Blaut Hróarskelduhátíð

Roskilde07 Myndirnar frá Hróarskelduhátíðinni minna mig óþyrmilega á ömurlega unglingahátíð í Þjórsárdal, margt fyrir löngu. Mér er óskiljanlegt hvernig fólk getur skemmt sér við svona aðstæður.  Það hlýtur að vera mikill tónlistaráhugi sem rekur fólk til út í vosbúð og vatnselg af þessu tagi - djúp aðdáun á þeim sem troða upp - og svo eitthvað sem slævir skynjunina, hvort sem það er nú í fljótandi formi eða þurru.

Það fer um mig að horfa á fólk vaða foraðið og telja sjálfu sér trú um að þetta sé gaman. Úff!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ef fólk vissi að hátíðin yrði ötuð aur frá toppi til táar sex mánuðum fram í tímann, myndu sennilega fáir kaupa miða, en...af hverju ekki taka sjénsinn? Veður er ekkert sem neinn getur stjórnað. Það er dagskráin sem trekkir. Ekki svona "gammeldags". 

Halldór Egill Guðnason, 9.7.2007 kl. 01:38

2 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Vel mælt, piltar - ég er bara fegin að ég var ekki þarna (og enginn af mínu fólki að þessu sinni)  :)

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 9.7.2007 kl. 14:30

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Eða á Skaganum, segðu. Fuss, ekki þurfti bleytu þar.

Halldór Egill Guðnason, 9.7.2007 kl. 15:34

4 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Hún hefur verið blaut að innan sem utan

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 9.7.2007 kl. 17:17

5 Smámynd: Georg P Sveinbjörnsson

Var á Hróarskreldu 1991 sem var álíka blaut og þessi og með þrumum og eldingum að auki. Einhvernvegin skemmti maður sér samt konunglega, það var reyndar til mikilla bóta að við vorum ekki í tjaldi heldur með sumarbhústað skammt frá á leigu og á bílaleigubíl. Lentum reyndar í miklum vandræðum með að komast af bílastæðinu eins og margir í ár vegna aurbleytu, en það hafðist með þrautsegju og aðstoð : )

Georg P Sveinbjörnsson, 9.7.2007 kl. 18:13

6 identicon

Ég hef farið 2 svar á Hróarskeldu og þá var fínt veður en eg verð að segja að í dag myndi ég fara á hróarskeldu og vera á hóteli ekki i tjaldi!! Tónlistin er að sjálfsögðu frábær og ekki oft sem fólk fær tækifæri til að sjá svona marga frábæra listamenn koma saman svo það er alveg þess virði.. Og krakkarnir þarna eru mikklu betur stemdir þó það sé rigning heldur en td krakkarnir á íslandi um verslunarmanna helgi það er alvöru sjúsk..

Elín (IP-tala skráð) 10.7.2007 kl. 00:46

7 identicon

Var á Roskilde Festival og thad var frábært og eiginlega best medan ad rigndi sem mest á fimmtudeginum. Stemningin svo gód og allir hlæjandi af hvor ödrum í rigningunni. Um leid og madur sættir sig vid ad vera blautur og medan ekki er svo kalt tha er thetta ekkert mal. Held ad Bjarkartónleikarnir á fimtudeginum muni verda lengi í minnum margra Roskildegesta, ekki síst vegna rigningarinnar.

 Roskilde snist um ad vera saman og tólistin eiginlega ekki adalatridid. En svo má ekki gleyma ad thad er umtalsvert hlýrra heldur en er venjulega á thjódhátíd í Vestmannaeyjum og umtlasvert minni vindur, svo thetta er ekki nærri thví eins slæmt og thetta lítur út á myndunum.

Hedinn fra Danmorku (IP-tala skráð) 11.7.2007 kl. 11:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband