Sumum er ekkert heilagt
3.5.2008 | 09:59
Aðeins einu sinni eða tvisvar hefur að mér hvarflað að loka þessari bloggsíðu og hætta hér á moggabloggi en slíkar hviður hafa yfirleitt staðið stutt og jafnað sig. Nú hvarflar þetta að mér aftur - ástæðan er athugasemd sem ég hef ákveðið að eyða.
Í gleði minni yfir væntanlegri fermingu yngsta sonarins sagði ég frá því á síðunni hér í gær hvað til stæði og að ég myndi líklega ekki blogga fyrr en eftir helgi. Ekki bjóst ég við neinum athugasemdum svo sem - en það hefði verið gaman að sjá eins og eina hamingjuósk.
Hvað um það, eina athugasemdin sem kom við þessa færslu var svo sannarlega ekki hamingjuósk - í besta falli aulafyndni, en um leið lítilsvirðing við fermingarbarnið og fjölskylduna. Lítilsvirðing við trú okkar og þá lífspeki sem við höfum valið að lifa eftir, þ.e. að vera meðlimur í hinni íslensku þjóðkirkju sem kristið fólk.
Sumum er ekkert heilagt. Ekki einu sinni tilfinningar saklauss fermingarbarns sem bíður með tilhlökkun síns hátíðisdags.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (39)
Fermingarundirbúningur
2.5.2008 | 17:30
Þessa dagana snýst allt um fermingu yngsta sonarins sem verður á sunnudag, austur í Landsveit. Nánar tiltekið í Skarðskirkju. Þar ætlar hún Halldóra systir mín að ferma þá saman systrasynina Hjörvar (minn) og Véstein (hennar), rétt eins og hún skírði þá báða í sömu kirkju fyrir tæpum fjórtán árum.
Messan í Skarðskirkju verður helguð þeim frændum því þeir verða einu fermingarbörnin í kirkjunni þann daginn. Við vonumst því til að sjá sem flest ættmenni og vini við fermingarathöfnina sjálfa.
Veislan verður svo haldin í Laugalandi í Holtum i beinu framhaldi af messunni - svo það má segja að þetta sé allt í leiðinni fyrir þá sem á annað borð gera sér ferð austur til að vera með okkur.
Jebb ... þannig að nú er fjölskyldan komin á Framnesveginn þar við erum svona að búa okkur undir herlegheitin. Ljósmyndataka í fyrramálið - svo verður farið austur að setja saman kransatertur, leggja á borð og gera klárt fyrir gestina á Sunnudag.
Það verður því lítið bloggað fyrr en eftir helgi - ef að líkum lætur.
Hvar eru útgerðarmenn í umræðunni um olíuhreinsistöð?
1.5.2008 | 11:55
Siglingaleiðirnar umhverfis Ísland eru hættulegustu siglingarleiðir í heimi. Olíuflutningar um þetta svæði eru því sérlega áhættumiklir vegna hættu á mengunarslysum. Þetta kom fram í Kompásþætti s.l. þriðjudagskvöld (sjá HÉR).
Út af Vestfjörðum eru gjöfulustu fiskimið landsins. Og þó að sjávarútvegur og fiskvinnsla á Vestfjörðum sé vart svipur hjá sjón þeirri sem áður var - þá sækja aðrar útgerðir á þessi mið. Íslenskur sjávarútvegur á nánast allt sitt undir því að þessum fiskimiðum verði ekki spillt, eins og ég hef ég bloggað um áður (sjá HÉR).
Hér er mikið í húfi - sjávarútvegur er ein meginstoð okkar efnahagslífs. Þess vegna furða ég mig á því að íslenskir útgerðarmenn skuli ekkert hafa blandað sér í þessa umræðu um olíuhreinsistöð á Íslandi. Ekki þarf lengi að skoða myndband af olíuslysi Exxon Valdez við strendur Alaska fyrir nokkrum árum til að skilja hættuna sem Íslendingum sem fiskveiðiþjóð stafar af olíuhreinsistöð hér við land (smellið HÉR).
Enginn á meira undir afdrifum þessa máls, en einmitt þeir sem lifa af fiskveiðum, fiskvinnslu og fiskútflutningi. Eitt mengunarslys við landið er nóg til þess að gjöreyðileggja möguleika okkar Íslendinga til þess að selja fisk á erlendum mörkuðum.
Nú hefur nýr bæjarstjórnarmeirihluti í Bolungarvík lýst yfir stuðningi við stóriðjuáform á Vestfjörðum og þar með olíuhreinsistöð. Ekki tala þeir í umboði meirihluta bæjarbúa, svo mikið þykist ég vita. En þeir hafa meirihluta eins manns í bæjarstjórninni, og beita nú þeim meirihluta í einu umdeildasta máli sem komið hefur upp þar um slóðir. Það er auðséð á öllu að Bolungarvík er ekki lengur sá útgerðarstaður sem áður var, og nú er þeim Bolvíkingum - sumum hverjum að minnsta kosti - slétt sama um fiskimiðin við landið.
Já, Bleik er svo sannarlega brugðið.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (47)
Biðleikur í bráðum vanda
30.4.2008 | 22:29
Jæja, það hafðist að ná einhverskonar niðurstöðu í deilu hjúkrunarfólks og yfirstjórnenda LSH, a.m.k. um tíma. Þar með var afstýrt yfirvofandi neyðarástandi sem annars hefði skollið á kl 12 á miðnætti.
En þetta er biðleikur í stöðunni, og þess vegna of snemmt að fagna "sigri", eins og mér virðist þó sumir vera farnir að gera. Vitanlega verða báðir málsaðilar að nota ráðrúmið sem gefst næsta árið til þess að vinna sig að niðurstöðu um sjálft deiluefnið. Það er auðvitað óleyst enn.
Það er stjórnendum LSH til sóma að hafa rifað seglin frekar en að stranda skútunni. Hér gildir ekki að knýja fram einhverskonar sigur til að geta barið sér á brjóst. Það getur enginn sigrað í svona stöðu. Og það verða hjúkrunarfræðingar líka að skilja - málið varðar aðra og mikilsverðari hluti en það hver geti lýst sig sigurvegara.
Heilbrigðisráðherra fær (h)rós í hnappagat frá mér fyrir að leggja sitt af mörkum - já, og mæta sjálfur til fundar þegar mikið lá við.
Takist ekki að leysa hnútinn - þá þarf að höggva á hann
30.4.2008 | 09:56
Það er ekkert sem heitir, heilbrigðisráðherra verður sjálfur að ganga í þetta mál og leysa það. Stjórn spítalans getur það augljóslega ekki - og starfsfólk virðist ekki vilja það. Kergja á báða bóga og lítill sem enginn samstarfsvilji, hjá hvorugum deiluaðila. Starfsfólkið neitar að viðurkenna rétt stjórnendanna til þess að stjórna spítalanum, stjórnendur á hinn bóginn vilja ekki beygja sig fyrir kröfum starfsfólks.
Þrátefli og reiptog - og ekkert gengur - neyðarástand yfirvofandi.
Eins og fyrri daginn eru það sjúklingar spítalans sem líða fyrir átökinn - þeir virðast bara hafa gleymst.
Úr því sem komið er verður bara að taka málið úr höndum stjórnar spítalans - höggva á hnútinn ef ekki tekst að leysa hann.
![]() |
Neyðaráætlun með öðrum spítölum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Verðbólga yfirlýsinganna
28.4.2008 | 21:38
Það er víðar verðbólga en í efnahagskerfinu - og sú verðbólga er líka að fara upp úr öllu valdi. Ég er að tala um verðbólgu orðanna. Yfirlýsingar stjórnmálamanna verða sífellt gífurlegri og æsingakenndari - og um leið rýrari að inntaki, rétt eins og verðgildi krónunnar.
Guðni Ágústsson er mætur maður - að mörgu leyti sjarmerandi á sinn sérkennilega hátt. "Glíminn og skemmtinn" sagði samverkamaður hans um hann eitt sinn. Mér fannst sú lýsing eiga vel við þá hugmynd sem ég hef gert mér um Guðna.
En það klæðir hann ekki vel að vera í stjórnarandstöðu. Til þess hefur hann einfaldlega setið of lengi við stjórnartaumana sjálfur. Það eru nefnilega Guðni og hans samverkamenn í fyrrverandi ríkisstjórnum - mörgum ríkisstjórnum, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar - sem hafa skapað þau skilyrði í efnahagslífinu sem við erum að klást við nú. Að svo miklu leyti sem sá vandi er heimatilbúinn. Stóryrtar yfirlýsingar Guðna og ákall hans um aðgerðir hafa því holan hljóm.
En við skulum ekki gleyma því að gengisfall krónunnar og verðhækkanir undanfarinna daga eru utanaðkomandi vandi. Og þó ég treysti ríkisstjórninni til ýmissa hluta, þá dreg ég í efa getu hennar til þess að lækka heimsmarkaðsverð á olíu eða vinna bug á þeim samdrætti og erfiðleikum sem við er að eiga á erlendum fjármálamörkuðum.
Það hryggir mig - nú þegar hefur harðnað í ári - að sjá menn eins og Guðna Ágústsson hlaupa í ábyrgðarlaust lýðskrum með hrópum og köllum. Sömu menn og stýrðu þjóðarskútunni í logni undanfarinna góðæra, værukærir og makráðugir.
Stjórnarandstöðunni væri nær að setjast á rökstóla með ríkisstjórninni - bjóða fram ábyrga aðstoð nú þegar gefur á bátinn. Það er að segja, ef þörfin á aðgerðum hér innanlands er svo brýn sem Guðni vill vera að láta - og lausnirnar raunverulega á færi stjórnvalda.
Til þess eru stjórnmálamenn kosnir af þjóð sinni - að þeir hlaupi ekki með ýlfrum og gólum í hælana á hrossinu þegar klyfjarnar hallast, heldur gangi með öðrum undir baggana þegar þess gerist þörf.
Þjóðinni væri a.m.k. meiri þökk í því en að hlusta á þetta þras - og fjas sem ekkert er á bak við þegar á reynir.
![]() |
Telur að ríkisstjórnin eigi að segja af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Sjósund í sumarbyrjun
28.4.2008 | 10:01
Þeir skelltu sér bara í sjósund á sumardaginn fyrsta, Hjörvar sonur minn og Róbert vinur hans. Stungu sér fram af smábátabryggjunni. Halldór Sveinbjörnsson ljósmyndari á bb.is smellti þessum myndum af þeim og var svo elskulegur að senda mér þær. Þeir eru býsna borubrattir þarna á fyrstu mynd þar sem þeir eru að stinga sér út í.
Hér mætti ætla að annar þeirra sé að hugsa um að hætta við - en úps, kominn of langt.
Hraustlega gert hjá þeim drengjunum.
Frétt um þessa karlmennskudáð er á bb.is (smellið HÉR).
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
"Sneri niður" lögregluþjón?
27.4.2008 | 20:11
Nei kallinn minn, þú nefbraust óviðbúinn lögregluþjón!
Sjálfsréttlæting er ekki það sama og afsökunarbeiðni.
Ætli maður að fá fyrirgefningu er nú það minnsta að gangast við því sem maður hefur gert.
![]() |
Missti stjórn á skapi sínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Dylgjur og meirihlutamyndun í Bolungarvík
26.4.2008 | 12:01
Ég get ekki stillt mig lengur um að segja nokkur orð um stjórnarskiptin í bæjarstjórn Bolungarvíkur. Sú atburðarás hefur verið með ólíkindum.
Oddviti A-listans, Anna Guðrún Edvarðsdóttir, klauf sig út úr Sjálfstæðisflokknum fyrir síðustu kosningar og bauð fram A-listann. Hún gat ekki hugsað sér að Elías Jónatansson oddviti Sjálfstæðismanna yrði bæjarstjóri í Bolungarvík. Eftir kosningarnar tók A-listinn upp samstarf við K-listann þar sem Soffía Vagnsdóttir hefur verið í forsvari. Nú hefur því meirihlutasamstarfi verið slitið til þess að leiða Sjálfstæðisflokkinn til öndvegis við stjórnun bæjarins að nýju og gera þann hinn sama Elías að bæjarstjóra.
Eiginlega hefði listi Önnu Guðrúnar átt að bera bókstafinn K og heita K-listinni, klofningsafl.
En þó svo að Anna Guðrún segist hafa ástæðu til samstarfsslitanna, þá skortir hana rökin. Það kemur æ betur ljós eftir því sem frá líður.
Meirihlutasamstarf A og K lista hafði verið farsælt og áorkað ýmsu. Enginn málefnalegur ágreiningur var til staðar. Hinsvegar segir Anna Guðrún að hætta hafi verið orðin á "hagsmunaárekstrum" vegna aukinna umsvifa Soffíu Vagnsdóttir og hennar fjölskyldu í atvinnurekstri bæjarins. Enginn slíkur hagsmunaárekstur mun þó hafa komið upp. Hvað um það, A-listafólk taldi vissara að leiða frekar til valda eiganda annars fjölskyldufyrirtækis í bænum. Málefni þess fyrirtækis hafa nú þegar verið inni á borði bæjarstjórnarinnar og munu vafalítið koma þangað aftur.
Þegar rökin skortir birtast oft réttlætingar. Því virðist oddviti A-listans hafa gripið til þess ráðs að dylgja um óheiðarleika og trúnaðarbrest milli sín og Soffíu Vagnsdóttur. Gefa í skyn að eitthvað óhreint sé í pokahorninu, eitthvað sem eigi eftir að koma í ljós, en hún "kjósi" að tjá sig ekki frekar um að sinni.
Mér rennur kalt vatn milli skinns og hörunds ... enda heyri ég hér enduróm af annarri umræðu sem stóð sjálfri mér nær fyrir u.þ.b. tveimur árum. Einhver kona orðin of umsvifamikil og stór, farin að gera of mikið ... að þessu sinni í Bolungarvík. Hálfkveðnar vísur, umtal.
Fæstir geta gert sér í hugarlund hvílíkt kvalræði það er að sitja undir málflutningi af þessu tagi og geta ekki rönd við reist. Það er sannkölluð mannraun. Þess vegna finnst mér að við svo búið megi ekki sitja í þessu máli . Það má ekki verða lenska að fólk geti sagt nánast hvað sem er um hvern sem er án þess að standa fyrir máli sínu. Hagsmunagæsla má aldrei vera hafin yfir leikreglur.
Ég ætla ekki að hafa neina skoðun á umsvifum Soffíu Vagnsdóttur eða samstarfshæfi. Hvorugt þekki ég. Ég veit það eitt að athafnamenn hafa alltaf setið í bæjarstjórn Bolungarvíkur og víðar á landinu: Hvað sjáum við ekki í Kópavogi, er ekki bæjarstjórinn þar umsvifamikill atvinnurekandi?
En ásakanir um óheiðarleika og trúnaðarbrest eru alvarlegt mál. Enginn stjórnmálamaður sem vill teljast ábyrgur orða sinna getur sett slík ummæli fram án þess að færa fyrir þeim haldbær rök eða sannindi. Anna Guðrún Edvarðsdóttir ætti að sjá sóma sinn í því að gera það, eða draga orð sín til baka.
Geri hún hvorugt, hefur hún gert sjálfa sig að ómerkingi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.4.2008 kl. 19:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)
Meiri maður en Vilhjálmur Þ - en við hvern var Lára að tala?
25.4.2008 | 17:01
Lára Ómarsdóttir - sem nú hefur ákveðið að hætta störfum sem fréttamaður á Stöð-2 eftir óheppileg ummæli sem hún lét falla á vettvangi atburða í fyrradag - er maður að meiri fyrir vikið.
Og hún er meiri maður en Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, kjörinn borgarfulltrúi í Reykjavík, fyrrverandi og tilvonandi borgarstjóri.
Lára kveðst hafa talað í gríni við starfsfélaga. Gráglettni er nokkuð sem erfitt getur verið að meta af þriðja aðila sem heyrir tilvituð orð á öðrum stað og annarri stund.
En það er nokkuð sem vekur athygli þegar hlustað er á hljóðupptökuna, sem þið getið heyrt hér. Það er engu líkara en Lára sé að reyna að koma til móts við tilmæli einhvers hinumegin á línunni. Hver var það? Enn og aftur verður að setja fyrirvara um eftirátúlkun þriðja aðila - en það er eitthvað sem slær mig undarlega við þetta samtal. Og ef ég ætti að hafa túlkunarvald, þá myndi ég veðja á að þarna séu tveir samstarfsmenn að ræða sína á milli um mögulega sviðsetningu.
Nú hefur annar þeirra sagt upp starfi sínu - hinn ekki. Og hvor skyldi hafa verið hærra settur?
En hvort sem Lára var nú að grínast eða ekki - og hvort sem hún ætlaði að þóknast einhverjum hærra settum á Stöð-2 eða ekki - þá eru viðbrögð hennar ábyrg. Hún hefur axlað sína ábyrgð - það er meira en sagt verður um ýmsa sem þó bera þyngri ábyrgð á velferð almennings en einn fréttamaður á sjónvarpsstöð.
Ég óska Láru velfarnaðar í þeim verkefnum sem bíða hennar - og þess verður vafalaust ekki langt að bíða að hún finni hæfileikum sínum og kröftum viðnám á verðugum vettvangi.
----------
PS: Ég heyrði í sjónvarpinu í kvöld að Lára væri fimm barna móðir. Ég er sjálf fimm barna móðir, var einu sinni fréttakona á sjónvarpinu. Sömueliðis Ólöf Rún Skúladóttir sem ég held að eigi fjögur eða fimm börn, og Jóhanna Vigdís líka, ef mér skjátlast ekki. Hvað er þetta með fréttakonur og frjósemi??
![]() |
Hættir sem fréttamaður á Stöð 2 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)