Vestfirsk náttúra eignast málsvara

ArnarfjordurAgustAtlason Á laugardaginn verða stofnuð samtök til verndar vestfirskri náttúru - og var mál til komið. Ég hef verið að stússast í undirbúningi að stofnun þessara samtaka nú um nokkurt skeið ásamt góðu fólki (aðallega konum). Með framtakinu má segja að vestfirsku náttúruverndarsamtökin sem sofnuðu út af fyrir um tveimur áratugum gangi nú í endurnýjun lífdaga undir heitinu Náttúruverndarsamtök Vestfjarða (en hétu áður Vestfirsk náttúruverndarsamtök).

Dynjandi01 Vestfirsk náttúruverndarsamtök voru upphaflega stofnuð í Flókalundi árið 1971. Þau létu að sér kveða, gáfu m.a. út tímaritið Kaldbak og  áttu stóran þátt í friðlýsingu Hornstranda. Af einhverjum ástæðum féll starfsemin niður eftir fimmtán ár og hefur legið niðri síðan. Nú er því mál að vakna. Nýting Hornstrandafriðlandsins, áform í ferðamennsku, rannsóknir og nýting náttúrugæða og vistkerfis, umræða tengd olíuhreinsistöð, pólsiglingum, hafnarmannvirkjum og samgöngum - allt kallar þetta á að vestfirsk náttúran hafi formlegan málsvara í heimabyggð.

bardastrond Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra verður heiðursgestur stofnfundarins sem verður haldinn kl. 14:00 í Hömrum á Ísafirði. Hún mun ávarpa fundinn. Meðal annarra frummælenda verða Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands og Ómar Ragnarsson. Úr hópi heimamanna munu Þórhallur Arason, Sigríður Ragnarsdóttir og Ragnheiður Hákonardóttir taka til  máls. Ég hef tekið að mér fundarstjórn og mun gæta þess að allt fari vel og virðulega fram.  Wink

DyrafjordurAgustAtlason Helstu verkefni náttúruverndarsamtaka eru verndun náttúru, umhverfisfræðsla, friðlýsing merkra og fagurra staða, verndun minja og skynsamleg nýting náttúruauðlinda. Vestfirðingar hafa löngum verið hreyknir af þeirri einstöku náttúrufegurð sem hér ríkir og hún er stór og mikilvægur þáttur í þeirri ímynd sem Vestfirðingar hafa skapað sér á undanförnum árum.

 

Við hvetjum því Vestfirðinga til að mæta á fundinn og láta sig varða þetta mikilvæga málefni. Þeir sem ekki komast en vilja ganga í samtökin geta haft samband við mig (s. 8923139), Bryndísi Friðgeirsdóttur (864 6754) eða Sigríði  Ragnarsdóttur ( 861 1426) eða sent tölvupóst á netfangið smg5@simnet.is.

Sjáumst vonandi sem flest á laugardag Smile  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

ÉG vona að þetta skili árangri og ekki verði framin skemmdarverk á náttúrunni, gangi ykkur vel.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.4.2008 kl. 23:46

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég skráði mig í morgun hjá Bryndísi, væri alveg til í að koma Vestur en verð með erlenda gesti...

Baráttukveðjur! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 1.4.2008 kl. 23:58

3 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Mig langar til að vera með. 

Viltu skrá mig Ólína? 

Marta B Helgadóttir, 2.4.2008 kl. 00:50

4 Smámynd: Pálmi Gunnarsson

Frábært - ég skrái mig með það sama í samtökin. Til hamingju.

Pálmi Gunnarsson, 2.4.2008 kl. 01:01

5 Smámynd: Tiger

Alltaf gott þegar náttúruauðlindir okkar eru verndaðar og þess gætt að henni sé ekki hætta búin af hinum ýmsu ástæðum. Gott og þarft málefni verndun náttúrunnar.

Tiger, 2.4.2008 kl. 02:00

6 identicon

Ég er líka memm. Gefið mér bara upp reikningsnúmerið þegar þar að kemur, dúllurnar mínar. Óli frændi hættir nú örugglega við þetta olíuhreinsidót, ef ég bið hann um það. Hann Óli sem kom í jarðarförina hans pabba og hringdi í mig næstum daglega með fréttir frá Moskvu. Við erum svo miklir vinir. En það er ekki nógu mikið fútt í því. Það þarf að vera aksjón, líf í landinu og fjör í fermingarveislunum. Annars er ekkert gaman.

Steini Briem (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 02:26

7 Smámynd: Jón Örn Arnarson

Er þetta ekki nokkuð einslitur (en góður ) hópur á þessari ráðstefnu??

Réttsýni þarf ekki endilega vera þröngsýni  

Jón Örn Arnarson, 2.4.2008 kl. 09:24

8 Smámynd: Sævar Helgason

Frábært að lesa þetta .Ef einhver landshluti er náttúruparadís - þá eru það Vestfirðirnir.

Möguleikarnir eru alveg gríðarlegir- ef menn fara ekki að sóða þetta svæði út með olíudrullu- hindrum það.

Nú á sem betur fer að  bæta vegina á Vestfjörðum og koma þeim í nútímahorf- en þar og við það verkefni þarf að huga að verðmætri náttúrunni. 

Á sunnanverðum Vestfjörðum er stærsta óspillta skógarsvæði landsins og óraskað frá landnámi.  Þetta eru Teigsskógar í vesturhlíðum Þorskafjarðar - þéttur og kjarnmikill skógur . Fugla og dýralíf er þarna mikið og fjölskrúðugt í friðsældinni.

Nú er fyrirhugað að rústa Teigsskógi og leggja nútíma veg eftir honum endilöngum. Eyðileggja hann og rústa fugla og dýralífinu um leið.

Bent hefur verið á fara með veginn í göngum um Hjallaháls yfir í Djúpafjörð og síðan í öðrum göngum frá botni Gufudals, þvert yfir í Kollafjörð. Þessi leið myndi stytta leiðina frá því sem nú er um 20 km og  yrði 8 km styttri en leið um Teigskóg og það sem meira er , sennilega yrði kostnaður minni.

Gaukið þið þessu að henni Þórunni okkar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra.

Ennþá er tími til stefnubreytingar. 

Kveðja til ykkar fyrir vestan 

Sævar Helgason, 2.4.2008 kl. 12:28

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Geturðu tekið við skráningu í gegnum bloggið??  ef svo er þá vil ég gjarnan vera með

Ásdís Sigurðardóttir, 2.4.2008 kl. 19:12

10 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Frábært framtak

Högni Jóhann Sigurjónsson, 2.4.2008 kl. 21:22

11 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Takk fyrir góða fólk - þið sem viljið skrá ykkur, verið svo væn að senda mér tölvupóst á olina@snerpa.is þar sem fram kemur fullt nafn, kennitala, heimilisfang og sími - og þar með eruð þið orðin fullgildir félagar  Einhverjir hafa gert þetta nú þegar. Takk fyrir það.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 3.4.2008 kl. 09:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband