Fyrst komi Flokkurinn - svo fólkið!

 "Ég er þess fullviss að formaður bankastjórnar Seðlabankans muni á endanum velja þá leið sem er best fyrir Sjálfstæðisflokkinn"  er haft eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra í Fréttablaðinu í dag. Ummælin hafa vakið athygli ýmissa sem vonlegt er - enda er boðskapur þeirra með ólíkindum: Fyrst kemur Flokkurinn, svo kemur fólkið!

Þannig hugsar ráðherra í ríkisstjórn lands sem stendur frammi fyrir mestu erfiðleikum sem gengið hafa yfir þjóðina um aldir: Nú ætti Davíð að gera það sem er best fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Sick

Ætli þetta hugarfar sé ekki einmitt vandi ríkisstjórnarinnar í hnotskurn.

I rest my case.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

-Nákvæmlega.

Teitur Atlason (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 10:41

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Urrrrrrrrrrrrrrrrr

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.12.2008 kl. 11:27

3 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Hjálpi mér hamingjan.  Hvar endar þetta viðbjóðslega siðleysi. Kannski ágætt að spillingarliðið sé hætt að ljúga, og segi bara sannleikann eins og hann er.  Það er ekki þjóðin og fósturlandið sem kemur fyrst, nei það er flokkurinn. Þetta minnir um margt á stjórnmálaafl nokkuð sem fannst í Mið-Evrópu á fyrrihluta síðustu aldar.  Ég fæ bara gæsahúð!

Baldur Gautur Baldursson, 5.12.2008 kl. 11:28

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ja, hérna hér, ekki var þetta gáfulega mælt.

Ásdís Sigurðardóttir, 5.12.2008 kl. 12:28

5 identicon

Ja, er þetta ekki sama manneskja og sagði að framundan væru skemmtilegir tímar fyrir sjálfstæðismenn? Þarf að segja meira?

Anna (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 12:53

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Arg, ég er komin aftur.  Hvað er að þessar bráðsnjöllu konu Þorgerði Katrínu?

Um daginn lét hún út úr sér þessa afskaplega smekklausu setningu; "Nú eru spennandi tímar fram undan hjá okkur Sjálfstæðismönnum".

Getur fólk ekki tengt út fyrir flokkshagsmunina?

Svei mér þá.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.12.2008 kl. 14:26

7 identicon

"Ég heimta allt upp á borðið í þessu máli" sagði hún reið og móðguð. Það voru snjöll ummæli. Það var nefnilega allt uppi á borðinu. 500 millj skuld var færð í einkahlutafélag og vinirnir í bankanum afléttu persónulegri ábyrgð þannig að hún þarf ekki að greiða skuld sína, öfugt við suma. Einfalt og öllum ljóst. En eftir þessi snjöllu ummæli var málið dautt.

sigurvin (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 15:14

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

"... mestu erfiðleikum sem gengið hafa yfir þjóðina um aldir ..."

Davíð er sem sagt orðinn verri en Frostaveturinn mikli og Spænska veikin 1917-1918.

En verður Davíð verri en Svarti dauði á 15. öld? Fylgist með í næsta þætti.

Sú saga fylgir frásögnum af Svarta dauða að hnerri hafi verið merki þess að fólk væri sýkt. Pestin var mjög skæð og menn hrukku óneitanlega við ef einhver hnerraði, því af einhverjum ástæðum hnerrar fólk oft þrisvar í röð. Þá var sagt við fyrsta hnerrann "Guð hjálpi þér!", við annan hnerrann "styrki þig!" og við þriðja hnerrann "og styðji!" Annað og meira var nú ekki hægt að gera.

Þorsteinn Briem, 5.12.2008 kl. 18:43

9 identicon

Fljótfær greyið.  Annars endurspegla komment sjálfstæðismanna af hreinum ótta við manninn.  Hræðslan gagnvart honum hreinlega lekur af þeim.  Samfylkinginn er föst í einhverri kví.  Einhvern tímann hefði Össur hjólað í kallinn.  Ráðherrar Samfylkingarinnar eru að lyppast niður.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 20:53

10 Smámynd: Þorsteinn Briem

Galtómt hennar gullaskrín,
með gylltri krónu þó Katrín,
kónginn krýnir,
krakkar mínir,
í bankanum sú baugalín.

Þorsteinn Briem, 5.12.2008 kl. 21:27

11 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Forgangsröð í stjórnmálum getur verið furðuleg og nú um stundir stinga svona hlutir meira í augun en áður. Það er í raun furðulegt að kona sem virðist jafn klár og ÞKG skuli hugsa svona og enn furðulegra að hún skuli segja þetta. Ég geri aðrar kröfur til kvenna með forgangsröðun svona hluta. Ekki af því að ég treysti þeim ekki, þvert á móti þá tel ég þær séu mun færari í að greina á milli þátta af þessu tagi. Þess vegna velur ÞKG mér gríðarlegum vonbrigðum. Nú á fólkið í landinu skilyrðislausan forgang og ekki orð um það meir.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 5.12.2008 kl. 23:36

12 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Guðlaugur, þá átti hún að EKKi að tala um hann sem formann bankaráðs Seðlabankans, heldur sem fyrrverandi formann flokksins. Sem seðlabankastjóri starfar Davíð fyrir þjóina.

Það er illt þegar stjórnmálamenn gera ekki greinarmun á flokknum og þjóðinni.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 6.12.2008 kl. 13:47

13 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Fyrir "þjóðina" átti þetta nú að vera (þó hitt sé kannski sannara eins og á stendur, sbr. Orðabók Menningarsjóðs um orðið "þjór").  

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 6.12.2008 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband