Minn fyrsti sjónvarpsþáttur eftir 15 ár

inn1b500 Fyrsti sjónvarpsþátturinn minn eftir 15 ára hlé var tekinn upp í morgun. Hann heitir "Mér finnst" og verður sendur út á föstudögum kl. 21, í vetur á nýju sjónvarpsrásinni ÍNN (rás-20). Þetta eru umræðuþættir þar sem ég fæ til mín reyndar og skemmtilegar konur með sterkar skoðanir til þess að rökræða við mig um hvaðeina sem þeim (og mér) brennur á hjarta. Sjálf verð ég með þáttinn annað hvert föstudagskvöld, en Maríanna Friðjónsdóttir sjónvarpsstjóri ÍNN tekur hann á móti mér tvisvar í mánuði.

Stöðin fer af stað með fullum þunga n.k. föstudagskvöld þannig að mér virðist sem þátturinn minn Blush verði upphafið - en raunar hafa tilraunaútsendingar staðið nú um nokkra hríð. Til stendur að senda efnið út alla virka daga kl. 20-22, og er stöðin fyrst og fremst helguð umræðu og talmáli. Þarna verða ýmsir þjóðkunnir þáttagerðarmenn, Margrét Frímannsdóttir, Mörður Árnason, Guðjón Bergmann, Randver Þorláksson, Illugi Gunnarsson og Katrín Jakobsdóttir - svo ég nefni nú þá sem ég man í augnablikinu. Ingvi Hrafn Jónsson verður að sjálfsögðu á sínum stað með Hrafnaþingið - enda eigandi stöðvarinnar og upphafsmaður. 

inn2b  En það var ótrúlega gaman að mæta í stúdíóið, þar sem Maríanna Friðjónsdóttir, fyrrverandi samstarfskona mín af RÚV,  tók á móti okkur og stjórnaði upptökunni af sinni alkunnu fagmennsku og fumleysi. Við endurfundina rifjuðust upp góðar minningar, m.a. frá leiðtogafundinum í Höfða þegar við lögðum nótt við dag undir stjórn Ingva Hrafns, okkar gamla yfirmanns (núverandi eiganda ÍNN).

Við tókum upp tvo þætti í morgun. Í þeim fyrri komu til mín þrjár bloggandi konur, þær Marta B. HelgadóttirSalvör Gissurardóttir og Jóna Á Gísladóttir sem allar eru öflugir og litríkir bloggarar. Og þær brugðust mér ekki í dag - gáfaðar, mælskar og skemmtilegar.  Smile

Í seinni þættinum, sem verður sendur út eftir tvær vikur, voru bókmenntafræðingarnir Soffía Auður Birgisdóttir og Silja Aðalsteinsdóttir. Við veltum okkur upp úr bókmenntum í miklum makindum - mest kvennabókmenntunum eins og gefur að skilja - og það var reglulega gaman að spjalla við þær stöllur svo fróðar og spakar sem þær eru - og margreyndar á þessum vettvangi.

Já, það er mikið vatn til sjávar runnið frá því ég vann síðast fyrir sjónvarp. Og það var vissulega ánægjulegt að vitja þess aftur eftir langa fjarveru. Þetta var BARA gaman, eins og börnin segja.  

Sjáumst vonandi á rás-20 á föstudagskvöldið kl. 21. Wink

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Til hamingju með þáttinn.

María Anna P Kristjánsdóttir, 17.10.2007 kl. 22:27

2 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Takk

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 17.10.2007 kl. 22:36

3 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Takk innilega fyrir samveruna í dag og fyrir boðið Ólína.   

Þetta verða góðir þættir hjá þér, virkilega skemmtileg útfærsla. 

Til hamingju

Marta B Helgadóttir, 17.10.2007 kl. 23:04

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þú getur bókað mig sem fastan áhorfenda og ég mun "plögga" grimmt.  Mér finnst ekkert minna en frábært að þú skulir vera komin aftur í sjónvarp og það með þætti með konum.  Slagsíðan minnkar þó nokkuð.  Til hamingju með þáttinn þinn og til hamingju stelpur, svona almennt og yfirleitt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.10.2007 kl. 01:28

5 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Gaman að heyra þetta og til hamingju!

María Kristjánsdóttir, 18.10.2007 kl. 07:50

6 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Frábært, hlakka til að fylgjast með þessu.
Endilega máttu hóa í mig ef þig vantar umfjöllun um sálfræðileg málefni, já eða stjórnmál: prófkjörsreynsla mín var t.d. reynsla í lag.. verandi frekar ný í Flokknum, lítið bakland þar inni sérstaklega meðal ungliðanna.

Kolbrún Baldursdóttir, 18.10.2007 kl. 07:57

7 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Til hamingju með þáttinn Ólína hann verður án efa í senn fróðlegur og skemmtilegur.  Veist þú hvort við munum geta horft á þessa stöð hérna á Ísafirði?

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 18.10.2007 kl. 09:32

8 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Takk fyrir allar saman,

Ég mun örugglega líta til ykkar, bloggandi kvenna, í leit að álitsgjöfum í þættinum framvegis - bíðið bara.

Þátturinn á að nást um allt land - ef menn eru með myndlykil að t.d. Stöð-2 sem fer í gegnum digital Ísland. Rás-20.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 18.10.2007 kl. 09:46

9 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Ég fylgist örugglega með.  Gott einkaframtak þetta

Innilega til hamingju með þetta

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 18.10.2007 kl. 13:23

10 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Til hamingju með þáttinn.  Ég verð þó að skemma aðeins stemminguna með því að spyrja; hvers vegna ætlarðu aðeins að ræða við konur í þættinum?  Verður þátturinn sérstakur vettvangur kvenréttindabaráttu?  Karlar eru jú liðtækir í þeirri baráttu líka.  Ég sé ekki ástæðuna fyrir þessu kynjavali í sjónvarpsþætti.  Ættu karlar að taka sig saman í sérstaka gesta- og umræðuþætti þar sem konur hefðu ekki kost á þátttöku?  Hvað er ég ekki að skilja?  Ef þér finnst þessi spurning fáránleg þá vinsamlegast fyrirgefðu skilningsleysi mitt og útskýrðu.

Svanur Sigurbjörnsson, 18.10.2007 kl. 14:08

11 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Til hamingju með þáttinn þinn gamla samstarfskona. Hvenær unnum við saman að viðtalsþættinum þættinum hjá RÚV - var það 1991 - 1992? - já mikið rétt 15 ár síðan OMG!

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 18.10.2007 kl. 14:12

12 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hefurðu áhuga á að fjalla um það mál sem ég og vinkona mín vorum að hrinda af stað í tengslum við kjör öryrkja?? bendi þér hér á síðuna okkar.

http://www.petitiononline.com/lidsauki/   Innilega til hamingju með nýja þáttinn. Bíð spennt eftir útsendingunni.

Ásdís Sigurðardóttir, 18.10.2007 kl. 14:47

13 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Mjamm - tíminn líður Kristín mín.

En Svanur spyr hvers vegna bara konur í þættinum. Það er vegna þess að mér finnst halla á konur sem þátttakendur í opinberri umræðu. 

Karlar eru ágætir álitsgjafar, enda skortir þá yfirleitt ekki tækifæri til að koma skoðunum sínum að í íslenskum fjölmiðlum. Minn þáttur verður hinsvegar helgaður konum sem álitsgjöfum - eiginlega til þess að sýna fram á að gamla goðsögnin um að konur veigri sér við umræðunni og vilji ekki koma fram í fjölmiðlum sé röng.

Umræðuefnin verða ekkert endilega tengd konum - enda geta konur talað um allt milli himins og jarðar. Fram á það verður vonandi sýnt í þessum þáttum. Við getum kallað þetta "jákvæða og tímabundna mismunun" til þess að sýna fram á ákveðna hluti.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 18.10.2007 kl. 14:51

14 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Sæl Ásdís - ég sá ekki athugasemdina þína þegar ég svaraði hér fyrir ofan. Víst hefði ég áhuga á málefnum öryrkja. Við skulum vera í sambandi.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 18.10.2007 kl. 14:53

15 Smámynd: Huld S. Ringsted

Til hamingju með nýja þáttinn þinn, gaman verður að sjá þig aftur í sjónvarpinu. Það er alveg öruggt að þennan þátt kem ég til með að horfa á.

Huld S. Ringsted, 18.10.2007 kl. 15:04

16 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Sæl Ólína. Ég er að kanna þetta með kennit. læt þig vita.

Ásdís Sigurðardóttir, 18.10.2007 kl. 15:45

17 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Innilega til hamingju með þáttinn þinn Ólína, ég verð að reyna að horfa á hann, hvar getur maður sér þetta Ínn ?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.10.2007 kl. 16:31

18 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Rás-20, ef þú ert með myndlykil að Stöð-2 læturðu hann leita og festir svo rás-20 inni. Þetta á að nást um allt land. Takk fyrir hamingjuóskir

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 18.10.2007 kl. 16:47

19 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Takk fyrir svarið Ólína.  Vonandi verður þátturinn þinn þá hvatning fyrir konur til að koma fram í sjónvarpi / fjölmiðlum og taka þátt í pólitík.  Ég legg til að þú bjóðir sérstaklega ungum konum sem hafa skoðanir en eru ekki vanar fjölmiðlum (óþekktar).  Það þarf að byggja upp kynslóð sem tekur ríkari þátt.

Svanur Sigurbjörnsson, 18.10.2007 kl. 19:56

20 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Takk fyrir mig aftur Ólína og innilega til hamingju með þáttinn. Það verður gaman að fylgjast með þér.

Jóna Á. Gísladóttir, 18.10.2007 kl. 23:04

21 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Hjartanlega til hamingju Ólína mín, þetta hljómar vissulega spennandi. Myndirðu nokkuð vera svo sæt að gefa mér vink þegar þú veist hver vefslóðin verður? Það má ekki skilja okkur útlendingana útundan.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 19.10.2007 kl. 03:39

22 Smámynd: Jón Svavarsson

Tilhamingju Ólína. það er þó nokkuð mikilvægt að minna á það að þa er aðeins hægt að horfa á þáttinn í gegnum myndlykil Digital Ísland á dagskrárrás 20. Ef það er hægt að sjá þáttinn í gegnum aðrar leiðir þá væri gaman að fá að vita um það. gangi þér allt í haginn, kær kveðja

Jón Svavarsson, 19.10.2007 kl. 11:39

23 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Já, takk fyrir þetta Jón. Svo má taka fram að efnið verður sett á netið um miðja næstu viku, og þar verður hægt að sækja það á visir.is.

Útsendingarnar þessa dagana eru víst tilraunaútsendingar og því verður efnið sem þegar hefur verið sent út endursýnt með skipulegum hætti þegar allt er komið í fullan gang í næstu viku.

Svo krosslegg ég fingur og vona að allt gangi vel

En þátturinn verður sumsé kl 21 í kvöld.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 19.10.2007 kl. 13:41

24 Smámynd: Gísli Hjálmar

Til hamingju með þessa líka frábæru mynd af heimabænum. Og að sjálfsögðu þáttinn einnig.

Gísli Hjálmar , 19.10.2007 kl. 19:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband