Úrræðaleysi í Rimaskóla

barnaleikir Skólabyrjunin virðist hafa komið Reykjavíkurborg og stjórnendum Rimaskóla alveg í opna skjöldu, ef marka má þessa frétt. Að minnsta kosta var frístundahúsnæðið sem ætlað var dagvistun barnanna ekki tilbúið. Móðir sjö ára barns stóð bara á tröppunum og fékk ekki umsamda gæslu. Woundering Helmingi húsnæðisins hefur nefnilega verið lokað vegna tilmæla heilbrigðiseftirlitsins  og endurbæturnar munu taka "fjórar vikur" héðan í frá. Það var þá tíminn til að hefja endurbætur, nú þegar sumarleyfum er lokið og skólahúsnæðið á að vera komið í notkun. 

Umrædd móðir fékk engan fyrirvara.  „Ég hef engan tíma til að gera aðrar ráðstafanir, börn á þessum aldri geta ekki verið ein heima,“ segir hún.

Hverskonar stjórnsýsla er þetta eiginlega? Hvað ætluðust stjórnendur til að yrði um börnin? Hvar er  nú sambandið og samráðið milli heimilis og skóla?

Forstöðumaður æskulýðssviðs ÍTR sem hefur með þetta að gera hjá borginni slær úr og í í samtali við mbl.is. Segir að viðgerðirnar á frístundaheimilinu orsaki ekki plássleysið.  Þó kemur fram að „tvær af fjórum stofum verða teknar til viðgerða í senn og mun þetta taka samtals um fjórar vikur“. Sko, aðalvandinn er nefnilega mannekla - það er sko ekki heldur búið að manna störfin. Shocking

 Á meðan bíða 50 börn eftir að komast í þessa vistun.

 I rest my case.


mbl.is Lyklabörn vegna manneklunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hverskonar stjórnsýsla er þetta eiginlega? Hvað ætluðust stjórnendur til að yrði um börnin? spyrð þú,  ég hins vegar vil spyrja hvað ætlast forledrar til með börnin sín??? gleymdist að gera ráð fyrir þeim í lífinu??  það finnst mér eðilegri spurning.

(IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 08:51

2 identicon

Á Akureyri hefur þessum biðlistum verið eytt. Þetta sýnir metnaðarleysi þeirra sem stjórna borginni.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 09:02

3 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Sigurlaug - ég á ekki orð yfir þessa röksemd þína. Lastu ekki fréttina? Þar kemur fram að foreldrar höfðu ekki hugmynd um að vistunin væri þeim lokuð.

Vistun barna -  hvort sem það er í leikskóla eða grunnskóla - er þetta eðlilegr og sjálfsögð þjónusta í  nútímasamfélagi. Það segir sig sjálft að börn þurfa vistun og viðurværi meðan foreldrarnir afla lífsbjargar. Enginn lifir á loftinu og einhversstaðar þurfa börnin að vera meðan fólk er í vinnu.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 27.8.2008 kl. 09:26

4 identicon

Ólína mín,´jú ég las fréttina, en hvernig getur einhver gefið sér það að fá pláss, það segir í fréttini að hún hafi ekki verið búin að fá svar, sem þíðir  í mínum kokkabókum yfirleitt að plássið er ekki fyrir hendi. Þetta er nú ekkert nýtt í henni Reykjavík miðað við fréttir undafarinna ára og jafnvel tugi ára ,og á ekki að koma neinum á óvart.  Mín skoðun er sú að ef þú ætlar að eiga börn að þá þarf að gefa sér tíma til að hugsa um þau og það meira en milli 5 og 7 en þannig er staðan í dag, finnst þér það nægur tími fyrir börnin??? og það eru hreint alls ekki allir foreldrar sem þurfa þessa þjónustu til þess að afla sér lífsviðurværis eins og þú segir. Maðurinn minn er bæjarstarfsamaður og allir vita að ekki eru það há laun og ég vinn 40-60 % vinnu og er algjörlega ófaglærð sem þíðir auðvitað ekki há laun,  og ég tók mér 2-3 ára fæðingarorlof, en ef maður vill eiga börn þá þarf maður að forgangnsraða og ég vinn ekki í dag eftir að skóladegi líkur hjá þeim yngsta (9 ára) það þarf því engin að segja mér hvað við getum eða getum ekki, þetta er spurning í hvaða sæti við setjum börnin okkar. Í þessu verða hjón að vera samstiga, en svo eru einstæðir foreldrar allt annar pakki. Við skulum líka átta okkur á því að heimilisreikningurinn lækkar til muna þegar annað foreldrið er heima en það er efni í annan pakka. Fyrigefðu hvað þetta varð langt hjá mér 

(IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 09:52

5 Smámynd: Halla Rut

Rétt hjá Gísla: "Þetta sýnir metnaðarleysi þeirra sem stjórna borginni."

Það var hringt í mig á laugardaginn og ég látin vita að sonur minn fengi ekki inni á frístundarheimilinu. Ég hafði samt fengið áður svör þar sem var ítrekað við mig að hann kæmist 100% inn og ég ætti ekki að hafa neinar áhyggjur. Þau voru búin að vita þetta í allt sumar. Þetta er algjör vanvirðing við okkur og raskar auðvitað öllu hjá okkur svo ég tali ekki um vinnutapið. 

Hvað ætli borgin spari sér mikið á því að veita ekki þá þjónustu sem það er lagalega skyldugt til að veita?  Nú spara þeir sér mánuð eða meira á 1700 börnum svo þeir hljóta að geta nýtt þá peninga til að hækka launin svo einhver fáist í þetta.

Halla Rut , 27.8.2008 kl. 10:16

6 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Það vantar fólk í störfin en engu að síður er verið að tala um að nauðsynlegt sé að skapa störf við virkjanaframkvæmdir og stóriðju. Er ekki einhver mótsögn þarna? Eða halda yfirvöld að hver sem er gangi í hvaða starf sem er?

Lára Hanna Einarsdóttir, 27.8.2008 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband