Maí 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
RSS-straumar
Bækur
Bækurnar í lífi mínu
... sem hafa haft áhrif á líf mitt og hugsun
-
Kristín Marja Baldursdottir: Karitas - án titils
**** -
Þórbergur Þórðarson: Ofvitinn
*** -
Halldór Laxness: Sjálfstætt fólk
*** -
Trevor-Roper: Galdrafárið í Evrópu
*** -
Andri Snær Magnason: Draumalandið
**** - Guðspjallamennirnir o. fl.: Biblían
-
Dan Brown: Da Vinci lykillinn
*** -
ýmsir höfundar: Skólaljóðin
*** -
Lao Tse: Bókin um veginn
****
Eldri færslur
2017
2015
2013
2012
2009
2008
2007
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Frjálslyndir afsala sér fulltrúa í borgarstjórn
16.10.2007 | 11:46
Jæja, þá hefur Frjálslyndi flokkurinn afsalað sér allri aðkomu að borgarstjórn Reykjavíkur. Og konurnar í þeim flokki afneita fulltrúa framboðsins - sem var þó, ef ég man rétt, borið fram í nafni Ff og óháðra. Maður skyldi ætla að fulltrúi sem er kosinn í nafni slíks framboðs og segir sig úr Frjálslynda flokknum geti eftir sem áður verið óháður, a.m.k. á meðan hann gengur ekki í einhvern annan stjórnmálaflokk sem aðild á að borgarstjórn.
Nú er Margrét raunar í Íslandshreyfingunni - en sú hreyfing bauð aldrei fram til borgarstjórnar. Það er því varla hægt að tala um Margréti sem fulltrúa hennar. Gagnvart borgarstjórn Reykjavíkur er Íslandshreyfingin bara eins og hvert annað áhugamannafélag. Margrét er hinsvegar bundin af stefnuskránni sem hún bar fram þegar hún var kosin inn í borgarstjórn.
Er nokkur ástæða til að ætla að hún muni ekki fylgja þeirri stefnuskrá? Varla hefur hún skipt um sannfæringu þó hún fái ekki þrifist innan flokksbanda Frjálslynda flokksins.
Þetta er ekki á nokkurn hátt sambærilegt við mál Gunnars Örlygssonar. Hann skipti um þinglið - breytti atkvæðavæginu á Alþingi. Margrét hefur ekki gert neitt slíkt.
Nei, þetta er ekki gáfulegt útspil hjá Frjálslynda flokknum. Nú er deginum ljósara að flokkurinn á enga aðkomu í borgarstjórn Reykjavíkur. Og það er ekki Margréti Sverrisdóttur að kenna, heldur flokksmönnum sjálfum.
Vantrausti lýst á Margréti Sverrisdóttur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:49 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Tenglar
Sjávarútvegsmál
- Eigum við að kasta kvótakerfinu? Líflegur fundur um sávarútvegsmál, mars 2015
Áhugavert
Listi yfir áhugaverðar síður og lesefni
- Eyjubloggið mitt Ég á eyjublogginu
- Skutull Fréttavefurinn Skutull.is
- Björgunarhundasveit Íslands
- Hundar hundarækt
- Landsbjörg Slysavarnarfélagið Landsbjörg
- Myndasíðan hans Gústa Frábærar myndir
Galdrasíður og -samfélög á netinu
Bloggvinir
- Ævar Rafn Kjartansson
- Sigrún Jónsdóttir
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Ketill Sigurjónsson
- Atli Rúnar Halldórsson
- Baldur Kristjánsson
- Bjarni Harðarson
- Bryndís G Friðgeirsdóttir
- Dofri Hermannsson
- Hrannar Baldursson
- Jón Þór Bjarnason
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Edda Agnarsdóttir
- ESB
- Eyþór Árnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- Hallmundur Kristinsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Heiða Þórðar
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Himmalingur
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Hlynur Hallsson
- Hlynur Snæbjörnsson
- Sigurbrandur Jakobsson
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Guð
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Bergur Thorberg
- Katrín
- Kristján Pétursson
- Kolbrún Baldursdóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Magnús Geir Guðmundsson
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Pálmi Gunnarsson
- Ragnhildur Sverrisdóttir
- Ragnheiður Ólafía Davíðsdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sæþór Helgi Jensson
- Einar Bragi Bragason.
- Sigurður Þórðarson
- Sigurður Sigurðsson
- Skafti Elíasson
- Helga skjol
- Gunnar Skúli Ármannsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Þorsteinn Briem
- Þorleifur Ágústsson
- Toshiki Toma
- Emma Vilhjálmsdóttir
- Albertína Friðbjörg
- Baldur Smári Einarsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Adolf Dreitill Dropason
- Aðalheiður Ámundadóttir
- AK-72
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Arnar Guðmundsson
- Ágúst Hjörtur
- Bogi Jónsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Brynjar Davíðsson
- Bwahahaha...
- cakedecoideas
- Dögg Pálsdóttir
- Einar Ben
- Einar Björn Bjarnason
- Einar Indriðason
- Finnur Bárðarson
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Garún
- Gerður Pálma
- Guðbjartur Hannesson
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Guðmundur Óli Scheving
- Guðrún Katrín Árnadóttir
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Gylfi Björgvinsson
- Handtöskuserían
- Haukur Nikulásson
- Helga Þórðardóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hörður Valdimarsson
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jóhann Pétur
- Jón Daníelsson
- Jón Kristjánsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Jón Snæbjörnsson
- Kjartan Jónsson
- Kjartan Pálmarsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristlaug M Sigurðardóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- Magdalena Sigurðardóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Ólafur Ingólfsson
- Rafn Gíslason
- Ragnhildur Jónsdóttir
- Róbert Björnsson
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sigríður Sigurðardóttir
- Sigurbjörg
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Skuldlaus
- Steingrímur Helgason
- ThoR-E
- Tinna Jónsdóttir
- Unnur G Kristjánsdóttir
- Valan
- Villi Asgeirsson
- Yngvi Högnason
- Þorsteinn Guðnason
- Þorsteinn Helgi Steinarsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þór Jóhannesson
Athugasemdir
Margrét Sverrisdóttir situr sem óháð í borgarstjórnar flokknum,og hún hefur alltaf vitnað í sína eigin sannfæringu.Frjálslindir verða að taka sig á ef þeir vilja lifa til næstu kosninga.
María Anna P Kristjánsdóttir, 16.10.2007 kl. 12:02
Margrét er ekki í FF, hún er aftur á móti varaformaður Íslandshreyfingarinnar. Ert þú Ólína að halda því fram að Íslandshreyfingin sé arftaki stefnu FF eða að enginn munur sé á þessu tvennu? Það mætti amk ætla af lestri pisilsins hér að ofan.
Til upprifjunar fyrir þig bendi ég á að eitt helsta stefnumál F-listan fyrir borgarstjórnarkosningarnar var að flugvöllurinn skyldi vera áfram í Vatnsmýrinni. Íslandshreyfingin vill aftur á móti flytja flugvöllinn á Hólmsheiðina og undir það tók MS í kosningabaráttunni fyrir I listann. Ég er vinur MS og vil ekki sjá hana skapa sér stöðu Ragnars Reykás. Vonandi spilar hún vel úr þessu.
Sigurður Þórðarson, 16.10.2007 kl. 12:32
Sæll Sigurður.
Það sem ég er að segja er einfaldlega þetta: Íslandshreyfingin bauð ekki fram til borgarstjórnar, og á því engan fulltrúa þar inni.
Frjálslyndi flokkurinn og "óháðir" buðu hinsvegar fram stefnuskrá sem var borin fram af Margréti Sverrisdóttur og öðrum frambjóðendum þess lista fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar. Ég veit ekki betur en Margrét vinni eftir þeirri stefnuskrá. Punktur.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 16.10.2007 kl. 13:14
Sæl Ólína. Þú segir að mál Margrétar og Gunnars séu ekki sambærileg ??? Hvað er í gangi ?? Þau er nákvæmlega eins. Hefur þú aldrei lesið stjórnarskrána ? Bæði hlutu þau persónulega kosningu og hafa því rétt á að sitja. Það kemur málinu ekkert við þó þau hafa skipt um skoðun í einhverjum málum. Með sömu rökum ættu þá ansi margir sveitarstjórnarfulltrúar og þingmenn að segja af sér.
Jóhann Ólafsson (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 13:37
Ólína búin að setja punkt, en ég verð að koma að smá leiðréttingu, ekki við hana, heldur athugasemd nr. 2 frá Sigurði Þórðarsyni. Þar kemur fram að Íslandshreyfingin og þar með varaformaður hennar, Margrét Sverrisdóttir vilji Reykjavíkurflugvöll burt og Hólmsheiði nefnd í því sambandi.
Þetta er einfaldlega ekki rétt. Hjá Íslandshreyfingunni eru skiptar skoðanir um flugvallarmálið. Það mál var ekki fullrætt fyrir kosningar og um það engar ályktanir gerðar. Þá vil ég ítreka að Margrét er og hefur ekki verið í umboði Íslandshreyfingarinnar í borgarstjórn en vísa til þess að hún hefur sjálf lýst yfir skoðun um að hreyfa ekki við flugvellinum í bráð.
Svo ég komi því nú að, þá vil ég ekki flana að flutningi flugvallarins úr Vatnsmýrinni og að mér finnst þetta mál ekki einkamál Reykvíkinga.
Snorri Sigurjónsson
Snorri Sigurjónsson (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 13:42
Sæl Ólína
Miðað við hvað þú segir þá er þessi nýi meirihluti ekki réttkjörinn og getur því ekki starfað áfram. Eða hvað?
Gísli Bergsveinn Ívarsson, 16.10.2007 kl. 14:31
Margrét Reykás heitir konan hér eftir enda réttnefni. Ólína eins skynsöm og þú ert þá hlýtur þú að sjá hversu fáránlegt það er að manneskja sem situr í sæti sem flokkur sem hún fordæmir á rétt á er sætaþjófur og ekkert annað. Hún talar eins og borgarbúar hafi komið saman og kosið hennar persónu sérstaklega í borgarstjórn en svo var aldeilis ekki. 10% borgarbúa kusu Frjálslynda því þeir vildu koma þeirri hugsjón þeirra og áherslum inní borgarmálin. Ef hún ætlar að eiga einhverja framtíð í pólitík þá segir hún af sér strax.
Margrét Reykás fer í Samfylkinguna næst vitið til. Enda skiptir það hana engu máli í hvaða flokki hún er hún vill bara vera fremst í flokki. Hún fór úr Frjálslyndum því hún fékk ekki það sæti sem hún bauð sig fram í, þannig er hún.
Halla Rut , 16.10.2007 kl. 15:07
Sæll Jóhann.
Ég var búin að setja punkt - en bæti hér með við öðrum, bara vegna þess að mér sýnist þú misskilja mig all hrapallega (hafi ég á annað borð skilið þig rétt )
Þú virðist halda að ég telji að Margrét Sverrisdóttir eigi að segja af sér sem borgarfulltrúi vegna þess að hún tilheyri ekki lengur Frjálslynda flokknum. Því fer víðsfjarri. Ég tel að hún eigi fullan rétt á því að sitja áfram sem borgarfulltrúi - enda er hún enn talsmaður þeirra sjónarmiða sem hún bauð sig fram fyrir, þó svo að Frjálslydi flokkurinn og hún vilji ekkert með hvort annað hafa.
Og sæll Gísli.
Ég skil ekki pælinguna hjá þér. Meirihlutinn í borgarstjórn myndast vegna samstarfs tiltekins fjölda borgarfulltrúa. Það hefur ekkert með úrslit kosninga að gera - ekkert frekar en ríkisstjórnarmyndanir. Meirihlutar í sveitarstjórnum eru ekki "kosnir" - nema um sé að ræða einn flokk sem nær hreinum meirihluta. Annars er bara um málefnasamninga að ræða.
Ég styð þennan nýja meirihluta - og tel að Margrét Sverrisdóttir eigi fullt erindi inn í þetta meirihlutasamstarf, hvort sem Frjálslyndir vilja kannast við hana eða ekki.
Og nú set ég punkt
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 16.10.2007 kl. 16:36
Aldrei gæti ég verið óháður. Ég er háður svo mörgu, sérstaklega konum. Þær eru svo sérstakar og einstakar. Og sumar eru meira að segja stakar. Eins og til dæmis Magga. Hún er bæði óháð og stök. En mikið vildi ég að hún væri soldið háð mér. Bara svona smá.
Steini Briem (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 19:41
Mér persónulega finnst þetta rangt. Margrét sveiflast ótrúlega mikið til og frá, kannski má segja henni til afsökunar að svo eru fleiri, en það breytir því ekki að mér finnst þetta rangt og líka þegar aðrir gera slíkt hið sama.
Ásdís Sigurðardóttir, 16.10.2007 kl. 23:37
Margrét er fulltrúi frjálslyndra og óháðra hvað sem hver segir. Hún var kosin til þess.
Sumir ætla að bakland hennar sé ekki mikið, en það veit ég að það er allnokkuð. Þegar spurt er hvaðan það komi, þá er svarið alla vega ekki Íslandshreyfingin - Margrét á enn fullt af fylgjendum í frjálslynda flokknum, sem líta á hennar gjörðir fyrir síðustu kosningar sem nauðvörn. Fólkið sem ég tala um eru sannir frjálslyndir, sem virða hennar framlag til baráttumála flokksins, það fólk stendur enn við bakið á henni þótt það hafi kosið frjálslynda en ekki Íslandshreyfinguna.
Ég lít á yfirlýsingu Landsambands kvenna í frjálslynda flokknum sem persónulega yfirlýsingu formanns hreyfingarinnar og lítið annað.
Ég er frjálslyndur og tel Margréti fulltrúa okkar sjónarmiða í borgarstjórn Reykjavíkur.
Benóný Jónsson (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 01:49
Benóný ,,sannfrjálslyndi" þetta var skrítin athugasemd að mínu mati. Er bakland Margrétar ekki komið frá Íslandshreyfingunni þar sem hún er varaformaður ?
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 17.10.2007 kl. 08:23
FF - Bara slappa af, verðið þið ekki búin að erfa Villa áður en að löngu líður og þar með komin með atkvæðið ykkar í borgarstjórn , það er hlýtt hjá ykkur og þeim sem kalt verður í sínum gömlu flokkum er ávalt vel tekið af FF.
Björn (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 11:05
Þegar Gunnar Örlygsson sagði sig úr xF og gekk til liðs við xD og þannig úr stjórnarandstöðu í stjórnarflokk, úr flokki gegn kvótakerfinu, í flokk sem viðheldur því, var það í fyrsta sinn í stjórnmálasögunni sem þingmaður sagði sig úr flokki og gekk í annan, í stað þess að vera óháður fram að kosningum. Forystumenn og miðstjórn xF, þ.m.t. ég og Margrét Sverrisdóttir gagnrýndu þetta hart. Lögin eru þess eðlis þó að þetta var hægt en siðlaust var þetta samt gagnvart kjósendum xF í SV-kjördæmi.
Skv. lögum er þingmaður bara bundinn samvisku sinni og sannfæringu og sama gildir líklega um sveitastjórnarmenn (hef þó það ekki fyrir víst). Samt geta menn ekki fengið kosningu nema í gegnum flokka og flokkarnir hafa ákveðnar stefnur. Fólk kýs mikið til út á stefnurnar en einnig vegna einstaklinganna, það verður að fara saman. Lögin virðast ekki taka tillit til þessa raunveruleika eða að þau eru svona gerð vegna þess að alþingi taldi að réttindi þingmannsins til að flytja atkvæði sín með sér og fara eftir eigin sannfæringu og samstarfsmöguleikum, mikilvægari en hagsmunir flokksins (og kjósenda hans) á sínum tíma. Voru þessi lög vanhugsuð og ætti því að breyta? eða er þetta fínt eins og þetta er í dag, að kjörnir aðilar geti farið með umboð sitt og atkvæði yfir í aðra flokka að vild? Hvort á hinn kosni fulltrúi eða flokkurinn og stefna hans að njóta meiri verndar? Hvað ef flokkurinn breytti um stefnu í mikilvægu máli en fulltrúinn ekki?
Þetta eru flókin mál og ég sé ekki neina augljósa lausn í svipan. Hugsanlega má gera nákvæmari lög um þetta og reyna þannig að koma í veg fyrir að kjósendur verði sviknir. Í tilviki Margrétar sé ég ekki að kjósendur xF og óháðra í Reykjavík hafi verið hlunnfarnir nema að hún kúvendi í flugvallarmálinu sem var aðal kosningarmál flokksins. Ólafur F og hún áttu stóran þátt í því fylgi sem xF og óháðir fengu. Það er því einnig persónufylgi þarna.
Það er dapurt að sjá xF veina yfir þessu núna. Ég sat í miðstjórn xF þegar Valdimar Leó gekk til liðs við xF og þá sögðu þeir Guðjón Arnar og Magnús Þór, formaður og varaformaður (og þingflokksformaður) ekki orð um málið við Valdimar Leó. Ég var sá fyrsti sem orðaði málið við Valdimar því ég sat í stjórn SV-kjördæmis flokksins og fannst ótækt að flokkurinn tæki við honum nema að það væri í sátt við xS og að formaðurinn gerði grein fyrir því að hann hefði ekki óskað sjálfur eftir inngöngu hans. Mér fannst þetta rangt og hræsni hjá eigin flokki (sem ég er ekki í lengur) að gera enga fyrirvara á þessu. Það var þó Valdimar og síðar Kristni H til varnar að þetta var í lok kjörtímabilsins og skipti því mun minna máli. Það er því verulega siðferðislega ámælisvert af xF að fara að hnýta í Margréti núna því þeir hafa nákvæmlega ekkert gert til að bæta stöðu þessara mála t.d. með lagatillögu á alþingi. Reyndar hefur enginn flokkur gert það svo ég viti til. Það er kominn til að stjórnmálamenn hætti að væla yfir þessu en skoði málin í kjölinn og komi með lagatillögur til úrbóta ef sú er niðurstaðan.
Svanur Sigurbjörnsson, 17.10.2007 kl. 14:43
Fréttablaðið 31. maí 2006 frétt á bls .2
Sjálfstæðismenn og frjálslyndir hafa rætt sameiningu:
Tækifæri úr sögunni
,,Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, sagði á morgunvaktinni á Rás 1 að Sjálfstæðisflokkurinn hefði gert alvarleg mistök þegar hann sleit viðræðum um meirihlutasamstarf með Ólafi F. Magnússyni hjá Frjálslynda flokknum í Reykjavík
.,,Hafi Sjálfstæðisflokkurinn einhvern tíman haft tækifæri til þess að eiga einhvern möguleika á því að fá okkur úr Frjálslynda flokknum aftur inn í Sjálfstæðisflokkinn þá gekk það tækifæri úr greipum í gær,’’ sagði Magnús í gær.
Spurður af Fréttablaðinu hverjir hefðu rætt við hverja svaraði Magnús: ,,Þetta hefur oft verið sagt við okkur þingmaður á þingmann og aðeins í óformlegum samræðum. Ég var ekki að vísa til annars.’’ Hann sagði einnig að Morgunblaðið hefði bent á að Frjálslyndi flokkurinn gæti reynst Sjálfstæðisflokknum skeinuhættur. Boð um sameiningu hefði aldrei verið formlegt og ekki hugleitt af forustu Frjálslynda flokksins.
Arnbjörn Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir frjálslynda, sem og aðra sem aðhyllist stefnu flokksins, velkomna. ,,Menn ræða ýmislegt í spjallli sín á milli, en enginn minna þingmanna hefur rætt við mig um að þeir hefðu verið með sérstakar þreifingar í þessa átt. Þannig að þetta kom mér frekar á óvart, en eins og ég segi eru frjálslyndir sérstaklega velkomnir vilji þeir fylgja okkar stefnu. ‘’
P.S Hvar er þetta gert mögulegt í samþykktum Frjálslynda flokksins að hægt sé að leggja flokkinn niður til að sameina hann öðrum stjónmálaflokki í þessu tilviki Sjálfstæðisflokknum? Ég kaus Frjálslynda flokkinn í þingkosningunum 2003 hef aldrei stutt Sjálfstæðisflokkinn með atkvæði mínu allt mitt líf. Hvernig er það hægt að reyna höndla með atkvæðið mitt eftir kosningar í þessu tilviki að koma því fyrir í Valhöll ?
Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ fyrrum félagi í Frjálslynda flokknum
Baldvin Nielsen (IP-tala skráð) 21.10.2007 kl. 21:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.