Kalt er við Kárahnjúka

 karahnjukar   Aðbúnaður verkamanna á Kárahnjúkum hefur oft orðið tilefni fréttaskrifa - of oft að mínu mati: Svo virðist sem kuldi, léleg húsakynni, vondur matur og erjur ýmiskonar séu varanlegt hlutskipti þeirra sem þarna vinna. Það er óásættanlegt og auðvitað ekkert gamanmál.

 Þessar fréttir rifja hins vegar upp fyrir mér vísur sem urðu til í hálfkæringi á hagyrðingakvöldi sem ég tók þátt í fyrir tveimur árum. Ég leyfi þeim að fjúka hér - en árétta að auðvitað fylgir öllu gamni nokkur alvara - og um það er ekki að villast í þessu tilviki.

  • Kalt er við Kárahnjúka, 
  • kostur þar naumur bíður.
  • Klórar sér kalinn um búka 
  • krókloppinn verkalýður.

 

  • Ófriðar eru þar læti, 
  • enga finna menn hlýju
  • og fái þeir eitthvert æti
  • það efalaust veldur þeim klígju.

 

  • Já kalt er við Kárahnjúka
  •  og kulið beitir menn hörðu. 
  • Um tindana fannir fjúka 
  • og frost þiðnar aldrei úr jörðu.

Svo mörg eru þau orð að sinni.


mbl.is Tugir starfsmanna við Kárahnjúka veiktust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kárahnjúkar - ekki vildi ég vinna þar  

Vala (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 14:53

2 Smámynd: Ibba Sig.

Það hafa allir heyrt af slæmum aðbúnaði erlends verkafólks á Kárahnjúkum en ekki hélt ég að ástandið væri svona slæmt. Að vinna djúpt í iðrum jarðar, fá engan mat eða drykk í 12 tíma! Og aumingjans verkamennirnir að sleikja bergið til að svala sárasta þorstanum. Við ættum að skammast okkar. 

Ibba Sig., 23.4.2007 kl. 15:32

3 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Ég hitti mann um daginn sem vann að Kárahnjúkum s.l. sumar. Hann sagði mér að þar hefði verið veislu borð á hverjum degi,reyndar hefði fæði verið alltof gott menn hefðu hlaupið í spik.

Þú ættir að kynna þér málin áður en þú byrjað er að kveða Ólína. 

Ragnar Gunnlaugsson, 23.4.2007 kl. 16:07

4 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Sæll Ragnar.

Mér þykir leitt ef öll umfjöllun undanfarinnar ára um aðbúnað starfsmanna við Kárahnjúka hefur farið fram hjá þér. Ég ræð þér að fara inn á leitarvélar vefmiðlanna og skoða fréttir af þessum málum áður en þú hefur umvandanir þínar. 

Góð kveðja, 

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 23.4.2007 kl. 16:31

5 identicon

Það er nú ekki öllu trúandi sem kemur fram í fjölmiðlum. ég get alveg fullyrt af eigin reynslu að menn þurfa ekki að sleikja vökva af bergveggjum eða séu matar eða vatnslausir tímunum saman. Aðbúnaður verkamannanna er kannski ekki fullkomin en alls ekki jafn slæmur og lesa má í fjölmiðlum

Binns (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 17:10

6 identicon

Sæl Ólína.

Mér finnst nú gæta óþarfa viðkvæmni í þessari umfjöllun allri. Vinnuaðstæður manna eru nú iðulega þannig að ekki er hægt að vera með neitt pjatt.

Oft hef ég matast upp um fjöll og firnindi  í fjárleitum og á ferðalögum. Notast við vashnífinn til að spæna niður spikfeitt lambaket eða svið. Hnífurinn er notaður til ýmissa verka eins og gengur og aldrei settur í uppþvottavélina. Og aldrei hafa linast hjá mér hægðir af þessum sökum og satt að segja veit ég ekki um neinn sem hefur orði veikur neitt sérstaklega af því að matast við svona aðstæður.

Mér finnst líklegra að máltiðin umrædda á Kárahnjúkum hafi verið samsett úr skítahaugahoppurum(lesist: kjúklingum)smituðum af salmonellu eða einhverri álíka "hollustu", frekar en að aðstæður í "borðstofu" eða opin matarílát hafi valdið kveisunni.

Með kveðju,

Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 23:46

7 Smámynd: Árni Gunnarsson

Eða eins og gamla konan sagði:

Hérna er eilíf hungursnauð,

en henni brátt mun ljúka,

því afi þinn fór á honum Rauð

austur í Kárahnjúka.

Árni Gunnarsson, 24.4.2007 kl. 00:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband