Látum ekki æsingafólk hindra friðsamleg mótmæli

motmaeli Þessa dagana eru sjálfsagt margir hikandi við að taka þátt í mótmælum af ótta við ryskingar og ófrið eins og urðu á gamlársdag. Það væri þó afar slæmt ef nokkrir hávaðaseggir yrðu til þess að hrekja fólk frá því að nota lýðræðislegan rétt sinn til friðsamlegra mótmæla.

Ég vil að minnsta kosti ekki láta æsingalið sem vinnur eignaspjöll og meiðir fólk ráða því hvort ég sýni hug minn í verki. Sem betur fer sýnist mér fleiri sömu skoðunar því enn mætir fólk á Austurvöll í þúsunda tali.

Fyrsta mótmælastaðan á Ísafirði átti sér stað í dag, og mættu á annað hundrað manns sem tóku sér mótmælastöðu á Silfurtorginu klukkan þrjú. Það verður að teljast góð mæting í ljósi þess hvernig til mótmælanna var stofnað. Engin formleg fréttatilkynning, engin auglýsing - heldur sms-skeyti, símtöl, tölvupóstar og blogg.

Ætlunin er að mæta framvegis vikulega klukkan þrjú á Silfurtorgi. Kannski verður einhver dagskrá næst - það var ekkert slíkt að þessu sinni. Bara þögul mótmælastaða. Ég hef fulla trú á því að þetta sé upphafið að öðru og meiru.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Ólína ég var með mína myndvél vitni að atburðum við Hótel Borg fyrir netfréttamiðilinn Nei, og bið þig að kynna þér það sem ég hef haft um það að segja á bloggi mínu í tveimur  síðustu færslum.

-

- Það er beinlínis ragt að klína því á mótmælendur að vera skemmdarvargar og hvað þá verra. - Þvert á móti hef ég undrast mest hve skýrt þetta unga fólk hefur haft sínar línur á hreinu þó ég sjálfur hefði dregið sumar með öðrum hætti, og hve agað það er við að halda sér við línurnar sínar.

-

Það sást líka best hve í reynd agaðir og yfirvegaðir mótmælendur voru þegar þeir bræður Guðmundur svæfingalæknir og Ólafur Klemensson hagfræðingur  Seðlabankans gengu um og reyndu að espa mótmælendur til að slást við sig að þeir fengu engan mann til rétta sér eitt högg til varnar. Ég horfði á mennina hrópa að þjáðu fólki liggjandi á stéttinni þar sem sjúkraliðar hlúðu að þeim „gott á ykkur aumingjar“.

-

Þá hafa fleiri rúður verið brotnar hjá Evu Hauksdóttur en þúsundir mótmælenda við ýmis tækifæri hafa asnast til í  13 vikur. - Hvað segir það okkur ekki um stillingu mótmælenda og meðvitund um skýrar línur (fram til þessa).

-

- Ég hef líka séð meiru logið í fréttaflutningi Stöðvar2 af atburðum og en nokkru sinni fyrr.  - Þóra Kristín á Mogganum (Mbl.is)  með upptökutökumanni sínum hefur hinsvegar staðið sig afbragðs vel.

Helgi Jóhann Hauksson, 3.1.2009 kl. 18:54

2 Smámynd: Katrín

æ ekki meir af innantóm slagorðum og gífuryrðum. Þögnin er gulls ígildi og á svona stundum segir hún meira en mörg orð

Katrín, 3.1.2009 kl. 20:05

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Þögul mótmæli.  Þetta ættu fleiri að taka til fyrirmyndar. 

Ía Jóhannsdóttir, 3.1.2009 kl. 20:19

4 identicon

Gaman að frétta af þessari góðu þáttöku í faðmi fjalla blárra. Á annað hundrað manns á Ísafirði er bísna hátt hlutfall af bæjarbúum.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 21:03

5 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Helgi Jóhann, takk fyrir að vekja athygli mína á þinni frásögn af því sem gerðist á Hótel Borg á Gamlársdag. Ég fór á síðuna þína, las hana og skoðaði myndskeiðin. Þetta er athyglisvert.

Ég get þó ekki leynt því að fréttamyndir af mótmælaryskingum undanfarnar vikur hafa vakið mér ugg í brjósti - sérstaklega að sjá grímuklætt fólk sem hefur látið ófriðlega.  Myndskeiðið af framkomu Ólafs Klemenssonar og Guðmundar svæfingarlæknis sem gengur nú ljósum logum á netinu hefur sömuleiðis valdið mér óhug.

Það er einmitt svona framkoma sem setur blett á hvern þann málstað sem barist er fyrir.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 3.1.2009 kl. 21:13

6 identicon

Gott að þetta fór vel og friðsamlegra fram og engir svartir sauðir í ykkar mótmælendafé.  Helgi Jóhann.  Flest vitiborið fólk lítur ekki á alla mótmælendur sem óreirðarseggi.  Ögrun Klemenssyna var hvorki þeim né öðrum til eftirbreytni.  Þeirra markmið var að æsa og það hefur þeim tekist heldur betur.  Spurning um að gefa þeim aðeins minni athygli í bili.  Það þola þeir og aðrir af svipuðu sauðahúsi, illa.  Pössum okkur á að lenda ekki í svart/hvítum umræðum.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 21:17

7 Smámynd: Sævar Helgason

Myndbandið sem birst hefur í tengslum við mótmælin við Hótel Borg á gamlársdag-segir margfallt á við sagðan texta, frá þessum atburðum. Hlutur þessara "hámenntuðu" bræðra sem við sögu koma er þeim til háborinnar skammar og vanvirðu- og mun lengi loða við ímynd þeirra- ekki síst í þeim opinberu störfum sem þeim er trúað fyrir.  Svo augljóst er að tilgangur þeirra er að stofna til illinda- væntanlega síðan til að sverta hina friðsömu mótmælendur- að koma óorði á mótmæli borgaranna. Kvikmyndatakan- var þeim að falli.

Mótmælastaðan á Austurvelli í dag (3.jan.) var mjög fjölmenn og  öllum til sóma- þó var þarna einn , tæplega sextugur maður , með gott skilti-en sjálfur með öflug varnargleraugu og peysukraga upp að augum- greinilega tilbúinn í bardaga- ótrúlega á skjön við umhverfið þarna. 

Sævar Helgason, 3.1.2009 kl. 21:57

8 identicon

Hvaðan kemur sú hugmynd að hópar sem beita beinum aðgerðum fæli fólk frá þátttöku í hefðbundnum útifundum? Eru þess einhver dæmi frá öðrum löndum að mótmæli leggist af eftir harðar aðgerðir?

Dettur einhverjum í hug í alvöru að fólk sem er svo hikandi í afstöðu sinni að það skipti um sannfæringu vegna þess að einhver sýndi hegðun sem er meðalmanninum ekki að skapi, eigi yfirhöfuð eitthvert erindi á mótmælafund, svo maður tali nú ekki um kjörstað?

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 22:20

9 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Sæl Eva.

Þetta snýst ekki um að skipta um sannfæringu eða breyta skoðun, heldur hitt hvaða aðferðum maður vill beita til að koma skoðun sinni á framfæri. Þú notar pent orð "beinar aðgerðir". Þær "beinu aðgerðir" sem við höfum séð í sjónvarpinu eru m.a. fólk með hníf eða grjót í hönd, grímur fyrir andlitum, hnefahögg og ryskingar. Sú aðferðafræði sem hefur leitt til þessara ryskinga fælir friðsamt fólk frá - þó málstaðurinn sé sá sami (að minnsta kosti í orði kveðnu).

Ég myndi frekar vilja sjá friðsama hópinn ráða ferðinni heldur en þessa fáu sem hafa hleypt öllu upp. Þeir síðarnefndu hafa skaðað málstaðinn vegna aðferðanna - því miður. Og ég finn það hjá sjálfri mér að þessar uppákomur hafa haft áhrif. Og ég er ekki ein um það.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 3.1.2009 kl. 22:59

10 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Þú mátt svo velta því fyrir þér hvort ég eða mínir líkar eigum yfirleitt erindi á kjörstað - eins og þú orðar það. En það er mikið oflæti fólgið í þeim orðum þínum. Satt að segja finnst mér sú afstaða sem þar kemur fram vera áhyggjuefni.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 3.1.2009 kl. 23:03

11 identicon

Ég held ekki að þú sért í þeim fámenna hópi sem situr heima vegna þess að fólk sem kemur þér ekki við brýtur rúðu eða gerir eitthvað annað sem þú myndir ekki taka þátt í. Ég held að þeir sem láta slíkt fæla sig frá séu bæði fáir og hafi veika sannfæringu ef nokkra.

Hvað hefurðu fyrir þér í því að mótmælaaðgerðir sem þér finnst fara yfir strikið, fæli almenna borgara frá því að mótmæla á sinn hátt? Hafa friðargöngur, ræðuhöld og undirskriftalistar lagst af í löndum þar sem óeirðir eru tíðar?

Hvað grjót og hnífa varðar þá hef ég séð eitt myndskeið þar sem hnífur var notaður sem verkfæri en ekki vopn. Hnífur er ekki vopn nema hann sé notaður til að ógna eða meiða, ekki frekar en kyndill.

Grjótkastið skelfir mig. Mér finnst hinsvegar athyglisvert að engin vitni virðast hafa orðið að þessu grjótkasti,  enginn hefur verið handtekinn í tengslum við málið, engar myndir hafa birst hvorki af atvikinu né áverkanum og ekki hef ég séð blogg frá neinum vini eða ættingja þess sem fyrir varð. Ég held ekki að sagan sé tómur uppspuni en getur verið að eitthvað hangi á spýtunni sem ekki þykir vert að komist í hámæli?

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 3.1.2009 kl. 23:32

12 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Það er vel hugsanlegt Eva, að eitthvað fleira hangi á spýtunni. En eins og þetta lítur út í augnablikinu þá eru mótmæla-aðferðirnar orðnar umdeilanlegar svo ekki sé meira sagt.

Það sem ég hef fyrir mér í því að fólk hörfi frá vegna æsingsins sem er hlaupinn í þetta upp á síðkastið eru vitnisburðir fólks sem ég hef talað við - fólks sem var búið að mæta á nokkra fundi á Austurvelli þegar æsingurinn hófst, og hætti þá að mæta. Eða hefurðu ekki tekið eftir því hver fólki hefur fækkað á Austurvelli síðustu vikurnar?

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 4.1.2009 kl. 19:45

13 identicon

Fólki fækkar á Austurvelli og ekki er ég hissa á því. Meira að segja ég, sem hef þó mætt á meirihluta allra opinberra mótmæla- og samstöðufunda sem auglýstir hafa verið, í mörg ár, er hætt að nenna þessu. Ég mæti ennþá en ekki af áhuga heldur eingöngu af skyldurækni. Held að minnkandi mæting eigi sér margar og mun betri skýringar en aðgerðir annarra en þeirra sem skipuleggja þá fundi. T.d:

-Nýjabrumið er farið af og rútína er bara ekki spennandi.

-Í desember var skítakuldi (og rigning síðasta laugardag).

-Í desember voru jól og fólk því í öðrum hugleiðingum og önnum.

-2 fundanna fólust í því að halda kjafti og það getur fólk alveg eins gert heima hjá sér.

-Það þarf ekki fleiri ræður til að menn átti sig á því hvað er um vera, því þótt margir góðir ræðumenn hafi komið fram þá hafa þeir ekkert nýtt að segja, ástandið er það sama, kröfurnar þær sömu og fyrir 3 mánuðum.

-Þessir fundir hafa ekki skilað neinum árangri öðrum en þeim að sýna fram á að allt að 7000 manns, nenni að rísa upp úr sófanum og fórna klukkutíma af lífi sínu fyrir málstaðinn. Til samanburðar mættu 60.000 manns í gay-pride gönguna.  

-Þessir fundir trufla engan og eru þar af leiðandi ekki líklegir til að hafa nein áhrif í framtíðinni heldur.

Vel má vera að þeir sem nenna ekki að standa í þessu, noti það sér til afsökunar að það fari fyrir brjóstið á þeim að verða vitni að eggjakasti, því það eru nú allar óeirðirnar sem hafa farið fram á Austurvelli á laugardögum. Það hefur gerst í lok fundar, þannig að hinir vammlausu góðborgarar ættu þó nokkuð auðveldlega að geta svarið slík skrílslæti af sér, ef það er virkilega það sem þeir eru hræddir við. En að Íslendingar, ólíkt öllum öðrum þjóðum veraldar, muni leggja niður hefðbundin mótmæli bara af því að aðrir þegnar samfélagsins eru ekki tilbúnir til að halda áfram mánuðum saman að biðja ráðamenn kurteislega að víkja, því hef ég enga trú á. 

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 4.1.2009 kl. 23:27

14 identicon

Mótmælendum fækkaði yfir jólin en er að fjölga aftur. Á síðasta útifundi var tvöfalt meiri fjöldi en viku áður. Ég sá engan kasta neinu í alþingishúsið. Fólk hefur áttað sig á að slíkt er blásið upp og notað til að koma óorði á mótmælin og draga athyglina frá kjarna málsins.

Eitt er víst að þeir sem heima sitja munu njóta góðs af árangri mótmælenda. Það er ekki nýtt í þessum heimi að láta aðra vinna fyrir sig "skítverkin" og þyggja afraksturinn.

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 4.1.2009 kl. 23:46

15 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Það er nokkuð til í því Húnbogi, enda stundum sagt: ,,Fáir njóta eldanna sem fyrstir kveikja þá.''

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 5.1.2009 kl. 19:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband