Þreyttir þingmenn takast á um Icesave

Það var kominn hálfgerður svefngalsi í þingheim seint í gærkvöldi þegar Icesave umræðan hafði staðið allan liðlangan daginn. Trúlega mun umræðan halda áfram framyfir helgi, enda augljóst að fólki liggur margt á hjarta.

Í gærkvöld hitnaði vel í kolum um tíma. Ég átti m.a. í snarpri orðræðu við nokkra þingmenn stjórnarandstöðuna eftir mína ræðu seint í gærkvöld. Í máli mínu minnti ég á meinsemdir þær sem herjað hafa  og munu áfram herja á íslenskt samfélag, nema menn læri af reynslunni og hafni þeirri skefjalausu frjálshyggju sem riðið  hefur yfir þjóðina eins og holskefla. Þetta sveið sjálfstæðismönnum og aðrir stjórnarandstæðingar blönduðu sér líka í umræðuna.

Umræðurnar getur fólk séð á þessari slóð hér.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú hefur ekki lent í Röggu Rikk?

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 21.8.2009 kl. 14:25

2 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Lenti ég í henni víst

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 21.8.2009 kl. 14:50

3 Smámynd: Guðl. Gauti Jónsson

Fín ræða.

Ég hlustaði á upptökurnar og langar að spyrja: Eru menn nokkuð á fylliríi í þingsalnum? Hegðun manna, sumpart í pontu en þó aðalega úti í sal, getur endregið bent til þess að svo sé.

Guðl. Gauti Jónsson, 21.8.2009 kl. 17:20

4 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Eigi veit ek þat svo gjörla ... en  hitt veit ég að menn voru orðnir bæði þreyttir og einbeitingarlausir þarna í lokin.

Annars eru framíköll í þingsalnum farin að verða svo skefjalaus á stundum, að það er farið að setja leiðinlegan svip á þinghaldið.  Stundum geta framíköll verið skemmtileg, ef um er að ræða leiftrandi húmor í einni og einni athugasemd.

En því miður þá er þetta oftast bara  andlaust tuð og hávaði sem ekki myndi líðast í neinni skólastofu.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 21.8.2009 kl. 20:53

5 Smámynd: Guðl. Gauti Jónsson

Þingmönnum, þessum sem gjamma fram í ekki síður en öðrum, er tamt að tala um virðingu Alþingis. Samkvæmt minni bók eykur þetta hemjuleysi ekki á hana. Þvert á móti. :(

Guðl. Gauti Jónsson, 21.8.2009 kl. 23:00

6 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Sammála.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 22.8.2009 kl. 00:24

7 Smámynd: Magnús Óskar Ingvarsson

Góð ræða Ólína.

Sammála þér um það að Alþingi setji niður við frammíköll og almenna ókurteisi í garð þess sem orðið hefur hverju sinni. En þetta er ekki nýtt þó að það sé vissulega að færast í vöxt á seinni árum finnst manni. Það er í eðli sínu mótsögn þegar þingmenn sem stunda frammíköll fara fram á að virðing sé borin fyrir störfum Alþingis. 

Magnús Óskar Ingvarsson, 22.8.2009 kl. 06:24

8 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Fín ræða Ólína

Skil ekkert í sveitunga mínum RR að reyna að halda því fram að Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki hin versta pest og öllum meinsemdum verri

                      Mbk, G

Gunnlaugur B Ólafsson, 22.8.2009 kl. 10:52

9 Smámynd: Katrín

Gaf mér tíma í morgun til að horfa og hlusta á þessar umræður og verð að segja að ég get ekki séð að virðing Alþingis hafi beðið hnekki.  Mér sýndist þú koma ágætlega frá þínu sem og gagnspyrjendur þínir og hafði bara gaman af.  Það er ekkert að því að menn brosi úr ræðustóli, henti gaman eða séu með frammíköll..það er þó líf í sölum Alþingis!

Það er þó ekki svo að virðing Alþingis hafi ekki beðið hnekki í áranna rás því það hefur það svo sannarleg gerst.  Það gerðist þegar Alþingi gaf eftir löggjafarvaldið í hendur ríkjandi ríkisstjórnar fyrir margt löngu.  Skiptir engu máli hvaða flokkar hafa haldið um valdataumana, ríkistjórnin hefur haft öll tögl og hald og alþingismenn einungis þjónar þeirra.  Þarna dugar ekki að benda á einn flokk og segja allt sé honum að kanna, þarna eru það allir flokkar sem bera sök.

Og í lokin þá vil ég í allri vinsemd benda á að þegar regluverk EES ( ESB) varðandi eftirlit með fjármálastofnunum var samþykkt á hinu háa Alþingi kom fleiri en einn flokkur að þeirri samþykkt. Og ég er þess fullviss að þeir sem greiddu þeirri tilskipun atkvæði sitt gerðu það í góðri trú um nauðsyn og gildi þess...og enginn og ég ítreka enginn stjórnmálamaður ætti að ætla öðrum kollega sínum að hafa haft annað að leiðarljósi. 

Katrín, 22.8.2009 kl. 11:36

10 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Ekki ætla ég nú að ganga svo langt að kalla sjálfstæðisflokkinn "hina verstu pest" - en skefjaleysið í þeirri frjálshyggju sem sá flokkur hefur innleitt í íslenskt samfélag er engu að síður alvarleg meinsemd, eins og staða okkar ber ótvírætt vitni um.

Kata, ég er sammála þér varðandi þetta með ráðríki framkvæmdavaldsins - Alþingi á ekki að láta það yfir sig ganga að vera afgreiðslustofnun fyrir framkvæmdavaldið, hverjir svo sem sitja í ríkisstjórn hverju sinni. Það grefur alvarlega undan (sjálfs)virðingu þingsins og stjórnarskrárbundnu hlutverki þess.

Við vinnum öll eftir bestu vitund, það er engin spurning, enda myndi ég aldrei saka nokkurn stjórnmálamann um að grafa vísvitandi undan hagsmunum þjóðarinnar. Höfum það alveg á hreinu. En stjórnmálamenn eiga að læra af mistökunum og gangast við þeim.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 22.8.2009 kl. 14:41

11 Smámynd: Katrín

Eru þingmenn ábyrgir ef lög sem þeir hafa tekið þátt í að setja eru brotinn?  Eru stuðningsmenn frelsis til orðs og athafna sekir ef aðrir misnota frelsið?  Hver svarar fyrir sig en eitt er þó víst að eftirlit með frelsinu brást.

Það er mannlegt að gera mistök og heiðarlegt að gangast við þeim, við erum sammála um það. Og þar sem ég var að horfa og hlusta á umræðurnar sem þú vísar í þá verð ég að segja að það ætti þingmaðurinn Sigmundur Ernir einnig að gera.  Það voru mistök hjá honum að taka þátt í umræðum á Alþingi þetta kvöld.  Nú reynir á hvort hann sé heiðarlegur.

Katrín, 22.8.2009 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband