Fársjúkt atferli

Það hljóta að vera fársjúkir einstaklingar sem geta drepið dýr á þennan hátt.

Eins er ég afar hugsi yfir þeim hluta fréttarinnar að neyðarlínan skuli hafa svarað því til að lögreglan mætti ekki vera að því að "sinna svonalöguðu"  þegar vitni lét vita af því að verið væri að murka lífið úr dýrinu með því að sparka því á milli manna, lokuðu innan í íþróttatösku. Er þá ekki sama hvaða lög er verið að brjóta þegar lögregla er kölluð til? Eru dýraverndunarlögin léttvægari en t.d. sú skylda lögreglunnar að vernda söluturna fyrir stuldi á kókflöskum og skiptimynt? 

Ég á ekki orð yfir þetta atferli gagnvart vesalings dýrinu. Og það sem verra er, ég hugsa að þessir menn sem hlut eiga að máli fái vægan dóm - eftir svona 3 ár - þegar dómskerfið má vera að því að "sinna svonalöguðu". 

Dýraverndarlögin vega því miður ekki þungt á vogarskálum réttvísinnar, um það eru ýmis dæmi, sum nýleg. 

Sem hundaeigandi votta ég eigendum Lúkasar samúð mína.

 


mbl.is Hundrað manns á kertavöku til minningar um hundinn Lúkas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Skelfileg meðferð á blessuðu dýrinu. Eitthvað mikið að hjá þeim einstaklingum sem þetta gerðu. Ég var gestkomandi á Akureyri þessa umræddu helgi og verð aðeins að rétta við hlut lögreglunnar. Ástandið í bænum var slíkt, að sennilega átti lögreglan á staðnum fullt í fangi með að verjast þeim rumpulýð sem óð sauðdrukkinn um allan bæinn fram á morgun. Aldrei, hvorki fyrr né síðar orðið vitni að öðrum eins skrílslátum og viðbjóði og átti sér stað þessa helgi á Akureyri.Skrifaði reyndar smá pistil um þessa helgi á bloggið mitt.(Kann ekki að linka)

Halldór Egill Guðnason, 29.6.2007 kl. 01:22

2 Smámynd: Sylvía

Sylvía , 29.6.2007 kl. 01:23

3 identicon

ég get ekki skilið þetta og kem þeirri ímynd sem mér kom til hugar er ég las fréttina ekki úr huganum. Ég vil að þeir sem að frömdu þennan verknað fái að upplifa þá hræðslu sem hundurinn hefur upplifað......eg virkilega finn fyrir hatri. Ég trúi því einnig að því miður muni þeir ekki þurfa að gjalda fyrir brot sitt á þann hátt sem að þeir eiga skilið. Ég skil ekki hvað fær lögregluna til að bregðast svona við heldur. Einnig hef ég eina spurningu...af hverju gerði vitnið ekkert í málinu. er hægt að standa bara og fylgjast með svona löguðu!?! það gæti ég allavega ekki, varla hefur hópþrýstingurinn verið það mikill að það hafi verið þess virði að standa hjá og fylgjast með svona löguðu. Ég á ekki orð og það fá engin orð því lýst hvers konar viðbjóð og ógleði ég finn fyrir þegar að ég hugsa um þá sem að frömdu þennan verknað!

Lilja (IP-tala skráð) 29.6.2007 kl. 01:46

4 identicon

Hvernig væri að Hegningarkerfið á þessu landi okkar myndi aðeins byrja að vakna til lífsins, Maður sér menn sem hafa eyðilagt annað fólk á andlegan eða líkamlegan hátt fá þá fáránlegustu dóma sem sést hafa sleppa með nokkra mánaða "Frí" í fangelsi eða skilorðsbundið.

Við ættum að taka ríki eins og singapore til fyrirmyndar þar sem að fólk þorir ekki að fremja glæpi eins og þennan gagnvart dýrum eða mönnum því að þar eru refsingarnar svo harðar.....Samkvæmt minni dómgreind í þessu mál með hundinn þá ætti að taka þessa menn loka þá í kistu á hjólum og láta gossa niður ártúnsbrekkuna á móti umferð á háanna tíma!

ORRI (IP-tala skráð) 29.6.2007 kl. 01:46

5 Smámynd: Halldóra Halldórsdóttir

Er þetta sjúkt atferli eða glæpsamlegt atferli. Oft eigum við erfitt með að ákveða það þegar okkur skortir skilning á svona hegðun manna. En samt verður að greina þarna á milli því að annað kallar á refsingu en hitt á meðferð.

Halldóra Halldórsdóttir, 29.6.2007 kl. 01:57

6 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Ef rétt er þá hlýtur þessu unda fólki að líða verulega illa á sálinni

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 29.6.2007 kl. 10:01

7 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Átti að vera "Ef rétt er þá hlýtur þessu unga fólki á líðar verulega illa á sálinni"

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 29.6.2007 kl. 10:12

8 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Ég vorkenni bæði þeim sem ,,áttu" hundinn og ekki síður þeim aðstandendum ógæfumannanna, ssem níðingsverkið frömdu.

Væri ég foreldri slíks ógæfumanns, liði mér skelfilega, þar sem mér hefði klárlega mistekist, að undirbúa barn mitt fyrir lífið.

Að vísu er art manna misjöfn en--uppeldi er til þess ætlað að veita börnunum verkfæri til að talast á við eindir mannsins og verjast Höfuðsyndunum Sjö.

 Börnin eru hin nýja Aldamótakynslóð, munum það.

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 29.6.2007 kl. 10:34

9 Smámynd: Árni Helgi Gunnlaugsson

Hættum að sjúkdómsvæða alla skapaða hluti.  Svona lagað lýsir einungis illu innræti.  Mjög illu.  Við höfum í raun alltaf val um hvaða bræðralagi við þjónum; hinu hvíta eða hinu svarta.

Auvitað er ekki hægt að horfa framhjá því, að sumir hafa átt erfitt í æsku og hafa kannski ekki sömu forsendur til að hefja normalt líf og aðrir.  En ef erfið æska væri svona "krúsjal" í þessu sambandi, þá værum við með miklu miklu fleiri, sem stunduðu svona "sjúklega" hegðun.  Margir þeirra, sem verða fyrir ofbeldi í æsku, verða nefnilega vænsta fólk.

Þessi sjúkdómsvæðing á illu innræti er gengin svolítið út í öfgar.

Árni Helgi Gunnlaugsson, 29.6.2007 kl. 11:19

10 Smámynd: halkatla

það hefði verið rétt hjá lögreglunni að bregðast við þessu, sama hvernig á stóð, og það fólk veit örugglega uppá sig skömmina núna - alveg örugglega

halkatla, 29.6.2007 kl. 11:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband