Máninn hátt á himni skín

Fyrir skammri stundu voru litirnir hér í Skutulsfirinum nákvćmlega eins og á myndinni hérna fyrir ofan: Svartalogn og dögun yfir fjöllunum. Nú hefur birt ađeins meira og "máninn hátt á himni skín - hrímfölur og grár" (ekki "blár" eins og Elín Hirst missti út úr sér í kvöldfréttatíma fyrr í vikunni). Wink

Ég er ađ baka rúgbrauđ - er međ fjögur stykki í ofninum. Bara góđ.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sólveig Birgisdóttir

Yndisleg mynd - hér er himininn grár, blár og éljagangur á köflum. Pottasleikir kom í ţrumum og eldingum í nótt, enda íslenskir drengir hér sem fara snemma ađ sofa á kvöldin. Sit hér kökk ađ lesa ţennan stutta pistil ţinn, sem gefur mér yl og fćreyska Lindin er ađ spila Heims um ból akkúrat í ţessum rituđum orđum. Efniđ í rúgbrauđiđ bíđur mín á eldhúsborđinu, best ađ ég drífi mig af stađ međ íslenksa eldmóđinum sem viđ íslenskar konur eigum nóg af og má ekki svćfa hér í ađgerđarleysinu. Guđ blessi ţig og ţína.

Sólveig - búsett í Fćreyjum.

Sólveig Birgisdóttir, 17.12.2008 kl. 11:37

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Finn ilminn alla leiđ hingađ yfir hafiđ. Ummm.. 

Ía Jóhannsdóttir, 17.12.2008 kl. 12:07

3 Smámynd: Ásdís Sigurđardóttir

Mig langar í nýbakađ rúgbrauđ og reyktan silung.

Ásdís Sigurđardóttir, 17.12.2008 kl. 13:59

4 Smámynd: Ţorsteinn Briem

Stendur ţar hérastubbur,
stoltur í baksýn Kubbur,
hún bakar fjögur brauđ,
byltingarforingi og rauđ.

Ţorsteinn Briem, 17.12.2008 kl. 14:08

5 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Ţessi mynd er ćđisleg.

Rúgbrauđ og síld međ Kotasćlu og kartöflum frá Valgerđi á Lómatjörn

Er nokkur Stera stubbur bakari ţarna fyrir Vestan?

Kjartan Pálmarsson, 17.12.2008 kl. 15:32

6 Smámynd: Ţorsteinn Briem

Verulega Valgerđar,
vingjarnlegar dćtur,
af Guđi ţćr vel gerđar,
gott er ađ vera ćtur.

Ţorsteinn Briem, 17.12.2008 kl. 17:30

7 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Steini klikkar ekki

Eđa eins og segir í kvćđinu ,, ég gćti hana étiđ ef hún vćri ćt, enn ég er líka einn af ţeim sem kveljast af ţrá"

Kjartan Pálmarsson, 17.12.2008 kl. 17:36

8 identicon

Ţetta er ţađ sem ég sakna mest frá Ísafirđi ađ geta ekki séđ pollinn á svona fögrum kvöldum

Guđrún Vestfirđingur (IP-tala skráđ) 17.12.2008 kl. 23:01

9 identicon

Ég hef átt ţví láni ađ fagna, oft, ađ líta augum Skutulsfjörđinn í stórkostlegu ljósi morgunskímunnar. Fátt er fegurra.

En héđan í frá get ég varla nálgast fjörđinn án ţass ađ hugsa um, og langa í, ....nýbakađ rúgbrauđ!

Magnađ hvađ ţér tekst ađ skapa međ örstuttri fćrslu + mynd.

takk

sigurvin (IP-tala skráđ) 17.12.2008 kl. 23:25

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vá hvađ ţú ert dugleg.  Tekur ţetta ekki daginn?  Ađ baka rúgbrauđ?

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.12.2008 kl. 23:57

11 Smámynd: Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir

Takk fyrir hlý orđ, ţiđ öllsömul.

Ţađ hefur veriđ í svo mörgu ađ snúast í dag ađ ég hef ekki mátt vera ađ ţví ađ kíkja hérna inn. Var nefnilega líka ađ taka til á skrifstofunni - henda pappírum, sameina í möppur o.s.frv. Ţvílíkt sem ég er búin ađ henda.

En Jenný - jú, ţađ tekur allan daginn, 8-10 klst. og húsiđ ilmar eins og nýlöguđ brauđsúpa á međan.

Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir, 18.12.2008 kl. 00:59

12 identicon

Pollurinn á Ísafirđi er listaverk sem veđur og vindar breyta í síbreytileg málverk.  Ađ baka rúgbrauđ er róandi. Er ekki bara fínt ađ taka sér frí frá öllu sverđaglamri ţví ţađ gerist ekkert markvert eftir ađ búiđ verđur ađ samţykkja fjárlagafrumvarpiđ og ţar til uppsagnatímabil ţeirra sem hafa misst vinnuna undanfariđ láta til sín taka, plús allra ţeirra sem geta hangiđ í 2-3 mán afborgunum af íbúđarlánum geta ekki meira og skuldirnar fara sína leiđ. Og á međan meltum viđ fjárlagafrumvarpiđ í rólegheitum og skipuleggjum okkar afstöđu. Ţađ er gott ađ geta tekiđ sér frí frá ţessu öllu saman í 2 vikur eđa svo, ţví öll erum viđ mannleg og ţurfum ađ byggja upp okkar ţrek í ró og nćđi. Bökum, skrifum jólakort 8ef viđ eigum fyrir frímerkjum), slökum á, reddum okkur mat yfir hátíđirnar, hvílum okkur. Frá ţessu öllu saman. Góđar stundir.

Nína S (IP-tala skráđ) 18.12.2008 kl. 01:21

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband