Fullt hús af fólki, hundum og ... ég í bloggfríi

Ég er enn í bloggfríi - þessi færsla er eiginlega bara svona ósjálfrátt viðbragð af því að ég fékk fiðring í fingurna þegar ég fór að kíkja á moggabloggið. En satt að segja hefur verið svo mikið að gera hjá mér undanfarna daga - fullt hús af fólki og hundum - og enginn tími til að skrifa bloggfærslur.

InyrriPeysu (Medium) Daði Hrafn ömmustrákur er í heimsókn með pabba sínum (honum Dodda mínum), mömmu sinni (Erlu Rún tengdadóttur minni) og heimilishundinum þeirra (henni Vöku).

Saga dóttir mín er hér líka.

Skutull0608 (Medium) Og svo má ekki gleyma nýjasti fjölskyldumeðlimnum, en það er hvolpurinn Skutull. Tíu vikna border-collie hvolpur (svona að mestu), algjört krútt. Hann á litla systur sem er algjör dúlla líka - og hana vantar sárlega heimili. Áhugasamir gefi sig fram hið fyrsta.

 En sumsé. Hér eru sem stendur sjö manns í heimili og þrír hundar. Jebb ... líf og fjör! Og ekki við því að búast að húsmóðirin sitji mikið við skriftir eins og ástatt er.

Hér sjáið þið nokkrar myndir af heimilishaldinu undanfarna daga.

P1000295 P1000465 (Medium) hundaburid (Medium) mátun (Medium) skutull08 (Medium)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég skil að þú hafir nóg að gera en ég sakna þín.  Be so sure.  Alltaf gott að vita að sumir eru ekki alveg horfnir.

Njóttu sumarsins.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.7.2008 kl. 16:35

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Sætar myndir! Komdu fljótt samt aftur, eitthvað verður maður að hafa til að lesa! Annars tek ég undir allt sem Jenný segir.

Edda Agnarsdóttir, 2.7.2008 kl. 01:27

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Nóg að gera á stóru heimili.  Njóttu þess að vera með fjölskyldunni.

Ía Jóhannsdóttir, 2.7.2008 kl. 09:47

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skemmtilegar myndir og nóg að gera.  SKutull er krútt   kær kveðja vestur.

Ásdís Sigurðardóttir, 2.7.2008 kl. 22:22

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Bestu kveðjur í bloggfríið þitt

Sigrún Jónsdóttir, 3.7.2008 kl. 01:51

6 Smámynd: Ragnheiður

Kveðja í bloggfríið þitt. Hvutti er fallegur.

Ragnheiður , 4.7.2008 kl. 09:11

7 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Nóg að stússast á stóru heimili. Guð hvað mig langar í þennan hund, en ég má víst ekki hafa hund í mínu húsnæði. Tók köttinn hennar Thelmu Ásdísar eftir svipaða fyrirspurn og finnst það líka eiginlega nóg (af hárum sko), þótt ósköp lítið fari fyrir greyinu....

Hafðu það gott í sumar með öllum þínum 

Lilja G. Bolladóttir, 4.7.2008 kl. 09:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband