór Guðjónsson, 24.10.2007 kl. 15:54
Ótrúlega huglaust og smekklaust að senda frá sér nafnlaust bréf.
Ég furða mig á að fjölmiðlar birti slíkt sem frétt, fyrr má nú vera "græðgin" eða öllu heldur örvæntingin hjá fjölmiðlum að ná athygli fólks....hafast skal það, með subbuskap ef ekki öðru. Jens er reyndar náinn ættingi minn svo ég er ekki hlutlaus en mér finnst þetta siðlaust.
Marta B Helgadóttir, 24.10.2007 kl. 18:39
Ólína, siðleysið felst í því að læknirinn skuli halda stöðu sinni eins og ekkert hafi ískorst, líka í því að stjórn spítalans skuli skáka í því skjólinu að hann hafi framið voðaverkið á eigin stofu og loks í því að félag lýtalækna skuli styðja sinn mann. Allt lýsir þetta fádæma fyrirlitningu á því lífi sem lagt var í rústir með læknisverkinu. Sú manneskja getur ekki skrifað aggresívar greinar eða barist fyrir rétti sinum. Siðleysið felst í því, eins og segir í bréfinu, að læknir sem ekki hefur óflekkað mannorð eins og krafist er í starfiðð skuli samt halda áfram í því.
Sigurður Þór Guðjónsson, 24.10.2007 kl. 22:39
Sigurður Þór.
Ef maðurinn er sekur um að hafa eyðilagt líf annarrar manneskju og þar af leiðandi ófær um að vera yfirlækir - eins og þú heldur fram - hvers vegna er þá ekki hægt að færa rök fyrir því undir nafni? Ræða málið upphátt, rétt eins og þú ert að gera núna?
Hvað réttlætir nafnlausa aðför að þessum manni? Ef á annað borð rök eru fyrir því að hann geti ekki gegnt starfi yfirlæknis eftir það sem gerst hefur, hversvegna standa bréfritararnir þá ekki sjálfir með skoðun sinni (með því að rita nöfn sín undir bréfið)?
Því miður er það oft þannig að menn vilja hafa áhrif án þess að taka ábyrgð. Nafnlaus bréf eru af þeim toga. Þau eru ómarktæk - hafa ekkert vægi og mega aldrei fá neitt vægi.
Sjálf er ég iðulega á varðbergi gagnvart samstöðu lækna þegar mistök þeirra eru til umræðu. Ég þekki hörmuleg dæmi um alvarlegar afleiðingar læknamistaka - og ætla ekki að missa mig út í þá umræðu hér. En nafnlaust bréf? Hvað á það að þýða? Er ekki hægt að færa rök í þessu máli og standa með skoðun sinni?
Þetta er ómarktæk aðgerð - og fullkomið hugleysi
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 24.10.2007 kl. 23:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.