Fćrsluflokkur: Trúmál
Klisjukennd mynd um undarlegt fólk undir jökli
22.9.2009 | 23:14
Fór ađ sjá tvćr myndir á kvikmyndahátíđinni í Háskólabíói í kvöld. Stuttmyndina Melt (Bráđnun) sem er sannkallađ listaverk, myndatakan, tónlistin og hugmyndin. Falleg og sterk upplifun.
Seinni myndin var ekki jafn heilsteypt: Dularmögn Snćfellsjökuls eftir franskan höfund - hvers nafn ég ekki man.
Myndin er klisjukennt safn af frásögnum fólks um dularreynslu sína í námunda viđ jökulinn. Hún er tekin í ţoku. Jökullinn sjálfur sést aldrei nema sem málverk, teikning eđa ljósmynd, og ţví augljóst ađ kvikmyndagerđarmennirnir hafa ekki tafiđ lengi á Snćfellsnesinu - a.m.k. ekki nógu lengi til ţess ađ jökullinn hreinsađi af sér. Inn á milli frásagna af orku jökulsins og huldum vćttum hans voru leikin undarlega uppstillt tónlistaratriđi sem áttu ađ magna upp einhverja tilfinningu fyrir menningarrótum ţessarar furđulegu ţjóđar sem myndin sýndi - en stungu í stúf viđ allt annađ.
Útlendingar sem sjá ţessa mynd sannfćrast um ađ Íslendingar séu stórundarlegt fólk sem sjái huldar vćttir í stokkum og steinum, trúi stađfastlega á geimverur, og syngi framandlega fimmundarsöngva í tíma og ótíma, gjarnan íklćtt síđum kuflum međ ennisband um höfuđ, berjandi skinntrommur í flćđarmáli eđa inni í helli, milli ţess sem ţeir undirbúa heimsóknir geimvera eđa knýja á kletta og steina í von um ađ upp lokiđ verđi fyrir ţeim.
Trúmál | Breytt s.d. kl. 23:18 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)