Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
RSS-straumar
Bækur
Bækurnar í lífi mínu
... sem hafa haft áhrif á líf mitt og hugsun
-
Kristín Marja Baldursdottir: Karitas - án titils
**** -
Þórbergur Þórðarson: Ofvitinn
*** -
Halldór Laxness: Sjálfstætt fólk
*** -
Trevor-Roper: Galdrafárið í Evrópu
*** -
Andri Snær Magnason: Draumalandið
**** - Guðspjallamennirnir o. fl.: Biblían
-
Dan Brown: Da Vinci lykillinn
*** -
ýmsir höfundar: Skólaljóðin
*** -
Lao Tse: Bókin um veginn
****
Eldri færslur
2017
2015
2013
2012
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Afsökunarbeiðni og fyrirgefning
1.10.2007 | 11:15
Mér hefur nú borist afsökunarbeiðni frá ungum manni - fyrrverandi nemanda mínum við Menntaskólann á Ísafirði. Hann hefur látið birta afsökunarbeiðni sína opinberlega með svofelldum orðum:
"Undirritaður vill koma á framfæri innilegri afsökunarbeiðni til dr.Ólínu Þorvarðardóttur fyrrverandi skólameistara á Ísafirði. Föstudaginn 19.september s.l. sendi undirritaður SMS skeyti til hóps nemanda í Menntaskólanum á Ísafirði og lét líta svo út sem það hafi verið sent úr símanúmeri Ólínu. Sá gjörningur var hörmuleg yfirsjón og verður ekki réttlættur á nokkurn hátt. Með vinsemd og virðingu. Gunnar Atli Gunnarsson".
Þessari orðsendingu til mín fylgdu þau orð Gunnars Atla að hann hefði ennfremur sagt af sér formennsku í Nemendafélagi Menntaskólans á Ísafirði, vegna þessa máls.
Nú vil ég segja þetta:
Kæri Gunnar Atli.
Öllum verða á mistök í lífinu. Það er liður í því að þroskast og verða að heilsteyptri manneskju - enginn lærir að ganga án þess að hrasa. Það eru því ekki mistökin sjálf sem lýsa okkur best, heldur hitt, hvernig við bregðumst við þeim og bætum fyrir þau.
Nú þegar þú hefur sagt af þér sem formaður NMÍ og beðið mig opinberlega afsökunar ert þú maður að meiri. Þú hefur gengist við gjörðum þínum eins og heiðarlegum manni sæmir og axlað ábyrgð. Vissulega sárnaði mér við þig, en mér þykir vænt um að sjá hvernig þú hefur sjálfur tekið á mistökum þínum.
Ég fyrirgef þér því þessa yfirsjón - og óska þér alls hins besta í lífinu.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:28 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Sjávarútvegsmál
- Eigum við að kasta kvótakerfinu? Líflegur fundur um sávarútvegsmál, mars 2015
Áhugavert
Listi yfir áhugaverðar síður og lesefni
- Eyjubloggið mitt Ég á eyjublogginu
- Skutull Fréttavefurinn Skutull.is
- Björgunarhundasveit Íslands
- Hundar hundarækt
- Landsbjörg Slysavarnarfélagið Landsbjörg
- Myndasíðan hans Gústa Frábærar myndir
Galdrasíður og -samfélög á netinu
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Sigrún Jónsdóttir
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ketill Sigurjónsson
- Atli Rúnar Halldórsson
- Baldur Kristjánsson
- Bjarni Harðarson
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Þór Bjarnason
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Edda Agnarsdóttir
- ESB
- Eyþór Árnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Hallmundur Kristinsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiða Þórðar
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Snæbjörnsson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Guð
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kristján Pétursson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Magnús Geir Guðmundsson
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigurður Þórðarson
- Sigurður Sigurðsson
- Skafti Elíasson
- Helga skjol
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Þorleifur Ágústsson
- Toshiki Toma
- Emma Vilhjálmsdóttir
- Albertína Friðbjörg
- Baldur Smári Einarsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Adolf Dreitill Dropason
- Aðalheiður Ámundadóttir
- AK-72
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Ágúst Hjörtur
- Bogi Jónsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynjar Davíðsson
- Bwahahaha...
- cakedecoideas
- Dögg Pálsdóttir
- Einar Ben
- Einar Björn Bjarnason
- Einar Indriðason
- Finnur Bárðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Garún
- Gerður Pálma
- Guðbjartur Hannesson
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Guðmundur Óli Scheving
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gylfi Björgvinsson
- Handtöskuserían
- Haukur Nikulásson
- Helga Þórðardóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hörður Valdimarsson
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jóhann Pétur
- Jón Daníelsson
- Jón Kristjánsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Snæbjörnsson
- Kjartan Jónsson
- Kjartan Pálmarsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- Magdalena Sigurðardóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Ólafur Ingólfsson
- Rafn Gíslason
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Róbert Björnsson
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sigríður Sigurðardóttir
- Sigurbjörg
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Skuldlaus
- Steingrímur Helgason
- ThoR-E
- Tinna Jónsdóttir
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Valan
- Villi Asgeirsson
- Yngvi Högnason
- Þorsteinn Guðnason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þór Jóhannesson
Athugasemdir
Ólína, þú ert líka maður að meiri.
Jenný Anna Baldursdóttir, 1.10.2007 kl. 11:19
Ég tek undir það með Jenný Myndi ekki endilega treysta sjálfri mér til að taka svona skynsamlega á krakkaskrattanum.
Marta B Helgadóttir, 1.10.2007 kl. 11:31
Strák kvölin - mér finnst að menn honum eldri og reyndari geti tekið hann sér til fyrirmyndar. Þetta er snöfurmannlega gert hjá honum - og viðbrögð þín eru líka til fyrirmyndar.
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 1.10.2007 kl. 11:37
Mér sýnist þið bæði vera að taka stórmannlega á þessu máli. Vona að hann láti sér þetta að kenningu verða og að hann noti tækifærið sem honum er þarna gefið til þess að gæta að því hvað hann gerir og hvernig það kemur við fólkið í kringum hann.
Björg Árnadóttir, 1.10.2007 kl. 12:00
Ólína. Þessi viðbrögð þín eru til fyrirmyndar!
Ágúst H Bjarnason, 1.10.2007 kl. 12:01
Batnandi mönnum er best að lifa.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 1.10.2007 kl. 12:05
Góður endir á slæmu máli.kv.
Georg Eiður Arnarson, 1.10.2007 kl. 12:11
Svo ég vitni í orð þín úr færslunni þinni um biskupinn og 3G-auglýsinguna frá Símanum:
„En hvar er nú húmorinn?“
Magnús V. Skúlason, 1.10.2007 kl. 12:17
Það er nú málið Magnús, að sumir eiga erfitt með að sjá húmorinn þegar hann beinist að þeim sjálfum.
Ingólfur H Þorleifsson, 1.10.2007 kl. 12:25
Viðbrögð þín hafa mikið uppeldislegt gildi fyrir þennan unga mann sem er að byrja lífið.
Og takk fyrir að birta okkur þessi samskipti ykkar í málinu..það má af þessu læra.
Sævar Helgason, 1.10.2007 kl. 12:31
Fólk hlær bara seinna
Steingrímur Rúnar Guðmundsson, 1.10.2007 kl. 12:33
úbbs...vantaði endinn...
Þetta lauk á friðsamann hátt allt saman:)
Steingrímur Rúnar Guðmundsson, 1.10.2007 kl. 12:33
Gott hjá ykkur báðum. Prakkarastrik geta endað öðruvísi en maður ætlar en allt er gott sem endar vel
Gísli Bergsveinn Ívarsson, 1.10.2007 kl. 12:39
batnandi manni er best að lifa
Einar Bragi Bragason., 1.10.2007 kl. 12:46
og flott hjá þér
Einar Bragi Bragason., 1.10.2007 kl. 12:47
Ég trúi nú ekki öðru en að hann stjórni Nemendafélaginu á bakvið tjöldin, það er erfitt að fá krakka til að taka svona hluti að sér í skólanum og hann hefur klárlega reynsluna til að vinna við þetta.
Svo er aldrei að vita nema hann bjóði sig fram aftur því jú með batnandi mönnum er best að lifa eins og oft hefur hér verið sagt!
Er ekki Árni Johnsen á þingi eða?
Ívar Pétursson (IP-tala skráð) 1.10.2007 kl. 12:56
Ég myndi ekki fyrirgefs svona auðveldlega sérð þú þetta er innrætið sem gerði þetta verk. Hann lærði núna að hann kemst upp með allt ef hann bara fyrirgefur og þú eins og katholikki gefur honum fyrirgefningu. Þetta er okkar ráðherrar og þingmenn. Þeim er fyrirgefið og í raun þurfa ekki einu sinni að biðja um það.
Valdimar Samúelsson, 1.10.2007 kl. 13:58
Góður endir á máli sem fljótfærni ungs manns kom af stað, Magnús ég tek undir með þér að ég sé húmorinn í þessu enn hann hefði átt að láta hugmyndina duga ekki framkvæma eða í það minnsta að láta vera að hafa númer einhvers sem kom málið ekki við og reyndar hefði húmorinn alveg lifað hefði hann látið númerið sitt. Ég efast ekki um að Ólína sér húmorinn í hugmyndinni en ekki framkvæmdinni , ég veit það allavega að ég og fleiri værum lokaðir inni ef að við framkvæmdum það sem fer í gegnum hausinn á okkur.
Ég tek líka undir að fleiri og eldri og í feitari stöðum mættu athuga að þroski og aldur eru ekki alltaf samferða, en þarna er þroskinn á nákvæmlega réttum stað hjá báðum aðilum, ég tek hatinn ofann, mig hefur lengi langað til að eiga hatt og þegar ég kaupi hann lokksins þá byrja ég á því.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 1.10.2007 kl. 15:13
Þetta hefur ekki verið auðvelt fyrir frænda minn, ég fer mjög nærri um það. En ég tek undir með öðrum hér, hann er maður að meiri, og þú hefur líka brugðist stórmannlega við.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.10.2007 kl. 15:50
ég er sátt við þennan unga mann (hann að vísu gerði mér svosem ekkert ) mér finnst hann hafa afgreitt þetta mál vel og ég tek svo sannarlega undir með þér að hann er maður að meiri. Það ert þú líka sjálf fyrir þín orð nú.
Svona á að leysa úr hlutunum.
Ragnheiður , 1.10.2007 kl. 19:54
Sæl, Ólina.
Ég þekki ekki málið í upphafinu en mér þykir vænt um það sem þú varst búin að segja stráknum.
Þetta gefur mér "warm feeling". Takk fyrir þetta.
Toshiki Toma, 1.10.2007 kl. 21:57
Ég þekki þig ekki persónulega, en þekki til þín og viðbrögð þín koma mér svo sannarlega ekki á óvart. Það er synd og skömm að þú sért ekki skólameistari lengur, því skólakerfið í held sinni þarf á þínum líkum að halda.
Vegni þér og þínum vel.
Gunnar Atli á framtíðina fyrir sér, og ég er viss um að hann mun ekki láta hvatvísina ráða för á næstunni.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 1.10.2007 kl. 22:49
"Allt er gott sem endar vel"
Sigurður Þórðarson, 1.10.2007 kl. 23:33
Heil og sæl mín góða Ólína!
Já, ég vona að drengurinn hafi af heilum hug lagt fram þessa afsökun, þannig að fyrirgefningu þinni sé ekki kastað á glæ!
Annars datt mér þetta í hug í dag!
Ólína umburðarlynd,
ei vill hefndina blind.
Nei, sár segist eigi,
sveinstaulagreyi
Þótt drýgt hafi dauðasynd!
Magnús Geir Guðmundsson, 1.10.2007 kl. 23:51
Thad er omurlegt thegar folk thykist vera annad en thad er.
Thetta hefur an efa verid skelfileg reynsla fyrir thig. Nog er nu komid.
Eg hef margitrekad lent i thessu sjaf, a einkamalum.is, barnaland.is malefni.com ad menn thykjast vera eg.
Sumir nota meira ad segja nafnid mitt. Jonina Ben og skrifa undir eitthvad oged. En thessi drengur er i thad minnsta hugrakari en margur annar. Hvernig folki bara dettur svona i hug er med olikindum. Ad skrifa svona sms i annars nafni. Thad er otrulegt.
Gott hja ther! En af hverju er enn verid ad leggja thig i einelti tharna fyrir Vestan ? Er ekki buid ad bola ther fra ? Er ekki nog komid ?
Jónína Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 08:22
Þið eruð bæði menn/konur að meiri,og vonandi að þetta endurtaki sig ekki.
Magnús Paul Korntop, 3.10.2007 kl. 02:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.