Eins og steiktur tómatur

 Ég er sólbrennd eins og steiktur tómatur eftir daginn. Ţađ er ekki sjón ađ sjá mig.

En ţessi fyrsti dagur björgunarhunda-námskeiđsins gekk vel. Skutull stóđ undir nafni. Hann ţeyttist um móana á ógnarhrađa, svo mér komu í hug orđ Gríms Thomsen í Skúlaskeiđi:

Rann hann yfir urđir eins og örin
eđa skjótur hvirfilbylur ţjóti ...

Hann var léttur á sér og leysti sín verkefni vel; gelti eins og herforingi úti hjá ţeim týnda (fígúrantinum) og ţurfti ekki hvatningu til.  Ég er ekki enn farin ađ taka hann til mín í vísun - en mig grunar ađ ţess verđi ekki langt ađ bíđa.

En ... á morgun ćtla ég ađ muna eftir sólarvörninni - ţó hann rigni.

skutull08


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll A. Ţorgeirsson

Ţú "lofađir" ađ taka ţér frí frá bloggi á međan ţú fćrir í hundana.

Ertu alltaf svona "stađföst". 

Páll A. Ţorgeirsson, 23.5.2009 kl. 12:47

2 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Steiktir tómatar er oftast of heitir EN sólţurrkađir tómatar eru lostćti.

Lifi fjalldrapinn!

Ásgeir Rúnar Helgason, 23.5.2009 kl. 17:59

3 Smámynd: Hildur Helga Sigurđardóttir

Ţađ er svo gaman ađ kenna hundinum sínum eitthvađ nýtt.  Ţeir eru svo ţakklátir nemendur -og finnst svo gaman ađ fást viđ ný verkefni.   Ađ ekki sé nú talađ um ţegar hiđ nýja gćti hugsanlega stuđlađ ađ lífsbjörg.

Líkt og međ mannsheilann, ţá held ég ađ stór hluti hundsheilans sé vannýttur.

Hildur Helga Sigurđardóttir, 23.5.2009 kl. 19:34

4 Smámynd: Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir

Páll - ég lofađi ađ taka mér frí frá pólitíkinni, en ekki áhugamálunum

Alltaf jafn stađföst.

Ólína Kjerúlf Ţorvarđardóttir, 25.5.2009 kl. 13:19

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband