GSM-samband á Ströndum - en hvað með Ísafjarðardjúp?

gjogurbryggja "Ekkert minna en bylting hefur orðið í útbreiðslu GSM-sambands á Ströndum og á siglingaleiðum og miðum á Húnaflóa eftir að Vodafone kveikti á langdrægum GSM-sendi á Steinnýjarstaðafjalli ofan við Skagaströnd" segir á fréttavef Strandamanna nú um helgina. Þeir eru harla kátir yfir þessu Strandamenn, sem vonlegt er. Við þetta kemur inn GSM-samband víða á Ströndum þar sem sjónlína er yfir á Skaga. Sendirinn dregur um 100 km en um 50 km eru í loftlínu frá Skagaströnd að Gjögri.

Gott - ég óska Strandamönnum til hamingju.

En hvenær skyldi röðin koma að Ísafjarðardjúpi sem enn er sambandslaust að mestu? Nýlega fór þungaflutningabíll þar út af fyrir skömmu í vonskuveðri. Ökumaðurinn vissi ekki hvar hann var staddur, svo mikill var snjóbylurinn. Hann taldi það guðsmildi að hafa þó náð símasambandi. Venjulegur farsími hefði ekki náð sambandi á þessum slóðum. Komið hefur fyrir að bílar hafa lent í óhöppum þarna og farþegar og ökumenn þurft að bíða tímunum saman eftir aðvífandi aðstoð, vegna þess að ekki er hægt að hringja eftir hjálp.

Ekki er ýkja langt síðan bæjarstjórinn í Bolungarvík mátti dúsa dágóða stund með börn í aftursætinu hjá sér eftir bílveltu á Steingrímsfjarðarheiði - hann náði ekki farsímasambandi - og því hreinasta mildi að ekki höfðu orðið umtalsverð slys á fólki við óhappið. 

Þetta er umhugsunarefni fyrir alla þá sem málið varða: Fjarskipafyrirtæki og -yfirvöld.

 *

PS: Ég tók mér það bessaleyfi að birta þessa mynd af strandir.is - það fylgir því miður ekki sögunni hver tók hana.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æi, gott að einhverstaðar skuli hægt að vera í friði og ró. Þetta er að vera plága, þessi ofnotkun á GSM. dag og nótt.

Og ekki friður á kvöldin eða um helgar. Hvað þá vinnufriður.

Góðir hlutir og nytsamlegir, verða að andstæðum sínum, með rangri notkun.

En í Ísafjarðardjúpi er síma eða talstöðvarsamband nauðsyn.

En hvernig er með NMT-símanna. Er ekki sambandið þar í lagi, fyrir þá.

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 14:01

2 Smámynd: Sveinn Hjörtur

Sæl. Félagi minn á sér friðarstað í Djúpinu, nálægt æskustöðvum Kaldalóns. Fyrir utan alla fegurðina og þetta stórkostlega landslag, er oft gott að fá frið.

Ég verð að segja eins og er að það er hreint ótrúlegt að ekki sé farið hraðar í það að GSM samband sé um ALLT land. NMT kerfið er að deyja og í raun ekkert sem hefur tekið við. Því eiga stjórnvöld að leggja enn frekari vinnu í það að farsímavæða landið. Það er okkur öllum til heilla.

É g veit ekki hvað það er sem er að gerast hjá mér, en í auknu mæli er ég farinn að finna fyrir því hvað landsbyggðarfólk býr oft við skelfileg kjör á margan hátt, þá í formi samgangna, matarverðs og fl.  Svo er ég borgarpjakkurinn að kvarta ef ég næ ekki í bíó á réttum tíma vegna smá snjófalar á leiðinni! Kannski er það Framsóknarhugsjónin sem enn frekar herjar á mig. Ef svo er þá er það baaaaara gott.

Kveðja,

Sveinn Hjörtur , 3.2.2008 kl. 15:44

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Kær kveðja vestur með von um að samband komist á sem fyrst.   Telephone  Telephone Cell Phone 4 

Ásdís Sigurðardóttir, 3.2.2008 kl. 16:02

4 Smámynd: Theódór Norðkvist

Eins og kortið frá Jóni Frímanni gefur til kynna er aðallega farsímasamband á annesjum í Ísafjarðardjúpi og það passar við mína reynslu, þegar ég hef verið að keyra vestur.

Síðan eru nokkur svokölluð GSM-útskot hér og þar í djúpinu, þar sem búið er að setja upp skilti sem gefur til kynna að GSM-samband sé til staðar.

Theódór Norðkvist, 3.2.2008 kl. 16:43

5 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hvernig fórum við að fyrir farsíma?  Skil þig samt Ólína, það er ekkert eins pirrandi eins og sambandsleysi, ég tala nú ekki um ef fólk lendir í óhappi á vegum úti. Vonandi kemst þetta í lag hjá ykkur fljótlega. 

Ía Jóhannsdóttir, 3.2.2008 kl. 17:09

6 Smámynd: Diddi Siggi

Þetta sambandsleysi í djúpinnu er mjög bagalegt þar sem byggðin er orðin mjög strjál og litlir möguleikar á hjálp þegar á þarf að halda. Þetta sýndi sig síðast þegar þessi fluttningabíll valt þá komust björgunarsveitir frá ísafirði ekki á staðin vegna snjóflóðs á Súðavíkurhlíð og ekki kom heldur hjálp frá Hólmavík vegna ófærðar og slæms skyggnis.  Því miður þá held ég að sú staða sé komin upp að djúpið leggst endanlega í eyði þegar það fólk sem þar býr núna gefst upp á búskapnum og þá verður umferðaröryggi EKKERT í djúpinnu og því miður er næsta víst að þessi langa leið á milli Súðavíkur og Hólmavíkur á eftir að taka mannslíf, á því er í það minnsta mikil hætta.

Diddi Siggi, 3.2.2008 kl. 22:13

7 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Jón Frímann - þú rotar mig alveg með þessu tæknitali, veist greinilega þínu viti. En sannleikurinn er sá - eins og sést ef útbreiðslukortið er skoðað - að firðirnir í Ísafjarðardjúpi eru sambandslausir. Sennlega er hægt að hringja af sjó í sjálfu Djúpinu, en vegurinn liggur bara ekki þar. Það er vandamálið.

Ég veit að samband hefur aukist á Steingrímsfjarðarheiði. Annars er ekkert samband frá Steingrímsfjarðarheiði í Ögurnes - þar kemur smá kafli þar sem hægt er að hringja. Svo er ekkert samband fyrr en komið er í Áfltafjörð, ef undan er skilinn einn stuttur kafli. Frá Steingrímsfjarðarheiði til Álftafjarðar liggur vegurinn um fimm firði.

Afleitt.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 4.2.2008 kl. 10:12

8 Smámynd: Theódór Norðkvist

Einhvern tímann í haust náði ég að hringja á kafla á veginum upp Eyrarfjall, Mjóafjarðarmegin, á leið upp veginn. Það var samband á örstuttum vegspotta.

Theódór Norðkvist, 4.2.2008 kl. 14:15

9 Smámynd: Yngvi Högnason

Skrapp í fyrravor um Djúp á hjólinu og óvíða var samband þá, fyrir utan merkta staði.
   En að öðru, mig langaði að viðra hvort að ég sé einn um það að vilja beygja orð í netföngum. Eins og t.d. "ég sá þetta á ströndum.is" og "ég keypti rúmið eftir að hafa séð auglýsingu frá betrabaki.is". Eins gæti ég sagt að ég hefði lesið eitthvað í skutli.is. Er "pupullinn" það illa upplýstur að hann geti ekki greint hvert rétt netfang er þó að ekki sé það í réttu falli í tal eða ritmáli?

Yngvi Högnason, 4.2.2008 kl. 19:50

10 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Tek undir þetta með þér Yngvi - það er auðvitað eðlilegast að nota beygingu. Sama á við um bókarheiti. Það færist mjög í vöxt að láta titla standa óbeygða - því miður.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 5.2.2008 kl. 19:30

11 identicon

Samkvæmt útboði ríkiskaupa stendur til að bæta samband í Djúpinu þónokkuð. T.d. inní Ísafjörðinn, Skötufjörð og Hestfjörð. Einnig verður bætt samband innst í Álftafirði.

Sigurbjörn (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 22:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband