Gott Hörður!

Hörður Torfason er maður að meiri núna - og sjálfum sér líkur - þegar hann hefur beðist afsökunar á óheppilegum orðum sem féllu í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær. Þetta var gott. Heart

Áfram Hörður!


mbl.is Baðst afsökunar á ummælum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Sæl Ólína.

Ég er sammála þér.

Guðmundur Óli Scheving, 24.1.2009 kl. 17:17

2 Smámynd: Gunnlaugur Halldór Halldórsson

sæl. Ólína.

Tek undir þetta. Áfram Hörður

Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 24.1.2009 kl. 17:23

3 Smámynd: Einar Karl

Fundurinn var virkilega flottur, fyllti mann baráttuanda og von! Ræðumenn voru hver öðrum betri og Hörður gerði algerlega hreint fyrir sínum dyrum. Margir úti á landi hafa eflaust hlýtt á útsendingu útvarpsins (var ekki örugglega öllum fundinum útvarpað?) og fá vonandi að sjá myndir í sjónvarpi.

Einar Karl, 24.1.2009 kl. 18:15

4 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Tek heils hugar undir það.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 24.1.2009 kl. 18:25

5 Smámynd: Harpa Oddbjörnsdóttir

Ég náði einmitt að hlusta á afsökunarbeiðni Harðar rétt áður en ég fór út úr bílnum til að mótmæla á Silfurtorginu á Ísafirði. Gott hjá kallinum:)

Harpa Oddbjörnsdóttir, 24.1.2009 kl. 18:33

6 identicon

Jafn manneskjulegur og Geir, og við öll.  Stundum eins fólk gleymi því.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 20:18

7 identicon

Samúð er tilfinning.
Er hægt að hneykslast á að einhver sýni ekki samúð?
Er hægt að hneykslast á að einhver elski ekki nógu mikið?
Er hægt að hneykslast á að einhver sýni ekki nægilegt traust?

Er hægt að skylda manneskju til að sýna þeim samúð sem hefur eyðilagt líf hennar og ættingja hennar?

Jón (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 21:51

8 identicon

Hörður var einn af þeim fáu sem hafa tjáð sig um þetta
tilfinningaklám.

Í stað þess að viðurkenna að ríkisstjórnin er fallin,
Sjálfstæðisflokkurinn blandar saman tilkynning um
kosningartillögu og veikindi hans Geirs til að breiða yfir
niðurlæginguna sem flokkurinn gengur nú í gegnum og safna sér
stuðningi og samúð. Þetta var bara pólitiskt strategía.

En ég vorkenni þau sem horfði á Geir og Davið sem Jesús og Guð
þeirra, og Sjálfstæsðisflokkur sem trú: það hlýtur að vera
ótrúlega erfitt að fatta allt í einu að Guð og Jesús þeirra eru
búinn að svikja þeim allan tíma. Sjálfstæðisflokkur,
Rikistjórn, Davið Oddsson og FME eru landráðamenn sem munu
aldrei biðja um afsökunnar..

Svona var mótmælt í gær:
http://www.youtube.com/watch?v=VjptqbfYcEI&eurl

Reynir (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 00:49

9 identicon

Samúðin ristir ekki djúpt gagnvart þeim sem eiga bágt í þessu þjóðfélagi.

Fólk deyr á götum úti í Reykjavík. Hvar er samúðin þá?

Það er skoplegt að sjá þegar gáfumannafélagið er að keppast um að setja Íslandsmet í samúð og ávíta aðra fyrir skort á samúð.

Þetta er blanda af móðursýki og hræsni.

Þessi færsla Jónasar Kristjánssonar er gott innlegg í þessa umræðu.

 Sjá:

http://www.jonas.is/

24.01.2009
Hörður kúgaður til hlýðni
Hörður Torfason baðst afsökunar að ástæðulausu. Hann var þvingaður til þess, því að við búum í samfélagi hræsni og yfirdrepsskapar. Niðurlægjandi er að lúta höfði til virðingar því krumpaða samfélagi. Hörður hafði kvartað yfir, að Geir Haarde tengdi veikindi sín við pólitík. Það var rétt kvörtunarefni. Hræsnarar og yfirdrepsfólk neituðu að mæta á útifundinn í dag vegna orða Harðar. Nú geta þeir mætt aftur, því að hann hefur látið kúgast. Ég sé ekki, að honum sé neitt gagn í stuðningi hræsnara og yfirdrepsfólks. Það fólk er hluti vandans, ekki partur af nýju Íslandi. Látum það koma upp um sig.

Jón (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 01:02

10 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

hörður baðst afsökunar vegna þess fjölda "stuðningsmanna " hans sem fordæmdu sóðaskapinn.

Afsökunarbeiðnin er því jafn innantóm og fölsk og hann er sjálfur.

Núna ætla þessir hópar að bjóða fram - hóf Nasistaflokkurinn ekki starfssemi sína með ofbeldi - og lauk henni með heimsstyrjöld.

Það verður fróðlegt að fylgjast með framboðum þeirra og afleiðingum þeirra.

Ólafur I Hrólfsson

Ólafur Ingi Hrólfsson, 25.1.2009 kl. 07:23

11 Smámynd: Baldur Gautur Baldursson

Gott hjá Herði Torfa!   VIð erum málefnaleg og verðum að halda stíl í því sem við gerum. Stíl og stolti sem stjórnmálamenn hafa ekki!

Baldur Gautur Baldursson, 25.1.2009 kl. 08:00

12 identicon

Ég persónulega veit ekki hvers vegna Hörður baðst afsökunar en margir hafa látið ýmislegt flakka. Meðal þeirra eru Ingibjörg og Geir. Hver sagði t.d.: "Þið eruð ekki þjóðin" og "Við hlustum ekki á skrílinn"? Auðvitað er það hræðileg lífsreynsla að fá þann þunga dóm að vera með illvígan sjúkdóm, en sjúkdómar fara aldrei í manngreinarálit. Núna, þegar Sjálfstæðismenn standa sjálfir frammi fyrir slíku áfalli fara þeir vonandi (a.m.k. þeir sem eru mannlegir) að endurskoða aðgerðarlista sinn í heilbrigðisgeiranum. Margoft hefur fólk þurft að fá "blauta tusku í andlitið" til að vakna!!! Geir á alla mína samúð í veikindum sínum en lífið heldur áfram.    Ísland lengi lifi!

Elísabet Sæmundsdóttir.

Elísabet Sæmundsdóttir (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 10:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband