Framsókn gamla hressist ađeins

Ég sé ekki betur en Framsóknarflokkurinn sé bćrilega staddur međ mannval ef marka má ţetta formannskjör. Sigmundur og Höskuldur eru báđir afar frambćrilegir menn og hin nýja forysta flokksins hefur yfir sér ferskt og trúverđugt yfirbragđ. Ţó byrjunin hafi veriđ svolítiđ brösuleg vil ég óska Sigmundi Davíđ til hamingju međ kosninguna. Ţađ er ánćgjulegt ađ sjá nýtt fólk međ heilbrigđar áherslur kveđa sér hljóđs á stjórnmálasviđinu núna.

En ég stenst ekki mátiđ ađ skella hér inn tveimur góđum ferskeytlum sem urđu til á Leirvefnum í kvöld. Ţessi er eftir Pétur Stefánsson:

Í Framsókn er bćđi fjör og drama,
-fremstur var Höski í sigurliđi
og stóđ í ljósi frćgđar og frama
í fimm mínútur uppi á sviđi.

Og hér er önnur eftir Davíđ Hjámar Haraldsson:

Lokatölur beint úr flokksins bók
baksar viđ ađ lesa ţegar húmar;
Haukur gaf og Haukur síđan tók
af Höska eftir fimm mínútur rúmar.

Já -  ţađ á ekki af ţeim ađ ganga framsóknarmönnum.


mbl.is Sigmundur kjörinn formađur
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ár & síđ

Og hér er ein góđ eftir hann Gísla á Málbeininu:

Mistökin einkenndu framsóknar fund
formađur lofi var hlađinn
kappinn á sviđi var kóngur um stund
- svo kynntu ţeir annan í stađinn.

Matthías

Ár & síđ, 18.1.2009 kl. 23:36

2 Smámynd: Hólmfríđur Bjarnadóttir

Ţađ er sagt ađ Sigmundur sé 5. formađur flokksins á tveim árum. Ég mundi segja sá 6. ţó valdatími Höskuldar hafi veriđ í styttri kantinum. Formenn flokksins á ţessum tveim árum hafa líka nokkrir hćtt óvćnt og án fyrirvara.

Hólmfríđur Bjarnadóttir, 19.1.2009 kl. 00:03

3 Smámynd: Sólrún Guđjónsdóttir

já Höskuldur var formađur í 5 mínútur

Sólrún Guđjónsdóttir, 19.1.2009 kl. 00:44

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband