Blóðug af bloggvinahreinsunum.

Úff, var að hreinsa til á bloggvinalistanum. Jamm, eyddi bara út nokkrum "bloggvinum" sem aldrei hafa gert vart við sig á síðunni hjá mér frá því þeir gerðust vinir og sumir hverjir hafa ekki bloggað í marga mánuði.

Þetta var erfitt verk - sumir vildu hreinlega ekki eyðast - ég þurfti að margsmella á "eyða" til að fá þá út. Mér leið eins og hálfgerðum morðingja meðan ég var að þessu.

En svona er lífið Crying öllu er afmörkuð stund - líka bloggvináttunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyþór Árnason

Vantar þig þá ekki nýja vini? Kveðja.

Eyþór Árnason, 3.10.2007 kl. 00:27

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég var sjúr á því að mér væri ekki hent út.  Allt er forgengilegt í heiminum, líka bloggvinir.  Ég hins vegar er svo ötull kvittari að enginn þarf að velkjast í vafa um mína vináttu.  Híhí.

Góða nót og takk fyrir daginn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.10.2007 kl. 00:43

3 Smámynd: Magnús Paul Korntop

Takk fyrir að henda mér ekki út en ég hef nú lesið þitt blogg og ekki kvittað enég hef gaman að þessu bloggi þínu og endilega haltu áfram að mata okkur á góðu bloggi.

Magnús Paul Korntop, 3.10.2007 kl. 02:41

4 Smámynd: Ester Rut Unnsteinsdóttir

hmmmm.....

Ester Rut Unnsteinsdóttir, 3.10.2007 kl. 08:54

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég lafi inni. :):) takk. Annars hef ég verið frá vegna veikinda en er nú búin að fá lapptopp aftur svo ég er með á ný.  Mig langaði að hrósa þér fyrir færsluna um piltinn sem bað þig afsökunar. Þú hefur kjark og þor kona. Enda held ég að ég hafi ekki heyrt annað en gott um þig þau ár sem þú varst á Húsavík, ég er gamall Húsvíkingur.  Kveðja vestur.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.10.2007 kl. 12:29

6 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Sýnist að ég hafi hangið inni.  Takk fyrir það

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 3.10.2007 kl. 12:55

7 identicon

Ég er ekki á þínum lista en það sér varla högg á vatni hér hjá þér

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 13:04

8 Smámynd: María Anna P Kristjánsdóttir

Ég er ekki á þínum lista,en ég er sjálf nýbúin að henda út nokkrum sem ekki höfðu eins og þú segir gert vart við sig né bloggað í marga mánuði,það er eðlilegt að láta svona vini flakka.

María Anna P Kristjánsdóttir, 3.10.2007 kl. 15:00

9 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Takk elskurnar  gott að hafa ykkur inni öllsömu. 

Eyþór og Magga, það er alltaf pláss fyrir nýja vini.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 3.10.2007 kl. 15:01

10 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Takk fyrir það Halla - þú varst örugglega ekki inni

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 3.10.2007 kl. 16:13

11 identicon

Ég gæti orðið vinur þinn en þú vilt ekki leynivini ;)

DoctorE (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 16:14

12 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Ég les þig reglulega Ólína og ætla að halda því áfram, hefi ekki enn falast eftir vináttu þinni.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 3.10.2007 kl. 19:46

13 Smámynd: Herbert Guðmundsson

Þar sem ég hef ekki fattað þýðingu þess að safna að sér "bloggvinum", skráðum með mynd eða afmynd við bloggþanka mína, spyr ég eins og álfur út úr hól: Hvaða kikk er að vera með helling af nöfnum, jafnvel umtalsverðum hluta dulnefnum og gerfmyndum sem bloggvini? Næ þessu ekki að svo stöddu.

Herbert Guðmundsson, 3.10.2007 kl. 21:21

14 Smámynd: Herbert Guðmundsson

Þar sem ég hef ekki fattað þýðingu þess að safna að sér "bloggvinum", skráðum með mynd eða afmynd við bloggþanka mína, spyr ég eins og álfur út úr hól: Hvaða kikk er að vera með helling af nöfnum, jafnvel umtalsverðum hluta dulnefnum og gerfimyndum sem bloggvini? Næ þessu ekki að svo stöddu.

Herbert Guðmundsson, 3.10.2007 kl. 21:23

15 Smámynd: Ólafur Þórðarson

"... jafnvel umtalsverðum hluta dulnefnum og gerfimyndum sem bloggvini?"

????

Ólafur Þórðarson, 3.10.2007 kl. 22:41

16 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Mikið er gaman að fá svona viðbrögð við þessari tiltekt - gott að sjá bloggvinina melda sig inn, hvern á fætur öðrum, gamla og nýja.

Herbert, það er gaman að eignast vini. Markmiðið með bloggvinalistum er í mínum huga það að vera í samneyti við bloggandi fólk sem hefur gaman að kíkja við og maður vill sjálfur kíkja á af og til. Ég veit að sumir samþykkja alla sem vilja vera bloggvinir - en mér er ekki um það. Mér er heldur ekkert um að samþykkja þá sem blogga undir dulnefnum. Geri það helst ekki nema vita hvað er á bak við. Maður hefur séð tómar síður hér á blogginu en langa bloggvinalista - og það er alltaf jafn skrýtið að verða vitni að slíku. 

Annars finnst mér það ekkert úrslita skilyrði að fólk sé alltaf að gera vart við sig (það vill auðvitað gleymast hjá mér líka) - heldur bara svona af og til. 

Svo vil ég gjarnan verða bloggvinur þeirra sem hér hafa lýst áhuga sínum að þessu sinni. Við skulum bara drífa í því

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 3.10.2007 kl. 23:17

17 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þótt verðskuldað varla nú sé,

enn vistina Meistarinn fær.

Því auðmjúkur krýpur á kné

og kyssir Ólínu tær!

Magnús Geir Guðmundsson, 4.10.2007 kl. 00:06

18 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Vandi er að meta menn

margt er villu skrefið

Það er gott að geta

gleymt og fyrirgefið

 - Snorri Helgason, 1995

Svanur Sigurbjörnsson, 4.10.2007 kl. 00:51

19 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þarna fórstu nú alveg með það Svanur minn, eftir allt orðaflæðið að ofan, er einu orði of lítið í vísunni góðu. Þér varð eftir allt saman ORÐAVANT haha!

En "enn" er nú líkast til það sem á vantaði!

Magnús Geir Guðmundsson, 4.10.2007 kl. 02:08

20 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Sæll Svanur.

Þetta er góð vísa - þó að svolítið "enn" hafi vantað í aðra línu.

Geturðu frætt mig um höfund hennar? Hver er hann?

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 4.10.2007 kl. 11:37

21 Smámynd: Svanur Sigurbjörnsson

Já kannski er ég farinn að spara orðin þegar síst skyldi

Ég skrifaði þessa vísu nákvæmlega eins og móðir mín tók hana upp eftir Snorra Helgasyni sem vann með henni í pósthúsinu Ármúla, Rvk árið 1995.  Hún skrifaði á miða að hann hefði ort hana.  Aðrar upplýsingar hef ég ekki um vísuna sem þú virðist kannast við Magnús Geir. 

Ólína - Snorri er víst bróðir listakonunnar Gerðu Helgadóttur.   Annað veit ég ekki.   Bk - Svanur

Svanur Sigurbjörnsson, 4.10.2007 kl. 15:11

22 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Ég leita þig alltaf uppi og les bloggið þitt.  Það verður spennandi að sjá nýju ljóðabókina þína.

Vona að ég geti hætt leitinni og gerst bloggvinur þinn?

Sóldís

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 4.10.2007 kl. 15:44

23 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Komdu þá fagnandi Sóldís Fjóla

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 4.10.2007 kl. 23:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband