Hvađ skal međ Hannes?
3.4.2008 | 10:19
Já, hvađ á háskólarektor ađ gera viđ Hannes Hólmstein Gissurarson nú ţegar hćstiréttur hefur dćmt hann fyrir ritstuld? Vefsíđan kistan.is hefur undanfarinn sólarhring beint nokkrum spurningum til háskólasamfélagsins um ţetta mál. Af ţeim svörum sem komin eru er ljóst ađ menn vilja ađ háskólarektor ađhafist á einhvern hátt og ađ menn telja dóm hćstaréttar eđlilegan.
Salvör Gissurardóttir bloggar í dag um ţetta tiltćki kistunnar.is og telur ađ ţarna sé ómaklega vegiđ ađ Hannesi bróđur hennar. Hann sé ţarna hafđur ađ háđi og spotti. Ţađ er full ástćđa til ţess ađ hafa ţađ sjónarmiđ í huga ađ hugsanlega fari menn offari í ţessu máli. Söfnun álita eins og á sér stađ á kistunni.is getur orkađ tvímćlis - ţví međ henni er hćtt viđ ađ ţađ myndist sveifla eđa stemning sem kannski er ekki nćgilega yfirveguđ. Ađgerđarleysi og ţögn háskólans á ţar trúlega nokkra sök.
Ţó er ég ekki sammála bloggvinkonu minni Salvöru. Ţeir frćđimenn sem tjá sig á vefsíđu kistunnar eru (flest)allir ađ gera ţađ af af einurđ sýnist mér. Ég er ein ţeirra sem svarađi spurningum vefsíđunnar og gerđi ţađ af fullri alvöru, ţó ég hefđi ekki mörg orđ. Fólki finnst ađ rektor - eđa yfirstjórn háskólans - eigi ađ bregđast viđ. Fólki líđur illa međ stöđu málsins eins og hún er. Ţetta verđur ađ virđa og ţađ er full ástćđa líka til ţess ađ ţetta komi fram.
Mál Hannesar hefur leitt eitt gott af sér - og ţađ er umrćđan og aukin vitund um međferđ ritheimilda í frćđiskrifum.
Dr. Gísli Gunnarsson, sagnfrćđingur, kemur inn á ţađ mál í sínu svari til kistunnar. Ţar vekur hann athygli á ţeim plagsiđ frćđimanna ađ stela verkum og hugmyndum međ ţví ađ vitna ekki í frumheimildir, heldur milliliđi. Höfundur A setur fram hugmynd eđa kenningu sem B tekur upp. Síđan kemur C og notar kenninguna međ ţví ađ vitna í B en ekki A.
Fyrir ţessu hafa margir orđiđ, m.a. Gísli sjálfur, ég og margir fleiri. Ţessi umrćđa er löngu tímabćr - og mál til komiđ ađ hrista háskólasamfélagiđ ađeins til varđandi ţetta, ţví ţarna eiga margir sök.
Ţó ađ svar Gísla sé yfirvegađ og sett fram af sanngirni, get ég ţó ekki tekiđ undir allt sem hann segir. Hann telur til dćmis ađ háskólayfirvöld geti ekki vikiđ Hannesi úr starfi vegna ţess ađ hann hafi ekki brotiđ hegningarlög.
Brot í starfi ţarf ekki ađ snúast um almenn hegningarlög - heldur gildandi starfsreglur. Séu ţćr brotnar, ţá hlýtur viđkomandi stofnun eđa fyrirtćki ađ bregđast viđ. Ţađ er svo kaleikur yfirstjórnar stofnunarinnar ađ bregđast rétt viđ - en ţann kaleik vill sjálfsagt enginn taka af háskólarektor eins og sakir standa.
Meginflokkur: Vísindi og frćđi | Aukaflokkar: Bloggar, Dćgurmál, Menntun og skóli | Breytt s.d. kl. 10:24 | Facebook
Athugasemdir
Sćl Ólína,
Til ađ kynna sér máliđ lítillega ćttu menn og konur ađ lesa ágćta fréttaskýringu eftir Klemens Ólaf Ţrastarson í Fréttablađinu í dag (3. apríl) en ţar er fariđ ofaní nokkur dćmi um ţađ sem máliđ snýst. Ég hef fylgst međ ţessu lauslega frá upphafi og mér sýnist ađ Hannes, blessađur kallinn, ţurfi ađ yfirgefa Háskóla Íslands fyrir ţetta enda kominn í skammarkrókinn. Menn međ svona menntun og ţekkingu eiga ađ vita betur. Allir geta gert mistök í lífinu og stundum nokkur. En ţetta verđur seint flokkađ undir mistök. Ţađ er spurning hvađ Íhalds-skjaldborgin getur variđ kallinn lengi í ţeim mótbárum sem á undan hafa gengiđ.
Jón "Vatni" Ólafsson bauđ Hannesi sáttarlausn í öđru máli og fá skriflega afsökunarbeiđni varđandi ţau ummćli sem hann lét fara frá sér og máliđ yrđi látiđ niđur falla. Hannes ţrjóskađist viđ og meig í skóinn sinn. Ţar klúđrađi Hannes viljugur góđu tćkifćri til ađ spara sér milljóna króna fjárútlát í formi skađabóta. Svona mönnum er varla mikil vorkunn. En alltaf eru tvćr hliđar á öllum málum og viđ skulum sjá hvađ gerist ađ endingu allra ţessara mála. Ţótt sól hćkki nú á lofti međ lygnum sjó og fuglasöng, ţá sýnist mér ólguský vofa yfir Hólmsteini.
Róbert Schmidt
Róbert Schmidt (IP-tala skráđ) 3.4.2008 kl. 10:41
Ţađ er auđvitađ ekki hćgt ađ tala um ranga Hćstaréttadóma, en menn geta hins vegar veriđ ţeim ósammála.
Ég hvet alla til ađ lesa greinargerđ Hannesar hér.
Júlíus Valsson, 3.4.2008 kl. 11:15
Ég skrifađi ţetta hjá Salvöru...
-Eitt sinn (sem oftar) áttum viđ HHG í deilum og var haft eftir mér: "Ég er ósammála honum en tilbúinn ađ láta lífiđ fyrir ađ hann fái ađ hafa skođun". Ţetta er auđvitađ stoliđ úr frönsku byltingunni en blađamađur Fréttablađsins ţótti ţetta merkilegt og birti sem mína speki. Vonandi fć ég ekki bágt fyrir. Ég var kominn á sömu hillu og Ólína fyrir löngu og hef í raun ekkert viđ ţađ ađ bćta. Svör margra í Kistunni er ţeim til minnkunnar bćđi sem persónur og frćđifólk. Ég held ađ ţar sé pólitísk gláka á ferđinni. HHG sagđi eitt sinn viđ mig: -Sá sem aldrei lyftir höfđi upp úr skotgröfinni kemst aldrei neitt en á jafnframt á hćttu ađ fá í sig skot.- Ég er sannfćrđur ađ ef gćsalappir hefđu veriđ á réttum stöđum vćri ţessi ritröđ um HKL talin ţađ merkasta sem út hafi veriđ gefiđ um nóbelskáldiđ. Sendu drengnum heilsu mína. Hann hefur bein til ađ bera. -
Skođanavegir okkar Ólína eru oftast samsíđa og samátta.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráđ) 3.4.2008 kl. 11:16
Takk fyrir fróđleikinn Ólína.
Jenný Anna Baldursdóttir, 3.4.2008 kl. 11:28
Ég ţykist sjá á hinum ýmsu bloggsíđum ađ flestum finnist Hannes ekki eiga ađ halda starfinu viđ Háskólann.
Ţađ fór hinsvegar ekki mikiđ fyrir opinberum vandlćtingum í ađdraganda ţess ađ Ólafur Ragnar Grímsson var kjörinn forseti lýđveldisins og viđurkenndi ađspurđur ađ hann vćri ekki međ hreint sakavottorđ. Samt kosinn.
Alţingi götunnar gerir upp á milli manna.
Hinsvegar er ţađ í höndum Háskólarektors ađ taka á ţessu máli Hannesar, og einhverjar reglur munu til fyrir hana ađ fara eftir.
Ólafur Vignir Sigurđsson (IP-tala skráđ) 3.4.2008 kl. 11:49
Eftir ađ hafa lesiđ greinargerđ Hannesar, ţá ítreka ég ţau orđ mín ađ tvćr hliđar eru á öllum málum. Hannes hefur nokkuđ til síns máls í rökstuđningi sínum og eftir á ađ hyggja er ţetta kannski stormur í vatnsglasi? Mér sýnist ađ Laxnes sjálfur hafi gert ađra texta ađ sínum ansi oft og fleiri merkir menn sbr greinargerđ Hannesar. En eins og Júlíus bendir á er varla hćgt ađ tala um ranga hćstaréttadóma. Greinargerđ Hannesar hefur fengiđ mig til ađ endurskođa mína afstöđu í málinu ađ einhverju leiti. Hvet alla sem hafa tíma ađ renna yfir hana ţó ekki vćri nema ađ skođa báđar hliđar málsins. Já, svona er Ísland í dag.
Róbert Schmidt (IP-tala skráđ) 3.4.2008 kl. 12:36
Sammál ţér Róbert. Ég hef ekkert vit á bókmenntum en mér sýnist HHG vera ađ gera nákvćmlega sömu hluti og ađrir hafa gert um árabil, meira ađ segja sjálft Nóbelsskáldiđ. Er ekki veriđ ađ leggja prófessorinn í einelti af ţví ađ hann er kjaftfor? Viđ međalmennin myndum vart lenda í svona hremmingum ţótt viđ međhöndluđum kunna texta á sama hátt.
Júlíus Valsson, 3.4.2008 kl. 13:24
Í framhaldi af athugasemd Róberts Schmidt: Ţađ er auđvitađ vont ef skáld leyfir sér ritstuld. Enn verra er ţó ef frćđimađur í prófessorsstöđu gerir ţađ, ţví hann hefur skuldbundiđ sig til ţess ađ kenna öđrum og gefa gott fordćmi.
Ţá finnst mér athugasemd Ólafs Vignis um forsetann ekki koma ţessu máli viđ.
Böl verđur ekki bćtt međ ţví ađ benda á annađ - ţó ţađ sé oft reynt.
Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir, 3.4.2008 kl. 14:00
Ţađ má ekki gleyma ţvi, ađ HHG er prófessor og sérfrćđingur í stjórnmálafrćđi en ekki lögum, einkarétti eđa bókmenntum og kennir ekki ţćr greinar. Ritstörf hans koma ţví starfi hans viđ HÍ ekkert viđ.
Ćtti t.d. ađ reka frönskukennara sem keyrir of hratt og reykir Gauloises á Mokka?
Ég er bara ađ reyna ađ sýna honum ţá sanngirni, sem mér finnst skorta í ţessari umrćđu.
Júlíus Valsson, 3.4.2008 kl. 14:09
Júlíus, ţér getur ekki veriđ alvara međ ađ ritstörf Hannesar komi starfi hans í HÍ ekkert viđ.
Ritstörf Hannesar eru hluti af hans rannsóknarframlegđ í starfi prófessors - og ţú mátt trúa ţví ađ hann hefur fengiđ ţessi störf metin til launa hjá Háskólanum.
Ţađ er góđra gjalda vert ađ sýna sanngirni - en ţá verđa menn líka ađ halda sig viđ stađreyndir og skođa hlutina eins og ţeir eru. Međvirkni og sanngirni eru ekki eitt og hiđ sama.
Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir, 3.4.2008 kl. 14:12
Stjórnsýslulögin hafa ţó ákvćđi um međalhóf. Varla telst ţađ međvirkni?
Júlíus Valsson, 3.4.2008 kl. 14:46
ps
Nóbelsskáldin skrifa svo fallega ađ ţađ dettur engum í hug ađ lögsćkja ţau
Júlíus Valsson, 3.4.2008 kl. 14:48
Gćsaglappa,
gerđi skot,
ţurs í ţrot,
lappabrot,
hólmsins grjóta,
veggja ljóta,
krot,
nú tárin vot,
karli vísa á í kot,
eins og skot.
http://hehau.blog.is/album/Bloggmyndir/image/178072/
Steini Briem (IP-tala skráđ) 3.4.2008 kl. 17:01
Samkvćmt Mbl skildi ég svo ađ Hannesi yrđi ekki veitt áminning né vikiđ úr starfi, heldur beđin um ađ endurtaka ekki leikinn. Skamm, skamm Hannes, svona máttu ekki gera aftur. Ţá vitum viđ ţađ.
Róbert Schmidt (IP-tala skráđ) 3.4.2008 kl. 19:20
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.