Þá er komið að því - ég tek slaginn
18.2.2009 | 00:00
Jæja, þá er komið að því ... og enginn veit sína ævina ... og allt það. Ég er á leið í prófkjör fyrir Samfylkinguna í Norðvesturkjördæmi og stefni á annað efstu sætanna á framboðslistanum fyrir næstu Alþingiskosningar.
Eins og blogglesendur mínir vita hef ég ítrekað verið spurð að þessu undanfarnar vikur og mánuði. Ég hef svarað af varúð en ekki hugsað mikið um þetta fyrr en núna um helgina. Þá fóru hlutirnir að gerast.
Og eftir allmörg samtöl og tölvupósta er niðurstaðan sú að ég ætla fram.
Í almennum orðum get ég sagt það um sjálfa mig að ég er sjálfstæð og framsækin kona með ríka réttlætiskennd. Ég hef látið málefni landsbyggðarinnar til mín taka í ræðu og riti undanfarin ár enda er ég búsett á Ísafirði og þekki mætavel hvar eldarnir brenna heitast í dreifðum byggðum landsins.
Um þessar mundir berst ég fyrir lýðræðisumbótum á Íslandi. Ég er í góðum hópi Íslendinga sem efnt hafa til undirskriftasöfnunar á vefsíðunni www.nyttlydveldi.is fyrir því að boðað verði til stjórnlagaþings og þjóðinni gefinn kostur á að velja verðuga fulltrúa til þess að setja nýja stjórnarskrá.
Í kjölfar þess efnahags- og siðferðishruns sem dunið hefur yfir tel ég brýnt að Alþingi Íslendinga endurvinni traust meðal þjóðarinnar og rísi undir hlutverki sínu sem leiðandi löggafarsamkoma í lýðfrjálsu landi.
Brýnast um þessar mundir er þó að verja lífskjör almennings í landinu við þau erfiðu efnahagsskilyrði sem hér ríkja. Stjórnvöld verða að hafa forgangsröðunina í anda mannúðar og jafnaðarstefnu þegar kemur að niðurskurði og aðhaldsaðgerðum hjá hinu opinbera. Að byrðunum verði jafnað réttlátlega á bökin. Að þess verði gætt að erfiðar aðgerðir komi síst niður á þeim sem standa höllum fæti fyrir, t.d. sjúklingum, öryrkjum, efnalitlum heimilum eða barnafjölskyldum.
Ég vil standa vörð um mannréttindi og lýðræði, jöfnuð og sanngjarnar leikreglur. Mín skoðun er að stjórnmálamenn og stjórnsýslan öll eigi að bera ábyrgð og standa vörð um hlutverk stofnana þannig að þær fái að sinna lögbundnu hlutverki sínu án inngripa eða óeðlilegra afskipta stjórnmálamanna eða hagsmunaafla.
Þeir sem vilja kynna sér bakgrunn minn geta séð hann hér. Þeir sem vilja vita um áherslur mínar og hugðarefni geta til dæmis kynnt sér bloggfærslur mínar hér á þessari síðu.
Í stuttu máli sagt:
Ég er kona á besta aldri - nægilega lífsreynd til þess að þora að standa í báða fætur. Svolítið sorfin af sjávargangi lífsins en bjartsýn og drífandi. Verði mér treyst til þess að taka sæti á löggjafasamkundunni mun ég leggja mig alla fram í þágu þeirra mála sem ég tel horfa til framfara.
Mér er tamt að nota brjóstvitið ekki síður en hugvitið og hlýða eigin samvisku. Ég hyggst halda því áfram.
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Lífstíll, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 00:01 | Facebook
Athugasemdir
Ég óska þér góðs gengis og fagna hverju framboði sem beinist að vernd íslenskrar náttúru!
Árni Gunnarsson, 18.2.2009 kl. 00:13
Færð góðar óskir frá mér líka, en frekar hefði ég nú viljað sjá þig í framboði fyrir eitthvað annað en Samfylkínguna, enda tel ég hana gengna sér til húðar.
Steingrímur Helgason, 18.2.2009 kl. 01:09
Já þá er komið að því og ákvörðun liggur fyrir. Óska þér til hamingju með að hafa stigið þetta skref og vona að vel gangi.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 18.2.2009 kl. 01:14
Sú er nú heldur betur með kjarkinn og líka dálítið
Farnist þér vel og gleymdu ekki "fólkinu" ef svo færi að þú...........
Páll A. Þorgeirsson, 18.2.2009 kl. 01:35
Gangi þér allt í haginn, Ólína. Verður Skutull varamaður þinn?
Lára Hanna Einarsdóttir, 18.2.2009 kl. 01:36
Ég mæli með þér í forystusætið hjá Samfylkingunni í Norðvesturkjördæmi. Hvorki meira né minna. Þörf þjóðarinnar fyrir endurnýjun þingmanna og kvenna á alþingi - er brýn. Við sem lögðum búsáhaldabyltingunni lið við setningu alþingis ,að loknu jólalaleyfi þingliðs sem staði hafði í fjórar vikur,- gleymum seint þeirri upplifun . Þingheimur reyndist ekki í neinum tengslum við þjóðina og líf hennar. Þegar atvinnuleysi var orðið um 15 þúsund manns- heimili að verða gjaldþrota og atvinnulífið að leggjast í rúst- þá var aðalmál þingsins á sinni fyrsu dagskrá að loknu lengsta jólalaleyfi norðana Alpafjalla-" Umræður um sölu brennivíns í stórmörkuðum". Búsáhaldabyltingin hófst. Við þurfum öðruvísi fólk inná alþingi- alþingi fólksins í landinu.
Sævar Helgason, 18.2.2009 kl. 07:44
Til hamingju með ákvörðun þína.
Tek undir með Árna Gunnars, ekki veitir af fólki hlynntu náttuvernd á vestfjörðum.
Marta B Helgadóttir, 18.2.2009 kl. 07:54
Til hamingju með ákvörðunina - gangi þér vel
Jónína Rós Guðmundsdóttir, 18.2.2009 kl. 08:06
Til hamingju með þessa ákvörðun Ólína og ég óska þér góðs gengis
Sigrún Jónsdóttir, 18.2.2009 kl. 08:44
Til hamingju með ákvörðunina - góðar óskir að norðan.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 08:53
Hjartanlega til hamingju Ólína, það verður ánægjulegt að sjá sómakonur á þingi.
Kveðjur vestur.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.2.2009 kl. 09:19
Nú líst mér á þig! Til hamingju með þetta og gangi þér vel,
Baráttukveðjur úr Hafnarfirðinum
Gunnar Axel
Gunnar Axel Axelsson, 18.2.2009 kl. 09:25
Ég tel þetta vera rétta ákvörðun hjá þér. Byltingin þarf einmitt að ná til flokkana og ég treysti þér til að beita kröftum þínum í að bæta lýðræðið.
Offari, 18.2.2009 kl. 09:26
Ég vil þakka þér kærlega fyrir þessa stuðningsyfirlýsingu við flokkakerfið í landinu.
Þetta er kærkominn stuðningur ! hehe
Ingólfur Þór Guðmundsson, 18.2.2009 kl. 11:22
Loksins ástæða til að kjósa Samfó í NV-kjördæmi.
Gangi þér vel.
Þórður Runólfsson, 18.2.2009 kl. 11:27
Hjartans þakkir til ykkar allra fyrir hlýjar kveðjur og hamingjuóskir. Þær gleðja mig sannarlega.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 18.2.2009 kl. 11:35
"....sjálfstæð og framsækin kona með ríka réttlætiskennd"
Kona að mínu skapi.
Gangi þér allt í haginn.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 18.2.2009 kl. 11:45
Hárrétt ákvörðun,til hamingju og gangi þér vel.
María Anna P Kristjánsdóttir, 18.2.2009 kl. 11:48
Þetta líkar mér. Bara passa að verða ekki slegin pólitískri bullísku.
Sigurður Ingi Jónsson, 18.2.2009 kl. 11:51
Þetta líkar mér.
Ég hvet þig til þess að sækjast beint eftir fyrsta sætinu.
Elfur Logadóttir, 18.2.2009 kl. 11:51
Sem íbúi í NV kjördæmi er ég mjög ánægð með það að sjá sterka og flotta konu á svæðinu bjóða fram krafta sína. Gangi þér sem allra best...
Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 11:55
Þú hættir sem skólameistari. Sóttist þú eftir biðlaunum eða einhverju slíku? Langar að vita.
Kveðja Benni
Benedikt Kaster Sigurðsson, 18.2.2009 kl. 11:57
Líst vel á þetta, vonast til að sjá "Lýðveldi.is" í hnotskurn í störfum þínum. Reyndar efast ekki um það
Hlakka til að heyra þitt kjarnyrta fallega málfar á þingi.
Gangi þér vel, tu tu
Ragnhildur Jónsdóttir, 18.2.2009 kl. 12:23
Benedikt - þú spyrð um starfslok mín frá því fyrir þremur árum.
Þegar ég hætti sem skólameistari gekk formaður skólameistarafélagsins ásamt lögfræðingi í að semja við menntamálaráðuneytið um starfslok mín fyrir mína hönd. Út úr því kom starfslokasamningur sem fól í sér fimm mánaða launað leyfi auk uppsagnarfrests. Ég féllst svo á að taka að mér tveggja ára verkefni við Háskóla Íslands fyrir milligöngu ráðuneytisins og hélt skólameistaralaunum á meðan ég innti það af hendi. Því verkefni lauk um síðustu áramót.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 18.2.2009 kl. 13:42
Til hamingju með það...
En því miður styður þessi ákvörðun þín enn betur við þá tilfinningu mína að afskipti þín af "Nýtt lýðveldi" hafi verið stökkpallur í þetta framboð.
Það er alveg á tandurhreinu að "gamlir" pólitíkusar" eiga ekkert erindi inn í nýjar hreyfingar og kröfur sem þjóðin hefur verið að gera kröfur um
Heiða B. Heiðars, 18.2.2009 kl. 13:50
Já, þar kom að því heldur betur, þetta heitir víst að taka fólk á orðinu!
Og ekki er nú laust við að ég finni til örlítillar ábyrgðar, hafði hér uppi "Vísnavaðal" til eggjunnar og hvatningar til dáða, sem kannski hefur vegið sitt á vogarskál ákvörðunnar!?
En gerum samt ei of mikið úr því.
En mín kæra Ólína, þú ert já með báðar fætur á jörðinni og í því fellst m.a. sá skilningur í ljósi reynslunnar, að ekkert er öruggt í hendi og eitt er að fara í prófkjör og ná þar árangri, annað svo að fara alla leið og öðlast sæti á alþingi. Það veist þú já auðvitað, en ætlar að sjálfsögðu sem í senn hjartahlý en líka hörð og hvöss þegar á þarf að halda, að gera þitt besta og ná settu takmarki með bjartsýnina að vopni!(sumir reyndar komnir með þig hálfu eða heilu leiðina inn á þing í sínum árnaðaróskum, en það er greinilega að góðum hug)
Mínar bestu baráttukveðjur!
Magnús Geir Guðmundsson, 18.2.2009 kl. 13:58
Magnús - margt smátt gerir eitt stórt, og þú átt vissulega þinn þátt í þessari ákvörðun minni.
Heiða mín - þú ræður hvort þú trúir mér. En prófkjör hafði ekki hvarflað að mér þegar ég hófst handa fyrir kröfunni um Nýtt lýðveldi.
En þetta verður spennandi og ég hlakka til að spreyta mig í prófkjöri fyrir alþingiskosningar að þessu sinni. Svo verður bara að koma í ljós hvað út úr þessu kemur. Ég mun taka niðurstöðunni, hver svo sem hún verður.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 18.2.2009 kl. 14:09
Óó, rétt í þann mund sem ég ætla að hverfa hljóðlega út um gættina, ryðst fram úr mér rosaleg skessa á hvínandi siglingu út og ansi þung á svip!
og orðin sem hún skildi eftir eru dálítið dapurleg, einhver í þágu þrákeikni eða neikvæðni, jafnvel nöldurhyggju, að ætla naúnga náunga sínum vondan hug af enn verri meiði!
Annars væri gaman að fá frekari rökstuðning, ekki bara dylgjur og ásakanir, í til dæmis "Gamli pólitíkusinn" Ólína er fólgin? Minnihlutaseta í borgarstjórn reykjavíkur um hríð fyrir Nýjan vettvang fyrir löngu jú er kunn staðreynd, "mikil syndagjörð" það!?
Magnús Geir Guðmundsson, 18.2.2009 kl. 14:15
"Fyrir löngu" er líka pólitík. Og það er ekki beint hægt að segja að það hafi ekki gustað um Ólínu síðan.
En bloggfærslur Ólínu hafa lyktað af framboðsdraumum undanfarnar vikur og það hvort það var meðvitað eða ekki er eitthvað sem maður dæmir bara eftir tilfinningunni. Og mín tilfinning fékk staðfestingu hérna með þessari tilkynningu
Engar dylgjur eða ásakanir...bara staðreyndir frá mér séð
Heiða B. Heiðars, 18.2.2009 kl. 14:25
Kæra Ólína. Óska þér til hamingju með ákvörðunina. Kom mér ekki á óvart. Ég skil samt ekki hvers vegna þú ákveður að bjóða þig fram fyrir Samfylkinguna, eða annarra núverandi flokka, sem bar ákveðna ábyrgð á þeim hörmungum sem dynja yfir okkur? Ég skili þig þannig m.a. með starfinu fyrir Nýtt Lýðveldi að þú værir að hvetja til umbyltingar á núverandi flokksræði og í staðinn betra lýðræði. Af hverju bauðstu þig ekki fram í formi hreyfingarinnar? Ég efast ekkert um þinn góða vilja og þína getur til að láta gott af þér leiða. En ég efast stórlega um að þú komir þeim í framkvæmd í gegnumsýrðum stórnmálaflokkum landsins sem stjórnast af völdum og flokksræði. Ekki lýðræði. Það er bara þannig. En óska þér að sjálfsögðu góðs gengis í baráttunni. Bestu kveðjur.
Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 14:36
Ég styð þig heilshugar flotta kona - hef fulla trú á þér í stjórnmálunum.
Langar að setja inn smá lista af mínum hugðarefnum í þeirri von að allavega eitthvað af þeim yrði að þínum hugðarefnum.
Ég er mikil hugsjónakona, hentar samt betur að vinna sem stuðningur en í framlínu og er því ekki á leið í framboð, ég er aftur á móti virk í Lýðveldisbyltingarstarfinu!!!
.......Þetta er aðeins brot af þeim breytingum sem ég persónulega, myndi vilja sjá framkvæmdar sem allra fyrst fyrir þjóðina mína, ...er eftir einhverju að bíða...???
Viðbótarkvóti verður leigður út af ríkinu, ekki skaffaður til einstaklinga!!!
Gangi þér allt í haginn Ólína!!!
Ása (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 15:49
Gangi þér allt í haginn Ólína mín.
Kveðjur héðan úr sveitinni
Ía Jóhannsdóttir, 18.2.2009 kl. 16:10
Gott mál og gangi þér vel!
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 18.2.2009 kl. 16:39
Heillaóskir í tilefni framboðsákvörðunar þinnar Ólína. Vonandi gengur þér betur en þeir sem setið hafa að völdum hingað til að skapa skaplegt og kærleiksfullt samfélag. Bestu kveðjur.
Baldur Gautur Baldursson, 18.2.2009 kl. 17:38
Gangi þér vel Ólína mín. Ég vona að þú getir staðið af þér storm ráðamanna sem hingað til hafa náð að stjórna á bak við tjöldin öllum þeim sem á þing hafa farið hingað til. . þarna hafa lifað ótrúleg öfl eigingirninnar undan farin ár.. Þessi stofnun virðist hafa þann eiginleika að kenna fólki að segja ekki satt.
Varaðu þig.
Þú ert sterk ef þér tekst að breyta ranglæti í réttlæti. Sem sagt byggja lýðræði upp á nýtt svo við getum verið áfram sem sjálfstæð þjóð..
Sigríður B Svavarsdóttir, 18.2.2009 kl. 17:46
Mikið vona ég að þú verðir ekki einn þeirra stjórnmálamanna sem hætta að blogga reglulega eða loka fyrir ummæli sín á blogginu sínu.
Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 18.2.2009 kl. 18:48
Ég óska þér góðs gengis en vona að þú látir af þessari prófkjöskynjahlutfallsást þinni.
Óðinn Þórisson, 18.2.2009 kl. 18:50
Ertu viss um að þetta sé réttur flokkur Ólína? Nei,bara grín, farnist þér vel í komandi baráttu og víst áttu eftir að standa þig vel,skelegg konan.
Yngvi Högnason, 18.2.2009 kl. 20:02
Gangi þér vel.
Ingibjörg Hinriksdóttir, 18.2.2009 kl. 20:43
Gangi þér vel. Vonandi aðlagastu ekki of mikið hinu gamla lýðveldi sem við erum að reyna að losna við.
Höskuldur Búi Jónsson, 18.2.2009 kl. 21:06
Til hamingju, það verður flokkur sterkari fyrir vikið. Þú ert mjög frambærileg og flokkurinn sterkari með þér.
Áslaug Sigurjónsdóttir, 18.2.2009 kl. 21:46
jæja þá ....."sjálfstæð og framsækin kona með ríka réttlætiskennd"
Gangi þér allt í haginn
Jón Snæbjörnsson, 18.2.2009 kl. 21:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.