Brautargengiskonan útskrifuð

ArnarfjordurAgustAtlason  Í dag útskrifaðist ég af Brautargengisnámskeiði sem Impra - Nýsköpunarmiðstöð Íslands, hefur staðið fyrir hér á Ísafirði í vetur.  Ég fékk meira að segja sérstaka viðurkenningu fyrir "bestu viðskiptaáætlunina" - og vissi vart hvaðan á mig stóð veðrið. Blush Það var óvænt ánægja og heilmikil hvatning.

Ástæða þess að ég skellti mér á þetta námskeið var sú að mig hefur lengi langað til þess að standa fyrir stofnun söguseturs eða -sýningar um Spánverjavígin 1615. Ég sé fyrir mér afþreyingarsafn og sýningu ekki ósvipaða Landnámssetrinu í Borgarnesi ásamt leiðsöguferðum um söguslóð þessara dramatísku atburða þegar héraðshöfðingjar hér vestra - með Ara í Ögri fremstan í flokki - eltu uppi Baskneska hvalveiðimenn, sem hér höfðu lent í skipstrandi, og stráfelldu þá í tveimur aðförum 1615. Þessi atburður á engan sinn líka í Íslandssögunni - og af honum má ýmislegt læra um samfélag 17. aldar, atburða- og atvinnusögu okkar, hugmyndasöguna og margt fleira. Safnið gæti öðrum þræði verið fræðasetur þar sem fræðimenn gætu dvalið til lengri eða skemmri tíma við rannsóknir sínar. Það gæti verið vettvangur menningarviðburða og menningartengsla auk þess að bjóða upp á margvíslega afþreyingu og fróðleik.

Þegar ég, fyrr í vetur, fékk svo undirbúningsstyrk úr sjóðnum Átak til atvinnusköpunar og frá félagsmálaráðuneytinu til að vinna viðskiptaáætlun, þá var að hrökkva eða stökkva.

Þannig að ég fjárfesti einfaldlega í þessu Brautargengisnámskeiði - hugsaði með mér að það gæti verið gaman að skipta aðeins um gír og læra eitthvað nýtt. Brautargengisnámskeiðin eru ætluð konum í frumkvöðlaverkefnum. Og þarna hef ég setið á miðvikudögum, ásamt tíu konum hér úr nágrenninu, og stúderað innstu rök markaðs- og rekstrarfræða, bókhalds- og fjármögnunaráætlanir. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt. Leiðbeinendur okkar hafa verið allir af vilja gerðir að aðstoða okkur og kenna - og satt að segja var þetta ný og áhugaverð reynsla fyrir mig. 

Í dag vorum við svo útskrifaðar allar saman - með ræðum, blómum, skírteinum og viðurkenningum. Halo

Með þá hvatningu í veganesti býst ég við að hóa saman hinum væntanlegu samstarfsaðilum. Og hjóla svo í sveitarstjórnirnar hér í kring, þingmenn kjördæmisins og væntanlega fjárfesta og kynna þeim áætlunina.

Nú sjáum við hvað setur. Wink


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Til hamingju!  Frábært hjá þér!

Ía Jóhannsdóttir, 13.5.2008 kl. 22:59

2 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Takk fyrir það

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 13.5.2008 kl. 23:08

3 Smámynd: Benedikta S Steingrímsdóttir

Innilega til hamingju, frábært hjá þér. Kveðja

Benedikta S Steingrímsdóttir, 13.5.2008 kl. 23:09

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Innilega til hamingju Ólína.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.5.2008 kl. 00:58

5 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Lykke til!

Heimir Lárusson Fjeldsted, 14.5.2008 kl. 09:17

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Til hamingju með þennan áfanga Ólína

Sigrún Jónsdóttir, 14.5.2008 kl. 09:45

7 identicon

Hvernig í ósköpunum er hægt að ætlast til þess að nokkur geti skilið hvað "brautargengiskona" er?

Er til "brautargengiskarl"?

Er þetta virkilega eitthvað sem sett er á CV-ið?  

Hvernig er þetta á t.d. dönsku eða ensku? Avenue walking woman? Manni er spurn ! 

Viðskrifarinn (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 15:59

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

Frábært hjá þér, Ólína! Þetta eru nú ekki ómerkari atburðir í Íslandssögunni en "Tyrkjaránið", í Eyjum og víðar tólf árum seinna. Og hægt er að líta á veru Baska hér frá mörgum fróðlegum og skemmtilegum sjónarhornum.

Hvall
ýsi frá Íslandi lýsti upp borgir Evrópu og rúmlega þrjátíu baskneskir hvalveiðimenn voru drepnir hér í tveimur aðförum, annars vegar á Fjallaskaga í Dýrafirði, og hins vegar í Æðey og á Sandeyri í Ísafjarðardjúpi í októbermánuði 1615, en þeir höfðu brotið hér skip sín. Rúmlega fjörtíu Íslendingar voru hins vegar drepnir hér í "Tyrkjaráninu" og í Eyjum er oft minnst þeirra atburða.

N
ýlega fann Ísfirðingur mannabein á Fjallaskaga og trúað gæti ég að bein þetta sé frá þessu eina fjöldamorði sem Íslendingar hafa staðið fyrir, fyrr og síðar. Ísfirðingurinn hélt hins vegar að bein þetta væri kind, þannig að ekki veitir nú af að fræða Ísfirðinga um muninn á Böskum og kindum.

http
://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/04/21/mannsbein_fannst_a_fjallaskaga/

Margir
Íslendingar eru örugglega afkomendur bæði Frakka og Baska, sem hér stunduðu veiðar. Til dæms er mamma Alexanders, ættuð úr Súgandafirði, lítil og dökk og spurð til vegar af heimamönnum þegar hún er niðri á Spáni.

Tv
ö baskneskslensk orðasöfn frá 17. öld, sem varðveitt eru á Stofnun Árna Magnússonar í Reykjavík, eru einnig skemmtilegt fyrirbæri og baskneskan er ekki skyld neinu öðru tungumáli. Franskur foie gras-bóndi gaf mér fransk-baskneskar orða- og textabækur í litlu basknesku þorpi í Pýreneafjöllunum, á landamærum Frakklands og Spánar, og ég les þessar bækur stundum mér til skemmtunar á kveldin. Nokkur töluorð í basknesku:

einn
- bat
tveir - biga
þ
rír - hiru
fjórir - lau
fimm – bortz.

Þorsteinn Briem, 14.5.2008 kl. 17:44

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

Viðskrifarinn, ég held að þú ættir að sleppa því alveg á þínu "CV" að þú kunnir íslensku og það er nauðsynlegt fyrir þig að læra hana áður en þú byrjar að gapa hér um erlend tungumál og þýðingar. "Brautargengi" þýðir til að mynda "liðveisla" og "Impra" merkir til dæmis að vekja, örva eða hressa: "Impra eitthvað upp".

Þorsteinn Briem, 14.5.2008 kl. 17:58

10 identicon

Ef orðið "brautargengiskona" er t.d. sett í leitarvélina "Google" þá kemur upp ein ábending; .. hún er þessi:

Valgerður Sverrisdóttir < Fyrri ráðherrar < Ráðherra ...

Sif Traustadóttir dýralæknir og Brautargengiskona má ég biðja þig að koma hér upp og taka á móti viðurkenningu fyrir berstu viðskiptaáætlunina. ...
www.vidskiptaraduneyti.is/radherra/raedurVS/nr/1959 - 19k - Afrit - Svipaðar síður

Til þess að birta þær niðurstöður sem helst koma til greina höfum við sleppt nokkrum niðurstöðum sem voru mjög svipaðar þeim 1 sem þegar eru birtar.
Ef þú vilt, geturðu endurtekið leitina með þeim vefsíðum sem sleppt var.

Er nema von að ekki sé hægt að gera sér nokkra grein fyrir því hvað þetta er fyrir nokkuð "almennt og yfirleitt"? 

Viðskrifarinn (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 19:02

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Innilega til hamingju með þennan áfang, þú ert nú eldklár kona Ólína mín svo það kemur mér ekkert á óvart að þú hafir fengið sérstök veðlaun.   #1 Trophy 

Ásdís Sigurðardóttir, 14.5.2008 kl. 20:36

12 Smámynd: Þorsteinn Briem

Í Viðskrifara víðáttu er él,
viðundur flárátt með stél,
hann fer brátt í hakkavél,
með hausinn smátt í mél.

Þorsteinn Briem, 14.5.2008 kl. 22:32

13 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Bestu þakkir fyrir góðar kveðjur þið öll.

Hvað er "brautargengiskona" spyr Viðskrifarinn. Svar: Það er svona kona sem útskrifast af Brautargengisnámskeiði hjá Nýsköpunarmiðstöðinni Impru.  Ef karlmaður færi á slíkt náskeið - þá væri hann að sjálfsögu brautargengiskarl.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 16.5.2008 kl. 01:18

14 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Námskeið átti þetta nú að vera.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 16.5.2008 kl. 01:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband