Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
RSS-straumar
Bækur
Bækurnar í lífi mínu
... sem hafa haft áhrif á líf mitt og hugsun
-
Kristín Marja Baldursdottir: Karitas - án titils
**** -
Þórbergur Þórðarson: Ofvitinn
*** -
Halldór Laxness: Sjálfstætt fólk
*** -
Trevor-Roper: Galdrafárið í Evrópu
*** -
Andri Snær Magnason: Draumalandið
**** - Guðspjallamennirnir o. fl.: Biblían
-
Dan Brown: Da Vinci lykillinn
*** -
ýmsir höfundar: Skólaljóðin
*** -
Lao Tse: Bókin um veginn
****
Eldri færslur
2017
2015
2013
2012
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
9.3.2007 | 11:16
Ég kenni í brjóst um vesalings stúlkuna sem í sakleysi sínu stillti sér upp fyrir myndavélina með bros á vör og beygði sig eftir bangsanum - að fá svo yfir sig aðrar eins lýsingar og þær sem Guðbjörg Kolbeins hefur sett fram. Túlkun Guðbjargar á þessari tilteknu mynd - öllu heldur framsetning hennar á túlkun sinni - er allt of skefjalaus að mínu mati.
Hitt er svo staðreynd að það er rík tilhneiging til þess að hlutgera konur í auglýsingum, og sú tilhneiging er farin að teygja sig ansi langt niður eftir aldursskalanum. Við megum heldur ekki gleyma því. Ég get að vissu leyti tekið undir með þeim sem telja að stúlkan sé of fullorðinslega klædd fyrir þetta bangsaumhverfi - þá horfi ég kannski fyrst og fremst á netsokkabuxurnar og háu hælana, sem trúlega vekja ákveðin hugrenningatengsl hjá fólki.
En það er ekki sama hvernig hlutir eru sagðir. Hér á í hlut 14 eða 15 ára stúlka sem lét taka af sér mynd. Þeirri myndatöku var áreiðanlega stjórnað af fullorðnu fólki sem hún treystir væntanlega. Við skulum ekki gleyma því að ungar stúlkur vilja vera fullorðinslegar þegar þær eru komnar á fermingaraldur, og fermingin er ákveðin innganga í heim fullorðinna. Það var a.m.k. sagt hér áður fyrr að við fermingu kæmist maður "í fullorðinna manna tölu".
Það þarf ekki að vera neitt óeðliliegt þó myndin sýni einmitt fullorðinslega stúlku sem er samt barn: Skörun tveggja heima, barns og fullorðins.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Sjávarútvegsmál
- Eigum við að kasta kvótakerfinu? Líflegur fundur um sávarútvegsmál, mars 2015
Áhugavert
Listi yfir áhugaverðar síður og lesefni
- Eyjubloggið mitt Ég á eyjublogginu
- Skutull Fréttavefurinn Skutull.is
- Björgunarhundasveit Íslands
- Hundar hundarækt
- Landsbjörg Slysavarnarfélagið Landsbjörg
- Myndasíðan hans Gústa Frábærar myndir
Galdrasíður og -samfélög á netinu
Af mbl.is
Fólk
- Diddy óskar eftir að losna í þriðja sinn
- Lítil spenna fyrir nýjustu þáttum Harry og Meghan
- Kom aðdáendum í opna skjöldu
- McGregor mætti fyrir rétt
- Ætlar að gera dagatal eins og slökkviðsliðsmennirnir
- David Walliams þurfti að bæta öðrum viðburði við
- Sagður eiga í ástarsambandi við mun yngri konu
- Sjónvarpsverðlaun afhent í fyrsta sinn
- Herra Hnetusmjör fagnar átta árum edrú
- Katrín prinsessa laumaðist á fund í Windsor-kastala
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Sigrún Jónsdóttir
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ketill Sigurjónsson
- Atli Rúnar Halldórsson
- Baldur Kristjánsson
- Bjarni Harðarson
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Þór Bjarnason
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Edda Agnarsdóttir
- ESB
- Eyþór Árnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Hallmundur Kristinsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiða Þórðar
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Snæbjörnsson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Guð
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kristján Pétursson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Magnús Geir Guðmundsson
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigurður Þórðarson
- Sigurður Sigurðsson
- Skafti Elíasson
- Helga skjol
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Þorleifur Ágústsson
- Toshiki Toma
- Emma Vilhjálmsdóttir
- Albertína Friðbjörg
- Baldur Smári Einarsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Adolf Dreitill Dropason
- Aðalheiður Ámundadóttir
- AK-72
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Ágúst Hjörtur
- Bogi Jónsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynjar Davíðsson
- Bwahahaha...
- cakedecoideas
- Dögg Pálsdóttir
- Einar Ben
- Einar Björn Bjarnason
- Einar Indriðason
- Finnur Bárðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Garún
- Gerður Pálma
- Guðbjartur Hannesson
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Guðmundur Óli Scheving
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gylfi Björgvinsson
- Handtöskuserían
- Haukur Nikulásson
- Helga Þórðardóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hörður Valdimarsson
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jóhann Pétur
- Jón Daníelsson
- Jón Kristjánsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Snæbjörnsson
- Kjartan Jónsson
- Kjartan Pálmarsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- Magdalena Sigurðardóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Ólafur Ingólfsson
- Rafn Gíslason
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Róbert Björnsson
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sigríður Sigurðardóttir
- Sigurbjörg
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Skuldlaus
- Steingrímur Helgason
- ThoR-E
- Tinna Jónsdóttir
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Valan
- Villi Asgeirsson
- Yngvi Högnason
- Þorsteinn Guðnason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þór Jóhannesson
Athugasemdir
Ha. Netsokkabuxur? Eru þær ekki rauðköflóttar og hvítar?
Hún Guðbjörg má eiga það að hún tók þessa sláandi lýsingu sína á jafn saklausum bækingi og þessum út af bloggsíðu sinni síðdegis í gær.
Á www.mannlif.is er hinsvegar frétt um að þessi bloggfærsla muni jafnvel draga nokkurn dilk á eftir sér.
Ég hef nú þegar viðrað mitt álit víða á bloggvefjum, læt það duga.
B Ewing, 9.3.2007 kl. 13:56
Já ég hélt einmitt að hún væri í rauðum og hvítum sokkabuxum en ekki netasokkabuxum...
Kittý Sveins, 9.3.2007 kl. 14:56
Gott að heyra rödd skynseminnar í þessu máli!
Steindór J. Erlingsson, 9.3.2007 kl. 16:48
Mér finnst hálf óþægilegt að vita til þess að yfirvöld við Háskóla Íslands hafi ekki gripið í taumana eftir að manneskja, sem gjarnan er kynnt sem starfsmaður skólans, skuli ekki láta í sér heyra eða krefjast þess að hún biðjist afsökunar á hrottalegum ummælum sínum vegna þessarar saklausu auglýsingar.
Stefán Einar Stefánsson (IP-tala skráð) 9.3.2007 kl. 18:07
Þessi kinkí kvenmaður getur ekki verið starfsmaður Háskólans, ég á erfitt með að trúa því. Aumingja hún að hafa ekki víðari sýn á lífið, lítil og hrædd dúkkulísa þarna á ferð. Sofi hún sem lengst og leiti ekki oftar fram á ritvöllinn. Ég má þó hafa þessa skoðun, ekki satt ?
Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 9.3.2007 kl. 22:02
Loksins heyrist rödd skynseminnar í gegnum gný fordóma í báðar áttir, hafðu þökk Ólína. Orðfar Guðbjargar var klámfengnara og ruddalegra en orðum tekur að telja og aðför hennar að saklausri stúlkunni er til skammar fyrir hana sem manneskju og sem leiðbeinanda og fyrirmyndar þeirra hverra hugur leitar út á fjölmiðlamarkaðinn svo ekki sé minnst á orðspor Háskóla Íslands. Það vekur einna mesta furðu að henni skuli ekki hafa verið veitt áminning (hún er opinber starfsmaður er það ekki og má því ekki reka fyrir þetta?) fyrir að leggja nafn æðstu menntastofnunar landsins í svaðið. "Aðgát skal höfð í nærveru sálar" ætti að vera eitt af grundvallaratriðum fjölmiðlafræðinnar og þar brýtur hún öll boð og bönn og gerist meiri "klámhundur" en flestir þeir sem stigið hafa fram á ritvöllinn. Fyrir hönd jafnréttissinna, feminista og annarra sem láta sig gott siðferði og siðgæði, ásamt jöfnum rétti kynjanna varða vil ég leyfa mér að sletta smá ensku: "With friends like you, who need enemies?"
Ágúst Vernharðsson (IP-tala skráð) 10.3.2007 kl. 01:29
Sum ykkar sem skrifið athugasemdir hér ættuð að líta í eigin barm. "Guðbjörg er VIÐBJÓÐUR" og að tala um aðra manneskju sem fyrirbæri. Hvers konar ummæli eru það, eða réttara spurt; hvers konar manneskja skrifar slíkan "viðbjóð"?!
Þó að grófar lýsingar séu e.t.v. ósmekklegar og óþarfar fannst mér þessi ljósmynd strax ósmekkleg þegar ég sá hana án þess að ég áttaði mig fyllilega á ástæðunni fyrir því. Það var áður en ég sá nokkuð um athugasemdir Guðbjargar um málið. Ég tek það fram að ég hef enga reynslu á þessu sviði, eins og ýjað er að í kommenti nr. 7 hér að ofan. Eins skil ég ekki þá gagnrýni á Guðbjörgu að hún sé að ráðast á fyrirsætuna. Hún hlýtur að vera að gagnrýna þá sem standa að myndatökunni og blaðinu.
Margrét (IP-tala skráð) 10.3.2007 kl. 01:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.